Vísir


Vísir - 13.08.1968, Qupperneq 7

Vísir - 13.08.1968, Qupperneq 7
V1SIR . Þriðjudagur 13. ágúst 1968. 7 morgun útlönd í morgun útlönd í raorgun útlönd í raorgun útlönd Aðalleiðtogi N-Vietnama í París segir Nixon ætla að herða hernaðaraðgerðir Nguyen Thanh Le, taismaður sendinefndar Norður-Vietnam á Parísarráðstefnunni, sakaði f gær Richard Nixon og flokk republikana um að áforma að auka hemaðar- aðgerðir í Vietnam. í yfirlýsingu, sem hann birti, er fjallað um afstöðu republikana til styrjaldarinnar, og vitnað í tMkynn- ingu, sem birt var í blaðinu Miami Herald; en hún var síöan endurtek- in f hinu kunna Lundúnablaði Ob- server. Le heldur því fram, að Nix- on hafi látið skína í það, að beitt kynni að verða kjarnorkuvopnum til þess að koma Hanoistjórninni á kné. Nixon á að hafa lýst þessu yfir í viðurvist sendinefndar frá Suöur- ríkjunum í Bandaríkjunum. Le sagði, að ekki bæri að skoöa gagnrýni sfna sem persónulega árás á Nixon, og kvaðst hann ekki vilja skipta sér af innanríkismálum Bandaríkjanna. Hann kvaö augljóst, að Nixon hygðist styðja „lepp- stjórnina í Saigon“. Nixon ræddi nýlega Vietnamstyrj öldina við Johnson forseta, svo sem áður hefur verið getið, og kvaðst honum sammála um, að ekki bæri að hætta sprengjuárásum á N.V., meðan ekkert kæmi í móti, frá stjóminni í Hanoi. Le Doc Tho, einn af helztu leið- togum Kommúnistaflokks N.V., en hann á sæti í æöstu stjórn flokks- ins, er nú á leið aftur til Partísrf'. þar sem hann er ráðunautur sendi- nefndarinnar. Hann fór frá París til Hanoi fyrir nokkrum vikum, til viðræðna við stjórnina. Blaiberg útskrifast Christian Barnard, suður- afríski skurölæknirinn frægi, er staddur í Sidney, Ástralíu. Hann sagöi þar í morgun, að Phiiip Blaiberg, sem lengst hefur lif- að eftir að hafa fengið nýtt hjarta, yröi útskrifaður úr sjúkrahúsinu í Höfðaborg á morgun. Hann kvað hið nýja hjarta nú hafa aðlagazt að fullu öðrum Iíffærum. — Barn- ard ávarpaði 1500 lækna í Sidney, ástraiska og annarra landa. Hafna fyrirmælum Puls pdfu Á Lambeth-ráöstefnunni í Lond- on hafa yfir 400 biskupar ensku kirkjunnar hafnaö fyrirmælum Páls páfa varðandi fæðingatakmarkanir, og var samþykkt um þetta einróma ályktun með tilvísun til ályktunar, sem gerð var á ráðstefnu þeirra fyr- ir 10 árum. I þeirri ályktun var komizt svo að orði, aö í þessum efnum yröi guð og samvizka foreldranna að ráða. Fyrirmæli páfa hafa vakið mikla andúö og mótspyrnu, einnig á með- al rómversk-kaþólskra manna. — Þeirrar skoðunar gætir mjög, að allt bann í þessum efnum sé tilgangs- laust, og að banniö muni verða samvizkubyrði sanntrúuðu róm- versk-kaþólsku fólki. Nixon Tvö flugslys Kona Nixons, Pat, og dætumar, Julie og Patricia (t. v.) á flokksþinginu, fagnandi yfir sigri heinv ilisföðurins. Kynþáffaóeirðit í Watts- hverfi i Los Angeles 2 sýrlenzkar flugvél- ar lentu í gær í ísrael yfir 80 manns farast Brezk flugvél af Viscountgerð frá British Eagle flugfélaginu fórst ná- lægt Munchen 9. þ.m. og með henni 48 manns. 1 fréttum frá Los Angeles í gær var sagt frá alvarlegum kynþátta- óeirðum í Watts-blökkumannahverf inu i borginni. Einn maöur beiö bana og fjórir særðust, þeirra á meöal tveir Iögreglumenn. í þessum borgarhluta brutust út blóðugar óeirðir 1965 og biöu 35 menn þá bana. Óeirðimar urðu, er fimm daga blökkumannahátíð var að ljúka. 1 framhaldsfrétt var sagt, að 3 blöikkumenn hefðu veriö. drepnir og að 50 menn heföu særzt, þeirra á meðal 6 lögreglumenn. 