Vísir - 19.09.1967, Side 16

Vísir - 19.09.1967, Side 16
1 Hestar og kindur á Gufunesi veikjast af skemmdu hveiti Hveitipokar hafa losnað úr ruslahaugum t gær smöluöu Mosfellingar afrétt sinn og í dag er svo réttað í Hafravatnsrétt, en þangaö fjölmenna Reykvíkingar aö jafnaöi. (Ljósm. R. L.) VTSTR Þriðjudagur ÍD. septembet' 1967 Sigfús Bjarnason forstjóri lótinn SIGFÚS BJARNASON, for- stjóri heildverzlunarinnar Heklu lézt í nótt að heimili sínu, Víðimel 66_Sigfús fædd- ist 4. maí 1913 að Núpsdals- tungu í V.-Húnavatnssýslu og var aðeins 54 ára gamall. Sigfús var kunnur athafna- maður, stofnandi Heklu og var forstjóri fyrirtækisins frá upp- hafi. Hann hefur verið í stjóm fjölda annarra fyrirtækja. — Hann var kvæntur Rannveigu Ingimundardóttur og áttu þau fjögur böm, Ingimund, Sverri, Sigfús og Margréti. Útflutningsverðmæti sjávarafurða 658 millj. minni en fyrri hluta árs í fyrra Heildaraflinn 82 þúsund lestum minni fyrstu 5 mánuðina Það er löngu ljóst að út- flutningsverðmæti sjávarút- vegsins verða miklu minni fyrri helming þessa árs en þau voru sama tíma í fyrra. Þar kemur hvort tveggja til aflabrestur á vertíðinni og slæmar síidarheimtur svo og geigvænlegt verðfall á fisk- afurðum, bæði sfldarafurðum og frystum fiskafurðum, sem eru stærstur hluti alls útflutn ings íslendinga. Fiskafli landsmanna fyrstu Þingeyingar fó útsýnisskífu á Húsavíkurfjall Feröafélagið á Húsavík hefur látiö setja upp hringsjá og sólúr á Húsavíkurfjalli. Nú i sumar gekkst Rotaryklúbbur Húsavíkur fyrir vegarlagningu upp á fjallið, svo að nú er fært upp á topp þess, sem er í 470 metra hæð yfir sjó. — Gott útsýni er þaðan. af fjallinu, til dæmis sér á Bárðarbungu í 160 km fjarlægð. Á hringsjánni eru tvö hundruð nöfn og hefur Jón J. Víðis land- mælingamaður teiknað hana, en Skiltagerðin í Reykjavík smíðað hana. mánuði þessa árs hefur verið stórum minni en á sama tíma undanfarin ár. Fyrstu fimm mánuði ársins, eða vetrarvertíð- artímabilið bárust 345,6 þúsund lestir á land, en 427,6 á sama tíma í fyrra, eða um 82 þúsund lestum minna í ár. Skýrslur um fiskaflann þetta tímabil liggja nú fyrir og er ljóst að bátaflotinn var 86 þús- und lestum minni f vetur en sama tímabil í fyrra. Hins vegar er afli togaranna röskum fjór- um þúsund lestum meiri í ár, en hann var á þessu tímabili í fyrra. Við þetta bætist svo það að miklu minni hluti þorskaflans í vetur fór í frystingu og salt en í fyrra, en hins vegar fór meiri afli í herzlu í vetur en í fyrravetur. Má því reikna með að verðmæti aflans sé tiltölu- lega minna í ár en í fyrra. I seinasta hefti tímaritsins Ægis segir frá útflutningi sjáv- arafurða. Fyrstu sex mánuði ársins og kemur í Ijós, að verðmæti útfluttra sjávaraf- urða þessa sjö fyrstu mán- uði þessa árs eru um 658 milljón um króna minni en á sama tíma í fyrra, eða 1.927.833 þúsund krónur í ár, en 2.575.778 þús- und þessa sömu mánuði í fyrra. Reikna má meö að verðmæti útfluttra sjávarafurða mánuðina júlí, ágúst og september verði ekki síöur óhagstæð í samjöfn- uði við seinasta ár, einkum þeg- ar þess er gætt að lftið lát virðist vera á verðfalli sjávar- afurða á heimsmarkaði. Þetta táknar, eins og kunnugt er stórskertar gjaldeyristekjur fyrir þjóðarbúið, miðað við fyrri ár, en sjávarafurðir eru mest- allur útflutningur okkar. borgarinnar við Grafarvog og rekið á fjörur Gufuness, með fyrrgreindum afleiðingum Skemmt hveiti á fiörum Gufu- ness hefur haft þær afleiðingar í för með sér að skepnur í eigu Þorgeirs bónda Jónssonar í Gufunesi hafa veikzt og hafa nú tvær kindur drepizt, en nokkur hross verið fár sjúk undanfarna daga. Hveitið er þannig til komið, að því var ekið frá skipshliö hér í Reykja vík um sfðustu mánaöamót á ösku hauga borgarinnar við Grafarvog. Þrátt fyrir öryggisákvæði heilbrigð