Vísir - 28.03.1968, Qupperneq 1
skemmtana-
f'iknir
— Glöggt er gestsaugaö —
segir gamalt máltæki, en hvort það
á viö Atsumi Taki, 2ja ára jap-
anska mær, sem um þessar mundir
skemmtir gestum Hótei Loftleiöa,
skal látið ósagt.
Hún ségir, að íslendingar séu
haldnir mikilli skemmtanafíkn, en
séu líka afar gestrisnir og hafi hún
einnig notið þess á ísienzkum
heimilum.
Stúlku þessari er margt til lista
lagt. Hún hóf ung aö árum ballett-
nám og komst í frægan ballett-
flokk, sem hefur feröast mikið um
Evrópu. Einnig hefur hún stundað
myndlistamám í París og einhvern
tíma — segir hún — langar hana
til þess að sýna íslendingum þá hlið
á sér 'líka.
Þann tíma, sem hún hefur verið
stödd héma, hefur hún notað til
þess aö skoða sig um — auk þess
að sýna sig á Hótel Loftleiðum.
Hefur hún fengið miklar mætur á
landi og þjóð og er staðráðin í
því, að koma aftur til landsins
seinna, en þá helzt að sumri til.
Dvöl hennar að þessu sinni verð-
ur ekki löng. Hún fer um mánaða-
mótin.
Fjögurra herbergja íbúðir á 848
búsund með öllum frágangi
□ Kostnaðarverð íbúðanna í Reynimelsblokkinni
frægu liggur nú fyrir og er það ekki fjarri þeirri
áætlun, sem gerð var í upphafi. Byggingarverð
fjögurra herbergja íbúðar, 117 fermetra, reyndist
vera 735.756,95, en þá er
eftir að mála húsið utan
og ganga frá lóð. Kostn-
aður við það er áætlaður
113 þúsund á íbúðina og
endanlegt verð hennar
verður þá, þegar allt er
komið heim: rúm 848
þúsund.
Til samanburðar má geta þess,
að Framkvæmdanefnd bygginga-
áætlunar áætlaði á síðastliðnu
hausti meðalverð fjögurra her-
bergja íbúðar í fjölbýlishúsun-
um í Breiðholtshverfi 940 þús-
und krónur og má búast við að
sú áætlun hækki eitthvað vegna
afleiöinga gengislækkunar, eða
allt aö 12%. Verð þetta miðast
við íbúðirnar fullfrágengnar, ut-
an sem innan.
Á endanlegu verði íbúðanna
£ fjölbýlishúsinu að Reynimel
88—94 sést, hversu uppsprengt
verð hefur verið á íbúðum á fast
eignamarkaðnum í Reykjavík,
þar sem svipaðar íbúöir voru
boðnar til sölu á allt upp í
14—1500 þúsund. Verð á íbúð-
10. síöa.
Leitað að eld-
fíaug / lóninu
— Það er nokkurn veginn
talið öruggt, að eldflaugin
týnda sé í lóninu hérna, sagði
Ástvaldur Eiríksson, varð-
stjóri slökkviliðsmanna, en
slökkviliðsmenn eru staddir
austur f Landsveit og að-
stoða við leit að braki úr
vamarliðsþotunni, sem fórst
þar.
Þar er nú norðaustan átt og
mikill snjógangur. Frost nærri
6 stig. Gerir það leitarmönnum
erfiðara fyrir, en samt ætluðu
þeir að gera tilraun til þess að
halda áfram f morgun, ef ekki
yrði of mikill skafrenningur.
Ástvaldur sagði, að þeir væru
búnir aö kortleggja afstöðu ein-
stakra hluta úr flugvélinni, eins
og þeir hefðu fundið þá og eld-
flaugarnar hefðu legið í beinni
línu.
í þeirri línu væri lön, sem
myndaðist á vetrum vegna Tjarn
arlækjar, og það væri nú eini
staðurinn, sem ekki heföi verið
rannsakaöur til hlítar. Væru
þeir búnir að kafa dálítið í vatn-
ið, en ísinn á því hindraði frek-
ari leit í því. Yröu þeir að bíða
þíðviðris.
Islendingar
Lausleg áætlun um fjárþröng L&L:
Níu milljónir á móti einni
Mál feröaskrifstofunnar Lönd og
Leiöir er ennþá í athugun, en eins
og kunnugt er svipti samgöngu-
málaráöuneytiö fyrirtækiö feröa-
skrifstofuleyfi og er rekstur þess
nú í endurskoðun. Blaðiö hefur
fregnaö aö skuldir ferðaskrifstof-
unnar séu áætlaðar um 9 milljónir,
en cignirnar nemi varla meira en
1 milljón króna.
Samgöngumálaráðuneytiö hefur
ekkert viljað upplýsa í málinu enn
sem komið er. Hins vegar hefði
þótt nauðsynlegt að stöðva rekst-
urinn til þess aö fólk, sem á pant-
aðar ferðir hjá ferðaskrifstofunni
, gæti gert sínar ráðstafanir í tíma.
Dagblaðaskortur tefur
fyrir sorphreinsun
■ Sorphreinsun borgarinnar
er enn ekki komin í eðlilegt
horf eftir verkfalliö. Á skrifstof-
um borgarverkfræðings fékk
blaöiö þær upplýsingar, aö bú-
izt væri viö, aö á laugardag
mundi takast aö ljúka viö aö
hreinsa burt, þaö sem safnazt
hefur fyrir.
■ Ýmsar aðstæður hafa tafið
fyrir hreinsuninni, einkum
þó veðurfarið, frost og kuldi,
Sorpið, sem sett var í tunnurnar
var blautt, og engin dagblöð
vqru til að draga úr rakanum,
svo að þaö botnfraus í tunnun-
um, og miklar tafir urðu viö
hreinsunina.
■ En eins og áöur er sagt má
búast viö, að þessi mál
veröi komin í eðlilegt horft á
laugardag.
Búnaðarbnnkinn
vann í 4. sinn
i roð
Bankarnir skipuðu þrjú efstu sæt-
in í skákkeppni stofnana, sem lauk
á þriðjudaginn. Skáksveit Búnað-
arbankans sigraöi með yfirburðum
og fékk 20 vinninga. Landsbank-
inn varð númerWö með 14 v. og
Útvegsbankinn þriðji meö- 1314 v.
Það er í fjórða skipti í röð sem
Búnaðarbankinn vinnur þessa
keppni.
Þrjátíu og tvær sveitir voru
skráðar til keppni, en ein þeirra
j mætti aldrei. — Sveitunum er
skipt niður 1 A- og B-riðil eftir
styrkleika og falla fimm neðstu
sveitirnar í A-riðli niður i B-
riðil, en fimm efstu í B-riðli fær-
ast upp.
Verðlaunaafhending fer fram á
sunnudaginn, en þá efnir skáksam-
bandið til hraðskákkeppni í Lidó.
Nánar segir frá úrslitum mótsins
á þriðju síðu (Myndsjá) í dag.
Endanlegt verð ú Reynimelsblokkinni s