Vísir - 20.05.1968, Síða 4
Vatíkanið er sjálfstætt ríki á ítalíu og hefur um langan aldur gætt leyndarmála sinna vel.
Hin unga kvikmyndaleikkona,
Hayley Mijls var nærri drukknuð
við kvikmyndaupptöku.
Nú á Vatíkanið einnig að borga skatt
af 450 milljörðum króna
Það er vitaö mál, að rómversk-
kaþólska kirkjan á ógrynni fjár
og rekur hvers konar fyrirtæki
og iðnaðarsamsteypur og fast-
eignir hennar verða vart metnar
til fjár.
Það er einnig vitað mál, að
aldrei hefur verið hægt aö henda
reiður á öllum þeim fyrirtækj-
um, sem kaþólska kirkjan á ein-
hvern hlut í eða rekur algerlega
í skjóli sérstakra fjármálafyrir-
tækja, sem önnuðust fjárreiður
fyrir páfastól Enginn hefur reikn-
að út hvérsu gífurlegur þessi auð-
ur er. Það væri svipað og halda
inn í geysiflókið völundarhús,
aö ætla sér að taka saman skrá
yfir eignir Vatfkansins.
Samt rejma menn að geta sér
til um þetta, og talan sem flestir
aðhyllast er nálægt því 450 millj-
arðar króna. Þessi tala er að lík-
indum ekki fjarri því sanna, en
nákvæmlega rétt er hún þó ekki.
Páfinn hefur nú á prjónunum fvr-
irætlanir um, að gera fjármála-
kerfi Vatíkansins einfaldara, þann
ig að betri og nákvæmari heild-
armynd fáist af eignum og tekj-
um. Mikið fé streymir inn frá
Bandaríkjunum, þar sem Vatíkan
ið á í mörgum fyrirtækjum.
Páil páfi VI mundi fyrir löngu
hafa hrundið hugmyndum sín-
um í framkvæmd, én til þess hef- <j>
ur hingað til skort leyfi frá stór-
ráðinu, sem samkvæmt aldagam-
alli hefð er æðsta yfirstjóm páfa-
stóls. Samþykki þess hefur nú
fengizt, og menn geta búizt við i
því, að fyrirtæki . Vatíkansins
verði úr þessu rekin á nýtízku-
Gamla fyrirkomlagið var svo
flókið, að af því hlutust oft ým-
iss vandræði. Til dæmis á Vatíkan
iö mikið af húsum, sem það hefur
síðan leigt stórum leigusölum,
sem aftur hafa leigt húsin út til
. vændishúsareksturs. Upp komst
um slfjct mál, og vakti það upp
mikla andúð á kaþólsku kirkj-
unni.
Það hefur löngum orsakað
mikla gremju, hversu víðtækra
skattfríðinda kaþölska kirkjan
nýtur. Á Ítalíu er hún sjálfstætt
ríki og borgar enga skatta til
hins ítalska rikissjóðs, sem þó
hefði sára þörf fyrir slíkt. Nú er
aftur á móti veriö að semja um
skattamálin, svo að búast má við
að Vatíkanið taki í framtíöinni að
borga skatt af eignum sínum.
A.m.k. einhverjum hluta þeirra,
án þess þó að þurfa að skýra
alltof nákvæmlega frá því, hversu
víðtækar eignirnar eru.
Páll páfi VI virðist vera nú-
tímamaður í hugsun, og því er
almennt fagnað, aö Vatíkanið
skuli nú vera í þann veginn að
afsala sér fríðindum, sem um iang
an aldur hafa verið þung byrði á
almennum borgurum.
N . .. O.V,- -s
Hayley Mills nœstum drukkn-
uð við að leika í kvikmynd
Núna í vikunni var Hayley Mills:
hætt komin, þar sem hún var aö
leika í einu atriði nýrrar kvik-
myndar, sem verið er að taka í
London. Atriöið, þegar Hayley
Mills átti að bjarga mótleikara sín-
um, Hywel Bennett upp úr ánni
[ Thames varö svo raunverulegt, að
: Hayley var nærri druknuð.
| Hin 22ja ára kvikmyndaleikkona
synti úti í miðju fljótinu fklædd
bikinibaðfötum, meðan kvikmynda-
tökuvélarnar suðuðu allt í kring
Verið var aö taka myndina ,Twist
ed Nerve." Skvndilega fataðist leik
konunni sundið, og hún tók að
hrópa á hjálp. Innan skamms tókst
að fiska hana á þurrt land, þannig
að hægt verður að ljúka við að
gera þessa kvikmynd.
