Vísir - 09.02.1968, Page 5

Vísir - 09.02.1968, Page 5
rtSI'R . Föstudagur 9. febrúar 1968. Skýrslo OECD unt efnahagsþróun á * Utlit fyrir batnandi efnahagsþróun á árinu — ef kr'ófum verður stillt / hóf. Niðurfærsla tolla ýtir urrdir hagræðingu i iðnaði, jbor sem atvinnufyrirtækin eru byggð á of smáum einingum i 1968 kom úí í morgun Fjöldamörg íslenzk fyrirtæki eru svo lítil, að venjulegir bílskúrar nægja þeim. Þetta þarf að breytast og fyrirtækin að stækka og fækka. Skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um væntanlega þróun efnahagsmála á nýbyrjuðu ári kom út í morgun. 1 skýrslunni er gert ráð fyrir batnandi efnahags- ástandi á þessu ári, en sagt, að því aðeins megi búast við því, ef kröfum verður stillt í hóf. Búast megi við því að útflutn- ingur aukist um 25%, og er þá miðað við vaxandi afla og skárra verð á útflutningsafurðunum. Verðfall á freðfiski virðist þegar hafa stöðvazt og má jafnvel sjá merki þess, að verðið á heimsmarkaðinum sé byrjað að hreyfast upp á við. Gengisfellingin var nauðsynleg, segir í skýrslunni, vegna mik- ils halla út á við, er var afleiðing verðfalls og aflabrests, ásamt ofmikilli hækkun kaupgjalds og annarra tekna á und- anfarandi tímabili. — Til þess að jafnvægi út á við náist á nýjan leik, þarf að beina framleiðsluöflunum í meiri mæli að útflutningi og að framleiðslu, er komi I síað innflutnings. Helztu leiðirnar til þess að koma þessu fram eru bætt sam- keppnisaðstaða atvinnuveganna og minnkun kaupgetu neyt- enda af völdum hækkaðs innflutningsverðlags. Áframhald- andi festa í kaupgjaldi og verðlagi er nauðsynlegt skilyrði þess, að gengisbreytingin sé ekki unnin fyrir gýg. — Hér á eftir fer inngangur skýrslu OECD og niðurstöður þær, sem stofnunin hefur komizt að. INNGANGUR NIÐURSTÖÐUR í\r hagvöxtur hefur verið á íslandi undanfarin ár, og hefur þjóðarframleiðslan aukizt að meðaltali um 5.8% á ári á fimm ára tímabilinu frá 1961 til 1966. Þjóðartekjumar jukust enn hraðar en þetta vegna batn- andi viðskiptakjara. Hagvextin- um fylgdi á hinn bóginn mikil aukning framleiðslukostnaðar og verðlags, er stafaöi af of mikilli þenslu eftirspurnar og of mikilli aukningu kaupgjalds og tekna. Þrátt fyrir þetta hélzt greiðslujöfnuðurinn út á við til- tölulega traustur, og stuðluðu góð aflabrögð og örar verðhækk- anir útflutningsafurða að þessu. Gjaldeyrisforðinn hélt áfram að aukast mestan hluta þessa tíma- bils. Ástandið breyttist mjög á síð- astliðnu ári. Minnkun erlendrar eftirspumar, er kom fram í lækkandi verði útflutningsaf- urða, dró úr vexti þjóðarfram- leiðslu og þjóðartekna á árinu 1966. Á árinu 1967 minnkaði út- flutningurinn verulega vegna slæmra aflabragða og enn frek- ari samdráttar erlendrar eftir- spurnar. Þjóðarframleiðsla dróst saman og mikill halli myndaðist á greiðslujöfnuði, er leiddi af sér öra lækkun gjaldeyrisforðans. Verðlag og kaupgjald hélzt ó- breytt frá haustinu 1966 til haustsins 1967. Auknar niður- greiðslur og minnkandi þensla eftirspumar áttu sinn þátt í þessu. Hár framleiðslukostnaður olli atvinnuvegunum áframhald- andi erfiðleikum, þrátt fyrir stöðugleika kaupgjaldsins. Á síðustu mánuðum hafa þýðing- armiklar ráðstafanir verið gerð- ar til þess að takmarka vöxt inn- lendrar eftirspumar ög koma aftur á jafnvægi út á við. Geng- isfelling sterlingspundsins gaf til efni til leiðréttingar á gengi ís- lenzkrar