Vísir


Vísir - 04.09.1968, Qupperneq 8

Vísir - 04.09.1968, Qupperneq 8
J 8 V í SIR . Miðvikudagur 4. september 1968. VISIR Otgefandi: Reykjaprent hi. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjóifsson Ritstjóri: Jónas Kristjðnsson Aðstoðarritstjóri: Axel Tborsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pðtursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóbannesson Augiysingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Stmar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Simi 11660 Ritstjóm: t íugavegj 178. Sfmi 11660 (5 linur) Áskriftargjald kr. 115.00 á mðnuði innanlands 1 lausasölj kr. 7.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda hS.___________________________ „Eins og laxar i neti" Menn skilja betur viöbrögð íslenzkra kommúnista við hernámi Tékkóslóvakíu og sjá betur gegnum blekk- ingar þeirra, ef menn skyggnast aftur í tímann og draga lærdóm af reynslunni. Hvemig hafa kommún- istar hér áður brugðizt við frelsisskerðingu og glæpa- verkum, sem unnin hafa verið í nafni kommúnismans? Árin 1937 og 1938 áttu sér stað hinar illræmdu hreinsanir í Moskvu, þegar hver af öðrum af fyrri forustumönnum kommúnista var handtekinn og sak- aður um svik og landráð. Mikil réttarhöld voru sett á svið og síðan voru allir sakbomingamir dæmdir og drepnir. Yfir allar þessar aðfarir lögðu íslenzkir komm únistar blessun sína. Þeir töldu þá, að það væri ein- föld sál, sem gerði sér það ónæði að ræða við auð- valdssinna hið kæra umræðuefni þeirra, aftökurnar í Rússlandi. Þeir gáfu út sögu Kommúnistaflokks Ráðstjórnar- ríkjanna. Þar segir svo um þessar aftökur: „Ráðstjórn- arþjóðirnar lögðu samþykkt sína á það, að þessum óaldarflokki væri útrýmt, og tóku fyrir næsta mál á dagskrá.“ Ein höfuðkempa kommúnista hér skrifaði bókina „Bóndinn í Kreml“. Þar vegsamar hann að- farir lærimeistaranna á þennan hátt: „Hérna komu fyrir réttinn heimsfrægir borgarar Ráðstjórnarríkj- anna, þrættu fyrir öll afbrot, voru látnir horfa framan í staðreyndir athafna sinna, urðu tvísaga, sprikluðu eins og laxar í neti, flæktust í möskvum slyngrar málfærslu og nákvæmra rannsókna og viðurkenndu loks með eigin munni þess háttar gjörðir, að þeir lög- um samkvæmt gátu engu minna fyrir týnt en lífinu sjálfu.“ Svo var það um tuttugu árum síðar, að Krústjoff lyfti hulunni á þingi flokksins og sagði m. a.: „Sektar- játningar margra þeirra, sem teknir höfðu verið fastir, sakaðir um fjandsamlegt athæfi, voru fengnar með grimmilegum og villimannlegum pyndingum.“ Þá fyrst fannst íslenzkum kommúnistum, að eitthvað yrðu þeir að segja, þrátt fyrir fyrri dýrkun. Þá stundi Þjóðviljinn þessu upp í forustugrein: „Ráðamenn í Sovétríkjunum og nokkrum alþýðu- lýðveldanna hafa lýst því yfir, að þar í löndum hafi um skeið viðgengist mjög alvarlegt ástand í réttarfars- málum. Saklausir menn hafi verið teknir höndum, þeir hafi verið ákærðir gegn betri vitund með upp- iognum gögnum, sumir þeirra hafi á einhvem óskilj- anlegan hátt verið knúðir til að játa á sig afbrot, sem þeir höfðu aldrei framið, aðrir settir í fangelsi. Ráða- menn í þessum löndum játa þannig, að þar hafi verið framin hin herfilegustu glæpaverk, sem hljótr að vekja viðbjóð og :eiði heiðarlegs fólks um allan heim.“ En kommúnistar hér hafa síður en svo séð að sér. Og fólkið, sem hefur af misskilningi látið blekkjast til fylgdar við þá, þarf nú að fara að sjá að sér. Það má ekki lengur „sprikla eins og laxar í neti“ kommún- ismans. Ijegar flokksþing demokrata var haldiS í Chicago voru blikur á lofti. Þeim brá fyrir á lofti æ tíöar, eins og þegar ,Jægðimar koma hver af ann- arri", er hausta tekur á norð- urslóöum. Flokksþing demokrata í Chicago var háö viö hin erf- iöustu skilyröi, andrúmsloftiö var óvissunnar og kvíðans — um framtíð marg-klofins flokks og jafnvel þjóöarinnar. Og enn syrti að, vegna innrásar- innar í Tékkóslóvakfu. Um persónulega hæfileika Hump- hreys efast enginn, en trúin á sigur hans er ekki fyrir hendi, vegna skuggans aðallega af Vietnamstefnu Johnsons, en þaö var Vietnamstyrjöldin (klofningurinn um hana), kyn- þáttaóeirðimar og ef til vill Humphrey. biði ósigur, svo að þeir gæti endumýjað hann í anda Kennedy-anna, en áhangendur Wallace væru sannfærðir um, að þeir hefðu gert það, sem rétt var, er þeir sviku flokkinn til þess að styöja eina manninn, sem gæti „haldiö uppi lögum og reglu“.