Vísir - 28.03.1968, Blaðsíða 3
V í S IR . Fimmtudagur 28. marz 1968.
pMtthvert fjölmennasta skák-
mót, sem haldið er hér é
landi ár hvert, skákmót stofn-
ana, var telft til enda 1 Lídó í
gær. — Til þessarar keppni
senda margar helztu stofnanir
og fyrirtæki borgarinnar liö og
sumar fleiri en eina sveit.
Bankamir hafa lengi barizt
um efstu sætin í keppninni,
enda eru margir fremstu skák-
manna okkar starfandi í bönk-
um. — Má þar meðal annarra
nefna íslandsmeistarana í fyrra
og í hitteðfyrra, sem og Reykja
víkurmeistarana tvö eða þrjú
undangengin ár.
Enda fór það svo að bank-
amir hirtu þrjú efstu sætin í
ár og fór Búnaðarbankinn með
glæsilegan si'gur af hólmi í
keppninni. Það er reyndar
fjórða árið í röð, sem sveit Bún
áðarbankans vinnur þessa
keppni. í fyrra unnu þeir til
eignar Vísis-bikarinn, farand-
grip, sem keppt er um. — Hafa
sennilega fáir auglýst betur
bankann þann en þeir félagar.
— Ekki vitum vér, hvort banka
starfið verkar svona inspírer-
andi á sfcáklistina, ellegar skák-
mönnum hentar það starf betur
en önnur.
í öðm og þriðja sæti kemur
sem sé hver bankinh á eftir öðr
um: Útvegsbanki og Lands-
banki. Hins vegar tókst bama-
skólafcennumm að pota sér I
fimmta sæti.
Sigursveitin er raunar ekfci
skipuð neinum aukvisum, á
fyrsta borði tefldi Jón Kristins-
son, öðru borði nýbakaður skák
meistari Reykjavfkur, Bragi
Kristjánsson á þriðja borði gam
alreynd skákkempa Arinbjöm
Guðmundsson og á fjórða Guð-
jón Jóhannsson.
Á fyrsta borði Landsbanfc-
ans tefldi Jóhann Sigurjónsson,
sigurvegari í aúfcakeppni
Reykjavíkurmótsins á dögunum
pn á öðm borði Hilmar Viggós-
son. Tvö efstu borð Útvegsbank
ans skipuðu hins vegar tveir Is-
landsmeistarar: Bjöm Þorsteins
son núverandi íslandsmeistari
og Gunnar Gunnarsson íslands-
meistari frá í hitteðfyrra.
Úrslit mótsins urðu aö öðru
leyti sem hér segir:
A-riðill:
1 Búnaðarbanki A-sveit 20 v.
2 Landsbanki A-sveit 131/? v.
3 Útvegsbanki A-sveit 13 V5 v.
4 Bamaskólar R. A-sveit 1.3y2
5 Borgarverkfr. A-sveit 13 v.
6 Raforkum.stofn. A-sveit 12y2
7 Hreyfill A-sveit 12 y2 v.
8 Landssíminn 11 v.
9 Rafveitan 11 v.
10 Veðurstofan 10y2 v.
11 Flugfél. ísl. A-sveit 10V2 v.
12 Sveinsbakari 10 v.
13 Búnaðarbanki B-sveit 10 v.
14 Lögreglan A-sveit 10 v.
15 Borgarverkfr. B-sveit 9 v.
B-riðilI:
1 Bílaleigan Falur 17 v.
2 Loftleiðir 15 v.
3 Raforkum.stofn. B-sveit 14 v.
4 Borgarbílastöðin 14 v.
5 Eimskip 13 v.
6 Þióðviliinn 13 v.
7, Barnaskólar R. B-sveit 13 v.
8 Lögreplan B-sveit 13 v.
9 Útvegsbanki B-sveit }3 v.
AIIs kepptu 32 sveitir í þess-
ari keppni eða eitthvað á 200.
manns.
Sveitir Búnaðarbankans og Borgarverkfræðings: Frá vinstri: Jón Kristinsson, Bragi Kristjánsson, Arinbjörn Gpðmundsson, Guðjón
Jóhannsson, — Guðmundur Þórarinsson, Bjöm Höskuldsson, Ásgeir Þór Ásgeirsson, Baldur Davíðsson.
— trá skákk<eppni stofnana
A-sveit Hreyfils til vinstri: Guðlaugur Guðmundsson, Þórður Þórð-
arson, Benedikt Halldórsson. Raforkumálaskrifstofan frá hægri:
Guðmundur Pálmason, Ólafur Magnússon, Leifur Jósteinsson (sést Útvegsbankinn frá vinstri: Bjöm Þorsteinsson, Gunnar Gunnarsson,
aðeins á nefið á honum). Við endann stendur skákstjórinn Guð- Bra8' Björnsson. Hinum megin situr B-sveit Búnaðarbankans Stefán
bjartur Guðmundsson. Þormar Guðmundsson og Kristinn Bjamason.
Þaó var þröng á þingi í skáksalnum í I.ídó, sem um þessar mundir er kunnur af öðrum og fagurfræðilegri kappmótum, en skákkeppni.
/