Vísir - 10.09.1968, Blaðsíða 9

Vísir - 10.09.1968, Blaðsíða 9
VÍSIR . Þriðj"dagur 10. september 1968. 9 t „Fólk nú til dags hefur ekki tíma til að búa til mat" — Spjallað v/ð N'iels Marteinsson, sölustjóra um grænmetið i verzlununum Címinn hringir og þaö er nokk- uö jafn straumur útkeyrslu manna, sem leitar aö lúgunni, en bak viö situr Níels Marteins son, sölustjóri Sölufélags garð- yrkjumanna. Allir vilja fá aö tala við Nilla. Þegar næði gefst berum viö fyrir hann fyrstu spurninguna. — 1 verzlunum hefur borið á nýjum grænmetistegundum sem hafa ekki sézt áöur, hefur ræktun garðávaxta hérlendis beinzt inn á nýjar og spenn- andi brautir? — Þaö er alltaf verið aö reyna nýjar tegundir eftir þvi sem hægt er, núna eru t.d. á mark- aðinum fyrir utan það venju- lega eggaldin, þaö grænmeti sem kallast ,,sölbeder“ á dönsku og ég hef ekki ennþá nafn yfir, en er grænmeti af seljurótar- ættinni og svo er það sólselj- an. Eftirspumin í hana er allt af að aukast og er þaö svo, aö viö höfum varla annað henni. — Eru það einhverjir sér- stakir garðyrkjumenn, sem leggja stund á tilraunir? — Já, ég myndi tiltaka Garö yrkjuskóla ríkisins aö Reykjum, hann er framalega í þvi að reyna ýmislegt nýtt, t.d. voru það þeir sem komu með paprikuna á markaðinn hér og sömuleiðis eggaldiniö. — Er möguleiki á því fyrir íslenzka neytendur að fá græn- meti ræktað hér allt árið um kring? — Ég held að það sé alveg úti lokað en þó er tíminn, sem líð- ur á milli þess að grænmetið fáist á markaðinum, alltaf að styttast. Fyrir nokkrum árum var grænmetið á markaðinum 6 mánuði ársins, nú má segja að það sé fáanlegt 3 marrttði. Þá eru það þrír mánuðir, þessi dimmi tími áTsins, sem vantar upp á, að grænmetismarkaður- inn sé starfandi allt árið. Tómat- ar og gúrkur fást núna alla þessa mánuði og t.d. gulrófur frá júli allt til maí-júní eftir þvi hversu birgöirnar endast. Nú kemur inn kaupmaöur, sem kvartar yfir því að „kúnn arnir“ neyti ekki eins mik- ils grænmetis og ákjós- anlegt væri, en hann tekur samt stóra pöntun og tekur með sér undir arminn, bunka af grænmetisbæklingi sölufélags- ins. ■ — trefur grænmetisneyzla aukizt hér? — ■áá hún eykst alltaf með hverju ári. Við höfðum græn- metiskynningar í matvöruverzl- unum fyrir nokkrum árum og svo eru það fleiri og fleiri, sem hafa ferðazt út og kynnzt græn metisréttum, sem þeir varla vissu að voru til áður. — Hvers vegna er grænmet- ið svona dýrt? — Byggingarkostnaður gróð- Iurhúsa hér á landi og viðhald vegur upp í og meir en það kyndingarkostnað erlendra gróðurhúsa og þessi kostnaöur er lagður á vöruna. • VIÐTAL DAGSINS — En grænmeti, sem ræktað er úti? — Gulrætur, kálið og rófurn ar, sem er ræktað úti hefur nú lækkað frá sumarverði. — Hver er hámarksálagning kaupmanna? — Hún er 34% og söluskattur inn. — Hvernig er dreifingu garð- ávaxta hagað? — Ég álit, að hún sé í nokkuð góöu lagi. Það er farið í flestallar verzlanir borgarinn- ar daglega og dreifingin út á land er með bílum, flugvélum og skipum eftir því hvaöa sam- göngutæki eru notuð á hvern stað. — Fá allir, sem vilja nóg af grænmeti? — Þaö er of mikið sagt, að all- ir fái nóg þvFað. það.ier,;erfttt að miðla þessum1 hlutum,7 það er svo stutt tímabil, sem er yfir • yfirfljótandi nóg grænmeti. Það er alltaf vandamál að vera skömmtunarstjóri. Framtaks- semi kaupmannanna ræður líka miklu um hversu mikið er á boö- stólum í hverri verzlun en einn- ig er það atriöi, að neyzla í hverfum er misjöfn og þvf tak- markað í sumum þeirra hvað verzlunarstjórinn getur tekið inn. — í hvaða hverfum er mest neyzla? yiö skiptum borginni í fjög- ur útkeyrslusvæöi og eftir því er mest keyrt út af græn- meti í Miöbæinn og Vesturbæ- inn og þar er gríðarmikil sala í öllum tegundum. Einnig er mikið selt í Hlíða- Háaleitis- Bústaða- Smáíbúða- og Árbæjar- hverfi. I Árbæjarhverfi er mikiö af ungu fólki sem viröist kunna að meta græn- meti. Hins vegar er salan 'með minnsta móti í Kleppsholtinu og Laugamesinu og minnst keypt þar af grænmeti, sem nýlega er komið á markaðinn t.d. blað- lauk og seljurót. — Er torgsala útilokuð í Reykjavík? — Já, það er útilokaö að selja á torgum. Borgarlæknisembætt ið leyfir það ekki. Fyrir nokkr- um árum var torgsala á Óðins- götu en hún var lögð niður. — Myndi torgsala ekki hafa lægra verð á grænmeti í för með sér? —Eftir reynslunni erlendis myndi það vera. Torgsala þar er ódýr sala. Það er meiri álagn- ing hjá verzlununum, sem hafa byggt fyrir milljónir, en hjá fólki, sem kemur nokkrum sinn um í viku á torgin með sín borð. — Hver er fra’ tis ræktunar hér á — Það er enginn vi, að það veröa miklar framfarir í grænmetisræktunarmálum á Níels Marteinsson. næstu árum. Við höldum áfram og ^erum betur. — Hvernig fór með þá tilraun sölufélagsins, að koma með frystar gúrkur á markaðinn? — Salan var svo lítil, að hún borgaði sig ekki. Fólk nú til dags hefur ekki tíma til aö búa til mat. Það vill fá allt tilbúið á borðin. s.b. Listir-Bækur-Menningarmál Mest rautt TVTyndheimur Hafsteins Aust- manns hefur ekki breytzt að ráði síðustu árin. Þó sýnist mér málarinn hafa stækkað víg völlinn — horfi nú til fleiri átta og losi sig smám saman úr viðjum hins fastmótaða kerfis sem óneitanlega hefur staöið nokkuð í vegi fyrir því, að hvert verk um sig fengi að njóta sjálf stæðrar tilveru. Mér er ljóst að kerfið, er ég nefni svo (t.m. efnismeöferðin hugmyndimar, formbreytingarnar, já — til- finnirígin fyrir öllu þessu vax- in f heild) hefur verið Hafsteini notadrjúgt. Það hefur sem- sé komið æ betur í ljós, aö hann er ekki einn af þeim mönn um sem geta ekki grafið á sama blettinum stundinni lengur og finna því naumast annað en ranghverfuna á skáninni. Nei... hver mynd hans vex að tals- verðu leyti upp úr reynslu þeirr- ar næstu á undan. Aftur á móti er málaranum ekki nægilega ljóst að hann þarf allra helzt að gleyma kunnáttu sinni í hvert sinn er hann byrjar á nýju verki til þess að finna eitthvað sérstætt — einstætt, og komast hjá endurtekningu. Þetta er sfð ur en svo vandamál Hafsteins eins. Flestir eða allir starfsbræð ur hans verða að horfast í augu við það -/ seint eða sriemma. Margt smátt og stórt á sýningu Hafsteins leiðir í ljós að hann er málari að eðlisfari. Hann er fljótur að átta sig á því hvaða litir falla saman og mynda góðar heildir. Og þegar bezt gengur, eru málverk hans og vatnslita- myndir ofnar úr örfínum þráð- um og breiðum böndum. Haf- steinn er snjallari í að tæpa á atriðum og