Vísir


Vísir - 22.03.1968, Qupperneq 13

Vísir - 22.03.1968, Qupperneq 13
V t S IR . Föstudagur 22. marz 1968. 13 Föstudagsgrein — -> 9. síðu. Novotnys. Hinn sökudólgurinn var Jan Sejna hershöfðingi, sem hafði sannanlega gefið fyrir- mæli til skriðdrekasveitanna að leggja af stað. Kraföist Dub- cek þess, að Sejna yrði látinn sæta ábyrgð, hann yrði sviptur stöðu sinni og dreginn fyrir dómstóla, en í því var auðvitað , mjög sneitt að Novotny sjálf- um, þar sem Sejna var nánasti gæðingu hans. Tj’n þá gerðist allt í einu sá atburður, að Sejna strauk úr landi. Og það furðulegasta við flótta hans var, að hann leitaði ekki á náðir vemdara sinni Rússa, heldur fór hann yfir Júgóslavíu og gaf sig fram við bandarísk yfirvöld sem pólitískur flóttamaður! Tjessi viðbrögð Sejna að flýja vestur á bóginn eru nær því óskiljanleg. En eitt er vit- að, að hann hafði meö sér fulla ferðakistu af leynilegum hern- aðarskjölum Varsjár-bandalags- ins og af þeim sökum er flótti hans talinn mikið áfall ekki aðeins fyrir Tékka heldur fyrst og fremst fyrir rússnesku striðs- vélina í Austur-Evrópu. Hann hafði svo þýðingarmikil skjöl með sér, að sagt er, að flótti hans sé jafnvel meira áfall fyr- ir Rússa en flótti Svetlönu Stalin. Þetta hefur valdið mönnum heilabrotum og hafa þær skýr- ingar verið gefnar á þessu, að Sejna hafi haft í huga, að beita Rússum þvingunum. Hann hafi krafizt þess, að Rússar skærust í leikinn í Tékkóslóvakíu og bældu niður með vopnavaldi líkt og þeir gerðu í Ungverja- landi, þau frjálslyndisöfl, sem nú bærðíi þar á sér, ef þeir neituðu því, hótaði hann að af- henda Bandaríkjamönnum leyniskjölin. Þessi hugmynd hefur þegar komið fram í tékkn eskum blöðum og er því kannski ekki gripin úr lausu lofti. Hitt er hins vegar ljóst, að þessar hótanir Sejna hafa ekki haft hin minnstu áhrif og er nú talið, án þess aö vissa sé fyrir því, að leyniskjölin séu þegar öll komin f hendur Bandaríkj amanna. 1710111 Sejna vakti óskaplegt hneyksli og umtal í Tékkó- slóvakíu. Dubcek og hans menn beittu sér fyrir að réttarrann- sókn færi fram vegna flótta hans og gat þá ekki hjá því farið,' að sú rannsókn kæmi mjög inn á svið og allt framferði Novotny-klíkunnar. Meðal þeirra sem kallaður var til yfirheyrslu var einn úr þess- ari sömu klíku, aöstoðarher- málaráðherra Tékkóslóvakíu að nafni Vladimir Janko hers- höfðingi. Hann ók af stað til yfirheyrslu í embættisbifreið sinni. En á miöri leið brá bif reiöarstjóra hans við, er skot hvellur kvað við úr aftursæt inu. Janko hafði skotið sig Hann lá meðvitundarlaus í blóði sínu aftur í. Bifreiðarstjórinn gætti að honum. en ákvað síðan að, fiytja, hann til sjúkrahúss. En á íeiðirínT ralinaðí Jartko við, annað skot kvað við og þar með var bundinn endir á líf hans. Eftir því sem fleiri og fleiri úr klíku Novotnys hafa dreg- izt inn í rannsóknina hafa víð- tækari upplýsingar fengizt um ógeðslegt lifemi og hreina fjár- mála- og