Vísir - 16.10.1967, Qupperneq 6

Vísir - 16.10.1967, Qupperneq 6
V1SIR . Mánudagur 16. oktoner IWrt V. ■ , . * ' -' <\j i . : •. j Viö leggjum leið okkar niður í Stakkholt, þar sem skóli fyrir heyrnardaufa Íer til húsa í svolítið skrítnu húsi. Skólinn hefur vaxið Iog það hefur tvisvar orðið að byggja við gamla timb- urhúsið, sem stóð þar í eina tíð eitt og sér á stórri lóð, sem náði allt niður á Rauðarárstíg og upp eftir Iholtinu. — Byggðin hefur smátt og smátt þrengt að skólanum, svo að nú á hann einungis svolitla gras spildu, sem er leikvöllur nemendanna. — Þetta er einkar snoturt hús, þótt það sé af þremur stofnum finnst manni furðu mikið samræmi í byggingarstíl þess. Nemendur eru tuttugu og níu talsins á aldrinum fjögurra til sextán ára. Þau koma frá ýms- um stöðum á landinu, koma hingað í skólann á vetuma, en dveljast heima hjá sér á sumrin. Inni á skrifstofu skólastjórans hangir mynd af brautryðjanda þessta starfs hér á landi, séra Páli Pálssyni, sem lengi var prestur í Þingmúla. — Séra Páll veiktist á skólaárum sínum og missti málið. yar honum komið til lækninga í Kaup- mannahöfn, þar sem hann fékk fulla bót. Þegar hann hafði lokið guðfræöiprófi 1866 fór hann aft- ur utan til Kaupmannahafnar og nam þar kennslu mállausra. Síðan var hann skipaður mál- leysingjakennari hér og hélt eft- ir það ,,daufdumbraskóla“. Þessi skóli Páls tók til starfa haustið 1867 og em þvl rétt hundrað ár síöan kennsla mál- lausra hófst hér á landi. Brandur Jónsson skólastjóri bendir okkur sérstaklega á þessa mynd og spyr, hvort við könn- umst ekki við þennan svip á kunnum leikara hérlendum. — — Það er Róbert Amfinnsson, » sem hér er átt við, en hann er einmitt sonarsonur Páls frá Þingmúla. Tjað hafa miklar breytingar orðið á kennslu mállausra síðan séra Páll hóf starf sitt fyr- ir hundrað ámm. í fróðlegri grein sem Brandur Jónsson skrifar í Menntamál, síðasta hefti, rekur hann sögu málleysingakennslunnar, sem næsta lítið fer fyrir lengi fram eftir öldum. Menn hafa ekki al- mennt gert sér grein fyrir því fyrr en á seinni öldum að mál- leysi stafar af heymarleysi eða heymardeyfð á háu stigi. Griski heimspekingurinn Aristóteles dæmdi mállausa til þess að lifa óupplýsta, því að sá sem ekkert mál hefði væri ófær til allrar menntunar. í byrjun sautjándu aldar er þessum kenningum Aristóteles- ar rækilega hnekkt I verki, en þá kenndi spánskur munkur, Petro Ponce de Leon, tveimur mállausum piltum af aðalættum að tala, lesa og skrifa og er það fyrsta skipti svo vitað sé aö slíkt hafi átt sér stað, svo að kennsla mállausra á sér í raun- inni meira en fjögur hundmð ára sögu. ]Y/Tálleysingjaskólinn var flutt- ur til Reykjavíkur árið 1909, en þá var skólastjóri hans Mafgrét Rasmus og gengdi hún því starfi þar til 1944 aö Brandur Jónsson tók við. — Nú starfa við skólann fimm kennarar auk Brands, en ein stúlka dvelst nú f Noregi og nemur þar kennslu heyrnardaufra. — Auk kenn- ara eA starfsfólk £ mötuneyti og heimavist skólans. Brandur segir að farið hafi verið út á þá braut, þegar kenn- arar eru ráönir að skólanum að ráða kennara, útskrifaöa úr Kennaraskólanum i eitt ár til þess að byrja með að skólanum til reynslu. — Á þessp eina ári P \ :■ovy’'■■■■■ ____ ___________ ^ ^ - " » Bryndls Víglundsdóttir kennir landafræði. Á kortinu er búið að merkja hvar allt fólkið í bekknum & heima og nú er hver fyrir sig látinn segja það skýrt og greinilega. getur fólk áttað sig á því hvort þvi fellur þessi kennsla og hvort það sé hæft til hennar. — Aö fenginni þessari reynslu eiga kennaramir