Vísir - 11.06.1968, Page 5
VlSIR . Þriðjudagur 11. júnl 1968.
5
Hvernig verð-
um við fljótast
sólbrún?
Venjulegar sólarol'iur og krem gera ykkur
estöd brún, abeins sólargeislarnir
■
J7nnþá þykir það fegurðarauki
og heilbrigðístákn að vera
'nn, jafnvel þó að tízku-
æðingar telji ekki ólíklegt
að innan fárra ára þyki það
fremur lýti en feguröarauki,
a. m. k. ef vinsældir „andlitsins
1930“ eiga eftir að aukast, sem
— ailt útlit er fyrir. Slík andlits-
förðun gerir ráð fyrir mjalla-
hvítri húð, mjög dökkum augum
og rauöum kinnum og vörum.
— Hvað um það, ennþá leggjum
við mikið á okkur til að fá fall-
egan og hraustlegan hö.rundslit,
enda eru sólböð í hófi mjög holl
fyrir likamann og húðina.
Öll þau ógrynni af sólarkrem-
um og olíum, sem fáanleg eru
þessa dagana í verzlunum, gera
okkur eiginlega hálfrugluð. Hvað
af þessu er þægilegast að nota?
— Af hverju verður maður fljót-
ast brúnn? — Hvað er hollast
að nota? — Þannig spyrjum
við afgreiðslustúlkumar. Sann-
leikurinn er sá, að það skiptir
ekki svo ákaflega miklu máli
hvaða tegund af sólarolíu, —
kremi eða áburði er notuð. Húð-
in veirður fyrst og fremst brún
af hinum útfjólubláu geislum
sólarinnar, kremin erú aðeins til
aö verja húðina gegn miklum
sólbruna og mýkja hana. Húðin
hlýtur alltaf að brenna eitthvað.
ef hún á að verða brún, en sólar-
áburður getur gert það að verk-
um, að hún brennur ekki illa og
verður mýkri en ella.
Mjög feit krem og olíur flýta
mjög fyrir því að húðin hitni
og brenni og mörgum veitist
bezt að verða brúnn á þann hátt.
Ef húðin hefur hins vegar til-
hneigingu til að verða feit, er
frekar ráðlagt að nota sólar-
mjólk, sem er ekki nærri eins
feit og olíumar.
Það er mjög hæpið að hægt sé
að verða brúnni af einni tegund
en annarri. Þessi efni eiga að
vísú misjafnlega vel við húð
hvers og eins, og vernda misjafn
lega vel gegn sólbruna, en geisl-
ar sólarinnar eru það eina sem
gerir húðina brúna.
Að vísu hefur snyrtivörufram-
leiðendum tekizt fyrir nokkmm
ámm að framleiða merkilegan
sólaráburð, sem hefur þann eig-
inleika, að húðin verður brún af
honum, án þess að um sól sé
að ræða. Hér er auðvitað aðeins
um sérstakan lit að ræða, en
þrátt fyrir það getur verið mjög
nytsamlegt að eiga slíkan áburð.
Allir þeir fjölmörgu, sem eiga
mjög erfitt með að fá fallegan,
brúnan lit, svo sem rauðhært
fólk og freknótt, þurfa ekki að
nota slfkan áburð nema i örfá
skipti, til að fallegan brúnleitan
. lit í staðinn fyrir rauða húðlit-
inn. Fjölda margir eiga erfitt
með að verða brúnir á ákveðn-
um hlutum hkamans, t. d. fót-
unum og þá er tilvalið að hjálpa
dáh'tið til með þessum áburði.
Þegar búið er að ná fallegum|
brúnum lit með langvarandi sól-1
böðum, er hægt að halda hon-
um nokkrum vikum lengur með|
hjálp þessara efna.
En — ef þau eru ekki notuð
af nákvæmni og varfæmi, þá
verður árangurinn lfka vægast
sagt hörmulegur. Húðin verður
skellótt og flekkótt, óeðlileg á
litinn, og þið óskið að þið hefö-
uð aldrei borið þetta á ykkur.
