Vísir - 15.11.1968, Blaðsíða 3
formann
VISIR . röstudagur 15. íióvemoer lt>6s'.
XTreyfilsvalsinn dunaði dátt í
Súlnasal á mánudaginn, þar
sem bílstjórarnir héldu upp á
25 ára afmæli félagsins með
pomp og pragt.
Bifreiðastöðin Hreyfill var
stofnuð 11. nóvember 1943 og
voru 40 bifreiðir á stöðinni til
þess aö byrja með. Nú eru þær
330.
í tilefni afmælisins var efnt
til myndarlegs hófs á Sögu, þar
sem meðal annars komu fram
karlakór og kvartett félags-
manna, en félagslíf hefur jafnan
staðið meö miklum blóma hjá
þeim Hreyfilsmönnum.
Innan samtaka þeirra hefur
starfaö taflfélag, sem hefur
Bflstjórarnir með konum sínum við hluta af háborðinu, frá vinstri: Ingjaldur ísaksson, Ólafur Þórðarson, lögfræðingur félags-
ins, Vilhjálmur Þórðarson, Steingrímur Aðalsteinsson, Þórður Elíasson, Þorleifur Gíslason, Bergsteinn Guðjónsson, Grímur
Runólfsson og Stefán Oddur Magnússon á endanum hægra megin.
Gefa 300 einsdags-
ferðir í tilefni
afmælisins
meðal annars sent sveitir til
keppni í nágrannalöndunum, þar
sem þær hafa staðið sig meö
mikilli prýði. Bridge-félag er
einnig starfandi, en þetta eru
fþróttir sem einna mest eru
iðkaðar á vinnustað bílstjóra, í
biðsalnum, þegar beðiö er eftir
ferð.
Bílstjórar á Hreyfli hafa
einnig þótt liðtækir í íþróttum.
Handboltalið eiga þeir gott. Og
í vetur leigja þeir húsnæði í
iþróttahúsinu á Seltjamamesi,
þar sem félagsmenn fá tæki-
færi til þess að hrista af sér
kyrrsetustirðleikann.
Hreyfilsmenn hafa einnig gef-
ið út blaö í allnokkur ár og
kemur það út 2—3var á ári. —
Þá hafa félagsmenn i samein-
ingu byggt þrjár stórar íbúða-
blokkir og tvær em nú í smíð-
um inni í Breiðholti.
Stöðin hefur stöðugt verið að
færa út kvíarnar. Má til dæmis
geta þess að fyrsta bílasímann
opnaði félagið í Kleppsholtinu
nokkru eftir að þaö var stofn-
aö. Nú eru þeir sautján talsins
víðsvegar um bæinn.
Frá 1950 hefur stööin haft
opið allan sólarhringinn og ári
síðar voru settir gjaldmælar í
alla bíla.
Félagið er nú aö reisa mikiö
og veglegt hús undir starfsemi
sína inni við Grensásveg. Verð-
ur það fimm hæðir. Þar munu
skrifstofur félagsins verða og
öll aðal starfemi, félagsheimili
og fleira.
í tilefni afmælisins er efnt
til happdrættis. Þeim, sem ferö-
ast næstu vikurnar með Hreyf-
ilsbílum, veröur afhentur happ-
drættismiöi í kaupbæti. Stend-
ur þetta happdrætti fram í jan-
úar, en þá veröur dregiö og
vinningarnir eru 300 dagsferöir
um nágrennj Reykjavíkur ein-
hvern tíma á tímabilinu 15. maí
til 15. september næsta árs.
Formaður félagsins er Ingjald-
ur Isaksson og var hann gerður
að heiöursfélaga á hátíðarhóf-
inu að Sögu.
Frá vinstri: Þorleifur Gíslason, meðstjórnandi, Ingjaldur ísaksson, formaður, Ingimundur
Ingimundarson, varaformaður, Gestur Sigurjónsson, ritari, Guðbjartur Guömundsson, gjald-
keri.
Hreyfilsmenn eiga það líka til að taka lagið á góðri stund. Innan félagsins er starfandi mynd-
arlegur kór og þarna sjáum við Hreyfilskvartettinn: frá vinstri, Vilhjálmur Sigurjónsson,
Guðbjörn Jensson, Haraldur Sigfússon og Magnús Hjartarson.
Ingjald Isaksson og afhenti honum heiðursskjal til marks um
að hann væri gerður að fyrsta heiðursfélaga félagsins.
.. og bílstjórarnir sveifluðu dömum sínum léttilega í takt við Hreyfilsvalsinn.