Vísir - 27.01.1968, Page 16
'•$kS&3xí2&s&£
,Jú, velkomið að stilla sér upp fyrir eina mynd, en einn vantar þó í þennan 15 manna hóp.
Islandsklukkan frumsýnd i Þjóðleikhúsinu 31. jan.
♦ Á fundi, sem þjóðleikhússtjóri hélt með blaðamönnum f gær
kom það fram, að Halldór Laxness rithöfundur vinnur nú áð
nýrri skáidsógu. Sagði Halldór, að í sumar og vetur hefði hann
unnið að því að skrifa leikrit, en siðan hefði hann skrifað það
upp á nýtt í annarri umferð í skáldsöguformi, þannig að nú ætti
hann á vinnustofu sinni tvö skyld verk um sama efni.
Kvenfélagið í
Ásprestakalli
kaupir húseign
Kvenfélag Ásprestakalls festi í |
gær kaup á fasteigninni Hólsvegi,
17, en ætlunin er að nota þetta
hús undir félagsstarfsemi í sókn
inni ,þar ti! prestakallið hefur kom
ið sér upp kirkju og félagsheimili
í tenglum við hana, en þá verður
húsið að Hólsvegi 17 selt og and-
virðið látiö renna upp í verð kirkj
unnar og væntanlegs félagsheimil-
is.
Þó að konurnar í Ásprestakalli
eigi heiðurinn fyrst og fremst að
þessu myndarlega átaki, hafa þær
notið aðstoðar sóknarnefndarinnar
og hræðarfélagsins í sókninni.
Ef til vill kemur þessi skáldsaga
út í bókarformi næsta sumar eða
haust, ef Laxness tekst að ljúka
verkinu á komandi mánuðum, en
margir lesenda skáldsins hafa lengi
beðið þess, að þessi meistari skáld
sögunnar sendi frá sér nýtt verk.
Þjóðleikhússtjóri skýrði frétta-
mönnum frá því, að næsta verk-
efni leikhússins yrði íslandsklukk
an, eins og áður hefur verið greint
frá í blaðinu.
Að þessu sinni mun Baldvin Hall
dórsson stjórna leiksýningunni, en
leikmynd gerir Gunnar Bjarnason
og búninga Lárus Ingólfsson.
I hinum tuttugu atriðum leiksins
munu næstum fjörutíu leikarár
koma fram. Helztu hlutverk eru:
Jón Hreggviðsson á Rein, leikinn
af Róbert Arnfinnssyni, assessor
Arnes Arnæus leikinn af Rúrik Har
aldssyni Snæfríður Eydalín leikin
af Ligríöi Þorvaldsdóttur, Dóm-
kirkjupresturinn leikinn af Gísla
Alfreðssvni og júnkærinn í Bræðra
túngu, sem leikinn er af Erlingi
Gíslasyni
VISTR
Laugardagur 27. jan. 1968.
Ofafur Ragnars
sæmdur
riddaralcrossi
Vasaorðunnar
Konungur Svía Gústaf VI Adolf
hefur sæmt f. v. sænska ræðis-
manninn á Siglufirði Ólaf Ragnars
riddarakrossi hinnar Konunglegu
Vasaorðu. Honum var afhent heið-
ursmerkið á heimili sænska sendi-
herrans 25. þ.m.
(Frá sænska sendiráðinu.)
Enn ófundnir
Enn hefur ekkert spurzt til týndu
mannanna tveggja, sem lýst hefur
verið eftir í þrjár vikur. Skipu-
lögð leit hefur nú að mestu verið
lögð niður, eða að minnsta kosti
éngir leitarflokkar verið á ferli
síðustu dagana, enda búið að leita
vandlega um næsta nágrenni
Reykjavíkur og einnig í bænum.
Hins vegar starfar rannsóknarlög-
reglan að rannsókn á hvarfi mann
anna, en hefur lítið orðið ágengt,
e.nda lítið til þess að fara eftir. Von-
ir manna um að finna þá týndu á
lífi aftur, eru nú orðnar litlar en
þó er í lengstu lc.g haldið í þær.
••••••••••••••••••••••••••
HER KOMUST ÞAU I KYNNI VIÐ
NÁTTÚRUNr
— Erlendir starfsmenn Loftleiða lita
augum heimaland fyrirtækisins
— Mér finnst ég vera eins og drottning! hafði ein sagt.
— Að hugsa sér! Við borðuðum í gærkvöldi um borð í
síldarbát, sagði annar.
Andartak hvarf af þeim ópersónulegur kurteisissvipur af-
greiðslufóiksins og brosin urðu innilegri og þau Iitu framan
í hvort annað, eins og til að sjá, hvort hin deildu ekki með
þeim áhuganum.
Góðlegur maður á bezta aldri
sneri sér frá hóp ungmenna, sem
hafði reynt með fáum orðum
að skýra fyrir blaðamanni Vísis,
hvernig þeim litist á I’sland —
heimaland fyrirtækisins, sem
þau starfa öll hjá, Loftleiða.
