Vísir - 13.01.1968, Page 7
mmm
.
i
+ ' i
Afgreiöslustúlka í SÍS í Austurstræti með nokkra af undirkjólunum.
sem þar fást.
Undirkjólar með áf'óstum brjóstahöldum
komnir á islenzkan markað
V1S IR . Laugardagur 13. janúar 1968.
VERST KLÆDDU KONUR HEIMS
Nöfn margra frægustu kvikmyndadísa heims eru ó listanum yffir verst
klæddu konur í heimi, sem birtur var fyrir skömmu í Hollywood
Það er orðið langt síðan tekið
var upp á því að kjósa bezt
klæddu konur heimsins, og hafa
ýmsir, bæði tízkufrömuðir og
tízkufréttaritarar samið árlega
lista yfir það kvenfólk, sem
þeim þykir tiiheyra að hafa í
hópi þeirra kvenna. En það er
ekki svo langt síðan farið var
að kjósa verst klæddu konur
heims, en það hefur til þessa
þótt ákaflega niðurlægjandi aö
lenda í þeim hópi, þó að þróun-
in hafi orðið sú, að flestum
stendur nú orðiö á sama hvort
þær eru taldar meðal 10 bezt
klæddu eða verst klæddu
kvenna heimsins.
Það er nefnilega þannig, að
það er orðið ískyggilega • al-
gengt, að sömu konumar séu á
báðum listunum, en í langflest-
um tilfellum prýða þessa iista
nöfn frægra kvikmyndadísa,
leikkvenna, söngkvenna eða
eiginkvenna frægra stjómmála-
manna. Flestar leikkvennanna
og. kvikmyndadísanna, hafa
gert sér far um að vera sér-
kennilegar í klæðaburði, með
það f.yrir augum að skapa þann-
ig nýjar „týpur“, og hafa þær
margar teiknað föt sín sjálfar
og fengið dýrar og færar
saumakonur til að sauma fötin.
Úr þessu koma svo oft hinar
undarlegustu flíkur, sem geta
jafnvel haft mikil áhrif á tízk-
una, sumar fallegar og skemmti
legar, en aörar óneitanlega
heidur ósmekklegar og viröast
tæplega þjóna öðmm tilgangi,
en þeim að láta fólk snúa sér
við, er það mætir þeim sem
flíkina ber.
Mr. Blackwell nefnist tízku-
teiknari nokkur 1 Hollywood.
Þykir hann ákaflega fær í sinni
grein, og sagt er að hann hafi
mikið vit á að koma sér áfram,
eða auglýsa sig upp, eins og
það er kallað. Að minnsta
kosti hefur hann orSið víð-
frægur fyrir lista þá, sem hann
hefur samið yfir 10 verst
klæddu konur heims og lætur
hann fylgja listanum nánari út-
iistingu á klæöaburði þeirra
ágætu kvenna sem listann
prýða.
Hann hefur nú nýlega sent
frá sér sinn nýjasta lista og er
þar efst á blaði hin heimsfræga
söngstjama Barbra Streisand,
en hún hefur raunar verið nefnd
í sambandi við listann yfir 10
bezt klæddu konur heims, sem
væntanlegur er innan skamms.
Barbra hefur löngum þótt
mjög sérkennileg í klæðaburði,
en þó yfirleitt smekkleg. Bar-
bra er fremur ófríð og hefur
alla tíð lagt mikið upp úr því
aö skapa sér sérstakan persónu-
leika með mjög sérkennilegum
fötum.
„Hún er eins og blómálfur,
sem hefur verið alinn upp í
kálbeði", segir hann og skilji
það hver eins og hann hefur
vit til. Líklega er meiningin hjá
Blackwell, aö hún sé alltof fjöl-
skrúðug og litrik í klæðaburöi.
Nsest á listanum er hin
heimsfræga leikkona, Julie
Christe, sem kosin hefur verið
bezta leikkona ársins, en Black-
well líkir henni við fræga fígúru
úr bandarískri teiknimyndaser-
íu. Næst á listanum er Jayne
Meadows, sem þykir líkjast
„sirkus í símaklefa.“
Fjórða í röðinni er svo
Elísabet Burton Taylor, en
þetta er raunar ekki í fyrsta
sinn, sem hún er á slíkum lista,
hún hefur löngum þótt heldur
ósmekkleg í klæðaburði, og þá
einkum eftir að hún bætti við
sig allmörgum pundum — og
árum.
„Hún líkist tveimur strákum,
sem eru að slást undir minka-
pels“, segir Blackwell, en Elísa-
bet hefur löngum verið mjög
hrifin af að klæðast minkapels-
um.
Julie Andrews er næst á
blaði, en hún er aö því levti
ólík hinum stjörnunum, að hún
gerir sem allra minnst af því
að sýna kynþokka sinn, enda
fræg fyrir leik í barnamyndum.
