Vísir - 11.06.1968, Page 7
V í G T r»
Þri'ðiudagur 11 iúní 19P8.
7
morgun
útlönd í morgun útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
JAMES EARL RAY ÚRSKURÐAÐUR
I VARÐHALD I LONDON
— Bcmdarísk yfirvöld vinna að því að fd hann framseldan
í gærkvöldi sóttu bandarísk yfir-
völd um og fengu handtökuheiniild
yfir James Earl Ray, sem grun-
aður er um morðið á blökkumanna
leiðtoganum dr. Martin Luther
King. Handtökuheimildin hljóðar
upp á morðákæru. Þetta er fyrsta
skrefið í áttina til þess að fá hann
framseldan af Bretum, en hann var
handtekinn á Lundúnaflugvelli á
laugardag af Scotland Yard lög-
reglunni ensku, en mikið samstarf
hafði verið með bandarisku alríkis-
iögreglunni, FBI, kanadísku lög-
reglunni og Scotland Yard, sem
leiddi til handtökunnar.
Ray var handtekinn á flugvell-
inum, þar sem hann var að reyna
að komast um borð I flugvél til
Brussel, höfuðborgar Belgíu. Hann
var leiddur fyrir rétt í London í gær
eins og lög mæla fyrir. Réttarhald-
ið stóð aðeins í tvær mínútur og
Ray mælti ekki orö frá vörum.
Hann var sekur fundinn um að hafa
í fórum sínum falsað vegabréf og
óleyfilega skammfoyssu af gerðinni
Liberty Chief cal. 38.
Til þess að fá Ray framseldan
verða bandarísk yfirvöld að bera
fram sérstaklega alvarlega og vel
ígrundaða ákæru á hendur honum.
Tvær slíkar ákærur eru fyrir hendi,
það er að segja frá yfirvöldunum I
Memphis-borg- I Tennessee vegna
morðsins á dr. Martin Luther King
4. apríl sl. og ákæra frá ríkislög-
reglunni fyrir þátttöku í samsæri
gegn dr. King.
Ray er margdæmdur glæpamaö-
ur, og er raunar nú strokumaður
úr fangelsi, þar sem hann átti eftir
að afplána langan dóm fyrir ofbeld
isverk og rán. Bróðir Rays hefur I
einnig komið við sögu glæpamála í
Bandarikjunum.
James Earl Ray er fæddur 10.
marz 1928 í Alton í Illinois-fylki,
þar sem liann var elztur af níu
börnum George og Lucitle Maher
Ray. Fjölskyldan var blásnauð og
fluttist oft milli borga, frá Alton til
Quincy, síðan til Ewing og aftur til
Quincy. Atvinnuleysi mikið var
James Earl Ray á slysavarðstofu eftir tilraun sína til að ræna leigubö-
stjóra í Chicago um 11 dali. Hann var skotinn í handlegginn, og síðanJ
féll hann gegnum kjallaraglugga.
Egypzkir herforingjar
íeiddir fyrir rétf
— Stúdentaóeirðir i Kairó
B Fjórir af hinum fyrrverandi
foringjum egypzka flughersins
verða aftur dregnir fyrir dóm-
stóla í Kaíró í dag, ákærðir fyr-
ir vanrækslu í starfi meðan „sex
daga stríðið“ gegn ísrael stóð
yfir.
Hin nýja réttarrannsókn var
knúin fr'am af verkamönnum og
stúdentum, sem hófu miklar mót
mælaaðgerðir í febrúar, vegna
þess að þeir sögðu dómstólana
nata fjallað um málið af allt o'f
mikilli mildi.
Meðal hinna ákærðu er Mo-
hamoud, æðsti yfirmaður flug-
hersins. í hinum fyrri réttarhöld
um var hann dæmdur í fimmtán
ára fangelsi, en þá voru tveir
hinna ákærðu sýknaðir.
Margir Egyptar mótmæltu
harðlega hinum vægu dómum
yfir þessum háttsettu herforingj
um, þar sem margir minnihátt-
ar liðsforingjar voru dæmdir í
langa nauðungarvinnu fyrir van
rækslu. Stúdentar eiga nú í
höggi við lögregluna í Kaíró, höf
uðborg Egyptalands og krefjast
„dauðadóms yfir svikurunum“.
ríkjandi á jressum tíma, og fjöl-
skyldufaðirinn óreglusamur og ó-
heppileg fyrirmynd barna sinna. Á
þessu flakki virðist hann hafa
skipt oft um nafn, þannig aö fjöl-
skyldunafnið var ýmist Ray, Rayn
eða Rain. Siðan hefur James Ray
gengið undir ýmsum nöfnum t. d.
Eric Starvo Galt eða Raymond Ge-
orge Sneyd.
