Vísir - 19.09.1967, Qupperneq 5
5
VÍSIR , Þríðjudagur 19. september 1967.
■hhííhm
HENTUGAR HIRZLUR
— snyrtilegt heimili
Ein höfuöundirstaöa góðrar umgengni á heimilinu eru
góðar og skipulagðar hirzlur fyrir eigur fjölskyldunnar. -
Geymslur og skápar hafa löngum veriS innréttuð á fremur
einhæfan hátt hjá okkur fslendingum, en nú eru komnar á
markaðinn fjölda margar gerðir af körfum og grindum, sem
tilvaldar eru í innréttingar á skápum og geymslum og skapa
möguleika á mikhi meiri fjölbreytni í þessum efnum en við
höfum hingað til vanizt.
Skáaleysi er margri húsmóð-
ur áhyggjuefni og snyrti-
mennska á heimilinu er hreint
ekki svo lítið undir því komin
hvemig skápum er fyrirkomið.
Skortur á nægum hirzlum fyrir
föt, skófatnað, leikföng, heim-
ilisáhöld o. fl., gerir húsmóður-
inni mjög erfitt fyrir í tiltektum
og hlutimir vilja veröa á rúi og
stúi út um allt, þar sem engin
ákveðin geymsla er fyrir hvern
hlut. Innbyggðir skápar þykja
sjálfsagðir í flestum íbúðum, en
þeir hafa löngum verið innrétt-
aðir á fremur einhæfan hátt, og
litlir möguleikar til að breyta
þeim. Þetta er nú nokkuö að
breytast, og á síðustu árum hef-
ir mjög færzt í aukana að hafa
sérstakt fataherbergi inn af
svefnherberginu, þar sem bæði
er hægt að hengja föt og hafa
hillur. Yfirleitt er nokkuð dýrt
að láta smíða innbyggða skápa
í íbúðir hér á landi, og mun al-
gengt að fólk, sem er aö byggja
reyni að smíða sér skápa sjálft
og spara meö því peninga.
Margir láta duga að hafa þykkt
hengi fyrir skápunum fyrst í
staðinn fyrir hurðir, þar sem
þær eru yfirleitt nokkuð dýrar.
Fallegt gluggatjaldaefni í sam-
ræmi við litina á herberginu
getur verið mjög hlýlegt, og má
setja það upp með „amerískum
uppsetningum", eins og vana-
leg gluggatjöld. Einnig fást
stangir, sem ætlaðar eru fyrir
gluggatjöld, og hringir til að
festa á efnið og má þá draga
það auðveldlega fyrir og frá.
Fyrir þá sem vilja útbúa góða
skápa á ódýran og hentugan
hátt eru nú komnar í verzlanir
hér i bænum hentugar körfur
úr plasthúðuðu stáli og fást
listar til að festa innan á skáp-
inn sem körfunum er rennt
upp á. Kostar parið af þessum
listum kr. 31.75.
Eru körfur þessar frá sænsku
fyrirtæki, ELFA, og fást í fjölda
mörgum stærðum og gerðum.
Einnig er tilvalið að setja þess-
ar körfur innan á eldhússkápa,
t.d. í skápinn undir vaskinum,
sem oft vill nýtast illa, eða
innan í saumaborð og skrifborð.
