Vísir - 05.10.1968, Síða 3

Vísir - 05.10.1968, Síða 3
VTS l R . Eaugardagur 5. ©Rtðlíer 1968, 5 Þær voru þetta 15—20 stykki, þegar Myndsjáin kom á vett- vang. Og brátt hófst hinn æsi- legasti eltingaieikur um garða og götur Árbæjarhverfis. Strákahópur á eftir rollunum — því hver var að reka af sínum bletti. Húsmóðirin í einu húsanna kemur á vettvang og segir: „Þær voru fjórar hérna í garðin um í gærkvöldi." Það er ekkert einsdæmi fyrir íbúa hverfisins að hafa kindur við húsvegginn, kindur að naga blómagróðurinn í görðum og kindur i heimahúsum jafnvel í hinum friðhelga reit — hjóna- rúminu. Og sálarlíf ibúanna tekur .. .og nú er hópurinn kominn að gatnamótum Rofabæjar og Hraunbæjar, með strákana hrópandi á eftir í æsilegum eltinga- leik. Óvinurinn í Árbæ j ar h ver f i breytingum. 1 stað þess að líta sauökindina góðlátlegum augum dýravinarins hefur tveggja ára eltingaleikur við þessa sauð- þráu skepnu formyrkvað sálina. Það er fylgzt með ferðum óvin- arins, þegar hann beygir nið- ur sir.n venjulega götuslóða hjá ánni, einstaka sinnum brýzt þó Ijósbrót í gegn og það er dáðst að hópnum, sem tekur beygjuna alltaf á sama staðnum, en .síð- an verða allar taugar þandar aftur þar til komið er að.því að rjúka út og stugga við skepn- unni. Svo er hringt í borgaryfir- völdin því búið er að fella úr- skurð um það að sauðkindin sé burtræk úr borgarlandinu, og sagt að skepnan sé við húsdyrn- ar. Og lögregluþjónar koma á vettvang, en þegar þeir koma auga á óvininn lízt þeim ekk- ert á blikuna og -segjast sjá sig í anda vera að eltast við roll- ur og það er ekkert meira að- hafzt. Þannig heldur sauðfjárstríðið áfram í öllum sínum margbreyti leik. Fjáreigendur bera' saman ráð í Fjárborg, kindur jarma sig saman þvert yfir Elliðaár, garð eigendur eru á verði við hús- dyrnar og yfirvöldin sitja saman á rökstólum. Þær eru búnar að bíta ofan af flestum trjátoppunum í görðum Arbæjarhverfis enda er gróð urinn ungur og lágvaxinn og safaríkt grasið í Vorsabæ. 1938 BERKLA VARNADA GURINN 1968 30 VINNINGAR m, 20 Blaupunkt ferðaútvarpsiæki S.I.B.S. 30 ARA Berklavamadagurinn er á morgun. %%%%%% 30 glæsilegir vinningar í merkjahappdrættinu. ^ m ^ Blað og merki dagsins seld um land allt. 30 VINNINGAR 10 Blaupunkt sjónvarpstæki

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.