Vísir - 04.05.1968, Blaðsíða 12
/
72
V1SIR . Laugardagur 4. maí 1968.
CAROL GAINi: ^
n
X ía »r
11 l!i iL MÍ_ _
— Hvaða vandræöi. Þú skrifaöir
svo fallega um þennan staö.
— Já, þetta voru allra beztu
menn.
Allt í einu birti yfir Marciu. -
— Komdu tfl Torremolinos áður
en þú ræöur þig i nýja stöðu.
Hún laut fram og sagöi biöjandi:
— Geröu það, Joýce. Þú hefur gott
af því. Þú getur veriö hjá okkur
eins lengi og þú vilt!
Ég hnyklaöi brúnirnar og varð
hugsað til þess aö ég hafði ekki
lagt neitt upp af kaupinu mínu.
Aö minnsta kosti ekki nóg til aö
skemmta mér fyrir.
— Ég hefði gaman af þvi, Marcia,
en sannast að segja veit ég ekki
hvort ég get það. Þú verður að
muna aö ég verð að vinna fyrir
mér. Ég verö meöal annars að
borga húsaleigu.
— Jæja. Náðu í stúlku, sem get-
ur notað húsnæðið þitt og komdu
til mín — ég skal útvega þér at-
vinnu. Þú veizt að það er ég, sem
sé um reikningshaldið. Ég skyldi
veröa fegin, ef ég fengi einhvem
til að taka við því af mér.
Þetta var freistandi tilþoð. Fyrir
nokkrum dögum hafði Mary feng-
ið bréf frá systur sinni í Suður-
ÝMISLEGT ÝMJSLEGT
GÍSLI
JÓNSSON
Akurgeröi 31
Sími 35199
Fjölhæt jarðvinnsluvél, annasi
lóðastandsetningar. gref hús-
grunna. holræsi o. fl.
*-* 30435
Tökum að okkur hvérs könai múrbroi
og sprengivinnu I húsgrunnum og ræs
um Leigjum út loft.pt essut og víbrb
sleða Vélaleiga Steindórs Sighvats
;,onai Alfabrekku viö Suðurlands
braut, simi ’.0435
RAFVELAVERKSTÆÐI
S. MELSTEÐS
SKEIFAN S SÍMI 6ZIE0
TÖKUM AÐ OKKUR:
■ MÓTORMÆLINGAR.
B MÓTORSTILLINGAR.
■ V10GERÐIR A' RAF-
KERFI, DýNAMÓUM,
0& 5TÖRTURUM.
■ RAKAÞÉTTUM RAF-
KERFIEI
VARAHLUTIR Á STACNUM
OAE«SASVtt.UR
kTi m i i TTTTTm-rn-n-m mrrmTrnT
Tekufl ALI.S KÖNVflt KLÆOtvlNGAR
'FL JÓ r OG VÖNDUÐ VINN A
’orval af áklæðum .
LAUGAVEG 6? - SlMI 10825 HEIMASlMI 83634
BOLSTRUN
Afríku, sem ætlaði að dvelja i Eng-
landi um tíma. Mary sagðist verða
að útvega henni húsnæði einhvers
staðar, því að hún gæti ekki látið
hana liggja á dívaninum i stofunni
til Iengdar. Hún yrði guðs fegin
ef hún gæti fengið herbergi Joyce
handa henni, ef hún færi til Torr-
emolinos.
— Ætlarðu að koma, Joyce?
sagði Marcia. — Ég skal borga þér
vel.
Ég hló.
— Ég mundi ekki taka við borg-
un. En ef þú létir mig fá fæöi og
húsnæði...
— Við getum talað um það þegar
þú kemur.
Ég horfði á hana. — Það verður
að vera öruggt að ég fái vinnu ef
ég kem?
— Vitanlega. En þú verður að
taka þér hvíld fyrst. En þegar
hálfur mánuður verður liöinn verö-
ur þú aö láta hendur standa fram
úr ermum. Ég þarf á þér að halda
þegar gestakoman fer að aukast.
Þegar allt fyllist af gestum þarf
ég á hjálp að halda, og það er
ekki hlaupið að því að ná í gott
fólk.
Ég horföi meö undrun á þessa
nýju, starfandi Marciu. Áður en
hún giftist hafði hún aldrei hugs-
að um annað en að skemmta sér.
— Hvenær heldurðu að þú getir
komið, Joyce?
— Ég veit það ekki meö vissu.
Ekki núna strax. Firmað hættir
ekki fyrr en í mánaöarlokin.
— Hvaða mánaðardagur er í dag?
Fjórði. Góða, ég hlakka til þess að
þú kemur. Ég vildi helzt að þú
gætir komið strax.
Ég brosti. Þetta var svo likt
Marciu. Hún vildi alltaf gera allt í
snatri og undir eins.
— Ég skal láta þig vita þetta
betur seinna. Ég skal skrifa þér í
næstu viku.
— Þú lofar mér þvi?
— Já. ég lofa þessu, að því til-
skildu að ég geti gengið frá öllu
á viðunandi hátt hér heima. Ég
hlakka til að koma.
