Vísir - 19.09.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 19.09.1967, Blaðsíða 2
2 V í SIR . Þriðjudagur 19. september 1967. Úrslit ensku knattspym- unnar á laugariaginn 8. umferð ensku deildarkeppn- innar í knattspyrnu var leikin á laugardaginn. Úrslit urðu þessi: 1. deild: Arsenal—Tottenham 4—0 Burnley—Sunderland 3—0 Chelsea—Stoke 2—2 Everton—Leeds 0—1 Leicester—Fulham 1—2 Man. City—Sheff. Utd. 5—2 Newcastle—Coventry 3—2 Sheff.Wed.—Man. Utd. 1—1 Southampton—Liverpool 1—0 WBA—Notth. Forest 2—1 West Ham—Wolves 1—2 2. deild: Birmingham—Blackburn 1—1 Bolton—Carlisle 2—3 Bristol City— Blackpool 2—4 Charlton—Aston Villa 3—0 Derby—Plymouth 1—0 Huddersfield—Ipswich 1—4 Hull—Crystal Palace 1—1 Middlesbrough—Millwall 0—1 Norwich—Portsmouth 1—3 Preston—QPR 0—2 Rotherham—Cardiff 3—2 Hið vinsæla og þekkta lið Arsenal, sýndi frábæran leik, er það á heimavelli sínum, Highbury, sigraði Tottenhamliðið, sem státar af stjörnum eins og Greaves, Gil- zean, Mackay, England o. fl. 4—0 urðu úrslitin og það mjög sann- gjörn. í fyrri hálfleik skoraði Arsenalliðið tvö mörk, er Radford, miðherjinn, skoraöi fallegt mark. Neil skoraði síðan annað markiö úr vítaspyrnu. I síðari hálfleik skoruðu Graham og Addison. í leikslok fögnuðu hinir 62836 áhorf- endur sigurvegurunum ákaflega. Aðsóknin aö leiknum var gífurleg, mesta aðsókn að deildarleik I Eng- landi, þaö sem af er þessu keppn- istímabili. Liverpool, sem var í efsta sæti Peter Radford fagnar eftir að hafa skorað fyrsta rnarkið gegn Tortten- ham á Highbury leikvanginum. Þessi leikur, Arsenal-Tottenham verður sýndur næsta laugardag í sjónvarpinu, íslenzka. Martin Chivers skorar hér sigur- mark Southamptons gegn Liver- pool. 1. deildar áöur en 8. umferðin hófst tapaöi á útivelli gegn Sout- hampton, 0—1. Er leikurinn hafði aöeins staðið í 30 sekúndur kom eina mark leiksins, er Chivers skallaði fallega í markið úr auka- spyrnu. Liverpool fékk síðar í fyrri hálfleik vítaspyrnu, en markvörð- ur Southampton varði glæsilega. Wolverhampton vann nokkuð ó- vænt West Ham. Dougan skoraði bæöi mörk Wolves, sigurmarkið er aðeins 2 mín. voru eftir af leiknum. Þá vann Fulham óvæntan sigur gegn Leicester, og það var „gamli góði“ Haynes, hinn margreyndi enski landsliösmaöur, sem skoraði sigurmarkiö. í Skotlandi léku Rangers og Celtic einn af þessum mikilvægu leikjum sínum, en þessi tvö lið eru langbeztu lið Skotlands. 1 þetta sinn sigruðu Rangersmenn, 1—0, og var sá sigur sanngjarn. 90 þús. áhorfendur sáu leikinn. Þetta var þriöji leikur þessara félaga á þessu keppnistímabili, og fór sá fyrsti 1—1, annan leikinn sigraöi Celtic, 3—1. Aberdeenliðið sem lék gekn KR á dögunum, gerði jafntefli, 1—1, á útivelli gegn St. Johnstone. Efstu liðin í ensku deildakeppn- inni eru nú: 1. deild: 1. Liverpool 11 stig. 2. Arsenal 11 st. •8. Manchester City 11 st. 4. Sheff. Wednesday 11 st. 5. Tottenham 11 st. 19. West Ham 5 st. 20. Leicester 5 st. 21. "Coventry .5 st. 22. Sheff Utd. 4 st. 2. deild: 1. QPR 13 stig. 2. Blackburn 12 st. 3. Blackpool 12 st. 4. —9: eru: Portsmouth, Derby, C. Paiace, Bolton, Birmingham og Ipswich, öll með 10 st. 18. Aston Villa 4 st. 19. Hull City 4 st. 20. Middlesbrough 4 st. 21. Rotherham 4 st. 22. Bristol City 3 st. FELAGSLÍF Knattspyrnufélagiö Valur. HANDKNATTLEIKSDEILD. Æfingatafla deildarinnar veturinn 1967—1968. Meistaraflokkur karla: Þriðjudaga kl. 20.30. Fimmtudaga kl. 21.20. Föstudaga kl. 21.20. I. flokkur karla: Mánudaga kl. 22.10. Laugardaga kl. 18.00. II. flokkur karla: . Mánudaga kl. 21.20. Þriðjudaga kl. 