Vísir


Vísir - 22.03.1968, Qupperneq 2

Vísir - 22.03.1968, Qupperneq 2
2 V í SIR . Föstudagur 22. marz 1968. Bandarískur iúdóbi UMFK vann FH f innanhússknattspyrnu Stýrisvafningar Uppl. 34554 Er á vinnustað i Hœðargarði 20 ERNZT ZSEBERT Fyrir nokkru kepptu 84 drengir frá UMFK og FH í innanhúss knattspymu og fór keppnin fram í leikfimisal Lækjarskólans í Hafn arfirði. — Keppt var í tveim ald- ursflokkum, 9 ára og yngri og 10 til 12 ára. Þrír drengir léku í hverju liði og því voru liðin alls 28, — og 7 leikir i hvorum aldursflokki. Keflvíkingar báru sigur úr býtum hlutu 19 stig og skoruðu 21 mark, en FH hlaut 9 stig og skoraði 13 mörk. Eftir keppnina leit stigatafl an þannig út. I UMFK 14 9 1 4 21 19 ;FH 144 1 9 13 9 Það gefur að skilja að þröngt var á þingi í leikfimihúsinu meðan I keppnin fór fram og kvöttu dreng irnir liðin óspart. Mikil kátina og gleði var ríkjandi og fjör og kapp í leikjunum. En þótt þröngt væri um drengina í hinu 47 ára gamla leikfimihúsi var umgengni, hegðun | og framkoma drengjanna í alla ; staði til fyrirmyndar og voru þeir ' þannig íþróttafélögum sínum, til 1 hins mesta sóma. ráðinn til Ármanns Bandarískur júdóþjálfari, Warren Harris að nafni, hefur tekið að sér þjálfun á júdófólki 1 kvenna og unglingaflokkum Ármenninga og var þessi mynd einmitt tekinn af einni af fyrstu æfingunum, sem Harris haföi með hinum ungu piltum deildar innar i fyrradag. Harris, sem starfar á Keflavikurflugvelli á vepnn varnarliðsins, hefur stundað nám í Tokíó í Kodokan stofnuninni, sem er frægasta júdóstofnun í heimi. Ný námskeið eru nú að hefj ast í öllum flokkum i húsnæði Ármanns viö Ármúla og stend ur innritun yfir þessa dagana. Upplýsingar má fá í síma 83295, bæði um júdóþjálfun og eins um þrekþjálfunina I öllum flokk um. Jóhanna Tryggvadóttir tjáði blaðinu að ætlunin væri að halda æfingum áfram í sumar, starfsemin ætti að vera í full- um blóma allt árið um kring. Á myndinni eru þeir Harris og Bjami Jónsson, sem er að- stoðarþjálfari.. Sá minni á myndinni heitir Jónas Jónas- son. Ármenningar kváðust mjög þakklátir yfirmönnum varnar- liösins, sem reyndust mjög hjálp legir og gáfu Harris leyfi til að koma til Reykjavíkur, þegar æfingar fara fram. SÍÐASTA HALMSTRAIÐ: TEKST VIKING AÐ VINNA FRAM? Á sunnudaginn heldur hand-1 mótsins séu þegar ráðnar, Fram knattleiksmótið í 1. deild áfram í' sigri, Víkingar falli. Þó er rétt að Laugardal. Margir álíta að útlínur geta þess að möguleikar eru fyrir Einar Bollason. ’.V. Einar Bollason leikur meí Reykja vikurúrvalinu Undirbúningur íslenzka körfuknattleikslandsliðs ins fyrir Norðurlanda- mótið, sem hér fer fram í næsta mánuði, heldur áfram af fullum krafti, en margar keppnir hafa farið fram við úrvals- lið Bandaríkjamanna á Keflavíkurflúgvelli í vet ur. .v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v Nú hefur úrvalslið Reykjavík ur verið valið til keppni við lið flugvallarmanna, sem er sagt sterkara en nokkru sinni fyrr, en úrvalslið Reykjavíkur verð ur að öllum líkindum einnig landslið eins og áður, en athygli vekur að Einar Bollason, frá Þór á Akureyri er „Reykvík- ingur“ I vali þessu, greinilega talinn „fenginn að láni“ hjá Akureyringum. Liðið, sem keppir fyrir Reykjavik í leiknum við úr- valsliö Bandaríkjafnannanna annað kvöld kl. 20.15 verður þannig skipaö: hendi að þetta fari á annan veg. I Tapi Fram t.d. fyrir Víking á sunnudagskvöldið verður talsverð breyting á „valdaaðstöðu", eins og menn sjá, þegar stigataflan er skoöuð. Og Víkingar geta auövitað sigrað, leikur er ekki tapaður fyrr en í fulla hnefana. FH er líka í eldlínunni þetta kyöld í leik á móti KR. Þessi leik ur ætti vel að geta orðið spenn- andi, enda eru KR-ingar til alls líklegir og vilja eflaust komast upp við hliö FH-liðsins á stigatöflunni og geta það með því einu að sigra í þessum leik. Gunnar Gunnarsson, Kristinn Stefánsson og Guttormur Ól- afsson, allir úr KR, Birgir Jak- obssoh, Agnar Friöriksson, Þor steinn Hallgrímsson og Anton Bjarnason, allir úr ÍR, Birgir Örn Birgis, Jón Sigurðsson og Sigurður Ingólfsson úr Ár- manni, Þórir Magnússon KFR, og loks Einar Bollason úr Þór. Keppnin, sem nú er að hefj ast er um svokallaðan sendi- herrabikar, sem James K. Pen- field gaf til keppni milli þess ara tveggja liða og fara 5 leikir fram í vetur og fær það liðið bikarinn, sem sigrar oftar. Staðan í 1. deild er þessi: Fram 7 5 1 1 150:128 11 Haukar 8 5 0 3 182:167 10 FH 7 3 2 2 146:136 8 Valur 8 4 0 4 154:148 8 KR 7 3 0 4 133:147 6 Víkingm 7 0 1 6 119:158 1 Markahæstu menn í 1. deild: Bergur Guðnason, Val 49 Jón Hjaltalín, Vík. 48 Þóröur Sigurðsson Haukum 39 Gísli Blöndal, KR 38 Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram 37 Geir Hallsteinsson, FH 36 Hilmar Björnsson, KR 35 Viðar Símonarson, Haukum 35. Hermann Gunnarsson, Val 34 Stefán Jónsson, Haukum 32 Á sunnudagskvöldið fer fram leikur í 2. deild milli Ármanns og Þróttar, en ÍR hefur unnið sig upp í 1. deild.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.