Vísir - 11.06.1968, Síða 13
VÍSIR . Þriðjudagur 11. júní 1968.
13
Að ufan —
HH- 8. síðu.
flokkanna úr radíkala flokknum,
sósíalista flokknum og öörurn
smærri brotum vinstri flokka.
Mitterand hefur margt sér til
ágætis, en samt er það eitt og
annað, sem háir honum. Hann
er fremur óáheyrilegur ræðu-
maður, og af stjómmálamanni
að vera, er hann merkilega hör-
undsár. Mitterand hefur einkum
veitt ýmsu í utanríkisstefnu de
Gaulle harða mótspymu. Til
dæmis var hann á móti úrsögn
Frakka úr NATO og hann vildi
heimila Bretum aðild að Efna-
hagsbandalaginu.
VALÉRY GISCARD d’ESTAING
Valéry Giscard d’Estaing, sem
er 42 ára og fjármálaráðherra i
ríkisstjórninni, hefur gert mik-
ið til þess að vera í augum fólks
líl-gir John F. Kennedy. Giscard
er í Sjálfstæða lýðveldisflokkn-
um, sem á 44 menn á þingi.
Flokkurinn hefur venjulega
stutt Gaulle-ista, en oft verið
hálfvolgur, eins og þingmennirn-
ir vildu helzt segja viö atkvæöa-
gréiðslur: „Já ... en ...“
ROCHET
Þótt hann sé eldrauður póli-
tlskt séð, er hinn 63 ára gamli
Waldeck Rochet sennilega lit-
lausasti persónuleikinn, sem
keþpir eftir embætti forsætis-
ráðherra. Hann er leiðtogi
franska kommúnistaflokksins.
Rochet gekk i flokkinn þegar
hann var átján ára og gekk á
flokksskóla í Moskvu og fikraöi
sig smám saman upp valdastig-
ann innan flokksins unz.hann
tðk við af Maurice Thorez ár-
ið 1964.
Viðtal dagsins —
Ig—. 9. síðu.
ingu og söguna um ferð mína
sagði ég engum fyrr en 20 árum
síðar.
— Mér finnst þetta merkileg
saga og að ýmsu leyti vitna um
það að ekki muni allt með felldu
á Kerlingarskarði?
— Um það skal ég ekkert
segja, eins og ég áður hef sagt
hef ég farið þar um við allar
aðstæður og aldrei orðið neins
var, sízt til hindrunar.
— 'C’r veðrátta hér áfellasöm?
— Hér er harðviðrasamt
og fljótt að skella á hríðarveð-
ur. Haustið 1933 þann 16. okt.
skall á skaðabylur að kvöldi. Fé
var upp um hlíðar, en engin
tiltök að ■ vitja þess fyrr en
næsta dag, hafði þá nokkuð
fénnt og sumt hrakið í gil.
Þarna missti ég þrjátíu f.iár,
sem mér fannst þó ærinn skell-
ur, en læpði þó jafnframt það.
að slíkt hefur aldrei hent síðan.
Ég hef aldrei haft fé í fjallinú
eftir að svo er áliðiö hausts að
allra veðra má vænta.
— Hvemig llzt þér búskapar-
horfur nú?
— Fólkið er ekki eins ánægt
og meðan erfiðara var að lifa.
Sigurinn yfir örðugleikunum
veitti ánægju, enda eðlil.eg lifs-
nauðsyn. ,
.Vafálaust hafa’bændur á síð-
ustu 10 árum getað hreiðrað
betur um sig en oft áður, annað
væri barlómur að segja, sem
ekki hefði við nægileg rök að
styðjast.
— Nú hefur þú dregið saman
seglin og yngri menn tekið við?
— Já, og þegar ég var sex-
tugur, tók ég upp á r því að
ráða mig sem gæzlumann að
varnargirðingunni. Fer ég því
margar ferðir um fjöllin , ár
hvert. Þetta er ólýsanleg heilsu-
lind. Tært 'háfjallaloftið og að
koma svo oft á hestbak. Ég er
sem annar maður. Það eru ekki
peningar sem f þessu tilfelli
skipta mig máli.
— — — Já, víst er hann
hress og heiil að sjá þessi aldni
bændahöfðingi, enda langa ævi
staðið vel að verki og sér nú
öliu vel borgið í höndum þeirra
sem við hafa tekið.
Hvort mun nokkur efa, að
hann hafi goldið sín fósturlaun?
Þ. M.
Tækni —
S>»—> 6. síðu.
