Vísir


Vísir - 10.09.1968, Qupperneq 2

Vísir - 10.09.1968, Qupperneq 2
/ VlSIR . Þriðjudagur 10. september 1968. I* • < Skeyti til Vals: ÞEIR KOMA ALLIR VALSMENN eru farnir aö sjá fram á mikla aðsókn utan af landi að sögn þeirra Ægis Ferdinandssonar og Árna Njálssonar. — Og í dag hefst forsala aðgöngumiða í Reykjavik. Selt verður i sölutjaldi við Útvegsbankann. Greinilegt er, að stúkumiðar verða rifnir út á svipstundu, sennilega stuttu eftir að opnað verður klukkan 13, en helmingurinn er þegar seidur úti á landi og urðu Valsmenn að tak- marka mjög söluna þar, því að gefa verður kost á miðum hér einnig eins og skiljanlegt er. — Á Iaugardagskvöldið barst skeyti frá Benfica, sem hér fylgir o- staðfestir hvaöa leikmenn koma. Alls eru þeir 18 og eins og sjá má eru allir beztu leikmenn félagsins í hópnum. Li'Sboa hí/ih 1 Helgi Sveinsson gullmerki ÍSÍ eL t kna 11 sr; vrnu f e lao i m Vrilur revjavik • re .your c able ?nd instant names our olayers —" ‘V- •ias follov/s nascimento henrique adoLfo humberto rauL cruz J—^ ^ -Hiacinto coluna nraca toni aunusto torres eusebio sioes aouas cavem viera praia renards •n benfica r •jy T' m HESTAMENNIKÁRDIMOMMUBÆ FÁ ÞEIR INNGÖNGU í ÍSl? — Þetta var eitt af „vandamálunum" á 'lSI-þinginu — Glæsilegt Jbing, en fram- kvæmdalitið — Þingfulltrúar virðast leggja allt traust á framkvæmdastjórnina ■ Til hvers eru íþróttaþing haldin? Þessi spurn- ing var áleitin á íþróttaþingi ÍSÍ um helgina. Marg- ir þingfulltrúa voru þeirrar skoðunar, að þetta þing- hald þjónaði vart þeim tilgangi. Umræður held ég að megi heita gagnslausar með öllu, endanleg nið- urstaða af umræðum var ekki fyrir hendi og fá mál voru tekin fyrir svo stór að til þess þyrfti að kalla menn saman hvaðanæva að af landinu. ■ Þess vegna spyrja menn: Hvers vegna þá allt þetta brambolt? Ég held persónulega að Iþrótta sambandsstjórnin sé ákaflega sterk og ekki er nokkur vafi á að henni hefur tekizt að afla íþróttahreyfingunni talsverðra tekna, bæði með sígarettupening unum og eins landshappdrætt- inu, Störf framkvæmdastjómar- innar hafa fallið i farveg og eru framkvæmd eins og bezt verður á kosið. Fulltrúar á landsþingi eru ekki lengur nein svipa á þá menn sem í raun réttri stjórna. Þeir koma aðeins til að sitja veizlur og kjósa aftur sömu stjórn. Á þinginu um helgina voru um ræður um það hvort hestamenn í Stanleyville og Kardimommu- bæ skyldu fá að gerast félagar í ÍSÍ. Um þetta atriði gátu menn karpaö fram og aftur. Sumir sáu fyrir sér hestamenn vera ríð- andi um iðjagræna Olympíu- völlinn, þar sem þeir renndu Faxa gamla yfir allar hindranir. Jú, vfst hlutu þeir í Kardi- mommubæ að geta talizt íþrótta menn! Aðrir voru ekki á sömu skoðun töldu jafnvel að júdó- menn ættu alls ekki heima í ÍSÍ nema þeir kæmu úr félagi ræðu- manns. Talsvert var sent af kviðling- um á milli mahna og voru þeir lesnir upp og vöktu mikla kát- ínu fundarmanna. Sannarlega voru mörg þeirra hátíðaljóða verölaunabær. En sem sagt, tveggja daga fundahöld með einstaka hléum á milli, sem notuð voru til veizlu halda og ferðalags til Lauga- vatns, þar sem fyrirhuguð fþróttamiðstöð var skoðuð, var til lítils gagns fyrir iþrótta- hreyfinguna, — alla vega það sem að fréttamönnum sneri. Ég er ekki frá því á hinn bóginn að gott sé fyrir fulltrúa íþróttamanna um allt land aö hittast á tveggja ára fresti eöa svo. Hér