siðferðisspillingu í allri æðstu stjóm landsins. Hverjum ráðherranum á fætur öðrum hefur verið vikið úr embætti. Nánasti persónulegur vinur Novotnys var hinn gamli stalinisti Michel Chudik, sem var forséti héraðsstjórnar Slóvakíu. Þegar böndin fóru að berast að honum, lagði hann fram lausnarbeiöni sína. En hún var ekki tekin gild, heldur þótti réttara að víkja honum með háðung úr embætti. Þá var forseta verkalýðssambands Tékkóslóvakíu Miryslav Past- yrik vikið úr stöðu vegna sví- virðilegrar misnotkunar hans á stöðu sinni, menntamálaráð- herra landsins Hendryk hefur sagt af sér og svona mætti halda áfram að telja upp .fjölda ráðherra, sem hafa nú horfið af sviðinu, en það yrði of langt mál og nöfn þeirra óþekkt hér. Sjálfur liggur Novotny sjúkur á hæli í Karjsbad. Hér er heldur ekki hægt að rekja þá uppreisn mennta- manna og rithöfunda, sem reis upp í Tékkóslóvakíu eftir þetta, þar sem kröfur eru settar fram um það, að Tékkóslóvakía verði aftur gerð að lýðræðis- landi og efnt verði til raun- veruiegra leynilegra kosninga. Sú barátta er merkilegur þáttur út af fyrir sig. Tan Sejna hershöfðingi skildi ** eftir sig konu og þrjú börn er hann flúði til Bandaríkjanna. En með honum var ung kona. sem sögð var unnusta sonar hans, en hið rétta mun vera, að hún var frilla hins tékk- neska hershöfðingja. Þar er að- eins lyft örlítið upp tjaldinu á geigvænlegri siðspillingu sem opinberazt hefur í þessu máli í hinni nýju stétt í kommúnista- ríkjunum. Eru ömurlegar lýs- ingar á spillingarsamkomum þessa fólks, drykkjuskap og kvennafari, eða hvernig þeir nota aðstöðu sína til fjárdráttar og svartamarkaðsbrasks. Það hefur til dæmis komið fram í rannsóknunum að undanfömu. að Jan Sejna hefur haft félags skap við Anton Novotny yngra son.Novotnys forse,ta um stór gróðabrall í sambandi við sölu leyfi á bifreiðum og hirt stórfé í svartamarkaðsgróða. Eru þessi mál öll með hinum mestu endemum og ömurleg endalok þess ofbeldisveldis, sem til var stofnað með rússneskum vopnum og hótunum fyrir 20 árum. Það er þvi engin furða, þó aö mannfjöldi sá yrði mikill, sem hélt á tuttugu ára dánardægri Jan Masaryks, út að gröf hans og heiðraði minningu þess manns sem fórnaði lífi sínu fyrir réttlæti og frelsi þjóðar sinnar undan slíkum viðbjöði. Þorsteinn Thorarensen. Logsuðumaður Iðnverkamaður Viljum ráða fljótlega 2—3 vana iðnaðarmenn í vaktavinnu. RUNTAL-ofnar hf. Síðumúla 17. SMITH-CORONA 30 GERÐIR Stórkostlegt úrval rit-og reikni- véla til sýnis og reynslu i nýjuíii , glægilegim sýningarsal; ásamt TayTórix bókhaldsvéltun og fullkomnum samstæðúm skrifstofú- 'húsgögnum SKRIFSTOFUTÆKNI m, . v Ármúla 3, sími 30 !i()0. Til fermingar- gjafa fyrir dömuna fyrir herrunn húsgögn frá VÍÐI Svefnbekkir Skrifborð, dömu Skrifborð, herra Stækkanlegir svefnbekkir Skólaskrifborð TRESMIÐJÁN LÁUCÁVEGI 166 S ÍMAR: 2 22 22 OG 222 29 I£>

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.