Vísir - 29.10.1968, Side 8
8
VÍSIR
Otgetandi Keykjaprent tj.l
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritst}óri: Jónas Kristjánsson
AÍ5sP ðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglysinaastjóri Bergþór Olfarsson
Auglýsingar: Malstræti 8 Símar 15610 11660 og 15099
Afgreiðsla Aðalstræti 8. Sími 11660
Ritstjóm • i mgavegt 178. Stmi 11660 (5 Unur)
Áskriftargjald kr. 125.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðis Vfsis — Edda h.f.
A<5 segja ósatt
„J>að kom glögglega fram í útvarpsumræðunum í
fyrrakvöld, að sá vandi, sem nú er við að fást í efna-
hagsmálunum, er jafn stórfelldur og raun ber vitni,
vegna þess að reynt hefur verið að leyna þessum
vanda í meir en tvö ár, meðal annars til að blekkja
þjóðina fyrir kosningarnar á síðasta ári.“
Texti þessi stendur skrifaður í forustugrein Tím-
ans á laugardaginn var. Þessi furðuskrif eru ekki nein
hending, heldur hafa þau verið uppistaðan í pólitískri
fræðslustarfsemi blaðsins á annað ár. Almenningur
veit sannarlega, hvers hann færi á mis í réttum
frásögnum af þjóðmálum, ef Tímans nyti ekki við!
í þessari forustugrein Tímans segir ennfremur:
„Undanfarin misseri hefur það blasað við öllum, sem
eitthvert skyn bera á þessi mál og opin augu vilja
hafa, að stórfelldur vandi var framundan. Ríkisstjóm-
in hefur hins vegar haldið að sér hönúum og hún hef-
ur ekki einu sinni látið hagstofnanir sínar afla nægra
upplýsinga um þetta alvarlega ástand.“
Fyrir tveimur árum var enginn sá vandi á höndum,
sem nú er fyrir hendi í þjóðlífinu. Þjóðin hafði á fimm
til sex árum auðgazt meira en nokkru sinni áður í sögu
sinni. Eignaaukning hafði numið um 13 þúsund millj-
ónum króna á þessu tímabili. Sýnishorn þessarar vax-
andi velmegunar gat alls staðar að líta.
Byggingastarfsemi hafði verið gífurleg til sjávar
og sveita. Ræktun og jarðabætur höfðu verið meiri
en nokkru sinni áður. Alhliða vélvæðing atvinnulífs-
ins hafði verið geysileg. Alls staðar var svo mikið
að gera, að oft og tíðum heyrðist talað um vinnu-
þrælkun vegna mikillar eftirvinnu og næturvinnu, og
fordæmt var, hvað unglingar unnu mikið. Þessa vel-
megunarmynd muna og þekkja allir.
Hins vegar byrjaði að bóla á verðfalli útflutnings-
afurða árið 1966. Ríkisstjórnin snerist strax við þeim
vanda með ráðstöfunum vegna útvegsins fyrst og
fremst og með verðstöðvunarlögunum 1966. Þegar Al-
þingi kom saman haustið 1967, og verðfall og annar
vandi hafði aukizt, lagði stjórnin fram víðtækar efna-
hagsmálatillögur strax í þingbyrjun.
Þá var það sem þingmenn Framsóknarflokksins
snerust gegn þessum tillögum á þeim forsendum, að
verðfallið og markaðstöpin fælu ekki í sér neinn
vanda. Einn þingskörungur Framsóknar reiknaði
þetta út í ræðustól þingsins, og varð formaður þing-
flokksins yfir sig hrifinn.
Síðan kom svo gengisbreytingin með margháttaðri
löggjöf. Og nú hafa fulltrúar ríkisstjórnarinnar setið
í hálfan annan mánuð við að fræða stjórnarandstæð-
inga um efnahagsvandann.
Samt heldur Tíminn áfram að segja ósatt.
V í S I R . Þriðjudagur 29. október 19(j8.
sbt ; j
£ Hafin er lokavika kosn-
ingabaráttunnar í Banda
ríkjunum og herða forsetaefn
in nú sóknina af miklu kappi.
Nixon fer nú í vikunni úr
einni borgina í aðra, í þeim
ríkjum, sem honum er mikil-
vægast að sigra í. Þá hefur
hann aukið leigu á sjónvarpi
sér til fylgisauka. Þetta virð-
ist gefa til kynna, að Nixon
og fylgismenn hans séu ekki
alveg öruggir um sigurinn, og
þeir hafi áhyggjur af fylgis-
aukningu Humphreys.
