Vísir


Vísir - 27.01.1968, Qupperneq 10

Vísir - 27.01.1968, Qupperneq 10
70 V I S x R. Laugardagur 27. janúar 1968. BELLA — Gerir það nokkuð til þó að ég þurfi að leiðrétta bréfin mín nokkrum sinnum? Þau verða bara persónulegri fyrir bragðið. MESSDR Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl 2. — Barnasamkoma kl. 10.30. Séra Gunnar Árnason . Háteigskirkja. Messa kl. 2. Séra Jón Þorvaröarson. — Barna samkoma kl. 10.30 og síödegis- guðþjónusta kl .5 .Séra Arngrím ur Jónsson . Bústaðaprestakall. Barnasam- koma í Réttarholtsskóla kl. 10.30. Guösþjónusta kl. 2 Séra Ólafur Skúlason. Neskirkja. Barnasamkoma kl. 10.30. Messa kl. 2. Séra Jón Thor arensen. Mýrarhúsaskóli. Barnasamkoma kl. 10. Séra Frank M. Halldórs- son. Langholtsprestakail. Barnasam koma kl. 10.30. — Guðsþjónusta kl. 2. Séra Árelíus Níelsson. Grensásprestakail: Barnasam- koma í Breiöagerðisskóla kl. 10.30! — Messa kl. 2. Séra Felix Ólafsson. Hafnarfjarðarkirkja. Messa kl. 2. Barnaguösþjónusta kl. 10.30. Séra Garðar Þorsteinsson. Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns. Messa kl. 5 Séra. Óskar J. Þorláksson (ungt fólk aöstoöar). Laugarneskirkja. Messa kl. 11 f. h. (ath. breyttan messutíma). Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h. Séra Garðar Svavarsson Fríkirkjan. Barnasamkoma kl. 10.30. Messa kl. 2. Séra Magnús Guðmundsson fyrrverandi pró- fastur messar. Séra Þorsteinn Bjömsson. Elliheimilið Grund, Guðsþjón- usta kl. 2 e.h. Séra Lárus Hall- dórsson messar. Heimilisprestur- inn. Hallgrímskirkja. Barnasam- koma kl. 10. Systir Unnur Hall- dórsdóttir. Messa kl. 11. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. ABALFUNDUR Kvenfélag Háteigssóknar ,held- ur aöalfund í Sjómannaskólan- um fimmtudaginn 1. febr. kl. 8.30 Stjórnin. Vandamál yngri sem eldri í umferðinni Þessa dagana er að hefjast al- menn umferðarfræðsludagskrá á vegum Umferðamefndar Reykja- víkur og lögreglunnar i Reykjavík. Markmið þessarar dagskrár er að veita öllum vegfarendum, ungum sem öldruðum, sem ýtarlegasta fræðslu um umferðarmál, en lögð verður sérstök áherzla á vandamál aldraöra í umferðinni sem og yngstu vegfarendanna. Framkvæmd þessarar dagskrár er í höndum Fræðslu- og upplýsingask'rifstofu Umferðarnefndar Reykjavíkur. Helztu þættirnir í þessari dag- skrá, en hún mun standa fram i miðjan marz, verða þessir: 1. Dreifimiðar um umferð gang- andi vegfarenda hafa þegar veriö sendir á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Á þessum dreifimiöum er vakin athygli á fjórum reglum, sem mikilvægar eru hverjum| gangandi vegfaranda, en einkum er þó vakin athygli á mikilvægi þess, aö gang- brautir séu rétt notaðar. 2. Um næstu mánaðamót verða sendir dreifimiðar til allra skóla- barna hér á höfuðborgarsvæðinu, sem eru 7—12 ára. Dreifimiðar þess ir bera heitiö „Foröizt slysin.