Vísir - 22.03.1968, Page 7
VIS IR . Föstudagur 22. marz 1968.
morgun
útlönd í mbrgun
útlönd í roorgun
lítlönd í raorgun
útlöndl
® Sumum þingmönnum í Was-
hington hefur verið tjáö, að John-
son forseti muni bráðlega fara fram
á fjárveitingu til Víetnamstyrjald-
arinnar, sem nemi 3,3 milljörðum
doillara. Einnig er talað um, að
senda eigi aukið lið til Víetnam,
eða 35,000 menn.
0 Brezka f járlagafrumvarpið hef-
ur verið rætt á fundi þingflokks
jafnaðarmanna og sættu einkum
gagnrýni ráðstafanir, sem fyrirsjá-
anlega rýra lífskjöir manna. Verka-
lýðssamtökin ætla ekki að breyta
afstöðu sinni í kaupgjalds og verð-
lagsmálum.
® Á Grikkilandi hafa 7 menn ver-
ið dæmdir í 10 mánaða til 6 ára
fangelsisvistar. Voru þeir sekir
fundnir um að bera ábyrgö á sjó-
slysinu er skipinu Heraklion hvolfdi
og 240 manns fórust. Sakborning-
ar áfrýjuðu dómnum.
9 Fréttaritarar í Kairó segja, að
, endurskipulagning egypzku stjóm-
arinnar hafl átt sér stað í sam-
'ræmi við yfirlýsta stefnu Nassers
forseta um að auka vaid og áhrif
, borgaraiegra stétta manna og draga
úr áhrifum hersins.
0 Frá því er skýrt í Saígon, að
tala fallinna bandarískra hermanna
í Vfetnam-styrjöldinni væri nú yf-
ir 20,000 (20,096). Samtímis til-
kynnti bandariska herstjómin þar,
að af liöi Norður-Vletnama og Ví-
'etcong hefðu fallið 314,460 frá 1.
júní 1961.
0 Þrátt fyrir miklar sóknaraðgerö
ir af hálfu Bandaríkjamanna og
stjórnarhersins gegn Víetcong í hér-
uðunum næst Saígon var skotið af
fallbyssum í fyrrinótt á flugstöð-
ina viö Saígon — í fyrsta sinn á
3 vikum.
Pravda birti grein um innrás
ísraels í Jórdaníu og segir ísrael
nota sér arabíska hryöjuverkastarf-
semi að skálkaskjóli til frekari of-
beldis í nálægum Austtirlöndum, —
slíkar aðgerðir geti aldrei leitt til
friðar, og krefst blaðiö þess að Isra-
el fari að hlýðnast fyrirmælum Ör-
yggisráðs varðandi Austurlönd nær.
0 Forsetar þingsins í Tékkósló-
vakíu ræddi í gær, hvort umræða
skyldi fara fram um þær kröfur,
að Novotny skuli knúinn til að láta
af forsetaembættinu. Ef til umræöu'
kemur á þingi mun að líkindum
verða lögð fram áætlun, sem sker
úr um það viö atkvæðagreiðslu,
hvort forsetinn nýtur trausts þings-
ins eða ekki. Athugendur í Prag líta
svo á, að lokasóknin sé hafin til að
koma honum frá, en það hefur einn <s>.
ig gerzt, að verkalýðsfélögin hvar-
vetna í landinu taka nú undir kröf-
una um, að Novotny veröi látinn
róa. Dubcek — flokksleiðtoginn —
sem tók við því starfi, er forset-
inn vgr sviptur því, sagöi í gær, að
miðstjórn flokksins mundi taka mál
iö fyrir einhvern næstu daga.
Jórdanía fór fram á skyndifund í Öryggis-
ráði út af innrás ísraelskra hersveita
Jordania hefir farið fram á,
að Öryggisráðið komi saman hið
skjótasta tii þess að ræða inn-
rás ísraelshers.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna,
sem kom saman á skyndifund að
áskorun stjórnar Jórdaníu vegna
innrásar ísraelskra hersveita, frest-
aði fundi að loknum 12 klukku-
stunda viðræðum, og er reynt að
ná samkomulagi um ályktun að
tjaldabaki. Fulltrúar Bretlands,
Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og
WSISy Brandt
endurkjörinn
flokksforntaður
Frétt frá Nurnberg í gær hermir,
að Willy Brandt varakanslari og
utanríkisráðherra hafi verið endur-
kjörinn formaður Jafnaðarmanna-
flokksins með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða.