krónu. Nýja gengið, sem tilkynnt var 24. nóvember, er kr. 57.00 á bandarískan doll- ar, og felur í sér 24.6% gengis- lækkun gagnvart Bandaríkjadoll- ar og 12% gagnvart sterlings- pundinu. reiðslujöfnuður landsins varð mjög óhags-tæður á árinu 1967, að mestu af völdum óhag- stæðra ytri skilyrða, einkúm lé- legra aflabragða og mikils verð- að nokkur bati muni verða á aflabrögðum og afurðaverði. Gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að hafa hemil á aukningu innlendrar eftirspurnar og inn- flutnings, auk þess sem gengis- breytingin ætti að hafa verulega þýðingu. Enda þótt áhrif geng- isbreytingarinnar og annarra að- gerða komi ekki fram að fullu fyrr en eftir nokkurn tíma, má vænta þess, að verulega dragi úr halla á viðskiptajöfnuði á ár- inu 1968. Af þessum sökum og vegna þess fjármagnsinnfiutn- ings, sem sennilega mun eiga sér staö á árinu, má vænta þ'éss, að bundinn vérði endir á rýmun gjaidéyrisforðans, og jafnvel að hann gæti aukizt eitthvað á ný. Mikiö mun þó komið undir stefnu stjórnarvaldanna og við- horfi launþega, atvinnurekenda og bænda. Eitt helzta viðfangs- efniö mun í því fólgið að draga úr verðhækkunum af völdum gengisfellingarinnar og koma í veg fyrir, að óhjákvæmileg hækkun verðlags á innflutningi verði til þess að hrinda af staö Víxlhækkunum verðlags og kaupgjalds. Gengisfellingin var .nauðsynleg vegna mikils halla skilyrði þess, að gengisbreyting- in sé ekki unnin fyrir gýg. ^f þessu má draga þýðingar- . miklar ályktanir um stefnu stjórnarvalda. Augljóslega er æskilegt, að haldið verði uppi varkárri stjórn almennrar eftir- spurnar, svo að stuðlað sé að bættum viðskiptajöfnuði og festu í kaupgjaldsmálum. Nokk uð slaknaði á eftirspurn á ár- inu 1967. Eftir núverandi horf- um og efnaþagsstefnu að dæma, virðist liklegt, að efnahagsstarf semin muni aðeins aukast hæg- um skrefum á árihu 1968, þann ig að eftirspum muni haldast tiltölulega slök Hins vegar rík- ir óhjákvæmilega um þetta tals verð óvissa, ekki sízt þar sem atvinnustarfsemin er svo mjög háð breytilegum sjávarafla, en einnig méðfram vegna þess, að stefnan í efnahagsmálum, ekki sízt að því leyti sem hún kem- ur fram í afgreiðslu fjárlaga fyr ir árið 1968, er ekki orðin full- mótuð, þégar þetta er ritað. Af þessum sökum er þýðingar- rnikið, að stjórn eftirspurnar- innar sé haldið sveigjanlegri, Nýting atvinnufyrirtækja þarf að aultast og auka þarf hagræðingu falls útflutningsafurða. Leiddi þessi þróun til mikillar rýmun- ar gjaldeyrisforðans. Jafnframt Hafði mikil hækkun framleiðslu- kostnaöar um árabil, ásamt verð fallinu er síðar varð, valdiö at- vinnuvegunum erfiðleikum og teflt £ tvísýnu, hvort unnt væri að reka útflutningsatvinnuveg- ina og þær framleiðslugreinar, er keppa við innflutning, á arð- bærum grundvelli. Þegar þar við bættist gengisfelling sterlings- pundsjns og nokkurra annarra gjaldeyristegunda, var breyting á gengi íslenzku krónunnar í rauninni óhjákvæmileg. Verulegs’ bata á jöfnuðinum út á við virðist mega vænta á árinu 1968. Lfkur virðast á því, út á við, er var afleiðing verð- falls og aflabrests, ásamt of mik- illi hækkun kaupgjalds og ann- arra tekna á undanfarandi tíma- bili. Til þess að jafnvægi út á við náist á nýjan leik, þarf að beina framleiðsluöflunum í meira mæli að útflut'ningi og að framleiðslu, er komi í stað innflutnings. Helztu leiðirnar til þess ag koma þessu