Vísir - 13.01.1968, Side 10
Skattaframtöl —
y
Framhald af bls. 13.
ur farmannadeildar og 2. bekk-
ur fiskimannadeildar Stýrim.sk.
Vélsk. í Reykjavík, \ —A bekkur
Verzlunarsk. Isi.
4 Kr. 15.200.oo.
1. og 2. bekkur miösk. og
héraðssk.. Unglingask., 1. og 2.
bekkur farmannad. og 1. bekkur
fiskimannad. Stýrimannask.
4 Samfelldir skólar
kr. 15.200.oo fyrir heilt ár.
^ndaskólar, Garðyrkjusk. á
Reykjum.
4 Kr. 8.300.OO fyrir heilt ár.
Hjúkrunarsk. ísl., Ljósmæðra
skóli lsl.
4 4 mánaða skólar og styttri.
Hámarksfrádráttur kr. 8.300
fyrir 4 mánuði.
Að öðru ieyti eftir mánaða-
fjölda.
Til bessara skóla teljast:
Iðnskólar, varðskipad. Stýri-
mannask., Matsveina og veit-
iogabjónask.. þar með fiski-
skipamatsveinar,
Dagnámskeið, sem stendur
yfir eigi skemur en 16 vikur,
enda sé ekki unnið með nám-
inu, frádráttur kr. 440 fyrir
hverja viku, sem námskeiðið
stendur yfir.
Kvöldnámskeið og dagnám-
skeið, þegar unnið er með nám-
inu, frádráttur nemi greiddum
námskeiðsgjöldum.
Sumamámskeið erlendis leyf-
ist ekki til frádráttar.
4 Háskólanám erlendis.
Vestur-Evrðpa kr. 38.000.
Austur-Evrópa. Athugist sér-
staklega hverju sinni vegna
námslaunafyrirkomulags.
Norður-Ameríka kr. 64.000.
4 Annað nám erlendis.
Frádráttur eftir mati hverju
sinni sbr. hliðstæða skóla hér-
lendis.
4 Atvinnuflugnám.
Frádráttur eftir mati hverju
sinni.
Námskostnað, sem stofnað
var til eftir 20 ára aldur og
veitist til frádráttar að námi
loknu, enda hafi framteljandi
gert fullnægjandi grein fyrir
kostnaðinum, á þar til gerðum
eyðublöðum.
Afskrift heimæðargjalds v/
hitaveitu í eldri byggingar 10%
á ári, næstu 10 árin eftir að
hitaveita var innlögö.
Heimæðagjald vegna hita-
veitu í nýbyggingar telst með
byggingakostnaði og má ekki
afskrifa sér í lagi.
Sannanlegan risnukostnað þó
eigi hærri upphæð en nemur
risnufé til tekna, sbr. iið III, 13.
Greinargerð um risnukostnað
fylgi framtali, þar með skýring-
ar vinnuveitanda á risnuþörf.
Um landgöngu- og risnufé yfir-
manna á farmskipum gildir eft-
irfarandi: Skipstjórar mega fá
skattfrjálst landgöngufé í inn-
anlandssigiingum allt aö kr.
460.oo á mánuði, en í utan-
landssiglingum allt að kr. 1.250
á mánuði. 1. stýrimenn mega fá
skattfrjálst risnufé allt að kr.
607.50 á ári. 1. vélstjórar mega
fá skattfrjálst iandgöngufé allt
að kr. 300.oo á mánuði og
risnufé allt að kr. 911.25 á ári.
Sannanlegan kostnað vegna
rekstrar bifreiðar í þágu vinnu-
veitanda. Otfylla skal þar til
gert eyðublað „Bifreiðastyrk-
ur og bifreiðarekstur", eins og
form þess segir til um. Enn
fremur skal fylgja greinargerð
frá vinnuveitanda um ástæður
fyrir greiðslu bifreiðastyrksins.
Til frádráttar kemur sá hluti
heildarrekstrarkostnaðar bif-
reiðarinnar, er svarar til afnota
hennar í þágu vinnuveitanda, þó
eigi hærri upphæð en nemur
bifreiöastyrk til tekna, sbr. liö
ni 13.
