Vísir - 04.09.1968, Blaðsíða 7

Vísir - 04.09.1968, Blaðsíða 7
\ VlSIR . Miðvikudagur 4. september 1968. morgun útlönd í morgun útlönd í morgvin útlönd í morgun útlönd Hafín ráðstefna Gningar- samtaka Afríku Líkfegt, að lagt verði til að Moise Tsjombe verði sleppt úr haldi eftir 14 mánaða fangelsisvist ■ Ráðstofna Einingarsamtaka Afriku . kemur saman til fundar í dag eða 'degi siðar en gert hafði verið ráð fyrir. Búist er við aö enn verði skorað á brezku stjómina að beita valdi til þess að koma stjóm Ians Smith í Rhodesíu á kné, — að minnsta kosti sum löndin í samtökunum munu bera fram kröfur í því efni. Líklegt er og að rætt veröi um „örlög Moise Tsjombe", fyrrverandi forsætisráðherra Kongó,' sem enn ér fangi í Alsír. Gert er ráð fyrir, að mikill meiri hluti muni fást fyrir því á ráðstefnunni, að hon- um verði sleppt úr haldi, en hann hefir nú verið þar fangi í 14 mán- uði. Þá mun nefnd samtakanna sem við forustu Haile Selassie keisara, reynir aö koma á friöi í Nigeríu, skýra frá störfum sínum. Sam- kvæmt heimildum frá Alsír er taliö vafasamt að borgarastyrjöldin veröi rædd á ráðstefnunni, þar sem sam- bandsstjórn Nigeríu er mótfallin slíkri umræðu og meirihlutinn mun líta á styrjöldina sem innanríkis- mál Nigeríu. Yfirhershöfðingi sambandshers- ins telur, að sókn sú, sem sam- bandsherinn nú er í, muni koma Biafra á kné um miðbik mánaðar- ins. Rætt mun verða um efnahags- mál og ástand og horfur í Austur- löndum nær. Sovétleiðfogar orðnir áhyggju- fullir út af hernáminu — hver ambassador Sovétrikjanna af oðrvm ræðir við vestræna ráðherra Vestrænir fréttamenn telja hina „rniklu díplómat- iskn starfsentí0 af hálfu Sovétríkjanna semustu daga benda eíndregið til þess, að sovétleiðtogar séu mfog teknir aÖ ókyrrast viðhorfa í öðrum löndum út af hernáminu í Tékkóslóvakíu. Bent er á, að undangengna daga hafi hver sovézki ambassadorinn á fætur öörum rætt við utanríkis- ráðherra vestrænna landa, m. a. f London, Washington, París, Bruss- el og Bonn, og alls staðar kveðið við sama tón: Tilgangurinn á yfir- borðinu sé að fullvissa um, að ekk- Makarios erkibiskup í heimsókn hjá Konstan- tin konungi í Rómaborg ert sé hæft í orðrómi um, að Sovét- ríkin hyggi á innrás f Rúmeníu, en undir niðri komi fram áhyggjurn ar, og ef til vill sé megintiigangur- inn óbein mótmæli gegn afstööunni í vestrænum löndum og að láta í Ijós undrun yfir viöhorfi þar, og þannig segja vestrænir fréttaritarar í Moskvu. að það sé eins og sovét- leiðtogar eigi ákaflega erfitt með að skilja, að nokkuö sé að athuga við það þótt gripið sé til slíkra ráöstafana og geröar voru í Tékkó- slóvakíu innan áhrifasvæðis Sovét- ríkjanna. Það virðist nú vera almennt tál- iö, að miðstjórn Kommúnistaflokks Sovétríkjanna hafi haft þessi mál til meðferðar. Á landsfundi brezku verkalýðs- félaganna í Blackpool hefir verið samþykkt tillaga um-að hafa ekkert samstarf . við verkalýðsfélögin í löndunum sem standa að hernám- inu meðan það stendur. Dr. Ota Sjik, vara-forsætisráð- herra ríkisstjórnar Tékkóslóvakíu, hefir beðizt lausnar. Hann var í Júgóslavíu, er innrásin var gerö og hefir verið þar síðan. Dr. Sjik var sérfræðingur í efna- hagsmálum. Talið er víst, að sovét- leiðtogar hafi viljað hann úr stjórn- inni vegna þess að hann standi að því, að Tékkóslóvakía veröi efna- hagslega óháð Sovétríkjunum. Hernámsliöið hefir farið inn í tvo bæi nálægt vestur-þýzku landa- mærunum vegna óeirðai sem þar hafa oröið og taldar stafa af því, að ræður fjandsamlegar Sovétríkj- i unum hafi verið fluttar í Vestur- Þýzkalandi. Yfirleitt er kyrrð ríkjandi í Tékkó slóvakíu, að sögn hernámsliðsins, en áróöri linnir þó ekki, og til vopn- aðra árása á liöið komiö á stöku stað. Moise Tsjombe. Lagt hald á eiturlyf Stokkhólmur: Lögreglan í Stokk- hólmi hefur lagt hald á' 11 kg. af eiturlyfinu hasjij í skógi fyrir ut- an borgina. Verðmæti þess er um 100.000 kr. á svörtum markaði. — Birgðirnar fundust 24. ágúst, en lögreglan vissi ekki hverjir höfðu faliö það, en í gær handtók lögreglan karlmann og konu, sem komu á felustaðinn, bæði útlend. Lagði lögreglan gildru