Vísir - 10.09.1968, Page 1

Vísir - 10.09.1968, Page 1
 VISIR 58. árg. - Þriðjudagur 10. september 1968. - 202. tbl. Tortryggilegur maður hand- tekinn við Hljómskálagarðinn Sýndi gangandi konu áreitni Kona nokkur kaerði fyrir nokkrum dögum til lögreglunnar mann, sem hafði ráðizt að henni, ’þar sem hún var ein á gangi seint að kvöldi hjá Hljómskála- garðinum. Henni tókst að sleppa úr klóm mannsins, áöur en hann gæti unnið henni nokkurt mein. í nótt handtók lögreglan mann, sem í öllu útliti svaraði mjög til lýsingar þeirrar, sem konan hafði gefið á árásarmann- inum. Kom lögregian að mann- inum, þar sem hann var að ó- náða konu á gangi hjá Hljóm- skálagarðinum. Lögreglumenn, sem voru á eftirlitsferö eftir Hringbraut seint í gærkvöldi, veittu eftir- tekt konu, sem var ein á ferli á gangi vestan við Hljómskála- garðinn. Óku þeir áfram leiðar sinnar, en sneru brátt við og hugðu að ferðum konunnar og sáu þeir þá, hvar í för með henni hafði slcgizt maður, sem hvergi hafði bólað á áður. Gáfu lögreglumennirnir sig á tal við þau og fundu þá, að konunni var ekki um manninn gefiö, né fylgd hans, enda hafði honum skotið upp einhvers stað ar úr myrkrinu. Hafði henni orð ið bilt við og enn órólegri varð 10. sfða Islenzk föt á kaupstefnu Prjónastofan Peysan hefur þennan- bás á sýningunni „íslenzkur fatnaður 1968“. ■ Kaupstefnan og sýningin „Islenzkur fatnaður 1968“ verður opnuð í dag kl. 17 í and- dyri Laugardalshallar. Standa að sýningunni 22 íslenzkir fatafram leiðendur. Er sýningin og kaup- stefnan aðallega ætluð sem kynn ing á vörum ýmissa fyrirtækja og gefst kaupmönnum og kaup- félagsstjórum kostur á að sjá á einum stað þær vörur, sem þeir hefðu í huga að kaupa, ekki sizt L UNNINGIN FARIN 0G OLIA LEKUR ÚR LFIÐSLUM — Búizt er við að Surprise liðist sundur i hvassviðri næstu daga BB Togarinn Surprise er nú tekinn að liðast sundur á Landeyjasandi. Vísir hafði tal af Ágústi Jónssyni bónda í Siglu- vík í morgun. Sagði hann að lunning skips- ins, stjómborðsmegin, væri næstum farin. — Skipið væri orðið hálf- fullt af sjó. Og í gær var olía farin að flæða úr því. Hafði leiðsla í dekki rofnað um leið og lunn- ingin fór og seitlaði olí- an út í sjó. Þessi leki var fljótlega stöðvaður með því að troða upp í leiðsl- una. Ágúst taldi, að aðstæðurnar til þess að bjarga skipinu hefðu ekkert versnað að öðru leyti en því að það hefur laskazt tals- vert.. — f>að liggur svona og hallar á sjó, sagði Ágúst, eins og það geröi og ofan við það hlaðast upp sandhrannir í fjörunni. — Hins vegar flýtur togarinn enn- þá ofan á sandinum. Ágúst sagöi, að engu hefði verið bjargað úr skipinu, síðan skipsmennirnir fóru með dýr- mætustu tækin, utan hvað boð hefðu komið um að ná í björg- unarbátana ?og yrði þaö gert á fjöru í dag. — Veðurútlit er nú ískyggilegt á sandinum, spáir hvassviðri og má búast við að skipið liðist þá sundur. Sjópróf út af strandinu stóöu yfir í Hafnarfirði I allan gærdag og varð ekki lokið. Óvíst er, hvort þeim lýkur f dag. með jólasölu í huga. Er sýning- in eingöngu opin kaupmönnum fram að helgi en á laugardag verður hún opnuð almenningi kl. 14. Verða tízkusýningar á ís- lenzkum fatnaði um helgina. Blaðið leit inn í Laugardalshöll- ina í morgun og var þá margt eftir ógert í