Fyrsta afbrot Rays, sem vitaö er
um, framdi hann árið 1949, þegar
liann reyndi aö stela ritvél af skrif-
stofu kaffihúss, en náðist og fékk
90 daga fangelsi. Þetta var í borg-
inni Los Angeles. Áriö 1952 reyndi
hann að ræna 11 dollurum af leigu-
bílstjöra í Chicago, en náðist og var
settur í fangelsi. 1954 reyndi hann
að fremja innhrot í heimaborg sinni
Alton, en það mistókst og hann fór
Myndin er frá 1938 og sýnir Ray
ásamt skólafélögum sínum í Ewing.
aftur í fangelsi. 1955 var hann aft-
ur dæmdur fyrir fjársvik og skjala-
fals. 1959 hafði hann fyrst heppn-
ina með sér, þegar hann rændi 800
dollurum í matvörufoúð í St. Louis.
1 þetta skiptið náðist hann ekki, og
í kjölfarið fylgdu tvö rán svipuð
þessu. I októher 1959 náöist Ray
loksins, eftir misheppnað rán í St.
Louis, þegar hann hafði flúið af
ránsstaðnum og skilið eftir særðan
félaga sinn. Ilann var þá dæmdur
í 20 ára fangelsisvist í ríkisfangels-
inu í Missouri.
Næstu sjö árum eyddi hann í
fangelsinu og varð þegar frægur
fyrir hinar fjölmörgu flóttatilraun-
ir, sem gerðu það að verkum, að
samfangar hans kölluðu hann
„moldvö.rpuna“i Honum tókst næst-
um því að sleppa 1966, þegar liann
faldi sig í tvo sólarhringa í loft-
ræstigöngum í fangelsinu, en á síð
ustu stundu. þegar hann var aö
klifra niður af þaki fangelsisins
kom vörður auga á hann svo að
hann náðist. Þá hafði hann á sér
rakvélarblað, 4 dollara og 15 sent
og brotinn spegil.
- - En að lokum heppnaðist flótt-
inn fyrir rétt rúmu ári siðan, með
þeim afleiðingum, sem kunnar eru
um allan heim.
íð 1959, ettir aö hann var handtek-
inn i St. Louis fyrir vopnað rán.
Líðan Blaihergs
versnaði i nátt
— var fluttur i skyndi á Groote Schuur sjúkrahúsið
Líðan dr. Philips Blaibergs,
mannsins, sem skipt var um hjarta
í 2. janúar sl., versnaði skyndilega
í nótt, og hann var í miklum flýti
fluttur á sérstaka deild í Groote
Schuur sjúkrahúsinu i Höfðaborg,
KOSNINGABARÁTT-
AN í BANDARÍKJUN-
UM HAFIN Á NÝ
„Bandarikin þarfnast nú leiðtoga,
sem getyr leitt þjóöina fram til nýs
tíma réttlætis og samstööu,“ sagði
Nelson Rockefeller — fyrstur til að
hefja kosningabaráttuna á ný.
I fylkisstjóri republikana Nelson
j Rockefeller í gær í ræðu, sem hann
■ flutti við Alleghany-hásköla I
I Pennsylvaníu-ríki.
Rí'kisstjórinn í New York er þann
ig sá fyrsti forsetaframbjóðenda,
sem hefur baráttuna á nýjan leik
eftir morðið á Robert Francis
Kennedy öldungadeildarþingmanni.
Rockefeller lýsti Kennedy sem
manni, sem hafði haft sérstaka
þýðingu fyrir æskuna. Ilann hefði
verið sem innblástur fyrir hina
ungu, en tjónið af því að missa
hann er jafnþungbært fyrir allar
kynstóðir, sagði Rockefeller.
„Sú bylgja vonar, þátttöku og
áhuga æskufólks, sem fer um land-
ið, sýnir að fólk vill leita eftir betri
heimi,“ sagði Rockefeller. Og enn-
fremur sagði hann: ,,F.g held aö all-
ir séu mér sammála, þegar tjg Jæt
I Ijós ósk eftir nýjum leiðtoga, sem
skilur og vill nýta þessar vonir
æskunnar, Við þurfum á manni að
halda, sem getur endurreist traust
milli allra kynþátta, sem getur end
urreist traust Bandarikjamanna á
sjálfum sér og leitt þjóðina fram til
réttlætis, samheldni og friðar."
þar sem læknar voru reiðubúnir
að meðhöndla hann. Blaiberg er
sá maður, er lengst hefur Iifað eft-
ir að hafa fengiö nýtt hjarta.
Sú hjartaígræðsla fór fram við
Groote Schuur sjúkrahúsið 2. janú-
ar, og það var læknirinn Christian
Barnard prófessor, sem fram-
kvæmdi hina flóknu aðgerð.
Ekki er fyllilega ljóst af frétt-
um frá sjúkrahúsinu, hver ástæðan
er fyrir því, að dr. Blaiberg versnar
nú skyndilega. Til þessa hefur hann
verið í stöðugri framför. Blaiberg
er sá eini af hjartaígræðslusjúkl-
ingunum, sem fengið hefur að fara
heim af sjúkrahúsinu.
m m i í í
Dr. Philip Blaitaerg — tlggur nu
aftur á Groote Schuur sjúkrahús-
inu.
/