fram em bætt samkeppnisaðstaða at- vinnuveganna og mifinkun kaup- getu neytenda af völdum hækk- aðs innflutningsverðlags. Verð- hækkanirnar em því ekki gild ástæða fyrir hækkun kaupgjalds. Áframhaldapdi festa í kaupgjaldi og verðlagi er því nauðsynlegt svo að hægt sé aö hamla gegn of mikilli aukningu eftirspurn- ar, ef til kemúr. Enn fremur hafa stjórnarvöld in þýðingarmiklu hlutverki að gegna við að efla skilning allra hlutaðeigandi aðila á nauðsyn sem mestrar festu kaupgjalds og annarra tekna. En viö skil- yrði óbundinna samninga um kaupgjald og tekjur bænda mun árangur gengisfellingarinnar I bættum jöfnuði út á við vera að mjög miklu leyti kominn und ir samstarfsvilja og ábyrgri af- stöðu launþega, atvinnurekenda og bænda. . :\i;. . Ctjórnarvöldin kunna að vilja ^ hagnýta þær aðstæður, sem nú hafa skapazt, til þess aö gera ráöstafanir til bættra starfshátta í ýmsum greinum efnahagslífsins. í fyrsta lagi hef ur reynsla síðustu ára leitt í Ijós, að þörf er á kerfi, er draga mvndi úr tekjusveiflum af völdum breytilegs afla og út- flutningsverðlags. Verðjöfnunar sjóður frystiafurða, sem nýlega hefur verið settur á fót, er upp- haf á þessari braut, en vand- lega verður að gæta þess, að kerfið sé miðað við raunhæft útflutningsverðlag. Svipað fyr- irkomulag ætti einnig að geta orðið gagnlegt í öðrum greinum sjávarútvegsins. í öðru lagi hefur vegna til- lits til ^kjaramálanna reynzt mjög örðugt að • framfylgja stefnu í fjármálum ríkisins, er ynni gegn veröbólguþróun. Hinn verulegi greiðsluhalli, sem myndaðist á árinu 1967, varð að miklu leyti til vegna að- gerða til að stöðva hækkun verðlags og kaupgjalds. Enda þótt stöðvun yerðlags og kaup- gjalds hafi í sjálfu sér verið þýðingarmikill árangur, átti sú aukning niöurgreiðslna og styrkja, sem kom henni til leið- ar, bersýnilega þátt í að auka á eftirspurn í lanþinu, þ. á. m. eftirspurn eftir innflutningi. og olli þannig nokkru um hinn ó- hagstæða greiðslujöfnuð gagn- vart útlöndum. Það er því at- hugunarefni, hvernig bæta megi hagstjórnaraðferðirnar, svo að beita megi fjármálastjórn ríkis- ins til stjórnar efnahagsmála án þess að valda röskun á vett- vangi verðlags og kaupgjalds Hin nýja vísitala framfærslu kostnaðar, sem gagnstætt hinni fyrri felur ekki,í sér beina skatta, er þýðingarmikið skref i þessa átt. í þriðja lagi getur stefna stjórnarvaldanna stuðlað að auk inni hagræöingu og framleiðni, enda þótt þetta verkefni hljóti að miklu leyti að vera á vett- vangi atvinnufyrirtækjanna sjálfra og samtaka þeirra. Eins qg málum er háttað, er líklegt. að aðgerðir stjórnarvalda geti einkum kamið að gagni við um- bætur á skipulagsbyggingu at- vinnuveganna. Þar sem atvinnu vegir landsmanna eru einkum byggðir upp af tiltölulega smá- um fyrirtækjum, kann aö vera fyrir hendi verulegt svigrúm til að ná aukinni hagkvæmni með sameiningu i stærri einingar. Þessar ráðst- anir má efla meö aögerðum stjórnvalda, einkum á sviöi lánsfjármála. Ennfr. hef- ur aukið frjálsræði í utanríkis- viðskiptum og niðurfærsla tolla á síöustu árum haft f för meö sér haröari samkeppni erlend- is frá og ýtt undir hagræðingu á iðnaði, er starfar fvrir inn- lendan markað. Tollar eru enn háir og gæti frekari lækkun þeirra verið þýöingarmikill þátt ur í stefnu stjórnarvaldanna til að stuðla aö aukinni fram- leiöni. I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.