Slíkt á þó ekki að þurfa að koma
fyrir, ef þess er gætt að nota
áburðinn sjaldan, jafna honum
vel, og — helzt þarf húðin að
vera orðin dálítið brún af sjálfri
sólinni, annars verður liturinn
sjaldnast sannfærandi.
Mörg viðurkennd snyrtifyrir-
tæki, svo sem Noxema og Copp-
ertone, hafa nú hafið framleiðslu
á þess konar sólaráburði, og
fæst hann hér í verzlunum fyr-
ir 140—150 kr. Aðeins 3—5 klst.
eftir að hann er borinn á má
glögglega sjá mun á húðinni.
Fyrir aöcins kr. 68.500.oo getiö þcr fengiö staðlaöa
eldhúsinnréttingu i 2—4 herbergja íbúöir, meö öllu él-
heyrandi — passa i ficstar blokkaríbýöir,
Innifaliö i veröinu er:
% eldhúsinnrétting, klasdd vönduöu plasti, efri
og neöri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss tæpir 4 m),
0 ísskápur, hæfilega stór fyrir 5 manna fjölskyldu i
kaupstaö.
^uppþvottavél, (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski.
Uppþvottavélin þvær upp fyrir 5 manns og aö auki má nota
hana til minniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
0 eldarvélasamstæða meö 3 hellum, tveim
ofnum, grillofni og steikar- og bökunarofni. Timer og önnur
nýtizku hjálpartæki.
9 lofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld-
húsinu lausu viö reyk og lykt. Enginn kanaii — Vinnuljós.
Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur
innifalinn) Ef stöðluð innrétting hentar yöur ékki gerum viö
yöur fast verötilboö á hlutfallslegu verði. Gerum ókeypis
Verötilboö I eldhúsifinréttingar i ný og gömul hús.
Höfum éinnig fataskápa, staðlaða,
- HAGKVÆMiR GREIDSLUSKILMÁLAR -
1111
K1 RKJUHVOLI
REYKJAVlK
S f M ! 2 17 18
Sálfræðingur
óskast til starla hálfan daginn við Geðdeild
Borgarspítalans. Nánari upplýsingar gefur
Karl Strand yfirlæknir í síma 81200. Umsókn-
ir sendist ojúkrahúsnefnd Reykjavíkur,
Borgarspítalanum fyrir 24. þ. m.
Reykjavík, 10. 6. 1968.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Starf rafmagns-
eftirlitsmanns
hjá Rafveitu Siglufjarðar er laust til umsókn-
ar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, sendist skrifstofu rafveit-
unnar fyrir 1. ágúst næstkomandi. Laun sam-
kvæmt 16. launaflokki.
\
RAFVEITUSTJÓRI
Ibúð óskast
Brézka sendiráðið óskar eftir 2ja—3ja herb.
íbúð. Uppl. í síma 15883.
Lóan filkynnir
Telpnahattar g töskur í glæsilegu úrvali. Hanzkar,
húfur. Ódýr drengja- og telpnasumarföt. Niðursett
verð á úlpum og gallabuxum. Telpukjólar á hálfvirði,
regnkápur á telpur og drengi o. m. fl.
Bamafataverzlunin LÓAN
Laugavegi 20B, gengið inn frá Klapparstíg á móti Hamborg.
FELAGSLÍF
iirni
Ferðafélag íslands ráðgerir Fugla-
skoðunarferð á Látrabjarg. Lagt
verður af stað föstudagskvöld 14.
júní og komið til baka að kvöldi
17. júni.
Nánari upplýsingar veittar á skrif-
stofunni, simar 11798 — 19533.
FILMUR OG VELAR 5.F.
Æfingar Sunddeildar Ármanns
verða í sumar í Laugardalslaug-
inni á mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum kl 8. Stjómin.
STÆIKUN’
SVART HVITT'
& LITFILMUR
AUGLÝSID í
VÍSI
FILMUR OG VELAR 5.F.
SKÓLAVORÐUSTÍG 41 SÍMI 20235 - BOX 995