Vísir - 27.08.1968, Side 16
Sfrauk tvisvar
AF 13 FRYSTIHÚSUM Á VEST-
FJÖRÐUM HAFA STÖÐVAZT
Borgarstjóri á
Edinborgarhótíð
úr gæzlu
Bæði skiptin af
sjúkrahúsi
Eftir eina misheppnaða tilraun
til þess að svipta sig lífi fyrir fram-
an fulltrúa sakadómara hefur mað-
urinn, sem lenti í höndum lögregl-
unnar végna meintra árása á konu
sina, tvisvar rert tilraunir til þess
að strjúka úr gæzlu.
Fyrst eftir sjálfsmorðstilraunina
var maðurinn fluttur á Landsspít-
alann meðan sárin á úlnliðnum
væru að gróa, en hann hafði skorið
sig meö rakvélarblaði. Eftir stutta
iegu strauk'hann þaðan, en náðist
þó strax aftur.
Eftir það var hann fluttur á
Kleppsspítalann, þar sem hann
skyldi ganga undir geörannsókn,
sém þó hefur verið framkvæmd á
honum áður, án þess að læknar hafi
gétað fundið annað en maðurinn
væri heill á geðsmunum.
Þaðan strauk hann líka, en náðist
aftur fljótlega og var fluttur aftur
á Ispítalann, þar sem hann er énn.
Á Vestfjörðum hafa 6 af
þrettán starfandi frystihiisum
stöðvað rekstur eða eru í
þann mund að hætta rekstri.
Auk þess liggja þar fjölmarg-
ir bátar vegna fjárhagsörðug-
leika. Segja útvegsmenn að
ríkjandi ástand leiði til al-
gerrar stöðvunar útgerðar og
fiskvinnslu innan fárra vikna.
Fundur, sem Félag fisk-
vinnslustöðva á Vestfjörðum
hélt á þriðjudaginn hefur sent
frá sér álit, þar sem segir að
sá starfsgfundvöllur, sem fyr-
irtækjunum var búinn í byrj-
un ársins hafi reynzt alger-
Iega ófullnægjandi og hafi nú
þegar leitt til greiðsluþrota
hjá flestum.
Segir 1 áliti fundarins að fyr-
irtækin geti nú þegar ekki stað-
ið í skilum meö greiðslur á hrá-
efni og vinnulaunum til verka-
fólks og sjómanna. Um lengri
tíma hafi ekki verið unnt að
greiða vexti né afborganir af
áhvílandi lánum.
Fulltrúar Útvegsmannafélags
Vestfjarða hafa gengið á fund
forsætisráðherra og afhent hon-
um samþykkt sína og skorar
fundurinn á ríkisvaldiö að
tryggja nú þegar rekstrargrund-
völl sjávarútvegsins í heild.
Eins og kunnugt er eiga full-
trúar hraöfrystihúsanna nú við-
ræður við ríkisstjómina inn
starfsgrundvöll húsanna og er
frétta að vænta af þeim viðræð-
um eftir heigina.
Borgarstjórinn í Reykjavík Geir
Hallgrimsson og kona hans voru
viðstödd hátíðahöldin í Edinborg
i boði borgarstjórnarinnar þar.
Hátíðahöldin, sem eru hin 22. í röð-
inni hófust þann 18., ágúst. Auk
borgarstjórans í Reykjavík voru
boðsgestir frá Danmörku viðstadd-
ir hádegisverð í húsnæði borgar-
stjómarinnar í Edinborg.
Þá voru gestir viðstaddir opnun
Edinborgarhátíðarinnar þar sem
m. a. var flutt verk eftir brezka
tónskáldið Benjamin Britten. Þá
var móttökuathöfn fyrir hópinn í
Royal Scottish Academy og fariö
var með hann í ferðalag um Vestur-
Skotland. Einnig var Edinborg
skoðuð og Holyrood-höllin heimsótt
én fyrir framan þennan 700 ára
gamla kastala var sérstök hátíðar-
athöfn hermanna.
Borgarar kærulausir um að
tilkynna eldsvoða
Slökkviliðið fór fýluferð inn í
Álfheima aðfaranótt sunnudagsiná,
vegna þess eins, að maður, sem
vildi tilkynna um eld, var svo loö-
inn í svörum.
AkureyrarSögregla fær
vegiega SögregSustöð
Var hringt í slökkviliðið og því
tilkynnt um að eldur væri laus,
en þegar spurt var: — Hvar er
það? — var svarað: „I Nökkva-
vogi“.
Þá var slökkviiiðið önnum kafiö
viö brunann í Kópavogi, en einn
bill var þó til taks til þess aö sinna
neyðarkalli annars staðar á meðan.