fvrir eigendurna eða þá, sem falið höfðu og hafði orðið að bíða árangurs í rúma viku. Isveztia ber sakir á Jiri Hajek Moskvubiaðið Isveztija sakaði í gær Jiri Hajek utanríkisráðherra Tékkó sióvakíu um samstarf við nazista í siðustu heimsstyrjöld auk þess sem hann hafði haft samstarf við hin „skuggalegu öfl gaenhvltingar- innar“. Hajek var í Júgóslavíu, þegar innrásin var gerð. Talið er, að sovétstjómin muni krefjast þess aö hann verði Iátinn víkja úr stjórn- inni. Gengislækkunarhætta í Vestur-Evrópu Yfirbankastjóri Vestur-Þýzkalands ræddi hana / gær Þessi mynd af Konstantín konungi og Makariosi erkibiskupi var tekin um síðustu helgi, er hann heimsótti konung í Rómaborg. Makarios var að koma úr ferðalagi um Norðurlönd og var þar seinast í Danmörku. Hann neitaði að segja neitt um viðræður sínar við konung — kvaðst aðeins vona, að konungsfjölskyldan gæti brátt horfið heim aftur til Aþenu. — Þjóðaratkvæði fer fram í haust á Griicklandi um nýja stjórnarskrá — en þjóðarat- '.^teðisdagurinn héfir ekki verið ákveðinn. Frankfurt: Karl Blessing yfir- bankastjóri aöalbanka Vestur- Þýzkalands varaði í gær við afleiö- ingum þess, ef landið yrði neytt til 'gengisbreytinga vegna þess að önn- ur mikilvæg lönd í Vestur-Evrópu gerðu ekki annað en bíða róleg eftir því hver yrði gangur málanna meðan verðbólguhættan síaðist inn æ meira. Bankastjórinn talaði í þessum dúr á fundi með bankamönnum og fleir um og er þetta fyrsta umsögnin af opinberi hálfu um mögulega geng- lækkun marksins, en getgátur um að til hennar kynni að koma hafa skotið upp kollinum aö undanförnu. KHÖFN — Hinar kirkjulegu hjálp- arstofnanir á Norðurlöndum hafa sent enn eina flugvél til flutninga frá Fernando Po til Biafra. LAGOS: — Sambandsstjórnin til- kynnti í gær, að hún hefði fallizt á, að flutningur á nauðsynjum frá Fernando Po til flugbrautar í Bi- afra mætti eiga sér stað til fimmtu- dagsmorguns. Samtímis leggur sam- bandsst' rnin áherzlu á, að sam komulag verði gert um landleiðir eða „göng“, sem leyft yrði að flytja nauðsynjar eftir til flóttafólks f Biafra. Varað er við afleiðingunum ef loftflutningunum veröur haldið áfram. NEW YORK: — Blaðið New York Times sakar í gær í ritstjórnar- grein Bandaríkjastjórn um að að- hafast ekkert vegna innrásarinnar í Tékkóslóvakíu og hafi þetta að gerðaleysi átt sinn þátt í, að sovét- stjórnin taldi sér óhætt að fara sinu fram til þess að koma Tékkó- slóvakíu á kné. BRUSSEL: — Sovézki ambassador- inn í Belgíu, Vasilij Grubjakov, sneri sér í gær til belgíska utan- ríkisráðherrans Pierre Harmels yfir hinni æsingakenndu athafnasemi. sem hann svo kallaði, í Norður-At- lantshafsbandalaginu. Kvaðst hann ekki geta skilið hvers vegna næst- um daglega væru haldnir fundir í fastaráði bandalagsins. Harmel svaraði því til. aö rætt væri um ástand oe horfur eftir að herir Var- sjárbandalags.landa hernámu Tékkó slóvakfu, en lagði áherzlu á, að engir herflutningar hefðu átt sér staö í bandalagslöndunum. GENF: — Willy Brandt utanríkis- ráðherra sagði í gær á afvopnunar- ráðstefnunni í Genf, að teflt hefði verið f hættu hinni friðsamlegu þróun, sem átt hefði sér stað í álf- unni frá lokum síðari heimsstyri- aldar og væri þetta mikið áfall fyr- ir vestur-þýzka stefnu, en vestur- þýzka stjórnin væri áfram fús til þess að gera það sem í hennar valdi stæöi, til þess að draga úr benslu í sambúö þjóðanna í álf- unni. MOSKVA: — Málgagn kommún- istaflokks Sovétríkjanna hefur ekki gert að umtalsefni hina nýju for- sætisnefnd í Tékkóslóvakfu. og er það skilið svo. að sovétstiómin kunni að sætta sig við, að frjáls- ræðisstefnumenn eru þar í meiri hluta ,að því tilskildu. að fýlgt verði stefnu. sem Sovétríkin geta fallizt á. • Utanríkisráðherrar Efnahags- bandalags Evrópu (EBE) komu saman á fund síðar f þessum mán- uöi og ræöir ura umsóknir Bret- lands, írlands, Noregs og Danmerk- ur um aðild aö bandalaginu. • Berkeley: Bannaðar hata verrð kröfugöngur og útifundir og segja má, að útgö.ngubann sé í gildi í Berkeley, vegna óeiröanna, sem þar hafa verið að undanfömu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.