Má útbúa mjög hentugt vinnu-
borð bæði fyrir húsmóður og
húsbónda úr venjulegu eldhús-
borði með því að festa körfur
undir það. 1 eldhúsbúri og
geymslum er mjög gott að hafa
slíkar körfur, þar sem auðvelt
er að sjá hvað geymt er í hverri
körfu, og ekki þarf aö róta öllu
til við að finna það sem leitað
er að. Kvenfólk hefur gjarna
þann leiða ávana að vera lengi
að klæða sig. Rótað er í öllum
skúffum til að finna nylon-
sokka, þegar þeir eru fundnir
Frá þessu sama fyrirtæki fást
fjöldamargar gerðir af grindum,
bökkum, skúffum, og er eftir-
tektarvert hvað verð á þessum
vörum er hagstætt. Skógrindur
fást einnig af mörgum stærðum
og gerðum, bæöi lágar með
bakka undir, og svo grindur
með þremur eða fjórum hillum,
og eru þær mjög skemmtilegar
á ganga og í forstofur. Þær eru
er farið að leita að hreinum
undirkjól, síðan peysu, skóm
o.s.frv., og svefnherbergiö lítur
út eins og eftir loftárás þegar
frúin er loksins búin aö búa
sig.. Hirzlur, sem hægt er að
sjá í fljótu bragöi hvað geyma,
ættu að geta stytt talsvert þann
tíma, sem tekur kvenfólk yfir-
leitt að klæöa sie.
svartar að lit og má setja tré-
fjöl eða bakka ofan á þær og
geta þær þá oröið til mikillar
prýði.
Körfur undir bréfalúgur eru
einnig fáanlegar og eru þær til
mikilla þæginda þar sem algengt
er að bréf og blöð óhreinkist
og lendi undir fótum manna, ef
þau eru látin lenda beint á for-
Tafla fyrir
yngsta fólkið
:;ú eru skólarnir byrjaðir og
undanfarið hefur verið mjög
mikið að gera í bókaverzlunum
bæjarins. Margar nýjar og
skemmtilegar skólavörur hafa
komið á markaðinn núna í
haust, tni. margar sérlega hent-
ugar skólatöskur og er lita-
valið í skólatöskunum nú fjöl-
breyttara og skemmtilegra en
nokkru sinni fyrr. Eitt af því
sem athygli okkar vakti af hin-
um nýju vörum eru töflur til
að hengja á vegg, og eru þær
ýmist í laginu eins og fiskur,
fíll eða bangsi. Þessar töflur eru
sérstaklega hentugar fyrir þau
sem eru að byrja að skrifa, og
má hengja þær upp í mátulegri
hæð fyrir bömin og eru þær
til mikillar prýði i bamaher-
berginu. Verð taflanna er kr.
350.00 og fást þær í Pennanum.
stofugólfinu. Einnig er það til
mikilla þæginda að hægt er að
sjá samstundis hvort einhver
póstur hefur komið, en flestar
eldri gerðir af bréfakössum
verður að opna til að sjá hvort
eitthvað er í þeim.
Eins og fyrr segir eru þessar
grindur og körfur allar úr stáli
og húðaöar með plasti, sem ger-
ir þær mjög auðveldar í hirö-
ingu. Yfirleitt er nóg að strjúka
af þeim með volgu sápuvatni og
nást þá öll óhreinindi af. Litirn-
ir á plastinu eru hvítt og svart,
en verðlistar yfir þessa vöru
munu fáanlegir í mörgum verzl-
unum hér í Reykjavík og eru
þar myndir af öllum tegundum
af körfum og grindum sem fyrir-
tækið framleiðir. Ættu þessar
körfur að geta auðveldaö margri
húsmóður að halda röð og reglu
á heimilinu og er það sérstak-
ur kostur að hægt er fyrirhafn-
arlítið að breyta innréttingum
á skápum og geymslum þar sem
slíkar körfur eru notaöar.
Þess skal getið að lokum að
í sambandi við eldhúsinnrétt-
ingar hafa orðið gífurlegar breyt
ingar meö tilkomu hirma inn-
fluttu eldhúsa. Er sannarlega
ástæða til að fagna þeirri fjöl-
breytni, sem þau bjóða upp á,
bæði í sambandi viö skáparými
og allt fyrirkomulag. Yfirleitt
eru skáparnir í þessum innrétt-
ingum úr harðplasti, flestar
hillurnar úr plasti, og gjarna
með grindum og körfum eins og
þeim sem talað er um hér að
framan.