Vísir - 10.09.1968, Síða 16

Vísir - 10.09.1968, Síða 16
 HAFÍS VIÐ LANDIÐ í VETUR ? Raett viö Pál Bergþórsson, veöurfræðing, um ísinn ■ Fyrstu mælingar, sem hafa verið gerðar norður í höf um á lofthita og sjávarkulda benda á það, að talsverður möguleiki sé á því, að hafís Ieggist fyrir Norðurland 1 vet- ur. Talaði blaðið við Pál Berg- þórsson veðurfræðing, sem vinnur að þessum rannsókn- um núna og skýrði hann frá þessu, en benti á það um leið að þetta væru rannsóknir og því ekki hægt að spá um þetta fyllilega núna eða taka þessar fyrstu niðurstöður of hátíðlega. Kvað Páll endan- Iegar niðurstöður á þessum rannsóknum ekki koma fyrr en í nóvember. Að öðru leyti sagði Páll, að athuganir, sem geröar væru norður í höfum á haustin segðu til um möguleika á hafís og þær þeirra sem þegar væru komnar bentu tvímælalaust á það, að nokkrir möguleikar séu á hafís fyrir Noröurlandi í vetur. Loft hiti á Jan Mayen gefi um þaö bendingu, að því er hann teiur, hver sjávarhitinn muni vera á þeim sjó sem komi í vetur og i vor upp aö íslandsströnd- um, en er nú þar noröur frá. Þar að auki væri stuðzt viö sjáv arhitamælingar og hafi sjórinn við Jan Mayen verið óvenju kaldur en mælingar voru gerö- ar á honum úr flugvél í ágúst- mánuði. Auk þess hafði verið mikill ís við Jan Mayen í sum ar en allt séu þetta fyrstu bend ingar. Bridgefélögin byrjuð vetrur- sturfseminu ♦ Nú, þegar kvöidin eru aldimm orðin og sumarleikir verða senn lagðir á hilluna og geymdir til næsta sumars, taka menn að rifja upp á nýjan leik dægradvalir, sem betur hæfa vetrinum. ♦ Tómstundatæki, eins og spil og grænfilteruð borð, eru graf- in út úr fylgsnum sínum og dreg- j in fram í dagsljósið. en sumaráhöld- i in lögð þar í staðinn. Spilaklúbbarnir í Reykjavík eru í óða önn að undirbúa vetrarstarf- semina — spilakvöldin, sem spila- fólk sækir jafnt sér til ánægju og dægrastyttingar, sem til þess að brýna vopnin og skerpa tæknina fyrir keppnirnar siðar í vetur. Eitt hið fyrsta á ferðinni f haust er Bridgefélag Reykjavíkur, sem Anna sígríður Björnsdóttlr og Ragnheiöur Jónsdóttir *'ið myndir sínar á sýningunni í nýbyggingu »»—>- 10. síða í Menntaskólans. Höggmyndir S í fléðljósum I gærkvöldi oe fyrrakvöld Iögðu mareir Reykvíkingar leið sina upp á Skólavörðuholt til að skoða þar höggmyndir, sem böðuðu í fljóðliósum, en ljósköst * urum hefur verið komið upp til þess að einnig sé hægt aö skoða sýninguna, þegar kvöldar. Höggmyndasýningin var opn- uð á sunnudaginn kl. 4, og Hann és Davíðsson arkítekt, formaður Bandalags íslenzkra listamanna flutti ávarp, en sýningin er helg- uð 40 ára afmæli bandalagsins. i Þriggja manna nefnd hefur j unnið að undirbúningi þessarar sýningar. en hana skipa þeir Ragnar Kjartansson, Jón Gunn- / ár Ámason og Magnús Pánsson. j Myndlistarskólinn gengst fyrir \ sýningunni, en hefur til þess ( notið stuðnings Reykjavíkur-1 borgar. 31 verk er á sýningunni j eftir 21 listamann. , Myndsjáin í dag er frá sýning- ( unni. i Gera verðmæta útflutn- ingsvöru úr litlum afía Siglfirðingar búnir að taka á móti yfir 3 þús. tunnum af saltsild son Á miðvikudaginn kom vél- skipið ffrafn Sveinbjarnar- til Siglufjarðar með 657 aði henni hjá söltunarstöðinni Hafliða. Hefur Hafliði nú tekið á móti alls 2.155 tunnum af sjó- tunnur af sjósaltaðri síld og land 1 saltaðri síld. Reykjaborg hefur Eitt af Kóium- busareggjunum Skipasmíðas tööin Stálvik h.f. Sölvason í Keflavík. Skipið, sem við Arnarvog í Garðahreppi af- heitir Eldey, er systurskip Óskars henti annað skipið á þessu ári s.l. Magnússonar á Akranesi, sem var laugardag. Eigendur skipsins eru Jó afhentur í febrúar s.I. Skipunum hannes Jóhannesson og Runólfur var báðum hleypt af stokkum sam- tímis, en afhending Eldeyjar hefur komið þangað með tvo farma, alls 1451 tunnu og Bergur VE Iandaði þar 47 tunnum. Það hefur komið í Uós að hægt er að fá óvenju góða vöru úr þeirri síld, sem söltuð er um borð í