iseftirlitsins hafa hveitipokar losn- úr haugunum og rekið á ógirtar fjörur Gufunessbóndans með fyrr- greindum afleiðingum. Það verður að teljast vítaverður trassaskapur að hafa ekki betur auga með varnargirðingum ösku- hauganna en raun ber vitni að gert hafi verið, en skarö hefur komið í giröinguna á einum stað og hefur ýmislegt rusl flotið út úr haugunum á útfiri., Vísir hafði samband við fulltrúa í hreinsunardeild borgarinnar og spurði hann hvað hæft vær; í sög- unni um skemmda mjölið í Gufu- nesi. Fulltrúinn sagði að um síðustu mánaðamót hefði verið ekið nokkru magni af skemmdu hveiti á ruslahauga borgarinnar við Graf arvog. Sekkirnir hefðu síðan losnað á flóði og refeið yfir lónið. Þar hefðu skepnur komizt f hveitið og annaðhvort étið yfir sig, eða þá að eitrun hefði verið í hveitinu, en um það væri ekki vitað með fullri vissu ennþá. Fulltrúinn sagði að málið liti mun betur út en það hefði gert um tíma, en ein kind og eitt lamb hefðu drepizt vegna þessa, Meira kvaðst fulltrúinn ekki hafa að segja um málið á þessu stigi. Blaðið hafði samband við Pál Á. Pálsson, yfirdýralækni á Keldum og sagði hann að hann hefði ekki frétt neitt frekar af hrossunum , Frh. á bl. 10. Svangir þjófar stela appelsínum Tveir þjófar voru handteknir i nótt af lögreglunni, þegar hún á einni eftirlitsferð sinni um Vestur- bæinn rakst á þá á Ránargötunni. Héldu þeir á sinn hvorum appelsínu kass .um undir hendinni og hafði það vakiö grunsemdir lögreglunn- ar. Enda kom í Ijós, að kössunum höfðu þeir stolið úr verzluninni á Bræðaborgarstíg 5. Mennirnir voru færðir inn í Síðumúla, þar sem þeir gistu fangageymslu lögreglunnar i nótt. Forsætisráðherra um Þýzkalandsheimsóknina: Mikill skilningur á sér- stöðu íslunds ■ Ræddi um efnahagsbandalagið, takmarkanir isfisklóndunum og lendingarleyfi Flugfélags- ins i Frankfurt við Kiesinger, kanzlara Á blaðamannafundi með forsæt- isráðherra, dr. Bjarna Benedjkts syni í gær, kom fram, að við- ræður hans við býzka ráðamenn í heimsókn forsætisráðherra til V-Þýzkalands voru mjög vinsam legar og að mikill skilningur var á sérstöðu íslendinga með tilliti tii hinna ýmsu vandamála sem við er að etja. Forsætisráðherra sagöi, að í viðræðum hans við kanzlara V-Þýzkalands, Kurt Georg Kiesinger, hafi forsætis- ráðherrann skýrt sjónarmið ís- lenzkra stjórnarvalda með til- liti til takmöfkunar á fiskilönd- unum íslenzkra togara í v-þýzk- um höfnum, sem gilda nú til áramóta. Forsætisráðherrann kvað kanzlarann vel hafa skilið ís- lenzku sjónarmiðin í þessu máli, enda hefði v-þýzka ríkisstjórn- in þegar mótmælt þessum tolli við stjórnarnefnd EBE í Briissel. En forsætisráðherrann sagði síö- an, að við yröum að sætta okkur við, ag úrslitaráðin í þessu máli lægju hjá stjórnarnefnd Efna- liagsbandalagsins en ekki hjá v-þýzku ríkisstjórninni. • Forsætisráðherrann kvaöst einnig hafa rætt horfurnar í markaðsmálum Evrópu við Kies inger, kanzlara, og hafa skýrt fyrir honum þau sjónarmið að ekki kæmi til greina, aö Islend- ingar gerist fullgildir aðilar að Efnahagsbandalaginu. Ef um ein hver tengsl við Efnahagsbanda- lagið væri ag ræða yrðu þau að vera í formi aukaaðildar með þeim takmörkunum sem Islend- ingar teldu að yrðu aö vera með hliðsjón af íslenzkri sérstöðu í þessu máli, eða í formi við- skiptasamnings til langs tfma. Þá kvaðst forsætisráðherra einnig hafa rætt um lendingar- ieyfi Flugfélags íslands í Frank- furt, en eins og menn muna var lendingarleyfi þetta veitt í sumar. Er betur var að gáð, hefðu á lendingarheimildinni ver iö ýmsar takmarkanir, sem gerðu það að verkum, að Flug- félagið ætti erfitt meg að not- færa sér lendingarleyfið í Frank furt. Hefði einnig verið skilning- ur á þeim málum hjá v-þýzkum yfirvöldum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.