hugmyndum sem verða honum að efni f listaverk ið en varpa skæru ljósi á stað- Hafsteinn Austmann. reyndir lífsins. Hvígráa myndin á endaveggnum (til vesturs) er gott dæmi um þetta. Hún er bæði fínleg og hlý mynd, sem lifir lengur en daginn í dag án þess að blikna. Raunar hygg ég aö segja megi hið sama um nokkur önnur verk á sýning- unni í Unuhúsi. En gleðilegast er þó, að rauða málverkið á vesturveggnum miðjum, hvíslar gætilega að okkur gestunum, að höfund þess gruni, að hvellar eða ófrýnilegar andstæður séu þúsund sinnum meira virði en skrautlegir litir og smekkleg röðun formeindanna. Þetta rauða málverk er að minni hyggju. vold.ugasta listaverkið i safni Hafsteins fram að þessum degi. Hjörleifur Sigurðsson | USENDDR | ÞAÐ ERU LESENDUR, sem hafa orðið f bessum þætti okk ar, sem birtist eins oft og okkur stutt os góð bréf, en listin að segja frá "*r að vera tuttorður oh gagnorðui eins og forfeður vorir, ber’.ir beir rituðu fslendingasnqurn- ar. R>-éf t»1 okkar að sen'1 ,ast til eftirfarandi heimilis fangs: Daeblað'ð Vísir. „Les- endur hafa orðið“, Laugavegi 178, D»'rkbvíl{. ISI □ Er Skógræktin á móti skógrækt? Þröstur í Garði skrifar: „Er Skógræktin á móti skóg- rækt?“ Þessi spuming heyrist, þegar maður kemur í Þórs- mörk og sér eyðilegginguna þar. Þeir býsnast yfir því skógrækt- armenn að rollum sé sleppt á Mörkina, en sjálfir virðast þeir standa fyrir því að sleppa 3— 4000 unglingum þar innfrá, og er það þó vitað mál aö úti- skemmtanir þar skemma mun meira en sauðkindin fær megn- að. Mig langar til að spyja skóg- ræktarstjóra: Hvað kostar að hreinsa Húsadal eftir verzlun- armannahelgi? Gera 600—700 kindur meira tjón en 3—4000 unglingar? Hvað fær Skógræktin í sinn hlut fyrir skemmtanir þessar? Hvenær getum viö vænzt þess að Þórsmörk verði friðlýst? Hver græöir á veitinga- sölu í Húsadal þessa umræddu verzlunarmannahelgi?" □ Á yztu nöf ... „Gussi skrifar: „Stutt og laggott" og „eitt- hvað fyrir alla“, það eru eink- unnarorð margra á dögum hraða og samkeppni. Segja má að Vísir hafi mótazt af þessu á ýmsan hátt. Blaðið flytur stutt- ar greinar og gagnorðar, oft skemmtilegar. Og efnið auk fréttanna er tekið úr ýmsum áttum til að gera sem flestum til hæfis. Vísir er því eins konar heimilisblað jafnframt því aö vera dagblað. En gott heimilis- blað birtir samt ekki hvaö sem er, þótt þaö vilji vera fjölbreytt og gimilegt. Þetta biö ég ykkur að hafa í huga, góðir Visismenn, þegar við veljiö efni á 4. síð- una. Af nógu er að taka til fróð- leiks og skemmtunar, þótt ekki sé farið út á yztu nöf hvað snertir efni og myndir sem sæm- ir dagblaöi. Allir á mínu heimili lesa Vísi. Mér þykir vænt um blaðiö og þvi sendi ég ykkur þessa kveðju — með þökk fyrir marga ánægjustund. ISI □ Vegur gegnum fallegan lund „Náttúruelskandi" skrifar: „Þaö er mjög lítið um trjá- gróður á íslandi, og hefur margt verið reynt til þess að vemda hann. En mér sýnist, að á mörgum stööum sé hann eyöi- lagður og upprifinn. Svo er t. d. í Fossvoginum, þar sem stór- ar framkvæmdir em gerðar við að byggja hraðbraut, sem á að skerast í gegnum fallegan trjá- lund. Ekki kalla ég þetta vemd- un trjágróðursins“. saateaa^ •

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.