Vísir - 23.10.1967, Qupperneq 6

Vísir - 23.10.1967, Qupperneq 6
78. V í S I R . Mánudagur 23. október 1967. ÞÁ VAR EKKI SV UM AÐ LESA PASSIUSALMAAFOSTUNNI ÉG ER ÁNÆGÐUR MEÐ ÞAÐ, SEM LÍFIÐ HEFUR ÚTHLUTAÐ MÉR □ Vestan Tjamarinnar í Reykjavík á Blindraheimilinu við Bjarkargötu, búa öldruð hjón, Agnar Jónsson og Guö- laug Guðlaugsdóttir, ættuð norðan úr Ámeshreppi á Strönd- um, ólust þar upp og dvöldust þar öll sín beztu starfsár. Þau em því nær jafnaldra, því milli þess að þau litu dagsins ljós era aðeíns 3 dagar. Þau era nú á 79. aldursári. Fyrir því nær einum aldarfjórðungi hafði ég í nokkur ár dálítil kynni af þeim hjónum og það er kannski meðal annars vegna þess, að ég legg leið mína vestur á Bjarkargötu til fundar við þau þennan laugardagseftirmiðdag. □ Bæði era þau em og hress í anda. Agnar hefur verið blindur í því nær 16 ár, en Guðlaug er fullsjáandl og ber ellinni elckert vitni með hrömun. Mér er vel tekið eins og forðum, þegar ég kom til þeirra að Hrauni í Trékyllisvík. Guðlaug vill strax leiða mig að kaffiborðinu, en ég óska þess fremur, að rabba dálítið við Agnar áður og fá hann til að rifja upp gamlar minningar frá yngri áram. — Blessaður vertu, það er nú lítinn fróðleik til min að sækja. Ég hef nú ekki lifað viöburða- ríka eða stórbrotna ævi. Foreldr ar mínir voru: Jón Pétursson og Guðrún Ólafsdóttir. Jón faðir minn var bróðir Guðmundar Pét urssonar, bónda í Ófeigsfirði, Guðmundar á Dröngum og gét- urs í Hafnadal. Ég ólst upp i Stóru-Ávík hjá foreldrum mín- um og var þar allt fram til full- orðinsára og einnig eftir að ég var giftur og við hjónin búin að eiga tvö böm, þá fluttum viö að Steinstúni árið 1916, en þaðan er kona mín. — Hvað er þér nú minnisstæð ast frá þínum uppvaxtarárum? Hvemig var lífið? J — Lífið, það gekk nú svona slétt áfram. Þau voru bæöi mjög dugleg, foreldrar mínir. Móðir mín var sérstaklega mikil vinnu manneskja. Hún saumaði' upp á okkur unglingana, prjónaði spjarir og óf svo mikið og fékk einnig stundum menn til að hjálpa sér við vefnaðinn. Hún ásamt vinnukonum sínum vann mikið I vaðmál og svo óf hún einnig úr tvisti, stundum með ullarívafi og var það efni not- að I milli-skyrtur, sem þá vom röndóttar. Svo var einnig ofið með tvisti f tvist. Tvisturinn fékkst á Reykjarfirði hjá Jakob Thorarensen, sem þar verzláði þá. Þessar flfkur voru mjög sterkar. — Var stundaður sjór frá Stóm-Ávík? — Ekki nema á sumrin, þá var ávallt róið, þegar gaf, ef fiskur var. — Var ekki gert út á hákarl? — Nei, ekki þaðan. — Stundaði faðir þinn ekki hákarlaveiðar? — Jú, áður, meðan hann bjó á Felii, þá lét hann smfða há- karlaskip og hélt því út til veiða, en á Felli bjó hann þang- að til hann missti fyrri konu sína, þá flutti hann inn í Húna- vatnssýslu. Móðir mín, sem varð seinni kona hans, hafði þá misst unnusta slnn, Agnar, hann drukknaöi. Mamma mln var þvf andvig að flytja norður a.m.k. fyrst f stað, svo að þau vora þama harðindaárin, mest fijá Eggert bónda á Ánastöð- um, að ég held. Þegar kom fram á vetur fór faðir minn ævinlega noröur til að róa áttæringnum sínum, og svo var hann alitaf mikill fyglingur í Hombjarg. Hann sagði frá þvf, að þegar hann var ungur maður á Dröng- um var ævinlega farið undir Hom, þegar hart var á vorin, væri