“ 'Á þeim verða m. a. upplýsingar um helztu orsakir barnaslysa á s.l. ári. 3. Komið verður upp 600 auglýs- ingaspjöldum á höfuöborgarsvæö- inu. Á spjöldum þessum eru hvatn ingarorð til vegfarenda. Þegar hef- ur um 500 slíkum spjöldum verið komið upp. 4. „Ökumaðurinn" nefnist fræðslu ] og kynningarrit, sem gefið verður j út og sent öllum atvinnubifreiöar-1 stjórum á höfuðborgarsvæðinu. ! 5. Efnt verður til skipulagöra fræðslufunda með atvinnu-bifreiöa-, stjórum. Hefur sá fyrsti þegar ver-1 ið haldinn. Á þessum fundum verð- j ur atvinnubifreiðastjórum veitt al- menn fræðsla um umferðarmál, jafnframt þv( aö rætt verður um undirbúning H-dags. Gert er ráö- fyrir, að hver atvinnubifreiðastjóri eigi kost á aö sækja 2—3 slíka fundi fram að H-degi. 6. I febrúarmánuði verður efnt til almennra fræðslufunda meö i- búum höfuðborgarsvæðisins. Þar verður rætt um almenn umferðar- mál, jafnframt því að gefnar verða upplýsingar um undirbúning fyrir breytingu í hægri umferö. Fleiri atriði eru á dagskrá þess- arar umferðardagskrár, og vérður getið þeirra þátta síðar. — 7 milljónum úthlutað i atvinnuleysisbætur — Útlit fyrir milljónaútgj'óld hjá Atvinnuleysis- tryggingasjóði næstu vikurnar SÍÐASTA ÁR var mesta atvinnuleysisár, sem komið hefur um langan tíma hér á landi, ef miðað er við atvinnuleysisbætur. Þá var úthlutað samtals 7 milljónum og 69 þúsundum króna úr Atvinnuleysistryggingarsjóði, eða röskum fjórum milljónum króna meira en árið 1966. - Segir þar til sín hið aivarlega atvinnu- ástand, sem skapaðist seinni hluta ársins og gætti í fyrstunni mest á Norðurlandi. — Atvinnuhorfurnar hafa sízt batnað frá áramótum og nú bíða hundruðir ef ekki þúsundir manna eftir atvinnuleysisbótum. Ef ekki rætist úr atvinnuhorfunum á næst- unni má búast við milljónaútgjöldum úr atvinnuleysistryggingar- sjóði næstu vikurnar. Sumu af þessu fólki hefur verið út- j veguð vinna, en víðast hvar bíða' tugir og hundruðir eftir atvinnu-! leysisstyrknum. í Faykjavík eru atvinnuleysingj- ar orðnir hátt á fimmta hundrað á j skrá. í Yestmannaeyjum eru nokk- uð á annað hundrað á skrá, þar af allmargar konur ,sem unnið hafa í fiskiðjuverum bæjarins. Stefán Bjarman á Vinnumiðlunar skrifstofu Akureyrar sagði Vísi í gær að talsveröur fjöldi fólks af ýmsum stéttum væri átvinnulaust þar í bæ, en skráning færi þaiSekki fram .yrr en um mánaðamótin og kvaðst hann því ekki hafa tölur yfir fjölda þeirra. Mestur hluti atvinnuleysisbót- ] anna á seinasta ári fór til kaup- j staöa og kauptúna á Noröurlandi. Á Akureyri uámu bæturnar 1 millj ón, 566 þúsundum króna og á Siglu fírði 1 milljón 480 þúsundum. j Þessar tölur um atvinnuleysisbæt ur fékk Vísir í gær hjá Tryggingar-. stofnun ríkisins og til samanburð ar má geta þess að árið 1966 var úthlutað 2.997.154 krónum úr at-1 vinnule/sistryggingasjóði. Daglega streymir fólk á Ráön-, ingarskrifstofuna í Reykjavík og bæjarskrifstofur úti á landi til þess að láta skrá sig atvinnulaust. — Keppni um teikningu á Evrópufrimerki: ÍSL. ARKITEKT wm VERÐLAUN Póstnefnd Evrópusamráðs pósts og síma (CEPT) kom saman til fundar í bænum ViIlars-sur-Ollon í Sviss, 25. janúar s.I. til þess að velja mynd á Evrópufrímerki næstu þriggja ára. Alls voru lagðar fram 28 teikningar frá 15 löndum. Fyrir Evrópufrímerki ársins 1969 valdi nefndin teikningu frá Ítalíu, fyrir Evrópufrímerki ársins 1970 valdi hún teikningu frá írlandi og fyrir Evrópufrímerki ársins 1971 var valin teikning frá íslandi eftir Helga Hafliðason, arkitekt. Hlýtur hann í verðlaun jafnviröi 2500 gull- franka, um 46.550.