Vísir - 17.08.1967, Page 1
i
1 • V 'i
Smjörfjallið hækkar á ný
Rúml. 300 lestum landað
úr Júpiter
— Egill Skallagrimsson kemur i dag
— Dágóður afli togaranna
Nú er verið að landa úr togar-1 Um kl. 12.30 í dag kemur1 Egill
anum Júpiter í Reykjavik, en hann Skallagrímsson til Reykjavíkur og
j kom hingað til Reykjavíkur í fyrra- mun leggja afla sinn á land hér.
dag. Afli hans er um 300 lestir. | Ekki er enn vitað hve afli hans
er mikill en hann er mestmegnis
karfi. Hefur Egill veriö á heima-
miðum, að því er útgerð skipsins
upplýsti f morgun.
Afli togaranna hefur verið dágóð
ur undanfarið og það sem af er
ágústmánuði hafa rúmlega 2000
lestir borizt á land í Reykjavík. —
Hefur sá afli farið til vinnslu í
frvstihúsum borgarinnar. Aflinn
hefur mestmegnis verið karfi.
kunnugt er fariö síminnkandi,
og voru ekki orðnar nema 492
tonn 1. iúní. Um siðustu mán-
aðamót voru birgðimar orðnar
648 tonn, sem er 156 tonna aukn
ing. Sú aukning er þó minni, en
á undanförnum árum á sama
árstíma.
Vegna þeirra ráöstafana,
sem gerðar höfðu verið til þess
að lækka smjörfjallið með lækk
un smjörverðs og aukinni fram
leiðslu osta og nýmjólkurdufts
minnkuðu birgðirnar ört. Um
síðustu áramót voru þær orðnar
340 tonn og minnkuðu jafnt og
þétt þar til 1. júní að þær voru
orðnar aöeins 492 tonn. Þá
hækkaði smjörfjallið aftur.
Slíkt á sínar orsakir að rekja
til þess, að margir bændur hafa
stefnt að því að kýr þeirra
bæru á vorin og því verður nyt-
in úr þeim mest á sumrin. Svo
hefur og aukizt mjólkurfram-
leiðslan þegar kýmar komu úr
fjósum eftir veturinn og á gras-
ið.
Framleiösluaukning smjörsins
er þó minni í sumar en mjög
undanfarin sumur enda ekki
framleitt meir af því en brýn-
asta nauðsyn krefur. I stað þess
hefur verið lögð áherzla á fram-
leiðslu osta og nýmjólkurdufts.
Haraldur ríkisarfi fór í
reiðtúr í Kollafirði í morgun
Nú er hinni opinberu heim-
sókn Haralds riklsarfa senn lok-
ið og mun hann fljúga til Nor-
i-gs siðdegis á morgun.
Fyrir hádegi í dag var dagur-
inn frjáls, og fór Haraldur í reið-
túr snemma i morgun uppi við
KoIIafjarðarrétt á Kjalarnesi.
Klukkart 4 í dag verður honum
haldið boö í norska sendiráðinu,
og verður boðið þangað ýmsum
Norðmönnum búsettum hérlend-
is. I kvöld verður siðan haldlð
kveðjuhóf fyrir rikisarfann. Á
morgun mun hann snæða há-
degisverö i Nausti, en síðan
fljúga frá Keflavíkurflugvelli
kl. 15.20.
Smjörblrgðimar hafa aukizt
í sumar, en þær höfðu eins og
ÞÆR
STUTT
KLÆDDU \
s
•
Þessar laglegu stúlkur heita •
Ragnhildur Bender (t. v.) og J
Guðrún Þórðardóttir og eru 18 J
ára. Þær sögðu í stuttu spjalli «
að þær ætluöu að vera 18 ára J
næstu 4—5 árin. Uppáhalds- J
hijómsveit þeirra er Rolling •
Stones og þær skemmta sér aö- J
allega í Glaumbæ. Þær eru ný- •
komnar frá London og eru mjög •
hrifnar af síðu tízkunni ( til að J
geta aftur farið að lyfta pils- •
faldinum með árangri). Sérstök •
athygli skal vakin á fótabúnaöi J
Guðrúnar, en hann hefur verið •
nefndur ýmsum nöfnum, eins og: •
Jesúskór, sænskir skór, víkinga- J
skór, þvengjaskór, ballettskór, •
bandaskór o. fl. o. fl. •
57. árg. - Finyntudagur 17. ágúst 1967. -
Verða nótaveiðarnar í
Þistilfirði kærðar?
Um þessar mundir stendur yfir
athugun á því, hvort dæma beri
ólögmæta nótaveiðina, sem að und-
anfömu hefur verið stunduð í Þist-
ilfirði. Fjölmargir bátar hafa verið
þama að veiðum með nót og fengið
mikinn þorskafla. Útgerðarmenn á
Þórshöfn hafa hins vegar farið þess
á leit að veiðamar verði stöðvaðar
þegar í stað, þar sem bátamir séu
með smáriðnar nætur og ausi þeir
því upp miklu^ af smáfiski, en
þama eru mikiívægar þorskupp-
eldisstöðvar.
Möskvastærð þorskanóta á að
vera 110—120 mm og er bannaö að
nota aðra möskvastærö við þorsk-
veiðar. Varðskip var sent til þess
að athuga veiðarnar og veiðarfæri
bátanna og er nú beðið eftir niður-
stöðum þeirrar athugunar og mun
Landhelgisgæzlan væntanlega kæra
veiðamar til sýslumannsins eystra,
ef þær þykja ólögmætar.
Bátarnir, sem veiðarnar stunda,
eru flestir af stæröinni 50—60 tonn
og hafa verið á ufsaveiðum í sum-
Framhald á bls. 10.
Svifnökkvinn á leið upp á Krosssand. — Frétt um fyrstu reynsluferðina er á baksíðunni.
IBM STOFNAR ÚTIBÚ Á ÍSLANDI
— Búast má v/ð aukinni þjónustu og notkun
rafreikna og skýrslugerðarvéla
Hið heimsþekkta bandaríska stórfyrirtæki IBM World
Trade Corporation hefur stofnað útibú á íslandi. Fyrirsvars-
maður fyrirtækisins á íslandi er Ottó A. Michelsen í Reykja-
vík, en hann hefur áður verið umboðsmaður fyrir IBM á
Íslandi. Frá þessu er sagt í nýjasta Lögbirtingablaði, sem
Vísi barst í morgun. Hér á íslandi mun fyrirtækið starfa að
hvers konar skýrsluvélaþjónustu, þar á meðal leigu og út-
vegun á skýrsluvélum og rafreiknum.
IBM hefur sett á stofn útibú í
flestum löndum heimsins, og hvar
vetna prýða hinar glæsilegustu stór
byggingar fyrirtækisins borgir. —
Mun Ottó A. Michelsen hafa veriö
eini umboðsmaður IBM I öllum
heiminum, því að í öllum öðrum
löndum, sem fyrirtækið starfaði í,
hafði það útibú. í hinu nýja útibúi
hér á landi eru 5000 hlutir og stofn
höfuðstóll er $15000 eða um 6
milljónir og 750 þús. fsi. kr. Hluta-
fjársöfnun er lokið og allt hlutafé
greitt. Ekki er vitað, hvort hið nýja
form fyrirtækisins býður upp á
breytta þjónustu eða ekki, en þó
er lfklegt að svo sé. Forsvarsmenn
fyrirtækisins hafa boöað blaðamenn
á sinn fund kl. 15.30 f dag.