mörgum sýningarbásanna. Verður auösæilega mikið að gera fyrir þær uppstillingardömur, sem vinna við sýninguna í dag, en þær hafa unnið fram á rauða nótt und- anfarið. Fátt fólk var þarna á ferli, en einn islenzkur fataframleiðandi var þó að huga að bás sínum og tókum við hann taii. Ingvi Guðmundsson er meðeig- ; 10. síða. WWAA/WWWWWVW' Menningarvitar og aðrir vitar — Svo nefnist fyrsta greinin í greinaflokki, sem Jónas Kristjánsson, ritstjóri Vísis, skrifar í blaðið um sérstæða stétt manna á íslandi. Grein- ar þessar munu birtast í blaðinu næstu daga og er fyrsta greinin á blað- síðu 8 í dag. ^AAAAAAAAAAAAAAAAAA^ Lokið viðgerð á simabiluninni: Húseigandinn hafði götuleyfí ★ Lokið er viðgerð á sl’tnu sínia strengjunum, svo allir höfðu fengið síma sína í Iag, þegar við- skipti hófust á nýjan leik í gær- morgun að loknu helgarfrii. Unnu viðgerðarmenn Lands- símans á vöktum frá því á fimmtu dag og fram á sunnudag við að tengja saman línurnar til bráða- birgða, en siðar verður svo gengið frá stokknum til fullnustu. Komið hefur í ljós, að húseigand inn að Hverfisgötu 12, sem sjálfur annaöist viðgerð á holræsalögn hússins —en af henni orsakaðist símabilunin — hafði fengiö götu- leyfi fyrir framkvæmdinni. Var þar um að ræða framlengingu á eldra götuleyfi, því að ekki vannst tími til þess að útvega nýtt (slíkt tekur venjulega 2—3 daga) vegna þarfar á skjótri viðgerð. Hafði skólpleiðsla hússins stíflazt með þeim afleiðingum að skólpið flæddi um kjallara hússins. Húseigandinn kom að máli viö blaðið og skýrði svo frá. að í fyrstu hefði verið unnið að greftri fyrir skólpleiðslunni með handverkfær- um, svo að síður væri hætta á skemmdum á lögnum sem fyrir 10 síða „Það er rödd fólksins sjálfs sem brýzt íram" — segir Hannibal Valdimarsson ■ Það bar til tíðinda á fundi kjördæmisráðs Alþýðubanda lagsins í Vestfjarðakjördæmi um helgina, að meirihluti fulltrúa- ráðs samþykkti ályktun þess efn is, að lýðræðissinnar innan flokksins segðu sig úr flokknum og segðu af sér öllum störfum. Þetta var samþykkt vegna þeirr- ar skoðunar fulltrúanna, að bað sjónarmið, að Alþýðubandalagið væri stór sameiningarflokkur vinstri sinnaðra manna í land- inu, hefði orðið að víkja fyrir flokkslegum sjónarmiðum Sósí- alista í Reykjavik sem höfðu náð undirtökum í flokknum. Vísir hafði samband við Hanni bal Valdimarsson, foym. Alþýðu- bandalagsins, í morgun, en það eru stuðningsmenn hans, sem stóðu að ályktuninni. Hannibal sagði: „Um það hef ég ekki ýkja mikið að segja þessa stundina, en í álykt- um meirihluta kjördæmisráðs Al- 10. sfða Nýja álagningin í dag Búizt er við endanlegum niður- stöðum í Verðlagsnefnd í dag um hæð álagningar eftir bfáðabirgða- Iög ríkisstjórnarinnar. Samkomulag hafði ekki tekizt í nefndinni, er síð ast fréttist. Ágreiningur mun hafa verið meðal nefndarmanna um á- lagninguna á íslenzkan iðnaðarvarn ing, sem þarf að flytja inn hráefni til framleiðslunnar. Svo virðist sem hækkunin verði um 8—15 af hundraði á flestum vörum og því meiri þvi minni hluti sem tollar eru af heildar- verðinu. Þannig ætti matvara að hækka tiltölulega mikið, eða allt að 15%. Minni hækkun verður á vefnaðarvöru og hreinlætisvörum, eða 8—12 af hundraði.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.