Hafi framteljandi fengið
greiðslu frá ríkinu á árinu 1967
fyrir akstur eigin bifreiðar sinn-
ar í þess þágu og greiðslan mið-
uð við lægri gjaldskrá fjármála-
ráðuneytisins fyrir ekinn km.,
er honum heimilt að færa hér
til frádráttar sömu upphæð og
færð var til tekna vegna þess-
ar í þess þágu og greiðslan mið-
arar greiðslu, sbr. III 13 án sér-
stakrar greinargerðar.
Ferðakostnað og annað kostn-
að, sem framteljandi hefur
fengið endurgreiddan vegna
fjarveru frá heimili sínu um
stundarsakir vegna starfa í al-
menningsþarfir. Til frádráttar
kemur sama upphæð og talin
er til tekna sbr. III, 13.
Beinan kostnað vegna ferða í
annarra þágu, þó eigi hærri
upphæð en endurgreidd hefur
verið og til tekna er talin, sbr.
III, 13.
Vísir bendir lesendum sínum
á aö halda til haga þessum
upplýsingum, sem hér að ofan
eru birtar, því síðar mun svo
blaðið birta upplýsingar um,
hvernig fylla beri út liði skatt-
skýrslunnar um eignir og tekj-
ur.
Tóningasíða —
Framh. af bls. 2
seldist í meira en 180.000 ein-
tökum. „Absolutely Free“, önn-
ur „LP“-plata þeirra, náði að
seljast í 110.000 eintökum á
tveimur og hálfum mánuði í
Bandaríkjunum einum. Upptöku
þriðju „LP“-hljómplötu þeirra
er nú lokið og mun hún koma
á markað nú í janúar. „LP“-
plata númer fjögur er nú þegar
áformuð. Hún á að vera leik-
dans (ballet).
Ofanrituð ummæli eru rituö
svo til orðrétt eftir Frank Zappa
og fleiri meðlimum „Mothers
Of Invention", og ber að afsaka
málvillur og orðatiltæki, sem
rangt er með farið. Margt var
þó eigi prenthæft.
Hljómsveit þessi tilheyrir hin-
um svokölluðu „hippies", sem
ryðja sér nú til rúms meðal ó-
þroskaðra og afvegaleiddra ungl
inga. Hér á landi virðist áhug-
inn vera að glæðast, og ber það
að syrgja. Oftsinnis hef ég aug-
um litið auglýsingar frá einu
samkomuhúsi borgarinnar, þar
sem segir, að „allir eigi að mæta
í hippies-klæðnaði". Skora ég
hér meö á stjórnanda þessarar
stofnunar aö láta þetta eigi
koma fram oftar, því sííkt er
til lýtar húsnæði hans. Ætti hver
og einn að fá að mæta í þeim
klæðnaöi, sem honum þykir bezt
henta.
Réttarhöld —
Framh. af bls, 8
að í æðstu stjórn landsins, eöa
þar séu menn sem aðhyllist
skoðanir hans. Sjálfur kveðst
hann ala „beizlaða bjartsýni",
en kröfumar um meira frelsi
nái ekki fram að ganga, nema
stöðugt sé lagt fast aö þeim,
sem ráöa landinu.
Þess er að geta, að allir svo-
nefndir PEN-klúbbar heims
hafa sent mótmæli vegna rétt-
arhaldanna.
Réttarhöldin gegn hinum
ungu rithöf. eru tengd rétt-
arhöldunum yfir Andrei Siny-
avski og Juri Daniel, sem fyrir
ári vom dæmdir í langa fang-
elsisvist fyrir að hafa smyglað
úr landi „sovétfjandsamlegum
ritum“. Þegar málaferlum
yfir þeim lauk samdi Ginsburg
greinarge. 3 um ákærumar gegn
þeim og var henni smyglað til
vestrænna landa. Er því litið
á hann af sovézkum yfirvöld-
um sem leiðtoga „neðanjarðar-
hreyfingar menntamanna".
Þaö var fyrir 8 árum, sem
hann hóf útgáfu tímarits sem
varð nafnkunnugt, en það nefnd-
ist SYNTAX. Hann sat í fang-
elsi í 2 ár, hélt áfram að skrifa
og smygla ritum ungra höfunda
úr landi. Hann var tilneyddur
aö játa opinberlega „mistök"
sín og átti svo um tíma fyrir-
litningu og kulda að mæta frá
mörgum fyrri vinum, en hann
vann aftur álit þeirra og vin-
senmdi - og tryggði sjálfum sér
nýja fangelsisvist" — er hann
smyglaði til vestrænná landa
opinberri rússneskri greinar-
gerö um rithöfundana tvo, sem
dæmdir voru til fangelsisvistar.