skapast ómetanleg kynni milli manna, og án efa er „baktjaldamakkið“ mun merki- legra eðlis en þinghaldið sjálft. Það er greinilegt að menn treysta framkvæmdastjórninni fyrir öllum málum íþróttamanna og telja ekki nauðsynlegt að mikiar umræður fari fram um málefni þau sem íþróttamenn telja þó mikilvægt að séu rædd á slíkum þingum. Má þar m.a. nefna mál eins og greiðslu fyrir vinnutap íþróttamanna, sem er mjög aðkallandi, þjálfaramál sem ég tel aö leysist ekki sjálf- krafa þó að þjálfunarmiðstööin á Laugarvatni komist fljótt i gagnið, og þá hefði mátt ræða fjármál íþróttahreyfingarinnar meira en gert var, því að iþrótt- imar í landinu, hin einstöku íþróttafélög, eru mjög hart ^V->. 10 sfða Þríþrautin gefst vel ÁRANGURINN af þríþraut FRÍ og bamaþlaðsins Æskunnar virðist ætla að verða góður. Nú þegar em að koma fram á sjónarsviðið unglingar. sem hófu afskipti af frjálsum iþróttum gegnum þessa keppni. Keppnin er eins og kunnugt er fyrir 11-13 ára börn og er keppt í _ 60 metra hlaupi, hástökki og knattkasti. Keppnin fer fram á tíma bilinu 1. sept. til 31. okt. og stend- ur þvf yfir ’ skólunum og geta leikfimikennarar gefið upplýsingar um keppnina. Síðast tóku þátt 3580 börn frá , 37 skólum. Heitið er verðlaunum og þau eru ekki af lakara tag- : inu, stigahæsta stúlkan og stiga- ! hæsti nilturinn fá flugfar með Flug ! félagi íslands. Úrslitakeppnin, bar sem 6 beztu piltarnir og jafmargar j stúlkur mætast, fer fram í júnf á I næsta ári. Loftleiðir ekki með a-lið gegn Breiðholti LOFTLEIÐAMENN voru ekkert yfir sig hrifnir að vera bendlaðir við 8:1 tapið gegn Breiðholti. Hið rétta í málinu mun þó vera það að þar var ekki a-lið Loftleiða á ferðinni, sennilega b eða c-lið, sem tapaði svo stórt. Hins vegar vann Breiðholt Loftleiðir með, 1:0, þegar a-liðin mættust. Hlelgi Sveinsson íþróttakenn- ari hefur veriö einn af mestu íþróttafrömuðum Siglufjarðar sl. 30 ár og eingöngu starfaö að þeim málum allan þann tíma. Hann hefur verið íþróttakennari barna- og gagnfræðaskólanna, sund kennari, forgöngumaöur í skíða- íþróttinni, sem borið hefur hróður Siglfirðinga út um byggðir landsins, og dómari í flestum skíðaíandsmót um, frá því að þau hófust. Knatt- spyrnuunnandi hefur hann verið alla sína tíð og knattspymudómari í mörg ár. Gísli Halldórsson sæmir Helga gullmerkinu Fimleikar hafa verið mikiö á- hugamál Helga og hefur hann oft haft úrvalsmönnum á að skipa í sýningarflokkum sínum. S.l. vet- ur æfði hann fimleikaflokk, sem vakið hefur mikla athygli þar sem hann hefur komið fram. Flokkur þessi sýndi fimleika á afmælishá- tíð Siglufjarðar í sumar, á þjóð- hátíð Vestmannaeyja og í Húsafells skógi um verzlunarmannahelgina. Helgi varð fimmtugur hinn 3. júlí s.l. og í því sambandi var honum mikill sómi sýndur af hálfu íþróttamanna, sem þakklætisvott fyrir mikil og óeigingjöm störf. Forseti íþróttasambands íslands sæmdi hann gullmerki sambandsins íþróttabandalag Siglufjarðar af- henti honum áletraðan silfurskjöld og gamlir og nýir félagar hans í fimleikaflokkunum gáfu honum forkunnar fagra styttu. \ Það er mikill fengur hverju bvggðarlagi að hafa innan sinna vé- banda jafn áhugasama og duglsga menn. sem sinna viðfangsefnum sínum af þvílíkum alhug og kost* gæfni. sem Helgi Sveinsson hefuv ávallt sýnt við störf sin. Auglýsið í V5SI

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.