Formannskjöriö fór fram á lands
fundi jafnaðarmanna og fékk Willy
Brandt 325 atkvæði, en mótat-
kvæði voru 8. Við formannskjör
fyrir tveimur árum fékk hann 324
atkvæði gegn 2.
Frakklands víttu innrásina í Jórd-
aníu.
Fulltrúi Bandaríkjanna kvað það
á engan hátt réttlætanlegt, að grípa
til slíkra aðgeröa sem ísrael hefði
gert, þótt flugumenn hafi komið
frá Jórdaníu til hryöjuverka, og
vildi hann, að Sameinuðu þjóðirnar
sendu gæzlulið til landamæranna,
en fulltrúi Sovétrikjanna kvaðst
styðja kröfu Jórdaníu um refsiað-
gerðir. Fulltr. ísraels kvað Jórdaníu
geta búið við frið, ísrael vildi frið-
samlega sambúð, en ef Jórdanía
vildi hana ekki yrði hún að taka
afleiðingunum.
Róbert Kemedy
heíur sókn í
Suðurríkjunum
Robert Kennedy öldungadeildar-
þingmaður flutti ræðu í Alabama
í gær og hór þar með kosningabar-
áttu í Suðurríkjunum.
Hann kvað þjóðina aldrei hafa
verið jafn sundraða og nú og væri
erfiðri og kostnaðarsamri styrjöld
um að kenna og mörgum vanda á
sviði innanlandsmála, vegna aldurs-
munar, ólíkra trúarbragða og mis-
munandi hörundslitar, en það sem
þyrfti, væri, að þjóðin legði niður
deilur óg leysti vandamál sín af
sáttfýsi og sameinaöist um að
byggja upp nýtt og betra land.
Hersveitir fsraels lögðu leið sína
aftur inn í ísrael eftir 15 klukku-
stunda átök og segjast ísraelsmenn
hafa lagt í eyöi stöövar, þar sem
menn voru þjálfaðir til hermdar-
og hryðjuverka. — Jórdaníumenn
segja, aö um undanhald hafi verið
að ræða hjá Israelsher, og hvor
aðili um sig kveðst hafa valdið hin-
um miklu tjóni á mönnum og her-
gögnum.
Landganga stjórnarhersveita
nálægt Oron i Biafra
Sonja.
Frétt frá Lagos í Nígeríu hermir,
að stjórnarhersveitir hafi verið sett
ar á land nálægt hafnarbænum Or-
on, í Biafra.
Þær gengu á land noröan James-
town, sem er um 36 km. fyrir suö-
austan Oron, sem hefur verið á
valdi uppreisnarmanna, síðan er
Austur-Nígería (nú Biafra) sagðij
sig úr sambandsríkinu.
Forvaxfalækkua
á Bretlandi
Forvextir voru lækkaðir á Bret-
Iandi í gær i 7,5 af hundraði. Þeir
voru hækkaðir í 8 af hundraði eft-
ir gengisfeliinguna í nóvember.
I greinargerð Englandsbanka fyrir
lækkuninni segir, að hún hafi verið
gerð vegna þess að komin væri á
„meiri kyrrð um pundið.“
Litið er svo á, að vaxtalækkunin
sýni aukiö traust á pundinu.
Haraldur rikisarfi og Sonja
á fundi með fréttamönnum
® Hvort Noregur skuli vera kon-
ungsríki áfram eða ekki, sagði Har-
aldur ríkisarfi Noregs í fyrradag,
er „ekki mitt vandamál síðan fað-
ir minn veitti samþykki sitt til
© Á gullmarkaðnum í Sviss í
fyrradag var gullverð aðeins 1 doll-
ar hærra en hið opinbera gullverö
er. Seljendur voru fleiri en kaup-
endur.
