Vísir - 01.02.1968, Blaðsíða 1
‘ »■ — r=»' -
VISIR
58. árg. - Fimmtudagur 1. febrúar 1968. - 27. tbl.
VestfírBingar
byrjaðir á netum
RÓÐRAR eru nú víðast hafnir
af fullum krafti. Vestfirðingar
hafa aflað mjög vel það sem af
ef vertíðinni, þá sjaldan gefið
hefur á sjó. Linubátar hafa kom-
izt þar upp í 14-15 tonn í rððr-
inum. Nokkrir Vestfjarðabátar
eru nú byrjaðir netaveiðar og er
það fyrr en venjulega. Hafa þeir
aflað allvel. Helga Guðmunds-
dóttir frá Patreksfirði fékk 200
tonn í einni lögn í fyrradag. —
Tveir bátar eru byrjaðir netaveið
ar frá Patreksfirði og að minnsta
kosti einn frá Þingeyri. /
Frá Ólafsvik róa sex línubátar
og hafa aflað þetta 5—8 tonn í
róðri, þessa seinustu gæftadaga.
NIu bátar eru þar á togveiðum
og hefur afli þeirra verið tregari.
Hellissandsbátar hafa mest kom
izt tiu róðra í janúarmánuði og
bvrjuöu þó sumir þegar eftir ára-
mótin. Afli hefur verið þolanlegur
seinustu dagana, 5 til níu lestir í
róðri.
Tólf bátar lönduðu 60 tonnum í
Keflavik í gær, 2]/2 og upp í 7-8
lestum hvei bátur. Þykja þaö sæmi
leg aflabrögð miðað við það sem
venjulega er um þennan tíma.
Atvinnu- og kjuramálin rædd á Alþingi:
2000 manns atvinnulausir
Atvinnu- og kjaramálin voru
tekin fyrir utan dagskrár á
framhaldsþingi ASÍ í gær, en
tveir aöilar lögðu fram drög að
ályktun um þessi mál. Eftir
nokkrar umræður var málinu
vísað til nefndar, sem kjörin var
til að fjalla um málin. Þeir sem
tóku til máls lögöu allir á það
áherzlu, að atvinnuleysið yröi
ekki þolað, krefjast yrði 'áfram
verðtryggingar launa og að
heildartekjur yrðu óskertar miö-
að við dagvinnu eina. 1 ræðu
Hermanns Guðmundssonar, for-
manns verkamannafélagsins
Hlífar, Hafnarfirði, kom frr-n
það álit, að um 2000 manns væru
nú atvinnulausir í landinu.
Hannibal Valdimarsson, for-
seti ASÍ, tók fyrstur til máls um
atvinnu- og kjaramálin. Lagði
hann áherzlu á nokkur atriði,
sem gætu orðið til að bæta úr
núverandi erfiðleikum i atvinnu
málum, þegar hann fylgdi úr
hlaði drögum að ályktun ASl
um atvinnu- og kjaramál.
Guömundur J. Guðmundsson
lagði fram d:5g að ályktún,
sem hann og tveir aörir f miö-
stjóm ASÍ, Benedikt Davíðsson
og Öm Scheving, stóðu aö.
Gagnrýndi hann nokkuð þá að-
ferð Hannibals að leggja sjálfur
fram drög að ályktun, í stað
þess að miðstjórn ASÍ sem slík
h.-'Ji átt að gera það. Meginat-
riðin í drögum þeirra Guðm. J.
Guðmundssonar, voru þó nokk-
uö samhljóða drögum Hanni-
bals.
Óskar Garibaldason frá Siglu
firði gagnrýndi miðstjórn ASÍ
fyrir að hafa aflýst verkföllum
1. des. sl. og sagðist tala fyrir
munn félaga sinna fyrir norðan,
þegar hann gagnrýndi vinnu-
brögð forystu ASÍ, en hún yröi
V breyta um vinnubrögð ef
htln ætti aö ávinna sér traust
a«ur.
Sverrir Hermannsson tók und
ir gagnrýni á miðstjórn ASÍ fyr
ir að hafa ekki gefið sér tíma til
að semja drög að ályktun um
atvinnu- og kjaramálin og spurði
hvort ýmsir forystumenn ASÍ
hefðu verið svo önnum kafnir
/ið að skipuleggja andstöðu
gegn aðalverkefni þingsins, sem
er skipulagsmál þeirra. —
Hann lagði á það áherzlu, að
verðtrygging launa yrði að kom-
ast á aftur.
Fleiri tóku til máls, m. a.
Jón Sigurðsson og Hermann
Guðmundsson, en að loknum
umræðunum, var drögum að á-
lyktunum um atvinnu- og kjara
málin vísað til nefndar.
Brezkir togarar heyrðu neyð-
arsón norðan úr höfum í gær
Alls óv'ist hvað þar er um oð ræða — Enn er leitað
að togaranum Kingston Peridot úr loiti og á sjó
Togarinn Kingston Alamandine,
sem staddur var út af Langanesi
í gærkvöldi, tilkynnti Wick-radíói
á Skotlandi, ag hann hefði heyrt
á neyðarbylgjunni veikan són, svo
kallaðan auto alarm-són um klukk-
an 23 GMT í gærkvöldi og aftur 11
mínútum síðar, en þá stóð sónninn
yfir lengri tíma en áður. Tveir
brezkir togarar aðrir voru á þess-
um slóðum og heyrðu einnig þenn-
an són, sem virtist koma norðan
úr höfum, en úr miklum fjarska og
gátu skipin ekki miðað hann út.
Togarinn Kaldbakur og einn brezk-
ur togari enij, sem voru á þessum
slóðum, heyrðu ekki sónlnn.