Hesturinn er enn þá
þarfasti þjónninn
Þessi mynd var tekin í Þýzka-
landi, og hún sýnir mætavel, að
nytsemi hestsins er ekki alveg úr
sögunni. Eitthvert óhapp hefur
hent bifreiðina, svo að eigandinn
hefur ekki séð sér annað fært, en
að grípa til gamaldags tækni til
að koma bílnum á verkstæði.
Klárinn kippir sér ekkert upp við
að hafa tvo vagna í eftirdragi.
Hann er ef til vill ekki eins hrað-
skreiður og bílarnir en „kemst þótt
hægt fari.“
Hestarair og fólkið.
Öðru hverju gýs upp mikil til-
finningasemi gagnvart dýrum,
og er þá aðaliega um einstök
atrlði að ræða. Má nefna dæmi
eins og þegar Sjónvarpið
„negldi“ einn hestaeigandann
upp við vegg frammi fyrír al-
þjóð, ef svo má segja vegna
hestahalds úti I Engey. Viö at-
hugun máls kom í ljós, að hest-
arnir munu geta lifað góðu Iífi
úti í Engey, og þar me," féll
öll barátta niður fyrir bættu
hestalífi í borginni og nágrenni
hennar. Baráttan þarf alltaf að
bindast við einstök atriði til að
eitthvað sé gert. Ástæðan fyr-
ir þvf að ég ræði þetta nú er
víðtal 'við gamlan hesta-
mann. en hann telur að taka
þurfi til rækilegrar athugunar
almenna hestaeign hér á Stór-
Reykjavíkursvæöinu. Ekki
vegna þess að um sé að ræöa
hestinum líöi vel, en miklir erf
iðleikar eru á því, fyrir þá sem
sjálfir eru ekki vanir járnun
mörg tilfelli, þar sem fólk fer hesta, að fá vana menn til að
vísvitandi illa með hesta sína, taka að sér slíkan starfa.
Dýraverndunarfélögin myndu
gera mikið gagn, ef þau gæfu
hinum almennu hestaeigendum
leiðbeiningar um meðferð hesta
og jafnvel annarra dýra. Það
t&fodt&íGöúi
heldur hitt, aö fólk hefur ekki
æskilega aðstöðu, vankunnátta
í fóðrun og aigjör vankunnátta
varðandi jgrnun hesta svo eitt-
hvað sé nefnt.
Það er mikilvægt atriði varö-
andi meðferð reiðhests, að hann
sé rétt járnaður. Rétt jámun er
eitt af frumskilyrðum þess, að
Þar eð kyrrsetufólk hefur
fulla þörf á bví að bregða sér
á leik öðru hverju og fara t.d.
á hestbak, þá er hrein nauðsyn
að þeim séu gefnar leiðbeining-
ar í meðferð og ummönnun
hesta, sem byrja á slíku
„sporti“, ef þeir eru ekki vanir
slíku.
er mikilvægt að það sé hæfi-
iega fóörað cg að önnur að-
staða sé i lagi. Ennfremur er
járnun mikilvæg og þaö eitt að
geta bent á eða haft á sínum
snærum mann sem kann að
járna hesta, væri gott spor í
rétta átt. Auðvitað verða hesta-
eigendur að greiða fyrir fengna
þjónustu. Slík þjónusta mundi
eiga sinn þátt í því aö bæta að-
búð dýranna, í þvi væri fólgið
hið rétta hugarfar dýraverndun-
armannsins, en ekki það einung
is að koma einhverjum i bölvun
jafnframt bættri meðferð i ein-
stökum atriðum.
Liklega' væri brýn nauðsyn
á því að gefa út bækling um
undirstöðumeðferð okkar helztu
húsdýra, sem alin eru tll yndis
og skemmtunar, svo sem hesta,
hunda og katta. Það er ekki
nægilegt aö vera bara góður
við hestinn sinn, klóra honum
oft á bak við eyrað og gefa hon-
um rúgbrauð.
Þrándur í Götu.
I