Yfirvöldin biðu þó — en
þegar hann tók þátt í kröfugöng
um og mótmælafundum stúd-
enia út af fangelsun Sinyavski
og Daniels var hann handtekinn
fyrir ári síðan, og settur í
Lefortovo-fangelsi, þar sem
látnir eru vera hættulegustu
stjórnmálalegir glæpamenn í
Sovétríkjunum.
Af fjórum sakborningum er
almennt talið, að Alexander
Ginsburg fái þyngsta dóminn.
Læknaskortur —
Framhald af bls 1
inu. Enginn læknir er þó á
Flateyri, en læknirinn á Þingeyri
gegnir störfum þar.
Á Bíldudal er heldur enginn
læknir, en tveir læknar eru á
Patreksfirði, sem skipta á milli
sín Bíldudalshéraðinu og Pat-
reksfjarðarhéraöi.
Á Súðavík er enginn læknir,
en þar hefur aðeins verið lækn-
ir meö höppum og glöppum síð-
asta aldarfjórðunginn eða meir.
Læknisskortur þar þykir ekki
umtalsverður, enda eru aðeins
17 km þaðan til ísafjarðar og
hefur Súðavíkurlæknirinn oftast
setið þar, þegar einhver hefur
verið.
Júgöslavar —
Framhald af bls 1
hinni alþýðlegu hefð í dönsun-
um og þjóðlögunum og fyrir aö
halda hópnum mjög vel þjálfuð-
um og samæfðum.
Við áttum stutt spjall við
VlSl
Dragoslav Dzadsevic í gær, þar
sem hópurinn var að koma úr
mat á Hótel Loftleiðum.
Sagði hann okkur, að hópur-
inn kæmi nú beint frá Júgó-
slavíu, en yfir áramótin var
hann á sýningaferðalagi í
Belgíu. Nú heldur hópurinn til
Bandaríkjanna þar sem hann
mun sýna f öllum helztu borgum
næstu mánuðina.
„Hvemig lízt ykkur svo á ís-
land?“
„Við höfum nú lítið séð af
því ennþá, en margir úr hópnum
hafa aðeins komið hér við áður
á ferðalö.gum vestur um haf, en
aldrei haft neina viðdvöl. Okkur
lízt ágætlega á það sem við höf-
um séð. Við förum núna strax
að æfa okkur í Þjóðleikhúsinu,
en þangað hefur enginn okkar
komið áður.“
r'
Ufsvar —
Framhald af bls. 1.
180 klst. viö hana á mánuði,
enda hafa verið tekin mörg verk
efni til meöferðar, sem ekki
kæmi til greina aö gera án
hennar.
Endurskoðandi Reykjavíkur-
borgar, Helgi V. Jónsson sagði
að með tilkomu nýju tölvunnar
yröi unnt að setja allt bókhald
borgarinnar og ríkissjóðs til
Skýrsluvéla, en með því myndi
fást betri og hraðvirkari yfir-
sýn yfir stjóm borgarinnar, sem
hefur mikið gildi t.d. með til-
liti til hvers vel hefði gengiö að
fylgja eftir fjárhags- og fram-
kvæmdaáætlun borgarinnar. —
Það hefur alltaf verið galli á
bókhaldi hvers seinvirkt þaö
hefur verið og verið á eftir
tímanum, sagði Helgi.
Hann sagði að með tölvunni
yrði mögulegt að breyta inn-
heimtubókhaldi Gjaldheimtunn-
ar og mögulegt yröi að láta
hana leysa ýmis stærðfræöileg
verkefni sem og ýmsa verkút-
reikninga. Þá væri slík tölva
algjör forsenda þess aö hægt
veröi að taka upp staðgreiðslu-
kerfi skatta, en til að firra mis-
skilningi bætt hann við aö
staðgreiðslukerfið ætti enn langt
í land,
Otto Michelsen, forstjóri úti-
bús IBM hér Á landi, sagöi að
tölva þessi yröi lang stærsta
tölva, sem hingað hefur verið
flutt inn. Erfitt er að gera ná-
kvæma grein fyrir afkastagetu
hennar til samanburðar við
tölvur, sem þegar em í landinu,
þar sem taka verður tillit til
margra þátta. Hún getur til aö
mynda gengið frá fjölbreyti-
legri og flóknari verkefnum en
gamla tölvan, hefur 16000
minniseiningar á móti 4000
minniseiningum. Otskriftahraði
hennar margfalt meiri, getur
skrifað út 11.000 línur á mínútu,
en í hverri línu geta verið 132
stafir.