Hún klæðist hæfilega víðum
síðbuxum og snyrtilegum peys-
um eða blússum, og um hana
segir Blackwell: „Eins og um-
slag utan af bók eftir Charles
Dickens." Skiljum við það
þannig að þetta eigi að sýna
fram á að hana skorti tilfinn-
anlega kynþokka.
Carol Channing er númer sex
í röðinni og því miður er ekki
hægt að þýða ummæli Black-
wells um hana svo að vel sé. en
hann líkir henni raunar við
George Sand, sem troðið hefur
verið in í rörbút.
í sjöunda sæti er hin líkams-
fagra Raquel Welch, sem lengi
hefur verið talin meðal bezt
vöxnu kvenna heims, enda
klæöir hún sig samkvæmt því.
Henni er h'kt viö þungavigtar-
boxara, f magabelti úr kamel-
ull.
Ann Margret, snoppufríö
Hollywoodstúlka prýðir áttunda
sætið, og er henni líkt við engil
sem hefur villzt úr himnaríki
inn á næturklúbb.
Níunda sætiö hefur Jane
Fonda með tilvitnuninni „Eins
og þröngar síöbuxur og vel-
skreytt „angel — fodd“ kaka.“
Hin velþekkta brezka leik-
kona Vanessa Redgrave rekur
svo lestina meö þessum athuga-
semdum: „Líkist illa Ifmdu
heimatilbúnu húsgagni", — en
Blackwell er þrátt fyrir allt
hughreystandi: — „Hún er í
framför“, segir hann „líklega
verður hún númer eitt á listan-
um yfir 10 bezt klæddu konur
heims næsta ár.“
Líklega hafa margir orðið
hissa á þessum lista herra
Blackwells enda mjög erfitt að
gera sér grein fyrir hvað hinar
undarlegu tilvitnanir eiga að
tákna, en spennandi verður að
vita hvort einhver þessara
kvenna verður á væntanlegum
lista tízkufréttaritara yfir 10
bezt klæddu konur heims.
Nýjungar í und-
i rfa ta tízk unni
Það er orðið heldur ólíkt um
að litast í undirfataverzlunum
borgarinnar f dag, en fyrir svo-
sem tíu árum síðan, að maður
tali nú ekki um fvrir 20 árum.
Stöðugt fjölgar nýjungunum og
litimir á undirfatnaðinum eru
fyrir löngu orðnir óteljandi með
öllu. Buxnabeltin svonefndu
voru komin í verzlanir á Islandi
skömmu eftir að þau komu á
markaöinn erlendis, og nýjasta
nýjungin í undirfataframleiösl-
unni, undirkjólar með áföstum
brjóstahöldum, eru nú komnir
hingað í verzlanir.
Þessir sérstöku undirkjólar
komu á markaöinn í flestum
stórborgum Evrópu í fyrravetur
og sumar og fyrir jólin komu
þeir hingað í SÍS í Austur-
stræti, en ennþá vitum við ekki
til að aðrar verzlanir hafi feng-
ið þessa vöru.
Undirkjólamir sem fást héma
eru frá hinu þekkta brezka
fyrirtæki „St. Michael", og
hafa þeir notið mjög mikilla
vinsælda hér á landi ekki síður
en erlendis.
Má gera ráð fyrir að fleiri
RAQUEL WELSH:
Eins og kraftajötunn.
ELIZABETH TAYLOR:
Tveir strákar í slag.
verzlanir fái slíka undirkjóla
áður en langt um líður, en er-
lendis fást fjölmargar tegund-
ir af þeim.
Undirkjólarnir frá „St. Mich-
ael“ eru af tveimur gerðum,
önnur úr þykku smáköflóttu
nyloni og fæst í fimm litum,
en hin er úr tvöfaldri nylon-
bjúndu og fæst einnig f fimm
litum, Kjólamir em ekki að-
skomir, og kann mörgum að
þykja þaö nokkur ókostur, en
erfitt er að komast f kjólana
ef þeir em mikið þrengri, þar
sem þeir em ekki með rennilás,
heldur kræktir f bakið með
klauf niður undir mittið.
Verðið á þessum undirkjólum
er rúmar 500 krónur og kann
einhverjum að þykja það dýrt,
en þess má geta til samanburö-
ar að góðir nylonundirkjólar
kosta 3-400 krónur og góðir
brjóstahaldarar nærri annað
'eins.
Nú er bara eftir að vita
hvenær íslenzkar verzlanir fá
„sokkabolina" eða „body stock-
ings“, sem mjög hafa ratt sér
til rúms úti f heimi, en það
em ýmiskonar undirfatasam-
festingar úr krepnæloni. með
mjög þunnum, innbyggðum
brjóstahöldumm.
Vafalaust verður þess ekki
langt að bíða að íslenzkar kon-
ur geti reynt þessa merkilegu
nýjung, sem ætti að henta mjög
vel í okkar margbreytilegu
veðráttu.
ANN-MARGARET:
Engill í næturklúbbi.
BARBRA STREISAND:
Blómálfur, alinn upp í kálgarði.