Vísir - 13.05.1968, Síða 4

Vísir - 13.05.1968, Síða 4
5a Þótt kettinum leyfist að líta á drottninguna, þá er ekki þar með sagt, að hið sama gildi um oran- gutan-apa gagnvart hertoganum af Edinborg, Philipusi prins. Samt gerðist það I dýragarði í Englandi, þar sem prinsinn kom í heimsókn, að einn apinn gerði sér lítið fyrir og flaðraði upp um hann allan. Þegar drottningarmaðurinn var síðar leiddur fyrir stjórn dýra- garðsins og kynntur einstökum meðlimum, baðst hann afsökunar á hinni megnu skepnulykt, sem af honum legði, og sagði, að hún stafaði af því, að einn apinn hefði verið svo ákafur við að bjóöa sig veikominn I garðinn. Vicky Drake heitir 21 árs göm- ul dansmær sem heldur því sjálf fram, að hún sé í hópi náms- manna Stanfords háskóla í USA. Hún hefur getið sér nokkurs orð- stírs utan skóians fyrir dans sinn, þvf hún dansar helzt f topplausu. Enn frekari athygli hefur hún vakið á sér nú nýlega, þegar hún gaf kost á sér í embætti forseta stúdentafélag skólans, því að hún hefur þegar byrjað kosningabar- áttnna og bað á óvenjulegan hátt. Hún hefur látið dreifa áróðurs- spjöldum með mynd af sjálfri sér naktri, svo öll hlutföllin — 38 — 22 — 36 tommur — njóti sín sem bezt, en eins og málin sýna, er hún vel úr garði gerö líkamlega. Hins vegar hefur nafn hennar hvergi fundizt í nemendaskrám skólans. en stuðningsmenn henn- ar segja, að það stafi af því, að hún hafi látið innrita sig frekar seint og þá undir nafninu, Victor- ia Bowles, en síðan hafi hún breytt um nafn, vegna starfs síns og vegna þeirrar breytingar sé nafn hennar ekki enn komið á skrá. Vangaveltur um sparnaðinn Það er mikið um að vera i þjóðlifinu, enda á svo að vera. Þó er ekki æskilegt að öll um- svif beri að sama brunni. Flest- um ber saman um að vegna þess að tímar hafi breytzt og útlit fyrir samdrátt á mörgum sviðum, þá sé nauðsynlegt að hafa á meiri aðgát í meðferð fjármuna bæði i opinberu Iífi og eins meðal einstaklinga. En hvernig verður sparnaðurinn í reyntff Hann er nanast enginn nema þar sem allt er uppurið og engu er til aö eyða. Flest í fari okkar miðar að eyðslu en ekki fyrirhyggju til sparnaðar. Kærastinn hennar Hayley Mills laus og liðugur Roy Boulting, hinn 54 ára gamli kvikmyndaframleiðandi, sem Hayley Mills ætlar að gift- ast, hefur nú fengið skilnað við konu sína, Enid Boulting, tízku- sýningarmær. Þau voru úrskurðuö skilin að lögum fyrir skilnaðarrétti I Lon- Hayley Mills don í byrjun síðustu viku, en bæði játuðu að hafa rofið tryggð hvort við annað. Hún með Alain Marcel Kahn-Schriber og hann með einhverri frú Victoríu Melle. Meðal þeirra, sem bókuð höfðu verið, sem væntanleg vitni fyrir réttinum, var Hayley Mills, en þær fimmtán mlnútur, sem rétt- urinn stóð yfir, kom hún aldrei í vitnastúkuna, og var aldrei nefnd á nafn. Boulting-hjónin gengu í hjóna- band í marz 1951 og eiga sex börn. Roy og tviburabróðir hans, John, skutust upp á frægðartind- inn, þegar þeir stofnuðu í sam- einingu sitt eigið kvikmynda- tökufélag. Meðal mynda, sem þeir hafa látið frá sér fara og náð hafa hvlli, eru „I’m all right, Jack“, „Heavens Above“ og „Brothers in Law.“ Enid Boulting. Mest sefda píputóbak í Ameríku, framleitt afCamel verksmiðjunum IMIIIHIII1S ■ , Ef minnzt er á sparnað, þá ætl- ar allt af göflum að ganga, og má þar nefna sparnað eins og t. d. að leggja niður prestsem- bættið í Kaupmannahöfn. Auö- vitað hafði ferill hins ágæta prests í Kaupmannahöfn verið slíkur, að mikil eftirsjón var að því að ekki skyldi vera hægt að halda sliku starfi áfram, en okkar sameiginlegi fjárhagur krefst þess, að einhvers staöar verði dregin saman seglin. Og betra er að draga skipulega úr útgjöldum i tíma, áður en öng þveiti bannar fiárútlátin, þvi að þá koma örðugleikarnir niður á því, sem sízt skyldi. Við höfum oft minnzt á gildi áróðurs i þessum þætti, enda hefur það sýnt sig og sannazt í ýmsum málum, að með skipu lögðum áróðri og kynningu á gangi og eðli þeirra má ná ýms um árangri til hagstæðs fram- gangs. Aróðurinn í þágu sparnaðar er næsta bágborinn, enda bor- inn á borð af þeim aðiiuni sem fjárfesta mikið sömu vikurnar og miklu er eytt. Má í því sam- bandi nefna hve neikvætt það er að tilkynna þjóðinni nauð- þess að sameina bankana í spamaðarskyni, eftir að mánað- arlega hafa veriö opnaðir nýir bankar og útibú á ólíklegustu stöðum. Hvatning til eyðslu er geig- vænieg bæði vegna fordæmis einstaklinga og stofnana. Fyrir tæki hvetia einnig til eyðslu. iafnvel eru haldnar hér „spánsk ar vikur“ í auglVsingaskyni og til hvatningar fólki að eyða sumarleyfi sínu á Spáni, svo dæmi sé nefnt. Hvernig væri að reka bliðstæðan áróður fyrir spamaði almennt bæði heima og heiman Mvndi okkur ekki bún- ast betur? Þrándur í Götu. 9

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.