Vísir - 04.05.1968, Blaðsíða 8
s
V í SIR . Laugardagur 4. maí 1968.
VISIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1. Símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Sími 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuði innanlands
í iausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja Vfsis — Edda hf.
Þegar harðnar í ári
Ekki verður sagt að vorið hafi heilsað hlýlega. Hafís-
inn liggur skammt unaan fyrir öllu Norðurlandi og
suður fyrir Langanes. Veðurfræðingarnir eru varkárir
mjög í spádómum, en ýmsár líkur benda óneitanlega
til, að búast megi við kuldatíð a. m. k. næstu vikurnar.
Sem betur fer munu bændur víðast vera sæmilega
birgir af heyjum, og því ekki hætta á stórum áföllum
hjá þeim, þótt illa vori, nema svo hörmulega takist til,
að árferðið verði ennþá verra en nokkur vill ímynda
sér. En að sjálfsögðu myndu langvinnar vorhörkur
nú vera mikið áfall ofan á allt annað, sem á móti hefur
blásið undanfarin misseri.
Allt minnir þetta okkur á að við búum í landi þa'r
sem Ijós og skuggar skiptast á, bæði í bókstaflegri og
óeiginlegri merkingu. En þótt þessi þjóð hafi búið hér
tæp 1100 ár og kynnzt landi sínu í blíðu og stríðu, er
eins og sú reynsla kynslóðanna komi okkur ekki að
því gagni, sem ætla mætti. Okkur hættir mjög til að
gleyma því þegar vel gengur, að góðærið varir ekki
nema skamma hríð. „Mögru árin“ koma alltaf líka.
Okkur er ekki sýnt um að safna til þeirra. Þegar vel
gengur lifum við í vellystingum og praktuglega, svo
að við liggur að segja megi, að við látum hverjum degi
nægja sína þjáningu. Við þessu væri kannski minna
að segja, ef við kynnum að taka afleiðingunum þegar
að syrtir aftur. En það er nú öðru nær. Stór hluti
þjóðarinnar virðist t. d. ekki hafa áttað sig nægilega
á því enn, að nú þurfi um skeið að breyta nokkuð um
lífsvenjur, gæta meiri hagsýni og komast af með
minna en áður. Ýmsir óhlutvandir stjórnmálamenn,
sem alltaf eru á atkvæðaveiðum, hafa eftir mætti
reynt að blekkja almenning með því að halda fram
þeirri fjarstæðu, að þetta sé allt ríkisstjórninni að
kenna og hér þyrftu engir erfiðleikar að vera, ef rétt
hefði verið stjórnað. En eigi að síður ætti allt skyni
borið fólk, sem nokkuð vill hugsa um þessi mál, að
sjá hve þungum búsifjum þjóðin hefur orðið fyrir
vegna utanaðkomandi áhrifa, sem engin ríkisstjórn
hefði getað ráðið við.
Eitt af því sem íslenzku þjóðinni er hvað mest nauð-
syn að gera sér grein fyrir, er að stór hluti hennar
hefur síðustu áratugina tamið sér lífsvenjur, sem jafn-
vel ríkustu þjóðir heims leyfa sér ekki almennt enn
þann dag í dag. Þetta er óþörf eyðslusemi, sem á ekk-
ert skylt við það, að lifa góðu og mannsæmandi lífi.
Það er sóun á fjármunum, sem í fæstum tilvikum eyk-
ur nokkuð lífshamingju fólksins, nema síður sé. En
svo er þetta fólk stundum að hneykslast á því, hvernig
æskan fari með peninga. Hver á sökina? Hverjir hafa
alið þetta unga fólk upp og kennt því virðingarleysið
fyrir peningunum? Væri ekki rétt að líta fyrst í eigin
barm?
Lagaráð Evrópuráðsins
Á morgun, 5 maí, eru liöin
** 19 ár frá því aö fulltrúar 10
Evrópuríkja undirrituöu stofn-
skrá fyrir Evrópuráöiö, og verð
ur þessa minnzt f öllum aöild-
arríkjum EvrópuráÖsins, en þau
eru nú 18 talsins, þ.e. Austur-
ríki, Belgfa, Danmörk, Frakk-
land, Grikkland, Holland, írland
ísland, ítalfa, Kýpur, Luxem-
burg, Malta, Noregur, Stóra-
Bretlandi, Svíþjóö, Sviss, Tyrk-
land og Þýzkaland.