— krónur. Teikning frá íslandi hefur áður verið valin á Evrópufrímerki. Var það teikning Harðar Karlssonar ár- ið 1965. Er ísland einasta aðildar- land CEPT, sem teikning hefur ver- ið valin frá oftar en einu sinni. Strandaði — náðist út Um fimmleiytið í fyrrinótt strandaði vélbáturinn Hildur vest- an við Ingólfshöfða. Báturinn var á Ieiö austur á firði og þaðan til út- landa. — Gamall trébátur skráður í Reykjavík. Björgunarsveit í Öræfum brást fljótt við, en þegar undirbúningi að björgun var lokið losnaði bát- urinn á flot án aðstoðar, og meira að segja án þess að vélin kæmist í gang. Næstu átta tíma var unnið að því um borð að koma vélinni f gang, og það tókst um sfðir. Henry Hálfdánarson tjáði blað- inu, að aðrir bátar hefðu beðið á- tekta og verið reiðubúnir að veita aöstoð, en ekki var farið fram á hana. Þótt báturinn strandaði vest- an Ingólfshöfða, tókst þannig til eftir að hann var kominn á flot, að hann rak í öfuga átt fyrir ósa Skeiðarár, þannig að ef báturinn hefði strandað á sandinum aftur, hefðu björgunarmenn þurft að brjótast yfir Skeiðará. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Vísir fékk f gær höfðu 37 látið skrá sig á Akranesr En þar hafa fáir bætzt við seinustu dag- ana og sumt af þessu fólki hefur nú fengiö vinnu. 20 voru skráðir atvinnulausir í Kópavogi á bæjar- skrifstofunni og 19 í Hainarfiröi Þessar tölur eru allar mið.iðar við föstudagskvöld. — í Keflavík voru hins vegar skráðir 45 atvinnulausir í gærkvöldi, flestir seinustu dag ana og voru þá ekki meöta’-dir þeir sem komizt höfðu í vinnu eftir að þeir létu skrá sig. Ástandiö var víðast hvar mjög slæmt í sjávarplássum, enda hefur lítil vinna verið við fiskverkun haust og vetur, vegna fiskleysis og ógæfta, auk ] ess sem frystihús in eru nú lokuð sem kunnugt er. Sbtcer Framhald at bls. I. umstæðum taka Iengri tíma en 15 mínútur, því þá er loftið þorriö jafnvel hjá mestu blásurum. — Ræðumaður les upp Ijóð til Haggis eftir Robert Burns en síðan tekur hann upp hníf og ristir á belginn umhverfis „Haggisið.“ Á eftir geng ur ræðumaðurinn milli manna með Wisky-flösku og hellir einum „hald (hálfum) í glas hvers manns. Hinn þjóölegi réttur er snæddiir en síðan er flutt „hin ódauðlega minning“ (Immortal Memory) um Robert Burns, en ræðan skal fjalla um einhvern þátt í lífi skáldsins t. d. ástir eða drykkju (He was happy drinker). David Brown var klæddur í ein kennisbúning Highland light In fantry (Fótgöngulið Hálandanna) en sú hersveit hefur nú nýlega ver ið bönnuð í stjórnartíð Wilsons.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.