— Carlos verður glaður. Hon-
um féll einstaklega vel við þig, —
það lítið sem hann kynntist þér
í brúðkaupinu. Marcia stóð upp,
tók saman dótið sitt og kyssti mig.
— Góða nótt, Joyce. Sofðu veí.
Við sjáumst á morgun.
AÐEINS VINUR.
Það var fjör í samkvæminu. Ég
komst aö því, að það var haldið
f tilefni af afmæli Marciu, og ósk-
aði að ég hefði munað eftir af-
mælisdeginum, svo að ég hefði
getað keypt einhverja smágjöf
handa henni.
Flestir gestirnir voru úr nágrenn
inu, en nokkrir komu frá London.
Einn þeirra var Peter Cobbold. Ég
var uppi í herberginu mínu að
hafa fataskipti þegar ég sá hann
koma akandi í bílnum. Hann steig
út, og stóð og beið fyrir utan dyrn
ar. Ég fékk hjartslátt. Hvaö var
það við þennan mann, sem mér
fannst svo ómótstæöilegt? hugsaði
ég með mér. Áhrifin frá John voru
allt annars eðlis, og þó þekkti ég
hann vel og leizt vel á hann. Ég
mundi eftir augnaráði Peters Cobb
old þegar hann horfði á mig i brúö
kaupi Marciu, og hreiminn í rödd
hans.
Hann var sá sami og þá, þegar
ég hitti hann niðri í stofunni. —
Hann var aö tala við Marciu þeg
ar ég kom inn, og þegar hann leit
við og horfði á mig kom glampi
i augun á honum. Hann sagði nokk
ur orð við hana og kom svo til
mín.
— Nú brá mér notalega við! Ekki
vissi ég aö ég mundi hitta yður
hérna.
— En ég vissi það. Marcia sagði
mér það þegar á föstudaginn er ég
kom.
Hann horfði angurvær á mig. —
Og hún bauð mér að koma undir
eins á föstudaginn líka, en ég gat
það ekki.
Mundi hann hafa reynt að kom-
ast hingað á föstudaginn ef hann
hefði vitað af mér? hugsaði ég með
mér. Langaði hann til að sjá mig?
Þegar ég hitti hann í fyrsta skipti
fannst mér hann vera jafn áhuga
samur um mig og ég var um hann.
Hafði mér veriö eins oft í huga
hans og hann hafði verið í huga
mínúm?
— Ég reiddist yður í brúðkaup-
inu. Þér laumuðust burt án þess
að kveðja mig sagði hann ávítandi.
— Ég gat ekki að því gert. Ég
varð að komast með lestinni heim
til Exeter. Ég sagði yður það. Mun
ið þér það ekki?
— Jú, alveg rétt. Móðir yðar var
veik. Hvernig líður henni núna —
vonandi betur?
Nú varð dálítil þögn.
— Móðir mín dó fyrir sex mán-
uðum.
TTi 111 iii i i i .i 111 ■ ■ i imii!nT:i i.i:.i 1.1.1
^Sraílctt
LEIKFIMI
JAZZ-BALLETT
Frá DANSKIN
Búningar
Sokkabuxur
Netbuxur
Dansbelti
•Jc Margir litir
■jt Allar. stærðir
Frá GAMBA
Æfingaskór
Svartir, bleikir, hvitir
Táskór
Ballet-töskur
Sfl/ídííiíí in
NVJUNn t TEPPAHREINSUN
ADVANCE
Tryggir að tepp
’ð hleypur ekki
Reynið viðskipt-
'n. Uppl. verzl
\xminster, simi
10676. - Heima
sfmi 42239.
Nýjc Bílsaþjónustan
Lækkið viðgerðarkostnaðinn
með þvl að vinna sjálfir að
viðgerð bifreiðarinnar. — Fag-
menn veita aðstoð ef óskað er.
Rúmgóð húsakynni. aðstaða
til bvotta.
Nýjn Bílnþjónustnn
Hafnarbraut 17.
sími 42530
opið frá kl. 9-23.
ERCO
BELTIog
BELTAHLTJTIR
á BELTAVÉLAR
BERCO
Keðjur Spyrnur Framhjól
Botnrúllur Topprúllur
Drifhjól Boltar og Rær
jafnan fyrirliggjondi
BERCO
er úrvals gæðavaro
ó hagstæðu verði
EINKAUMBOÐ
ALMENNA
VERZLUNARFELAGIÐf
SKIPHOLT 15 —SfMl 10199
PIAST
v * (OsiíffU
Fsrrir utan herbergið, sem Tarzan og
Jane uppgötvuðu að ekki var hægt að
komast út úr. — „Tarzan er ekki hér.“
„Láttu okkur fá lyklana, La.“ — „Asn-
ar, ekki einu sinni Tarzan gæti farið í
gegnum lokaðar dyr, leitið alls staðar
annars staðar — fljótt.“
„Læst — og aðeins La drottning hefur
lykilinn.“ — La, hvers vegna hefur hún
iokað okkur inni í stað þess að senda
villimennina hingað til okkar. — Hvað,
ert þú fyrir henni, — Tarzan — og hún
fyrir þér?“
(T—
Simi /0$03