' Til samanburðar má geta þess
að tölva Háskólans hefur 40000
minniseiningar, en útskriftar-
hraði hennar er ekki nema fá-
einar línur á mínútu.
Nýja tölvan verður útbúin
segulböndum og seguldiskum,
en þeir gera það kleift að hægt
er að fá ýmsar flóknar upp-
lýsingar samstundis.
Fjórar tölvur em nú fyrir í
landinu af þriðju kynslóð og
ein til viðbótar við ofangreinda
er í pöntun. Fyrirtækin sem
hafa tölvur af þriðju kynslóð
(allar af gerðinni LBM 360—20)
eru: Loftleiðir, Sláturfélag Suð-
urlands, Landsbankinn og Sam-
bandið. — Þá eru^þrjár tölvur
af annarri kynslóö í landinu, hjá
Háskólanum (IBM 1620-2),
Skýrsluvélum IBM (IBM 1401)
og Skýrsluvélum ríkisins og
Reykjavíkurborgar (IBM 1401).
------------------- t -----------------------
Alúðarþakkir flytjum við öllum þeim nær og
fjær, setm auðsýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og bálför
BJARNA BRANDSSONAR.
Sérstakar þakkir viljum við flytja lækni og hjúkr-
unarliði Dvalarheimilis aldraðra sjómanna fyrir alúð
og umhyggju honum veitta.
Böm, tengdabörn og barnabörn.
R . Laugardagur 13. janúar 1968.
BELLA
— og munið það að ef þér
klippið sentimeter of mikið af
hárinu á mér þá klippi ég af yður
skeggið...
MESSUR
Grensásprestakall.
Barnasamkoma í Breiðagerðis-
skóla kl. 10.30. — Messa kl. 2.
Séra Felix Ólafsson.
Neskirkja.
Barnasamkoma kl, 10.30. Messa
kl. 2. Séra Jón Thorarensen.
Mýrarhúsaskóli. —
Barnasamkoma kl. 10. Séra Frank
M, Halldórsson.
Elliheimilið Grund.
Guðsþjónusta kl. 2 e.h. á vegum
Félags fyrrverandi sóknarpresta.
Séra Bjöm O. Björnsson messar
Heimilisprestur.
Bústaðaprestakall.
Barnasamkoma í Réttarholtsskóla
kl. 10. — Guðsþjónusta kl. 11
Vinsaml. athugið breyttan messn-
tíma. Séra Ólafur Skúlason
Ásprestakall,
Messa í'Laugarnesskóla kl. 5 —
Bamasamkoma kl. 11 í Laugará=
bíói. Barnakórinn komi kl. 10.3°
Séra Grímur Grímsson.
Hallgrímskirkja-
Barnasamkoma kl. 10 Svsti-
Unnur Halldórsdóttir. — Mess”
kl, 11. Séra Erlendur Sigmundr
son.
Háteigskirkja.
Barnasamkoma kl 10.30. Séra
Arngrímur .’ónsson Messa kl. 2
Séra Jón Þorvarðsson.
Langholtsprestakall.
Barnasamkoma kl 10.30. Séra
^relíus Nfelsson.
Samkoma fyrir eldra fólk hefst
með guðsþjónustu kl. 2. Helgi-
sýning nemenda f Vogaskólanum
Kaffiveitingar og margt fleira.
Fríkirkjan.
Barnasamkoma kl 10.30. Guðni
Gunnarsson. Messa kl. 2. Séra
Þorsteinn Björnsson.
Laugameskirkja.
Messa kl. 2 e. h. Barnaguðs-
bjónusta kl. 10 f. h. Séra Garðar
Svavarsson
TILKYNNINGAR
Langholtssöfnuður:
Kynningar og spilakvöld verð-
ur í safnaðarheimilinu sunnudag-
inn 14. janúar kl. 8.30.