Vísir - 13.01.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 13.01.1968, Blaðsíða 2
2 V1SIR. Laugardagur 13. janúar 1968, TÁNINGA- SÍÐAN Mothers of Invention leysa frá skjóðunni 'C’ftirfarandi samtal var ritað, er „Mothers Of Invention" voru staddir í Danmörku. „Allt er þetta köld stefna. Við höldum nokkra hljómleika og gerum yfirleitt það, sem okkur hentar bezt. Fólk kemur þjót- andi til að hlusta á okkur — án tillits til þess hvað við gerum.“ FRANK ZAPPA: Ánægður með sjálfan mig. Þannig mælir höfuðpaurinn í „Mothers Of Invention“, Frank Zappa. Zappa ræðir mikið við blaöa- rnenn. Hann er ánægður meö sjálfan sig og skoðanir sínar. Hann viðurkennir, að hljóm- sveitin standi á yztu nöf mál- freisis og tilveruréttar. og sjónvarp er stjómað af rík- inu. Það gefur tilefni til nánari íhugunar. Þetta fyrirkomulag kalia ég „sósialistiska auðvalds- stefnu". Og Billy Mondi heldur áfram. „Við höfum einu sinni stungið upp á þvi við Elvis Pres- ley að safna skeggi og hári, svo við gætum veitt honum atvinnu sem stuðningsmaður „Mothers Of Invention". 'Það sagðist hann ekki geta. Mér finnst, að þetta hafi verið röng ákvörðun hjá Elvis. Honum leiöist í Holly- wood. Hann er einhvers konar fangi. En sá dagur er ekki langt undan aö hann verði nógu þroskaður til að vilja fara í stutta hljómleikaferð meg hljóm sveit okkar. Ég held, að áheyr- endur muni hrífast, þegar þeir sjá Elvis ganga inn á sviðið með langt hökuskegg og brúðu í fang- inu. Við ætlum að andurtaka boð okkar síðar.“ Zappa segir: „Við bjuggum tvisvar á Royal Hóteli (látið vera meg að nefna nafnið á hót- elinu. Það er engin ástæða til þess að nota nafn okkar sem auglýsingu). Allan liðlangan dag- inn var gestamóttakan að hringja upp í herbergi til okkar, og vildi hún vekja athygli okk- ar á þv£, að það væri eitthvað að herbergisframkom,u okkar. Að lokum vomm við beðnir um að flytja. Forstjóri Royal Hót- elsins reyndi að sannfæra mig á, að gestir hótelsins borguðu mik- ið fé og kæmu frá mörgum lönd- um, og að sjálfsögðu vildu þeir njóta sómasamlegra þæginda. Viðskiptamenn hans kærðu sig heldur ekki um að horfa á mann vemr eins og okkur — viðskipta menn Royal Hótels sækja eftir þægindum. Við sjálfir eigum næstum næga peninga til að byggja okkar eigið hótel, og við sækjum einnig eftir þægindum. Hinn góði framkvæmdastjóri með fallega hvíta hálsbindið ætti að vera ánægður yfir, aö hýsa svo snotra menn sem við erum. Hugsið ykkur, ef við hefð- um hagað okkur eins og „Roll- ing Stones", sem brutu allt og brömluðu í herbergjum sínum og hentu því sem hægt var niður á götu af 13. hæð.“ Fyrsta hljómplata „Mothers Of Invention", „Freak Out“, Framhald á bls. 10. ' r Sjöunda //LP"-plata „Hollies'' komin á markaðinn BILLY MONDI: í Danmörku er „sósialistisk auðvaldsstefna". Ðrezka beat-hljómsveitin „Hollies" sendi frá sér i desemberm..nuði síðastliðnum sína sjöundu „LP“-hljómplötu. Plata þessi, sem ber nafnið „Butterfly" er einkar skemmti- leg og er það ekki hvað sízt að þakka fjölbreytni laga hennar. „Butterfly" hefur.á að skipa 12 iögum, og eru þau öll samin af meðlimum „Hollies" sjálfum eða nánar tiltekið þeim Clarks, Hicks og Nash. Lög plötunnar eru þessi: „Dear Eloise, Away Away Away, Maker, Pegasus, Would Yoy Belive, Wishyou- wish, Postcard, Charlie And Fred, Try It, Elevated Observa- tion?, Step Inside“, og svo að lokum „Butterfly". Brezka útgáfufyrirtækiö „Parlaphcne" hefur um nokk- urra ára skeið gefiö út hljóm- plötur „Hollies" og er svo einn- ig í þetta sinn. „Butterfly" fæst bæði í mono og stereo og er upptakan frábær, enda er,,EMI“ samsteypan, sem „Parlaphone" er meðlimur i, ein af þeim beztu í heimi, ef ekki sú bezta. ... ALLT SEM EG EKKI VEir // — itm Rolling Stones RAY COLLINS : Ég er dapur yfir þeim gömlu. „Plötur okkar eru stjómmála- legar. Við reynum að opna augu stjómmálamannanna. Ameríku er stjómað af gömlum mönnum með hálsbindi. — MANNVÉL- AR. Ungir menn með ferskar og |j frjálsar hugsanir eiga að stjórna. En hinn ameríski stjórnmálamaö ur hefur ekki áhuga á stjómmála íhlutun ungs fólks. Við emm for vígismenn;mir.“ Ray Collins bætir við: „Þær milljónir unglinga, sem haga sér eftir viilja og fyrirtnælum hinna eldri, verða afvegaleiddar." Trommuleikarinn Billy Mondi brýnir raust og segir: „Ég hef komizt aö því, að danskt útvarp C'g er mikil „Stones-aðdáandi" og ég hef mikinn áhuga á að vita allt um þá, sem ég ekki veit, og þess vegna bið ég yður hér með að skýra mér eftirfar- andi: Hve margar- „LP“ „EP“ og tveggja laga plötur hafa þeir leikið inn á? Ég vildi gjaman einnig fá nöfn þeirra. Hafa þeir ieikið í nokkurri kvikmynd? Með von um fljót og góð svör — S. I. — „The Rolling Stones“ hafa, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki leikið inn á svo fáar plötur, svo ég verð að færa saman kvíarnar og nefna aðeins titilnafn hverrar þeirra. Tveggja laga plötuy „Come on“, „I wanna be your man“, Not .Fade away“, „It’s all over now“, Time is on my side“, „Little red rooster", „Tell me“, „The last time“, „Heart of Stone“, „Satisfaction", „Get off my cloud“ „19th nervous breakdown", „Paint it black“, „Have you seen your mother, baby standing in the shadow?“, „Let’s spend the night together” „We love you“ og „EP“ hljómplötur: „You better move on“, „If you need me“„ „Everybody needs some- body to love“ og „She said yeah.“ „Rolling Stones" hafa gefið út 9 „LP“ plötur og em þær þessar: „The Rolling Ston- es, vol. 1“, „The Rolling Ston- es, vol. 2“, „Out of your heads", Around and around“, „Aftermath”. „Big hits“ (einn- ig nefnd „High tide and green grass“), „Between the buttons", „Flowers”. Ofantaldar hljómplötur eru skráðar í tímaröð. Það hefur lengi verið á prjón- unum að „The Rolling Stones“ leiki í kvikmynd, en það hefur því miður ekki orðið að veru- leika enn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.