Samkvæmt stofnskrá Evrópu
ráðsins er markmið þess aö
koma á nánari einingu meðal
þátttökurfkja þess, f þvf skyni
aö vemda og koma í fram-
kvæmd þeim hugsjónum og
meginreglum, sem eru sameigin
leg arfleifð þeirra, svo og til
þess að stuðla að framförum á
sviði efnahags- og félagsmála.
Að þessu markmiöi skal unnið
innan ráðsins með umræöum
um mál, sem sameiginlega h<ið-
ingu hafa, og meö samningum
og sameiginlegum aögeröum á
sviöi efnahags- og félagsmála,
menningarmála og vísinda,
laga- og stjómarfarsmála og
meö varðveizlu og frekari fram
kvæmd mannréttinda og grund
vallarfrelsishugsjóna.
Að markmiði því, sem stofn-
skráin setur, hefur veriö unn-
ið á margvíslegan hátt undir
stjórn aðalstofnanda ráösins,
ráðherranefndar og ráðgjafar-
þings, en það eru þær stofnanir
ráðsins sem almenningi eru
kunnastar. En jafnframt er unn
ið að þessu af starfsliði ráðsins
og einnig af fjöimörgum sér-
frgeðinganefndum sem komið
hefur verið á fót.
Hvemig víkur þessu þá við
á sviði lögfræðinnar?
Frá upphafi hefur á margvís-
legan hátt verið unniö að þvi
innan Evrópuráðsins að stuöla
aö samræmdri löggjöf á ýmsum
sviðum. Árangur af slíkri við-
leitni lýsir sér í ýmsum samn-
ingum. sem geröir hafa verið
og fjalla m. a. um mannréttindi,
einkaleyfi, framsal sakamanna,
gagnkvæma aöstoð í refsimál-
um, skyldutryggingu ökutækja,
ábyrgð hóteleigenda, samræm-
ingu löggjafar um gerðardóma.
fjárskuldbindingar í erlendum
gjaldeyri, refsingu fyrir um-
umferðarbrot, störf ræðismanna
o. fl.
Til að vinna aö þessu starfi
hefur Evrópuráðið komið á fót
nokkrum fastanefndum, sem
hver um sig hefur afmarkað
verksvið. Starfar þannig ein
nefnd að málefnum á sviöi refsi-
réttar og afbrotafræði og önnur
að rannréttindamálum. Ein
nefnd fjallar um einkaleyfis-
mál og ein um mál á sviði út-
varps og sjónvarps.
Árið 1963 ákvað ráðherra-
nefnd Evrópuráðsins aö skipa
sérstaka fastanefnd, sem hefur
það hlutverk að skipuleggja og
hafa umsjón með starfsemi
Evrópuráðsins á sviði lögfræð-
innar. Er nefnd þessi á ensku
nefnd European Committee on
Legal Co — operation, en hef-
ur hér veriö nefnd lagaráð
Evrópuráðsins.
Lagaráðið getur falið sér-
stökum sérfræðinganefndum
meðferð einstakra málaflokka,
sem það telur ástæðu til að taka
til meðferðar. Sérfræöinganefnd
in starfar þá undir umsjón laga-
ráösins og skilar tillögum sínum
til þess. Lagaráðið metur síðan
störf nefndarinnar, og lætur
ráðherranefndinni í té álit sitt.
Lagaráðinu er einnig ætlað að
fylgjast með starfi annarra al-
þjóðastofnana, og stuðla þannig
að samhæfingu í störfum þeirra
og samvinnu um sameiginleg
áhugamál.
Á þeim tíma, sem lagaráðið
hefur starfað, hefur það gengið
frá nokkrum Evrópusamningum.
Er þeirra getið hér aö framan,
og fjalla um samræmingu lög-
gjafar um gerðardóma, um fjár-
skuldbindingar í erlendum gjald-
eyri og um störf ræðismanna.
Einnig var samningur um ætt-
leiðingu, sem undirbúinn var af
félagsmálanefnd Evrópuráðsins,
til meðferðar hjá lagaráðinu.
Á vegum lagaráðsins eru nú
starfandi fjölmargar sérfræö-
inganefndir, og vinna þær að
gildir um kostnað viö sérfræð-
inganefndir, sem starfa á vegum
lagarátísins.
