Vísir - 17.08.1967, Blaðsíða 3

Vísir - 17.08.1967, Blaðsíða 3
VISIR. Fimmtudagur 17. ágúsi 1967. 3 l \ ! í síðastaleik milli trjánna í Reykholti. Þessar stúlkur sungu Snatavísur á kvöldvökunni, Það hefur löngum verið eitt mesta tilhlökkunarefni kaup- staðabarna þegar prófum lýkur á vorin að komast „í sveitina“. Sum hafa farið i heimsókn tll skyldmenna, sem búa í sveit, en önnur dvalizt aUt sumarið á sveltaheimilum og hjálpað til við sveitastörfin. Á síðustu ár- um hefur gerzt æ erfiðara að koma börnum á sveitaheimili, en betta hefur þó verið bætt upp með ýmiss konar sumarbúðum fyrir böm. Hefur Þjóðkirkjan haft langflest böm á sínum veg um í sumarbúðum, á þessu sumri um 550 böm. Við áttum stutta heimsókn í Reykholt, og leyfði sumarbúða- stjórinn, sr. Ingólfur Guömunds- son okkur að taka nokkrar myndir af bömunum við Ieik og störf. Þegar við komum vom telpumar að ljúka við kvöldverðinn og var sungiö há- stöfum í borðsalnum: „Allur matur á aö fara, upp í munn og niðr’í maga ...“ Það vora nefnilega nokkrar telpur sem höfðu gleymt sér við matinn og Iiöfðu ekki hálfloklð við hann, þegar hinar voru búnar. Var þetta síðan sungið þangað til allar telpurnar höfðu lokiö viö matinn sinn. Því næst var haldið til kvöldyöku og sáu telp umar um ýmis skeinmtíatriði, söng, leik, upplestur og fleira. Sýnd var kvikmynd og síðan var útbýtt sælgæti, en öllu sæl- gæti sem telpurnar fá sent er safnað saman í kassa sem síðan er borinn á milli þeirra á kvöld vökum. Eftir bænastund og kvöldkaffl þyrpast telpurnar upp á ganginn, þar sem herberg in þeirra eru. Við spurðum nokkrar hvernig þeim likaði í Reykholti og svöruðu þær full- um hálsi: „Það er svo ægilega gaman, vtð fengum að sjá krónprinsinn í gær og á morgun föram við kannski í berjamó“. Eftir heilmikinn hamagang við að þvo sér og bursta tennur féll allt í ljúfa löð og klukkan ellefu IfoyrSist ekkert hljóð á ganglnum og telpurnar voru steinsofnaðar eftir önn dagsins. Við Snorralaug. HEIMSÓKN í REYKHOLT

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.