“ Og New York Times vék aö „McCarthy-hem- um“, er það svo kallaði, sem hefði dreift sér til þess að sækja fram sem vfðast í landinu. Og blaðið vék að lögreglunni í Chicago og Daly lögreglustjóra, sem ásamt lögreglu sinni heföi komið í veg fyrir jafnvel þaö, að hrópað væri hressilegt húrra í lok flokksþingsins, þar sem Humphrey svo oft áður hafði átt sinn mikilvæga þátt i að tryggja flokki sínum sigur, en um Johnson sagði blaðið, að ALLT Á BRATTANN FYRIR HUMPHREY 0G MUSKIE einnig það, að forustu vantaöi, að bragur leiða og óvissu var á þessu flokksþingi, sem hélt fundi sína f Hitton-gistihúsi, er var sem virki umkringt lög- reglusveitum, sérþjálfuðum f að bæla niður óeirðir, og þjóðvarn- arliðsmönnum. í mörgum erlendum blöðum víkja þeir menn að þvf, sem um stjómmál og þá heimsviðburði skrifa, sem áhrif hafa á gang heimsmálanna, mjög títt að þvi. að á þeim tfma er Humphrey var öldungadeildarþingmaöur hafi hann fengið á sig orð fyrir gáfur og góða framkomu — og umfram allt fyrir frjálslyndi. En nú hafi það orðið hans hlut- skipti að bíða álitshnekjri fyrir, að vera „skuggi Johnsons for- seta“. Nú er það raunar vitað, að varaforsetastöðu sinnar vegna var Humphrey ekki stætt á öðru en þvf, að standa með Johnson forseta. Og hann gat ekki bar- izt fyrir sfnum eigin skoðunum, sem vofu frjálslyndari en John- sons, nema sníða þær eftir hans, þegar hann fór að gera grein fyrir þeim fyrir flokks- þingið. Þótt hann gæti ekki gengiö í berhögg við skoðanir forset- ans, varð hann að gera þjóð- inni grein fyrir f hverju skoð- anir hans voru fólgnar án þess að styggja forsetann, en eins og komið er, getur það ef til vill verið undir stuðningi John- sons við Humphrey komið hvort hann getur sigrað Nixon. En það leikur nú orðið að margra áliti mikill vafi á því, McCarthy. að Humphrey sigri Nixon, þótt hann sé þrautþjálfaöur f að bíða ósigur og áreiðanlega ekki sér- lega vinsæll nema síöur sé. Blaðið New York Times minnist á þetta allt fyrir nokkru eitthvað á þá leið, að ..stuðningsmenn Kennedys ósk- uðu þess nána-t að flokkurinn það virtist lítið eftir af sam- kundu sém átti að vera meö glæsi- og sigurbrag, þegar sjálfur forsetinn „faldi sig“ á búgarði sínum f Texas meðan hún var að störfum. Já, það er ekki efnilegt að tama, og New York Times segir líka, að „Iftið virðist eftir“ til að byggja á sigurvonimar. Meö öðrum oröum: Deilan um Vfetnam, blóðugir bardagar hringinn f kringum Hilton-vfgi, klofningurinn milli forsprakk- anna, afstaöa þeirra, sem jafnvel vildu stofna „fjórða flokkinn" — þetta allt hlaut óhjákvæmilega að hafa áhrif á ráöstefnuna. Ljós punktur var það þó, að val Humphreys á varaforseta- efni vakti ekki nýjar deilur, eins og val Nixons á Agnew á flokksþingi republikana. Það hefði sett glæsibrag og vonarbjarma á alit í augum mikils fjölda manna í Bandaríkj- unum, ef Humphrey hefði getað fengiö mann af eða venzlaðan Kennedyættinni. til þess aö ganga út f baráttuna með sér,- Það átti ekki að verða. Robert Kennedy var myrtur. Shriver, mágur hans, var ekki fáanlegur til að gefa kost á sér, né heldur Edward Kennedy. Hvort Humphrey verður sá styrkur aö Muskie sem vara- forsetaefni, að dugi skal ósagt, > en um hitt efast enginn, að _ Muskie mun geta sér gott orð, og treysta fylgi Humphreys. En f sókninni allt til kjör-’ dags í nóvember verður allt á' brattann fyrir þá Humphrey og Muskie. Nýtt krabbameinsfélag Krabbameinsfélag Suður- Þingeyjarsýslu var stofnað að Breiðumýri þ. 28. ágúst síöastl. Á stofnfundi maéttu um 100 manns. Bjami Bjarnason læknir, formaður Krabbameinsfélags ís- lands, flutti erindi á fundinum og sýndar voru kvikmyndir. Fundarstjóri var Sigurður Guð- mundsson prófastur að Grenj- aðarstað. Stjóm hins nýja félags skipa: frú Kolbrún Bjamadóttir, Yzta- felli, formaður, frú Sigurbjörg Magnúsdóttir, Fosshóli, frú Þóra Hallgrimsdóttir Húsavfk og hér- aðslæknamir Þóroddur Jónas- son, Breiðumýri og Gísli G. Auðunsson, Húsavík. Á vegum hins nýstofnaða fé- lags voru haldnir fræðslufundir á Húsavík. Grenivík og að Mý- vatni og Köldukinn, sem Jón Oddgeir . ónsson erindreki sá um.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.