hægt að komast það fyrir ís. Þá gátu straumar oft legið svo að hægt var að fá fisk þar og einnig skjóta svartfugl sér til bjargar. Á Ánastöðum vom foreldrar mínir harða veturinn 1882 og svo mislingaárið vonda. Faöir minn hafði farið norður að venju og var þar á hákarla- vertfðinni og fór svo undir Hom og komst til baka að Seljanesi, þá veiktist hann í mislingunum og lá þar allt sumarið. En frá því sagði móðir mín, að fyrsta sunnudag f sumri fór fólkið á Ánastöðum til kirkju og þá er fsinn að reka inn Húnaflóann og heyrði hún talað um að það væri gamalla manna mál, að kæmi fs inn á Miðfjörð eftir sumarmál, þá færi hann ekki fyrr en eftir höfuðdag. Nú rek- ur fsinn inn og fyllir alla firði og víkur, en í þetta sinn flutti hann með sér nokkur höpp, því á Ánastaðafjörar rak með hon- um 32 hvali. Að þessu varð mikil björg fyrir héraðið, en grasspretta brást alveg það sum ar. Um þennan hvalreka kann ég þjóðsögu, sem ég heyrði móð ur mína segja. — Blessaður, láttu mig heyra hana, ég ann þjóðsögunni. — Jæja, einhvem tíma áður hafði rekið tvo hvali út í Krossavík á Vatnsnesi. Eggert VIÐTAL DAGSINS bóndi á Ánastöðum fór þangað að sækja sér hval eins og fleiri. Á heimleiðinni kemur hann við á bæ, þar sem heimilið er því nær bjargariaust, annaðhvort var, að þar bjió ekkja eða bónd- inn var ekki heima. Eggert tek- ur vænthvalstykki og gefur kon unnL Þegar eitt bamanna fer að borða, segir það: — Ég vildi að guð gæfi honum Eggert eins marga hvali og bitamir eru margir úr pottinum. — Konan Agnar Jónsson og frú. hafði að gamni sínu talið bit- ana og þeir reyndust 32. — Af hafísnum er það að segja, að hann lá við land allt sumarið. En daginn eftir höfuð- dag gerðist vindur vestlægur og sigldi þá hinn hvíti floti til norð- ur-hafs, sinna heimkynna. — Mér finnst Agnar, að í þessum tveim sögum, sem þú nú hefur leyft mér að heyra fléttist saman þjóðtrúin á gildi góðverkanna og gamalla manna mál — vísindi þeirra tíma — byggð á reynslu kynslóðanna gegnum aldirnar, ekki eins mik- il hindurvitni og sumir vilja vera láta. — Já, það er margt skrítið, ég veit ckki hvað þið viljið kalla það. — Mannstu eftir það miklum harðindum i Trékyllisvík, aö þar væri almenn búsvelta? — Nei, það var alltaf eitt- hvað til eftir að ég man til mín. — Hverjir voru þá helztu bjargræðisvegimir? — Það var fiskafli, svo sel- veiði og einstöku sinnum hval- ir, helzt f ísaárum. Ég man eft- ir því, þegar ég var unglingur, þá rak hval á Finnbogastöðum, að þvf varð mikið bjargræði. Svo var auövitað hákarlsaflinn. Þá minnist ég þess líka að höfr- unga rak á Dröngum og faðir minn fór þangað noröur á hval- fjöru. Hann fór þá á bát sem Víkingur hét og hann haföi smíöað fyrir Guömund bróöur sinn, annars smíðaði hann marga báta og þá góða. Hann smíðaði t.d. þennan bát fyrir Guðmund hálfbróðir minn sem átti hann lengi, og lét hann til hans upp í móðurarfinn. — Lék nú ekki sumarveðrátt an ykkur stundum grátt á þeim tíma, eins og enn í dag? — Jú, norðanbrælumar, en » aldrei man ég eftir fjárfelli á vori sökum heyskorts. Faðir minn var aldrei heylaus. Frosta veturinn 1918 urðu vfst margir heylausir en samt ekki fellir. Verzlunin Hafði oftast til helztu þarfir manna og menn birgðu sig upp á haústin með matvæli og