Slíkur sónn er oft sendur út á
undan neyðarkalli til þess að fá
skipin til þess að hlusta, ef mikið
þvarg er í talstöðvum skipanna og
eru margar neyöartalstöðvar með
þennan són. Hins vegar fylgdi þess-
um són ekkert neyðarkall og er
ekki vitað um hvaö þetta getur ver-
ið.
Talið er þó ósennilegt að þetta
geti verið frá togaranum Kingston
Reyndu
— en
vasaþjófnað
mistókst
♦ I fyrradag var maður einn á i verknaöinn.
leiö í verzlun í austurhverfi j Veskið hafði reyndar ekki Inni
Starfsmenn bæjarsímans unnu að því í gærkvöldi og nótt, að
leggja niður bráðabirgðasímstöö í Árbæjarhverfi og tengja
símana við Grensásstöðina. Á neðri myndinni eru lögreglu-
mennirnir, sem voru til taks á staðnum, svo að hægt var að
snúa sér til þeirra, þrátt fyrir símaleysið.
Símar í Árbæjarhverfi
ir við Grensásstöðina
borgarinnar. Rétt áður en hann
kom í fiskbúöina, þar sem hann
ætlaði að fá sér fisk í soðiö, varð
hann var við að kona nokkur kall-
aði til uans. Sagði konan að dreng-
ir nokkrir hefðu náð í veski manns-
ins, sem hann geymdi í bakvasa
á buxu: sínum. Náði maðurinn
veskinu aftur úr höndum skelkaðra
smádrengja, sem virtust byrjend-
ur í þessari nýstárlegu atvinnu-
grein, en mun ekki hafa kært
að halda peninga en aðeins óútfyllt
ávísanablöð. Peningana geyqidi
maðurinn í öðru veski í sama vasa,
sem drengirnir höfðu ekki náð í.
Vasaþjófar hafa ekki verið at-
hafnasamir hér á landi og furðu-
legt að það fyrirbæri skuli fyrir-
finnast hér. Sumir töldu jafnvel
að drengimir hefðu séð mynd í
sjónvarpinu um vasaþjófa, en þar
var nokkuð vísindalega sýnt hvem-
ig erlendir þjófar haga sér í faginu.
tengdi
□ í gærkvöldi og í nótt
var skipt um símanúmer hjá
um 250 símnotendum í Ár-
bæjarhverfi, tveir fyrstu tölu-
stafirnir í hverju númeri
breyttust - 60 í 84.
Lögð var niður bráðabirgða-
stöð í Árbæjarhverfi og símarn-
ir frá henni tengdir við Grens-
ásstöðina. Byriað var að vinna
að þessu kl. 9 í gærkvöldi og
í morgun var verkjnu lokið. Áður
voru i sambandi um 500 símar
í hverfinu, svo að Árbæjar-
hverfi varð engan veginn síma
sambandslaust, því að fólk sem
skipta þurfti um símanúmer gat
auðveldlega komizt i síma í ein
hverju af næstu húsum.
En til þess að tryggja sem
mest öryggi ef eitthvert ólán
bæri að höndum var lögreglu-
bíll á vakt í hverfinu reiðu-
búinn til að hafa samband við
slökkviliö eða slíka aðila, ef
þörf gerðist. Auk þess voru í
sambandi þrír símasjálfsalar í
hverfinú, serú menn gátu notað
ef í nauðir ræki.
Peridot, sem talinn er hafa farizt út
af Arnarfirðj með 20 mönnum, né
heldur sé þetta úr neyöarsendi i
gúmbát frá togaranum, þar eð veð-
ur hefur verið þannig undanfama
daga, að gúmbátur hlyti að vera
kominn á land upp, ef hann hefði
losnað frá skipinu, samanber þann,
sem rak tóman frá því á fjöm við
Kópasker um daginn.
Skip og flugvélar leita enn norð-
ur af landinu að togaranum og em
það flugvélar frá varnarliðinu á
Keflavíkurvelli, en búizt er við, að
Tryggvi Helgason, flugmaður á Ak-
ureyri, verði fenginn til þess að
senda litla vél yfir svæðið í dag.
Fjömr hafa verið leitaðar vand-
lega á þessu svæði og sagði Aðal-
steinn Eiriksson á Mánárbakka við
Vísi í morgun ag allt Tjömesið
hefði nú verið Ieitað roeð sjó og
verður ekki leitað á fjömm í dag.
í gær fundust á fjörum bobbingur
og bjö.rgunarhringur, sá fjórði, sem
finnst úr skipinu. Ennfremur sást
lestarhleri á floti út af svonefndri
Selvík.
Aðalsteinn sagði að minna væri
nú um fugladauða, vegna olíunnar.
Hún virðist hafa dreifzt og er hverf-
andi.
SAS opnar
skrifstofu hér
Eins og áður hefur komið
fram í fréttum mun SAS taka
upp áætlunarflugferðir til Is-
lands í vor og verður flogið
einu sinni í viku til Keflavíkur
með DC-8 flugvélum.
Fulltrúi SAS-samsteypunnar
hér á landi er Birgir Þórhalls-
son, sem um árabil var for-
stjóri millilandaflugs Flugfélags
Islands, en stýrir nú fyrirtækinu
Sólarfilma hf. Birgir tjáði blað
inu í morgun að verið væri að
undirbúa þessa nýju flugleið,
en ísland er eina landið á Norð
urlöndum, sem SAS flýgur enn
ekki til.
Meðal þess sem gera þarf hér
á landi er að opna söluskrif-
stofu í Reykjavík. Verður þetta
lítil skrifstofa, en ekki ákveðið
hvort starfslið verður eingöngu
íslenzkt eða' blandað, eins og
víðast er hjá flugfélögum, þ.e.
íslenzkt og skandinavískt starfs
lið.
JWWWWWWWNAAAA.