síld- arskipunum sjálfum og skipverjarn- ir gera þannig verðmæta útflutn- ingsvöru úr litlum afla. En megnið af þeirri síld, sem veiðzt hefur síð- ustu daga, hefur farið í salt. Siglfirðingar binda þó mestar von ir við flutning á ísaðri sild af mið- unum. Togarinn Víkingur kom sem kunnugt er með einn farm slíkan til Siglufjarðar í sumar og reyndist hann ágætlega. Sú síld var söltuð i Haraldarstöð, um 900 tunnur. — Víkingur hefur hins vegar ekki kom izt fleiri slíkar ferðir vegna þess hve síldveiðin hefur 'verið treg og veður stopul. Tvær konur sýnu samun í nýbyggingu Menntaskólans, Casa Nova, stendur nú yfir mál- verkasýning þeirra Önnu Sigríðar Björnsdóttur og Ragnheiðar Jóns- dóttur. Á þessari sýningu, sem opin er daglega kl. 2—10 e. h., eru 60 myndir. Sýningin hefur verið fjölsótt fram til hessa, en hún verður opin til 15. september. Anna Sigríöur Björnsdóttir er fædd árið 1921. Hún lauk burtfar- arprófi í píanóleik við Tónlistarskól ann í Revkjavík 1940. Hún stund- aði nám við Myndlistaskólann 1959 —’60 og 1964 —’68. Anna tók þátt í Haustsýningu F.Í.M. 1967. Ragnheiður Jónsdóttir er fædd árið 1933. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla íslands 1954. Stundaði nám við Myndlistaskól- ann 1959—’60, Glyptótekið í Höfn 1961—’62, Myndlistaskólann 1964 — ’68. Hún hefur tekið þátt í eftir- töldum sýningum: Haustsýn. F.Í.M. 1966, Listsýningu Hallveigarstaða 1967 og Haustsýningu F.Í.M. 1967. Sýningu þeirra Önnu og Ragn- heiðar lýkur 15. sept. n. k. Má ég biðja yður að flauta Gamla Nóa? ' — Gárungar nota sér hrekkleysi fólks 9 Vegna simleysisins á dögunum hafa verið nokkur brögð að því, að fólk hafi snúið sér til blaðsins með kvartanir. Einnig hefur J það komlð á daginn, að gárungar munu undanfarið hafa af hrekkvísi i sinni hringt í fólk, og sagzt vera simastarfsmenn að stilla sim- j kerfið á nýjan leik. Þeir hafa beöið-grunlaust fólk um að blístra i í símann eða hafa yfir einhverja vitleysu. Jafnvel hafa þeir sagt J J fólki, að hætta væri á því, að rafstraumur kæmi úr símtækjunum, < > og beðið það um að gera ýmsar furöulegar ráðstafanir til að forð-1 ast eldhættu. } dregizt þar til núna — Drátturinn hefur stafað af ýmsu, sagði Jón Sveinsson, forstjóri Stálvíkur, í viðtali við Vísi, — að- allega þó af fjárskorti, sem hefur verið bein afleiöing verðfalls og síldarleysisins. Eldey er 372 rúmlestir eftir gömlu mælingunni (við höfum ekki komizt upp á lagiö með að nota nýju mælieininguna, sagði Jón). — Það er búið öllum beztu fáanlegum tækjum eins og flest okkar nýju fiskiskip. Mesta nýlundan í því er þverskrúfa. sem var teiknuð og hönnuð f Stálvík sjálfri. — Þótt ég segi s.iálfur frá, tel ég þetta vera eitt af Kólumbusaregjunum, sagði Jón Sveinsson við Vísi. Lausnin er auðveld þegar búiö er að finna hana og við gátum snúið skipinu um fimmeyring, þegar á reyndi. Leitin að bandarísku vélinni árangurslaus Leifin beinist nú að rekaldi, sem sást út af Snæfellsnesi VÍÐTÆK LEIT að bandarísku Piper , Tri-Pacer flugvélinni, sem týndist í j fyrrinótt á leiðinni frá Kúlúsúk á , Grænlandi til Reykjavíkur, hefur | ekki borið árangur. Fjórar flugvélar leituðu á hafinu úti fyrir Snæfells- nesi og á Faxaflóa og Breiðafirði, allt vestur á Vestfirði í gær. Leitin hófst aftur í morgun og var vél frá varnarliðinu send út snemma í morgun og fleiri vélar átti að senda til leitar í dag. Leitarveður er hins vegar mjög slæmt og mun verra en í gær. í morgun beindist leitin einkum að því að athuga svæðið um 70 míl- ur út af Snæfellsnesi, þar sem vél frá bandaríska hemum sá eitthvert flak á floti í gærkvöldi. Flakið sást nokkru vestar en vélin gaf síðast upp staðarákvörðun. Hins vegar passaði lýsing flugmannsins á þessu rekaldi illa við lit vélar- innar. Veður var farið að versna í gær- kvöildi, þegar bandaríska vélin fann þetta og varð hún að hverfa frá, en 10. síöa.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.