fóðurbæti, sem þá var mest hörð bein, þorskhausar og hrygg ir, t.d. mjög haröan vetur 1913, þá var nóg matbjörg hjá Norður fjarðarverzlun, svo enginn þurfti að líða skort. — Svo var ég aö hugsa um að segja þér frá einum miklum ísavetri, ég man bara ekki hvaða ár það var, hvort það var 1902. — í þessu sambandi skiptir ártalið ekki öllu máli, leyfðu mér að heyra frásögn þfna? — Jæja, þennan vetur rak ís- inn inn, að því er mig minnir um áramót. Veðráttan var afar slæm .sffelldir norðanbyljir dag eftir dag, svo allt fór f kaf. Samfjrosin íshella lá yfir Vík- inni og svo langt út, sem séð varð. Þá er það, að föður mfn- um kemur til hugar að yaka á ísinn og hleypa niöur hákaria vað. Fór hann fram á mið, sem kallað er Fjallið, en það er þegar Byrgisvíkur-fjall ber rétt undan Kjörvogsmúla og Ámeskirkju yfir miðeyjuna þar var dýpst á vfkinni. Þama liggur vaður- inn í viku eöa hálfan mánuð og aldrei verður vart við hákarl. Jæja, svo gerir mikið hret um páskana, alla dymbilvikuna er stórhríð. Á miðvikudaginn fyrir skfrdag ætlar hann að brjót- ast fram en verður að snúa aft- ur, vegna þess hve fshrönnin hafði hrönglazt upp við landiö fyrir áhrif sjávarfalla. Hann freistar þess þó aftur að fara fram og hefur þá með sér vinnu mann sinn. Þegar þeir koma fram og athuga vaðinn, þá er búið aö éta af hákarl og allt er beitulaust Hann átti beitu, sem hann setur á og rennir svo aftur niður, fá þeir þá einn hákarl, en svo kom ekki meira. Þerr vora lengi að ná honum upp á fs inn, því vökin var lftil og verk- færin, sem þeir höfðu haft úr landi ófullkomin. Þeir fara svo heim aö ná sér í einhverjar til færingar til að koma lifrinni í land. Þegar þeir koma fram aft- ur er kominn á annar hákarl, búið að éta hann af og hákari fyrir neðan. Þama fá þeir svo í skorpu sjö hákaria um kvöldið. Móðir mfn beið meö að lesa passíusálmana, þangað til þeir kæmu, en það var nú ekki svik- izt um að lesa þá á föstunni í þá daga. Þegar faðir minn kom í land, þá var hann mjög þreytt ur og illa til reika. Vinnumaður inn var ungur og hraustur, en hafði þó fengið sig fullreyndan. Morgúninn eftir fóra þeir aftur fram og þá fór ég með þeim og mun þá hafa veriö 12 eða 13 ára. Um hádegfsbijið koma þeir svo fram Finnbógastaðamenn, Finnbogi og Guðmundur og meö þeim tveir aðrir og svo Jón Magnússon úr Litlu-Ávfk með tvo menn með sér. Þeir töluðu sig saman um það karlamir, sem allir vorv vanir hákarla- menn, sem hafa sem stytzt í milli vakanna, því þeir höfðu reynslu fyrir því, að kæmi straumur á færi t.d. aftast á skipi, þá gat tekið undan hjá öllum hinum, hákarlinn hleyp ur á strauminn sem kallaö er. Þeir fengu þama einhverja lítils háttar veiði seinni part dags- ins. Færin voru svo tekin upp og höfð í landi fram yfir páska. Eftir páskana fékk faöir minn Magnús á Kjörvogi í lið með sér, hann var giftur Guðrúnu systur minni, og bauð honum, að vildi hann ganga í félag meö sér, þá skyldi hann fá hlut úr allri veiðinni, einnig þeirri, sem á land var komin. Guðmunduf bróöir kom um páskana norðan úr Ófeigsfirði, en hann var van ur að vera þar með Guðmundi Péturssyni, háseti á Ófeigi, en þennan harðindavetur var hann þama og gekk á ströndina og Framhald á bls. 19.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.