svo kost á að fara utan til náms einn vetur. Þeir sem nú eru fastráðnir kennarar við skólann eru ýmist menntaðir í Bandaríkjunum, Þýzkalandi eöa Noregi, en Brandur stund- aði einmitt nám í þessum lönd- um á árunum 1937 til ’43. Þessi skóli hlýtur auðvitað að vera frábrugðinn öðrum skólum hvað kennslutilhögun snertir. Hann verður að byrja á þvi að byggja upp grundvöllinn fyrir venjulegu námi, málið, sem nemendur venjulegra skóla hafa, þegar þeir byrja sína skóla göngu. „Það fer mestur timi í að æfa tal og lestur öll árin, sem nemendumir em héma“. segir Brandur. Námið er að sjálfsögðu mjög einstaklingsbundið og þaö þarf tiltölulega fleiri kennara við slikan skóla eri venjulega skóla. Við göngum um stofumar með skólastjóranum. Kennslan fer fram í litlum stofum. Þaö eru aldrei mjög margir saman í hverri kennslustund. — Raun- ar hlýtur að vera nokkuð erfitt að raöa niður í bekki í slíkum skóla, þar sem ekki þarf ein- ungis að miða við aldur og greinarþroska, heldur og við það á hvaða stigi nemendumir eru hvað snertir mál og heym. Yngstu nemendumir, sem ekki em nema fjögurra ára, eiga að sjálfsögðu erfitt með að sitja á skólabekk rétt e,..s og böm yfirleitt á þeim aldri. — Þess vegna er reynt að haga kennslunni sem mest eins og Ieik. — Enda virtust nemendum- ir f yngsta bekknum una sér hið bezta í umsjá Herdisar Haraldsdóttur. Þau vom að raða saman myndum, nokkurs konar „púsluspili". Sá yngsti, fjögurra ári snáði, var að blása út blöðm. Herdfs sagði okkur að þetta væri gert til þess að æfa'önd- unina fyrir talið. Síðan sýndi sá stutti okkur, að hann var þegar búinn að læra nokkur stafhljóð, til dæmis aogo. Aft- ur á móti er nokkm erfiöara að segja p-hljóðið, sem verður til þegar loftstraumurinn neðan úr Iungunum myndar nokkurs kon- ar sprengingu við varimar (sprengihljóð). — Og til þess að fá bömin til þess að ná þessari varasprengingu lætur Herdís þau gera sérstaka æfingu, blðsa á blaðræmu, svo að hún hrekk- ur snöggt frá þannig kemur p- hljóðið. Þegar nemandinn er ekki alveg viss hvemig stellingamar eiga að vera á vömnum við myndun hinna ýmsu hljóða er gott að nota spegilinn, sem mun raunar vera eitt notadrýgsta kennslutæki þessa skóla. lV'æstyngsti bekkurinn var að ^ læra landafræði. Þar vom saman komin böm á bama- skólaaldri, sjö til nfu ára. Kenn- arinn, Bryndís Víglundsdóttir, notaði sér það við landafræöi- kennsluna, að bömin em frá ýmsum stööum á landinu og lét þau finna á kortinu, hvar hvert og eitt átti heima. Síöan var tengdur spotti frá Reykjaví’' þvert yfir kortið og norður land, vestur á firði og austur _ land, þangaö sem bömin áttu heima. „Við reynum að nota allt, sem hægt er“ segir Bryndís. „Þau hafa til dæmis lært heilmikið í landafræöi í sambandi við dýr- in. Þau hafa svo mikinn áhuga á að vita hvar þau eiga heima, hvernig landslagið er þar, —•ort þar er heitt eða kalt veðiv —g svo framvegis. Þá er hægt að tengja þetta svoiítið saman. — Þau gera Ijómandi fallegar vinnubækur". Og á einum veggn um í stofunni hanga stórar sjálfsmyndir af öllum í bekkn- um. Svo nota þau mynd af Marilyn Monroe til þess að læra nöfnin á andlitshlutunum. „Þau vita reyndar allt um þessa konu“, segir Bryndís, „að hún var leik- kona mjög falleg og eftirsótt og svo framveeis". Þau em að byrja að lesa rétt eins og jafnaldrar þeirra f skól anum og þau leyfa okkur að heyra svolítið um Fíu og fán- ann í Gagni og Gamni. Brandur Jónsson skólastjóri framan við skólahúsiö. HEIMSÓKN í HEYRNLE YSINGJAS KÓLANN

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.