® Lokið er gullflutningi frá Fort
Knox í Bandaríkjunum til London
til þess að fylla skarðiö vegna gull-
taps gullsamtakanna á dögunum
og nemur verðmæti gullsins samtals
950 milljónum dollara. Síðan er
pundið var fellt í nóvember hafa
gullbirgöir Bandaríkjanna rýrnaö
svo nernur 2.425 milljónum dollara.
■ Bandaríkjastjórn áformar að
draga mikið úr fjárfestingu er-
lendis.
trúlofunarinnar, en ég er reiðubú-
inn, ef þjóðin vill mig, og ég vona,
að við Sonja reynumst verðug þess
hlutverks". — Aðeins einu sinni
fyrr hefur verið haldinn fundur með
fréttamönnum í konungshöllinni, en
það var er Ólafur, þá ríkisarfi, kom
heim úr útlegðinni 1945. — Allt
var frjálslegt á þessum fundi í höll-
inni í fyrradag og óþvingað, og
fyrir fundinn var athygli frétta-
manna feidd aö þvi, að þeir þyrftu
ekki, er þeir bæru upp spurningar
sínar við Harald ríkisarfa, að segja
„yðar konunalega tign“. Fréttamenn
höfðu á orði. eftir fundinri, að allt
hefði verið sem bezt varð á kosið á
bessum fyrsta fundi Haralds ríkis-
arfa og Sonju Haraldsen með frétta
mönnum.
Stjórnmálamenn eru bornir fyrir
fréttinni, en sambandsstjórnin, sem
hefur lýst yfir að stjórn Ojukwus
verði brotin á bak aftur eigi síðar
en 31. marz, hefur ekki sent út
neina opinbera tilkynningu.
Rockefeller gefur
ekki kost á sér
Nelson Rockefeller ríkisstjóri í
sambandsríkinu New York til-
kynnti í gær, að hann ætlaöi ekki
að gefa kost á sér sem forsetaefni
flokksins i forsetakosningunum,
þar sem ljóst væri að Nixon hefði
fylgi meirihluta flokksleiötoga, og
mikilvægt væri að - varðveita ein-
inguna í flokknum. Hann vék að
óeiningunni í flokki demokrata og
hve alvarlegir tímarnir væru og
þjóðareining nauðsynleg.
Papandreou segir Bandaríkin
eiga mikla sök á ástandinu
Grikklandi
i
í fréttum frá New York er sagt frá
fundi með fréttamönnum, sem þau
sátu Andreas Papandreou, leikkon-
an Melina Mercouri, o" Constant-
ine Marotis, landflótta liðsforingi,
"25 ára gamall.
Andreas Papandreou kvaöst vera
þarna sem fuiltrúi nýju grísku
frelsishreyfingarinnar, ekki sem
fulltrúa síns gamla flokks. Papan-
dreou kvað Bandarikin eiga mikla
sök á ástandinu í Grikklandi, vegna
afstöðu sinnar til hershöfðingja-
stjórnarinnar.
Papandreou kynnti Marotis liös-
foringja, sem mann, sem hernaðar-
lega stjórnin heföi borið traust til,
en Marotis sagði sjálfur að hann
væri eldheitur þjóðernissinni.
Samt geröist hann flóttamaður og
fór frá Grikklandi 19. des. vegna
þess, aö hann var neyddur til að
framkvæma húsrannsóknir og vera
viðstaddur, er stjórnarandstæðing-
um var misþyrmt.
„Þessir menn voru ekki kommún
istar, þeir voru ekki fjandmenn
landsins. Hjá einum fannst bók eft
ir Leo Tolstoj, — það var nægi-
legt til að handtaka hann“, sagði
Marotis.
Ennfremur sagði hann!
„Hernaðariega stjórnin segir, að
um 3000 menn hafi verið hand-
teknir á því svæði, þar sem ég
Papandreou.
starfaði. Það er lygi. Næstum
10.000 menn hafa verið hnepptir i
fangelsi þar — en þetta svæöi nær
yfir hálft landið." (NTB)