J byrjun kosningabaráttunnar
hirti Nixon ekki að ráði um
sjónvarpið, en nú er þetta
breytt og hann hefur enda fall-
izt á að koma fram í sjónvarps
þætti hjá Columbia útvarps-
kerfinu, eða I þættinum Meet
Nixon og Agnew — varaforsetaefni hans — sem New York
Times segir enga hæfileika hafa til þess að gegna slíku emb-
ætti. Val Nixons á Agnew leiddi þegar á flokksþinginu til
gagnrýni og deilna.
Vika til forsetakjörs í
Bandaríkjunum
Nixon hefir hafið „leiftursókn" en Humphrey
heldur / vonina
the Press, til þess að svara fyr-
irspurnum blaðamanna.
Ráðunautar Nixons segja þó,
að þetta hafi allt verið ákveð-
ið fyrirfram og gerö hafi verið
áætlun fyrir löngu um leiftur-
sókn seinustu tiu dagana fyrir
kosningar. Og í gær var Nixon
andi. Humphrey hefur aukið
fylgi sitt með því að draga fylgi
frá Wallace, en ekki Nixon, sem
hefir aukið fylgi sitt um einn
af hundraði.
Síðari fréttir herma, að Hump
hrey hafi átt óformlegt viötal
við fréttamenn í flugvél á leið
Hubert Humphrey — og skopleikarinn Jerry Lewis, sem er
ákafur stuðningsmaður hans.
inni frá San Jose í KaffiPomíu
til Las Vegas 1 Nevada. Meðal
þeirra var fréttamaður frá NTB
fréttastofunni, sem kveðst hafa
fengið tækifæri til þess að eiga
við hann stutt einkaviðtal.
Humphrey kvað úrsiit forseta
kosninganna næstum eins mik-
ilvægar fyrir aðrar þjóðir og hin
50 sambandsríki Bandaríkj. og
væri augfrjós vottur áhuga ann-
arra þjóða hve margir eríendir
fréttamenn fylgdust með hon-
um á kosningaferðalagi hans.
„Ég held“ sagði Humphrey,
„að í Vestur-Evrópu sé ég tal-
inn aðhyllast náið samstarf
og traust þeirra milli og Banda-
rikjanna"
Hann kal'laði Nixon talsmann
köldu styrjaldarinnar, og hann
kvaðst örugglega þeirrar trúar,
að rikisstjómir eins og bre2ika
verkamannastjómin, vestwr-
þýzka sambandsstjómin og rík-
isstjómir Norðurianda væru sér
hlynntari, Vestur-Evrópa væri á
sömu bylgjulengd hugsananna
og hann, eins og hann ■
kvað að orði, ef til vill
að undantekinni frönsku rík-
isstjóminni. Hann kvað stjóm
Norður- Atlantshafsbandalags-
ins og Bandaríkjanna ánægðar
með framlag Noregs og Dan-
merkur til bandalagsins. Hann
kvað aukið eftirlit á sjó og lofti
nauðsynlegt á Norðursjávarsvæð
inu, — herstöðvar væru ekki
„stórt mál“ á þessum tima eld-
flauganna sagöi hann, og leggja
mest upp úr stjómmálalegum
yfiriýsingum um stuðning við
bandalagið, og þær heföu komið
> 13. síða.
að kynna sér 35 spumingar, sem
ráðunautar hans telja, að frétta-
menn kunni að bera fram, til
þess að hafa svör á reiðum
höndum.
Kvöldið fyrir kjördag efnir
Nixon til tveggja klukkustunda
sjónvarps frá Los Angeles og
svarar fyrirspumum.
Eitt af þvf sem menn Nixons
hafa áhyggjur af er, að þeir
verði svo jafnir hann og Hump-
hrey að hættan sem stafar af
Wallace verði raunveruleg.
GALLUP-STOFNUNIN
f Bandaríkjunum birti úrslit nýrr
ar skoðanakönnunar um helg-
ina, og eru þau að áliti margra
ekki sérlega uppörvandi fyrir
Humphrey, þótt hann geri sér
vonir um að horfurnar breytist
sér í hag á seinustu stundu.
Samkvæmt úrslitunum hefir
Richard Nixon enn forustuna
með 44 af hundraði. Hubert
Humphrey hefur 36 en George
Wallace giðeins 15 af hundraði,
en fylgi hans fer nú mjög dvín-
'
Le May fyrrv. hershöfðingi í heimsókn í S-Víetnam. Myndin
var tekin, er hann var að ræða við bandaríska hermenn. Hann
er varaforsetaefni Wallace, sem sendi hann til S-V, er hann
hafði talað af sér hvað eftir annað.