— Það má sjá, að þau hafa
orðið fyrtr töluverðum áhrifum
(svo maður kveði nú ekki of
sterkt að orði), sagði maðurinn,
Hollendingur að þjóðerni, — ...
töluverðum áhrifum af komunni
hingað.
Blaðamaður Vísis hafði komið
að hópi starfsmanna Loftleiða í
afgreiðslusal Loftleiðahótelsins,
en þau sinna fyrir Loftleiðir ým-
iss konar farþegaþjónustu í af-
greiðslum fyrirtækisins í Chi-
cago, San Francisko, New York
og á JFK-flugvellinurh.
„Hér hafa þau komizt í kynni
við náttúruna,“ sagði Hollend-
ingurinn, Jan Prydekker, sem
hafði orö fyrir þessum fjöruga
hóp. „Sjáðu til! Þau eru nefni-
lega öll fædd og uppalin í stór-
borgum, þar sem maður sér
varla nokkurn tíma upp yfir hús
þökin.“
Prydekker kvað þau hafa far-
ið daginn áður til Hveragerðis
og þeim hefði þótt stórkostlegt
að sjá hverina og „þessi nátt-
úruundur ykkar íslendinga". í
morgun ætluðu þau að halda til
Luxemborgar, en ætlunin var i
gær að skoöa sig um f Reykja-
vík.
Þetta var kynnisför, sem fyrir-
tækið efnir til fyrir starfsfólk
sitt, — einkanlega þá, sem eru
nýbyrjaðir, — en þau höfðu c!l
starfað minnst eitt ár hjá því,
nema Prydekker, sem sagðist
vera „oldtimer". Hann hefur unn
ið hjá Loftleiðum í 8 ár.
í hópnum voru 3 íslendingar,
Louise Thordarsen (starfar í
Chicago), Guðmundur Einarsson
(JFK-flugvelli) og Friðrik Björg-
vinsson (JFK-flugvellinum), sem
kváðust fegin tækifærinu til
þess að heilsa upp á ættingjana,
en þau hafa öll starfað í lengri
eða skemmri tíma erlendis.
Svo var að sjá sem þau hefðu
öll gaman af tilbreytingunni.
Þau eru vanari því að stjana í •
kringum aöra, en það sé snúizt
í kringum þau, og því var það,
að ungu stúlkunni fannst hún
vera eins og drottning.
!•••••••••••••••••••
„Ævintýraferð til Hafnar"
1 Stundinni okkar, barnatfma
sjónvarpsins, sem hefur náð
miklum vinsældum, ekki aðeins
hjá börnunum, heldur einnig for
ráöamönnum bamanna sjálfra,
verður á morgun sýnd kvik-
myrtd, sem tekin var af sjón-
varpinu i sumar sem leiö af
tveim börnum, sem unnu rit-
gerðasamkeppni barnablaðanna
Æskunnar og Vorsins í sam-
vinnu við Flugfélag íslands, þeg
ar þau voru í verðlaunaferð í
Danmörku. Á myndinni, sem
hér fyigir er Marfa Jónsdóttir
aö skemmta sér í Tívolí í Kaup
mannahöfn, en ungur piltur,
Ingólfur Arnarson var hin verð
launahafinn. Verður sýndur
myndaflokkur af börnunum,
sem heitir „Ævintýraferð til
Hafnar.“ Fyrsti þátturinn heit-
ir „Með Guilfaxa til borgarinn-
ar við Sundið.“ Þrándur Thor-
oddsen tók myndina.
Af öðru efni annað kvöld
verður leikur drengjahljóm-
sveitar Varmárskóla og loks
rabba þau saman Rannveig og
Krummi.
Lengst til vinstri í fremstu röð er Jan Prydekker, þriðji f. v. er Friðrik Björgvinsson, en
iengst til hægri er Guðmundur Einarsson. í annarri röð iengst t.h. er Louise Thoroddsen.
Jörgensens-málið enn
endurskoðun
Væntanlega hefst réttarhald aftur á næstunni
Rannsókn hefur nú staðið yf
ir um alilangt skeið í máli Frið-
riks Jörgensens, en aðailega far-
ið fram í formi endurskoðunar
á bókhaldi yfir viðskipti fyrir-
tækis hans við framleiðendur
sjávarafurða.
Endurskoðunin hófst snemma
á árinu ’67 og um tíma unnu
við hana 5 endurskoðendur og
er henni ólokið enn. Þetta hefur
tafið nokkuð réttarhald f mál-
inu, þvf niðurstöður endurskoð
unarinnar eru taldar skipta
miklu máli, og þvf beðið eftir
skýrslu endurskoöanda.
f samtali við Ólaf Þorláksson,
sakadómara, í gær kom í Ijós,
að sakadómi hefur borizt þátt-
ur úr skýrslu endurskoðanda,
en mikið mun þó eftir enn, sem
þörf er endurskoðunar á, og þvf
líklegt að rannsókn málsins
teygist nokkuð á langinn. Þó
taldi Ólafur, að á næstunni ein
hvem tíma yrði byrjað að þinga
í málinu á nýjan ieik.
Laxness vinnur að
nýrri skáldsögu