Þessi eini fór af stað, en seinna
kom upp úr kaflnu, að sá, sem
vildi tilkynna eldsvoðann, átti við
brunann í smíðaverkstæðinu í
Kópavogi, en hann sást langt að.
Hins vegar tilkynnti hann um
brunann úr Nökkvavogi og átti við
það, þegar hann var gpuröur. Þá
10. síða.
: Niðurrifið ekki framkvæmt
Lögbann var sett á fram-
i kvæmd þeirrar ákvörðunar
»borgarstjómar að rifa Fjárborg,
’en niðurrifið átti að fara fram
»í gær. Sem kunnugt er, hafa
> Fjáreigendafélagiö og borgar-
| yfirvöld átt í miklu stappi út af
i Fjárborg, sem eru kindakofar
1 sauðfjáreigenda í Blesugróf og
[ um leið út af sauðfjárhaldinu.
Hefur borgarráð hvað eftir
annað sett fjáreigendum skilyrði
um að hætta sauöfjárhald en
i sauöfjáreigendur alltaf varizt.
Kraninn bíður þess að lög-
J banninu verði aflétt.
AAAAAAAAAAAAAAAAAA/V
Herðubreið og Esju lagt
Lögreglan á Akureyri flutti í
gærdag í nýtt húsnæði við Þór-
unnarstræti. Lögreglan hafði áð
ur bækistöð á Smáragötu 1 og
hafði þar aðeins aðstöðu til að
hýsa þrjá menn. í nýju stöð-
inni verða klefar fyrir 18 manns,
ásamt afgreiðsluherbergi, kaffi
stofu og talstöðvarherbergi.
Lögreglumenn á Akureyri
segja að nýja stöðin sé ekkert
sambærileg við þá gömlu og nú
hafi þeij- flutt í lögreglustöð.
Aðeins hefur þó veriö tekin í
notkun jarðhæö og hluti kjallar-
ans en lögreglan fær einnig til
afnota hluta af efri hæð hússins
þar sem bifreiðaeftirlitiö mun
einnig hafa aösetur.
Mikil vandræði sköpuðust oft
í gömlu stööinni vegna húsnæð-
isskorts og þurfti oft og tíðum
að hieypa mönnum út, sem jafn
vel voru ekki í því ástandi sem
heppilegt getur taiizt bæjarfé-
lagi til heilla.
....... ..................... '*
— Öllum undirm'ónnum sagt upp
— Vantar’ verkefni fyrir skipin
Ákveðið hefur veriö aö leggja
strandferðaskipunum Herðubreið og
Esju og er fyrirhugað að reyna að
selja skipin. Herðubreið sem er 20
ára gömul og Esjan 30 ára hafa
ekki þau verkefni sem nauðsynleg
eru strandferöaskipunum. Öll
um undirmönnum á skipunum hef
ur verið sagt upp, að þvi er Guðjón
Teitsson forstjóri Skipaútgeröarinn
ar tjáöi blaðinu í morgun.
Hann sagöi ennfremur, að með
bættu vegakerfi væri nú í síauknum
mæli farið að senda vörurnar land-
leiðis og því minna um flutninga
fyrir skipin. Herðubreið var lagt um
síðustu helgi, en Esjan mun verða
í ferðum til 13. september. Esjan
hefur í sumar aðallega verið í fólks
flutningum og má segja að þeir séu
fáir sem ekki hafa ferðazt með
þessu vinsæia strandferðaskipi.
Verkefnin eru ekki næg og þvi
verðum við aö mæta þvi á þennan
hátt sagði Guöjón. Eins og kunn-
ugt er eru tvö skip i smíöum á Ak-
ureyri fyrir Skipaútgerðina og er
vonandi að þeirra biði ekki sömu
örlög og Herðubreiðar og Esjunn-
ar.
Æskulýðsráði gefin
5000 silungsseiði
★ Fyrir skönimu ákvað Skúli j an Æskuiýðsráðs starfar stang-
Pálsson frá Laxalóni að veita Æsku veiðiklúbbur og eru í honum ungl-
lýðsráði Reykjavíkur að gjöf 5000 ( ingar á aldrinum 12—15 ára. Á
silungsseiöi. Blaðið sneri sér til , vorin er reynt að fá sem bezta leið
Reynis Karlssonar, framkvæmda- j sögn í stangveiði unglingunum til
stjóra Æskulýðsráös og sagði hann j handa og cinnig fengiö veiðileyfi
þetta mjög rausnarlega gjöf. Inn I fyrir lítið verö. »»->- 10. síöa.