þeirra fyrst og fremst beinzt að
því að draga úr umferð farar-
tækja á götunni með þvi að
beina henni undir götumar —
og sums staðar hefur verið
revnt aö gera akbrautir fyrir
ofan göturnar ,en gerð þeirra
hefur reynzt svo kostnaöarsöm,
að yfirleitt hefur ekki verið horf-
ið að þeirri lausn nema í ýtrustu
nauðsyn.
Nú hefur franskur verkfræð-
ingur og kennari við franskan
tækniháskóla, Barthalon pró-
fessor komið: fram með gthygli.s
verða uppfiniiinsu, sem þegar„,
er unniS að ,• (;ilrauijum.,.m.eð,..
bæði í Frakklandi og Bandaríkj-
unum. Þarna er um að ræða
einbraut, sem leggja á yfir göt-
ur stórborganna, en neðan í ein
brautina er komið fyrir löngum
sivölum klefa fyrir farþegana.
Það sem nýjast er við þessa
hugmynd — einbrautir eru áður
þekktar og reyndar í öðru formi
er meðai annars það, að pró-
fessorinn hagnýtir þarna þrýsti
loftsútstreymi á svipaðan hátt
og gert er í sambandi við svif
skipin — Þetta þrýstiloftsút-
streymi veldur því, að uppheng
ing farþegakiefans snertir
hvergi sjálfa brautina, heldur er
Ioftlag á ,.iilli, sem kemur i veg
fyrir alla núningsmótstöðu.
Þetta getur aukið hraða slikra
einbrautarlesta, miðað við orku,
að miklum mun og gert rekstur
þeirra ódýrari. En um leið kem-
ur þetta loftlag í veg fyrir allt
slit á flötum, þar sem upphenging
klefans og brautarinnar mundi
annars núast saman, og dregur
það að sjálfsögðu einnig úr
kostnaði og eykur öryggið.
Og svo er það hraðinn —
sjálf aðalspurninginn. Þeir, sem
að tilraunum með þetta nýja
farartæki standa segja að það
verði ekki aðalvandamálið að
ná sem mestum hraða ,heldur
að draga úr honum Þessi far-
þegaklefi geti hæglega náð 400
km hraða á klukkustund, en sá
ofsahraði komi varla til greina í
notkun innan borga. Hins vegar
geti verið gott að grípa til hans.
verði slíkar einbrautir lagðar
á milli borga, sem sé ekki ólík-
legt.
Þess var getið, að þarna væri
um að ræða sömu hugmynd og
gerð svifskipa byggist á. Taka
ber fram, að þótt um sömu
hugmynd sé að ræða er hún
framkvæmd öfugt — þarna er
það innsog loftsins, sem myndar
þrýstinginn,. eins og sjá má af
meðfylgjandi, þverskurðarmynd.
II. DEILD
í kvöld kl. 20.30 leika á Melavellinum
Víkingur — FH
Dömari Gunnar Gunnarsson.
Mötanefnd
Glæsilegt raðhús til leigu
í 3 y2 mánuð. Sanngjörn leiga. Leigið meS húsgögnum
og bílskúr. - Uppl. í síma 52575.
Tilkyrming frá Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins
Með auglýsingu þessari er vakin athygli á áð-
ur útsendum tilkynningum um lokup iðnað-
ardeildar vorrar vegna sumarleyfa frá 8. júlí
—6. ágúst n.k.
Áfengis- og tóbaksverzlun rikisins.
500 krónu mappa
Þéir áskrifendur Vísis, sem hafa safnað „Vísi I vikulokin“ frá
upphafi í þar tii gerða möppu, eiga nú 116 blaðsíðna bók, sam/
er yfir 500 króna virði.
Hvert viðbótareintak af „Vísi f vikulokin“ er 15 króna virði. —
Gáetið þess '■'vi að missa ekki úr tölublað.
Aðeins áskrifendur Vlsis fá „Vísi í vikulokin“. Ekki er hægt
að fá fylgiblaðió á annan hátt. Það er því mikils virði að vera
áskirifandi að Vísi.
eruð það ekki þegar!
Dagblaðið
VÍSIR
w-wx^>N<s^/N>N<is/v>s/s<N<s/s<N/ws>s^/N>s>N>>s/N<s/N«s/>/s«N>N/wN>N>N^/s>N>>v>'N<>N>s/s/s/ww,/s>N/s>»s/s»>^<N<S>‘Si<N>‘»i<Si»S««S>N)»»»<<»i»i»><»WW»ii<N«Sj«WS<S»>>/s<
■■ tuuMTMi