Störf þau sem unnið er að á
vegum lagaráðsins eru mörg,
hver hin þýöingarmestu. Kunna
þau að valda miklu um
þróun réttarfars og löggjafar
í ríkjum Evrópuráösins og víð-
ar. Það er því þýðingarmikið að
fylgzt sé rækilega meö þessum
störfum, og á undanförnum ár-
um hafa fulltrúar héðan tekið
þátt í störfum lagaráðsins, svo
og nokkurra sérfræðinganefnda
þess. Á þátttöku þessari er þó
sá annmarki, að hún fer fram
Myndin er af þingfundi í Evrópuráðinu. Per Federspiel, fyrr-
verandi forseti ráðsins, er í ræðustól.
athugunum á verkefnum eins
og friðhelgi ríkja, skilgreiningu
á grundvallarhugtökum f lög-
fræði svo sem lögheimili og að-
setur og frestir, greiðslustað
fjárskuldbindinga, reglum um
handhafaverðbréf, sem glatast
eöa er stolið, samræmingu lög-
gjafar um fébótaábyrgö öku-
manna og vátryggingu ökutækja
o. fl.
Á vegum lagaráðsins er einnig
unniö að ýmiss konar annarri
samvinnu á sviði lögfræðinnar.
Þannig er árlega safnaö saman
upplýsingum um löggjafarstarf-
semi Evrópuráösríkjanna og
löggjafarundirbúning. Undir-
búiö hefur veriö samkomulag
um það hvernig afla skuli upp-
lýsinga um löggjöf í einstökum
ríkjum. Þá hefur einnig veriö
unnið að því að auka kynni og
samstarf lögfræðinga og lög-
fræöistofnana innbyrðis. Má
sem dæmi nefna, að á þessu
ári mun verða haldinn fundur
forseta lagadeilda viö háskóla
Evrópuráðsríkjanna, þar sem
rædd verður þróun löggjafar í
Evrópu. Þá er unnið að bví að
koma á ýmiss konar samstarfi
lagabókasafna, og stefnt er að
þvf að koma á fundum starfandi
lögfræðinga.
Lagaráðið er skipað embætt-
ismönnum frá aðildarríkjum
Evrópuráðsins, auk nokkurra á-
heyrnarfulltrúa, m. a. frá Finn-
landi og Spáni. Kostnaður allur
af fundum bess, sem að jafnaði
eru tvéir á ári, er greiddur af
Evrópuráðinu, og hiö sama
af embættismönnum, sem jafn-
framt eru önnum kafnir við
fjölbreytileg önnur störf. Ööru
máli gegnir um velflesta full-
trúa annarra ríkja, sem þátt
taka f störfum lagaráðsins.
Þannig er þaö t.d. með hin
Noröurlöndin, þar sem starfandi
eru sérstakar lagadeildir við
dómsmálaráöuneytin. Þátttaka t
störfum lagaráðsins verður þar
eðlilegur þáttur f starfsemi ráðu-
neytanna. Milli dómsmálaráðu-
neyta Norðurlandanna er hins
vegar náið samstarf, m. a. um
störf lagaráðs Evrópuráösins, og
njóta fulltrúar íslands þar
margháttaðrar aðstoðar starfs-
bræðra sinna. Að þvf hlýtur
hins vegar að koma að störf að
löggjafarundirbúningi fái hér á
landi fastmótaðra form en verið
hefir til þessa, svo sem með
stofnun lagadeildar við dóms-
málaráöuneytið.
Starfsemi Evrópuráðsins á
sviði lögfræðinnar hefur að
sjálfsögðu jafnan verið áhuga-
má! dómsmálaráðherra aðildar-
ríkjanna. Koma dómsmálaráð-
herrarnir nú reglulega saman til
fundar annað hvert ár, og hafa
þeir þegar komið saman fjórum
sinnum. en næsti fundur þeirra
verður haldinn í London í júni-
mánuöi næstko/nandi. Á fundum
þeirra er gerð grein fyrir störf-
um lagaráðsins og annarra fasta-
nefnda sem starfa að lögfræði.
en jafnframt eru þar ræddar
huemyndir um frarotíðarverk-
efni á þessu sviði.
Ólafur W. Stefánsson.
KBHZn5.”TS3!SBSS