Vísir - 22.03.1968, Síða 4

Vísir - 22.03.1968, Síða 4
 ~)< Nýjasta mynd Ingmars Berg- mans, sænska kvikmyndaleik- stjórans, sem flestum er kunnur, var frumsýnd í Stokkhólmi 19. síðasta mánaðar. Myndin heitir „Vargtimmen", og gagnrýnendur hafa yfirleitt keppzt við að bera lof á hana. Aðalhlutverkin leika Max von Sydow, sem síðast sást hér í hlut verki riddarans í „Sjöunda inn- siglinu", en nú er hann oröinn alþjóðleg stjama og nýtur mik- illa vinsælda f Bandarikjunum. Aðalhlutverkið leikur Liv Ull- mann, norsk leikkona, sem fræg varð fyrir leik sinn f „Persona". Hún er fædd f Tókfó og upp- alin f Kanada og Þrándheimi. Hún var orðin fræg leikkona f leikhúsum f Osló, þegar Bergman bauð henni hlutverkið sem hefur aukið mjög á frægðina. Bergm. situr ekki auðum hönd um. Hann lét ekki sjá sig á frum sýningu myndar sinnar, en nú evðir hann öllum tíma sínum í að klippa næstu mynd sína, sem heitir „Skammen". Þar næsta verkefni hans er þegar ákveðið, kvikmynd fyrir sænska sjónvarp- ið. Nú er beinasleggjan Twiggy að hugsa um að bregða sér til Rúss- lands, ekki svo að skilja að hún hafi verið hvött til þess f opin- berum málgögnum þarlendum — þvert á móti. Eitt bókmennta- tfmarit í Moskvu gerði harðorða árás á hana á dögunum og kall- aði hana „verkfæri í höndum kapítalista", sem væri óheppilegt fordæmi fyrir unglingana. En Twiggy kærir sig kollótta. „Ég ætla þangað til að fullnægja for- vitni minni, og svo langar mig til að sjá sjálf hvernig þeim fellur við mig. Ég fæ þvílík ó- sköp af aðdáendabréfum frá Rússlandi og austantialdsríkjun- um, að ég trúi ekki öðru en þeim Ifki vel við mig.“ ® 0 Falinn eldur getur blossað upp hvenær sem er. Eyrir nokkrum dögum gengu í heilagt hjónaband Charlie nokkur Brown, 97 ára að aldri og Annie Wintle, Sem er 82 ára. Þau búa á Hazeíbrooks- elliheimilinu í Henbury, nálægt Bristol í Englandi. Þau kynntust, þegar hann var rafvirkjanemi og hún gekk ennþá með fléttur. En þau náðu ekki að sameinast þá, því að Charlie Brown var kallaður í herinn — til þess að taka þátt í Búastríöinu og því næst í Fyrri heimsstyrjöldinni. Nú hafa þau bæði verið gift áður. Frú Wintle á 12 böm, 31 barnabarn og 10 barna barna- börn. Þegar þau trúlofuðu sjg á dögunum kvaðst Ohariie Brown vera fullviss um aö ná lOO ára aldri a. m. k. RÓBERT KENNEDY FETAR í FÓTSPOR BRÓÐUR SSNS 1960 Þaö var annan janúar 1960, sem ungur öldungadeildar- þingmaöur frá Massachusetts, John F. Kennedy, skýröi heiminum frá því að hann stefndi að því aö verða forseti Banda- ríkjanna. Hann sagöist bjóöa sig fram til að hnekkja veldi repú- blíkana, sem væru undir forustu aldraös og þreytts hershöfö- ingja, Dwight D. Eisenhowers. 1968 Hinn sextánda marz 1968, í sama samkomusal í byggingu Öldungadeildarinnar, á nákvæmlega sama stað, stóö Ro- bert Kennedy og færði heiminum sömu tíðindi. „Ég býö mig fram vegna þess aö ég er sannfærður um, að þetta land er komið inn á hættulega braut,“ sagði hann. Athyglisverð sýning Vikumar fyrir verkfall stóð yfir í Þjóðminjasafninu sýning á munum, sem grafnir hafa ver- ið upp i hinum fornu íslands- byggðum í Grænlandi. Að von- um hefur margt manna heim- sótt sýningu þessa, enda for- vitnileg fyrir okkur sérstaklega. Athygli vekur þó, að skólarnir skuli ekki hafa fjölmennt á sýningu sem þessa, þvi ég hygg að með heimsókn á slíka sýn- ingu, þá læri nemendur meira en þótt þeir læri margar stundir þurrt af bókinni, því sjón er sögu rikari. Ekki er gott að segja, hvað því vcldur að skólarnir taka ekki slíkri sýningu opnum örm- um, og fjölmenna á hana, en ætla má, að þar ráði slnnuleysið mestu. Heilbrigð æska Einn vinsælasti þáttur sjón- varpsins er vafalaust barnatím- inn, Stundin okkar. Sunnudag einn var sýnd skemmtileg mynd sem myndatökumaður sjón- varpsins hafði tekiö norðan- lands af skíðaferö skólabama. Fyrir utan það að mynd þessi var hin ágætasta, þá vekur það athygli, hversu bróttmikil félags starfsemi hlýtur að vera á með- ai þess fóiks, sem stofnar til slíkra feröa, hvað eftir annað. Að þessu levti standa skólarn- ir hér sunnanlands langt að baki Norðlendingum, en baö er víða svo í skólum, að forystumenn skólanna virðast annaö hvort ekki nenna að standa í þeim undirbúningi, sem slíkar ferðir óneitanlega þurfa, eða þá að þeir hafa ekki hugsun á þvi, og er hvort tveggja jafnillt. Slík ferðamennska, sem sýnd var í kvikmynd sjónvarpsins er til mikillar hollustu fyrir skóla- æskuna, og eflir að mörgu leyti félagsþroska þátttakendanna. Lánsamir eru Akureyringar að eiga forustumenn i skóla- og æskuI-ððSmálum, sem eru iafn- vígir á að leiðbeina unga fólkinu jafnt utan húss sem innan, OG NENNA ÞVÍ. T ilky nningasky Ida bátanna Nokkuð hefur verið rætt um nauösyn þess, að íslenzk skip tilkynntu um ferðir sínar, svo að fyrr væri hægt að fylgjast með úr landi, ef eitthvað það hendir, að hjálpar er þörf. Hef- ur verið vitnað til skvldu flug- véla að tilkynna með vissu millibili um ferðir sínar, og talið hefur verið að skylda beri skip til hliðstæðrar tilkynningar til strandstöðva. Nú er vertíð hafin fyrir nokkru, og enn hefur ekkert heyrzt um neinar reglur um til- kynningaskyldu, aðrar en þær, sem eru hefð í hverri verstöö. En víða mun ágæt regla vera á að skip tilkynni sig, en ann- ars staðar er þessi regla í mol- um. Allsherjar-skvlda að til- kynna um skipaferðir er þvf ekki fyrir hendi, svo að búast má viö, að misbrestur geti orð- ið á, einmitt begar mest liggur við, að tilkynning berist, vegna þess að eitthvað hefur borið út af. Ef svo er, að bau samtök, sem að sjávarútvegi standa, eða slysavamafélög. geta ekki orðið á eitt sátt um slíka tilkynninga- skvldu, bvrfti hið háa Alþingi að láta málið til sín taka, og setja þegar í stað lög þar um. Þrándur í Götu. O

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.