500 manna lögr^glulið var sent í skyndi inn í hverfið og öll lögregla borgarinnar hervædd. — Stór borgarhluti, þar sem blökkumenn eru fjölmennir, var einangraður. — Tugir manna hafa verið handteknir. Lögreglan notar þyrlur og Ijós- kastara við eftirlit. í frétt frá Tel Aviv í gær segir, að tvær sýrlenzkar flugvélar hafi lent í gærmorgun í ísrael. Þær voru af gerðinni MIG-17 (sovézkar). Hernaðarlegur talsmaður sagði, að þær hefðu lent á flugvelli í norð- urhluta ísraels. Hann kvaö hinum sýrlenzku flugmönnum, en þeir voru tveir, hafa tekizt aö lenda heilu og höldnu. Talsmaðurinn lét ekki í té nánari upplýsingar, en áð- Ulbrícht tekið af ískaldrí kurteisi í Tékkóslóvakíu — Undirbúin koma Ceauscescu á fimmtudag ■ Prag: Birt hefur verið sameig- inleg yfirlýsing um viðræður þeirra Uibrichts og Dubceks í gær. Þær stóðu aðeins í gær og hélt UI- brlcht heimleiðis í dag. Utvarpiö í Prag kvað viöræöurn- ar hafa verið vinsamlegar en vest- rænir fréttaritarar í Prag segja, að Ulbricht hafi verið tekið með ís- kaldri kurteisi. í hinni sameiginlegu tilkynningu segir, að ræðzt hafi verið við ein- arðlega í anda vinsemdar. Hcifuðviðfangsefni voru; 1. Aukning viðskipta milli land- anna. 2. Afstaöa beggja landanna til Vestur-Þýzkalands. Árangurinn af viöræöunni um V- Þýzkaland mun, að núverandi landa mæri haldist og þar með tilvera tveggja þýzkra ríkja, en að öðru leyti geti Tékkóslóvakía sæmilega frjálslega átt skipti við Vestur- Þýzkaland. Ceauscescu, rúmenski kommún- istaleiðtoginn, kemur til Prag á fimmtudag, og mun honum veröa fagnað ekki síður en Tító forseta var á dögunum. ur haföi verið tilkynnt af ísraelskri hálfu, að ef Alsírstjórn héldi áfram að neita að afhenda ísraelsku flug- vélina, sem rænt var. og skila á- höfninni ög þeim farþegum, sem enn eru i haldi í Alsír, yrði gripiö til róttækra ráöstafana. Tel Aviv í morgun: — ísraels- stjórn hefur ekki enn birt greinar- gerð um sýrlenzku flugvélamar, sem Ient vgr í norðurhluta fsraels f gærmorgun. Fréttir frá Sýrlandi herma, að flugmennirnir kunni að hafa villzt af leið í þoku og nauðlent vegna eldsneytisskorts, en í Tel Aviv hafa komið fram tilgátur um, að flug- mennirnir hafi gerzt liðhlaupar. Haft er eftir sjónarvottum, að hreyflar flugvélarinnar virtust hafa stöðvazt sem snöggvast, rétt áður en slysið varð. f annarri frétt var sagt, aö báðir vængir flugvélarinn- ar hafi dottiö af, áður en búkurinn nam við jörðu, en í honum varð sprenging og stóð hann þegar i björtu báli. Tilgátur hafa komið fram um að eldingu hafi lostiö nið- ur í flugvélina. I CHARLESTON i Virginiu fórst flugvél í innanlands flugi. 32 menn biðu bana. Flugvél- in ætlaði að lenda þar á flugvell- inum, en hann stendur hátt. Þoka var og mistókst lendingin. Hjálparstarfsemi í Biafra efst á dagskrá ■ Enahoro, aðaisamningamaður Lagosstjórnar á friöarráðstefn- unni i Addis Abeba, er floginn til Lagos tr viðræðna við stjórn sína. í gær var lengsti fundurinn á ráö j stefnunni í Addis Abeba til þessa. Sagt er, að Haile Selassie keis- j ari, forseti ráðstefnunnar hafi hvatt báða styrjaldaraöila til þess að ná samkomulagi um hjálparstarf- i semina. í Addis Abeba Áður hafði Alþjóða Rauöi kross- inn tilkynnt, aö Lagos-stjóm hefði neitað að verða við tilmælum um að fyrirskipa, að hætt yrði aö skjóta á flugvélar í matvælaflutningum. Kunnugt er, aö tvær fluevélar i slíkum flutningum á vegum annarra hjálparstofnana, urðu að snúa við vegna skothríðar úr loftvarnabyss- um. *•

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.