19.40. Fimmtudaga kl. 22.10. III. flokkur karla: Mánudaga kl. 19.40. Fimmtudaga kl. 18.50. IV. flokkur karla: Þriðjudaga kl. 18.00. Sunnudaga kl. 9.30. Meistaraflokkur og 1. fl. kvenna: Mánudaga kl. 20.30. Fimmtudaga kl. 20.30. II. flokkur kvenna: Mánudaga kl. 18.50. Fimmtudaga kl. 19.40. Telpur, byrjendur: Mánudaga kl. 18.00. Fimmtudaga kl. 18.00. Valsfélagar ath.: Æfingar hefj- ast r þegar, í iþróttahúsi Vals að Hlíðarenda við Laufásveg. Mætið vel og stundvíslega frá upphafi. Nýir meðlimir velkomnir. Stjómin. Gordon Banks, landsliðsmarkmaður Englendinga, bjargar hér á síð- ustu stundu í leik STOKE og Chelsea, en leikurinn endaði 2—2. Baldwin, miðherji Chelsea er aðeins of seinn tll að skalla i netið. Reykvískir ungling- ar á Hafniaden Eins og frá hefur verið skýrt i blöðum tóku 8 reykvískir unglingar þátt í íþróttamóti í Kaupmannahöfn dagana 30. ágúst—1. sept. s.l. Mót þetta var einn liður í há- tíðahöldum í sambandi við 800 ára afmæli Kaupmannahafnarborgar. Þátttakendur voru hátt á þriðja þúsund víðsvegar að úr heiminum. Kaupmannahafnarborg bauð ís- Ienzka hópnum frítt uppihald í Dan- mörku í hálfan mánuð svo og margar kynnisferðir um landið. Reykjavikurborg greiddi feröa- kostnað unglinganna til og frá Kaupmannahöfn. Auk frjálsra íþrótta var keppt í sundi, leikfimi, knattspyrnu, hand- knattleik, körfuknattleik, glímu o. fl. íþróttum. Var þetta hið vegleg- asta mót, enda oft kallaö Litlu olympíuleikarnir. Mótið tókst mjög vel og móttök- ur af hálfu Dana voru ágætar. Ár- angur íslenzku unglinganna var sem hér segir: Snorri Ásgeirsson var nr. 3 í 110 m. gr.hl. á 16.8 sek. (Keppend- ur voru 8). Friörik Óskarsson var nr. 5 í Þri- stökki, stökk 12.09 m. (Keppendur voru 8). Finnbjörn Finnbjömsson var nr. 5 í spjótkasti, kastaði 46.04. (Kepp- endur voru 10). Rúdólf Adolfsson var nr. 6 i 400 m. hl„ hljóp á 53,9 sek., sem er nýtt ísl. drengjamet. (Keppendur vom 10). Bergþóra Jónsdóttir var nr. 10 í 200 m. hl. á 27.4 sek. (Keppendur voru 18). — Hún tók einnig þátt í 100 m. hlaupi þar sem hún fékk tímann 13.1 sek. og komst í milli- riöil. Bergþóra varö í 10 sæti. — (Keppendur voru 16). Ingunn Vilhjálmsdóttir var nr. 7 í hástökki, stökk 1.36. (Kepp- endur voru 9). Eyg Hauksdóttir var nr. 8 í spjótkasti, kastaði 25.78. (Kepp- endur voru 10. Guðný Eiríksdóttir var nr. 14 i langstökki, stökk 4.31. (Keppend- ur voru 15). Selfyssingar meistarar í öSrum fíokki — Urmu Keflv'ikinga 2:0 □ Selfyssingar og Keflvík- lngar börðust hraustlega í úr- slitum 2. flokks í grenjandi rign- ingu og á blautum og aurugum Melavellinum í síðastl. viku. — Selfoss sigraði meö 2:0 og var sigur þeirra sanngjam, því iið- ið sýndi mun betri leik en Kefl- víkingarnir. □ í hálfleik var staðan 0:0, en bæði mörk Selfyssinga komu seinni hluta síðari hálf- leiks, það fyrra rétt eftir aö hálfleikurinn var hálfnaður, og það síðara nokkrum mínútum síðar. Fyrra markið skoraði Sverri. Einarsson miðherji mjög .laglega, en það síðara skoraði Gylfi Gíslason mjög skemmtilega úr vítaspyrnu, en Gylfi var áberandi bezti maður- inn í þessum leik ásamt merk- verði Selfyssinga, sem er gott efni. □ Það er ástæða til að óska Selfyssingum til hamingju með þennan sigur. Þeir eru stöðugt á uppleið og án efa eiga þeir eftir að koma viö sögu í 1. deild, — þ.e. EF þeir halda áfram að læra, og ég vil undirstrika að margt er enn ólært og liðið verður að leggja hart að sér eigi verulegur árangur að nást •' framtíðinni, en hitt er ör- uggt, að efniviðurinn er fyrir hendi á Selfossi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.