Vísir - 16.11.1968, Page 8

Vísir - 16.11.1968, Page 8
8 VISIR . Laugardagur 16. nóvembér 1968?, VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent tiJ. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: AxeJ Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610 11660 og 15099 Afgreifisla: Aðalstræti 8. Slmi 11660 Ritstjórn: Liugavegi 178. Simi 11660 (5 Unur) Áskriftargjald kr. 125.00 á mánuði innanlands I lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Stefnubreyting Tíminn sagði í forustugrein núna í vikunni, að gagn- ger stefnubreyting væri nú þjóðinni lífsnauðsyn eins og ástatt er í efnahags- og atvinnumálunum. Það er að sönnu ekki nýtt að sjá þá kenningu í Tímanum, að stefnubreytingar sé þörf. Og rökin fyrir kenningunni eru enn hin sömu og áður, sem sé að stefna ríkisstjórn- arinnar sé meginorsök erfiðleikanna. Til skamms tíma hélt blaðið reyndar fram, að allt sem á bjátaði væri sök stjórnarinnar, en upp á síðkastið hefur nokkuð verið slegið af þeirri fullyrðingu. Ekki er þó allt í sóm- anum enn um sanngirnina. Blaðið hefur það meðal annars eftir Eysteini Jónssyni, úr ræðu hans á Alþingi um gengislækkunina, að „aðalástæðan fyrir vandan- um geti ekki verið aflabrestur og verðfall“! Þetta leyfir sá maður að láta sér um munn fara, sem lengur en nokkur annar íslendingur hefur verið fjármálaráðherra. Honum er mætavel kunnugt að verðmæti útflutningsins hafa minnkað um eitthvað nálægt 45% síðustu tvö árin^ Sé það le:íc til þess að afla stjórnarandstöðunni fylgis,‘ að bera svona blekkingu á borð fyrir almenning, þá eru ísíendingar vérr að sér um einföldustu atriði efnahagsmálanna en hingað til hefur verið talið. Og ekki er aðferðin falleg og ber ekki vott um mikla ábyrgðartilfinningu, þegar þjóð- mni ríður á að standa saman og skilja til hlítar, að hún verður öll að ráðast gegn vandanum. Það er því önnur stefnubreyting en sú, er Tíminn hefur mest talað um, sem þjóðinni er nú lífsnauðsyn. Það er sú stefnubreyting, að forustumenn hennar á Alþingi — mennirnir, sem hún hefur trúað fyrir efna- hagslegu sjálfstæði sínu og frelsi — leggi á hilluna allan flokkaríg og atkvæðaveiðar og sameinist sem einn maður um að leita hinna beztu úrræða til bjarg- ar, þegar hætta steðjar að afkomu hennar og öryggi. Það kom fram í nýafstöðnum viðræðum stjórnmála- flokkanna um efnahagsmálin, að stjórnarandstæðing- um var þar engin alvara á samvinnu. Þar var aðeins gamla hentistefnan að verki, að vera óábyrgir, hafa óbundnar hendur, til þess að geta snúizt gegn ú'rræð- um stjórnarflokkanna og reynt að gera þau óvinsæl. í lýðræðisþjóðfélagi er vitaskuld ekkert við það að athuga, þótt einstakir þingmenn úr hvaða flokki sem er, hafi sérskoðanir á sumum atriðum slíkra stór- mála og séu þeim jafnvel andvígir. Einhver skoðana- munur af því tagi hefur eflaust verið innan stuðnings- flokka ríkisstjórnarinnar nú, meðan verið var að und- irbúa málið, en þá hefur hann verið ræddur og sjónar- miðin samræmd, með þá staðreynd í huga, að í öllum meginatriðum varð ekki hjá því komizt að gera það, sem gert var, til þess að afstýra þjóðarvoða. Dettur nokkrum í hug að stjórnarandstæðingar séu hinum fyrrnefndu svo miklu vitrari, að reiða megi sig á þá afstöðu þeirra allra með tölu sem heilindi og óbrigðula hagspéki, að þessar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar séu alrangar og þjóðhættulegar? ISIHI Ritstjóri Stefán Gubjohnsen Mörg mót standa yfir A8 fimmtán umferðum lokn- um í tvímenningskeppni Bridgefélags Reykjavíkur eru Símon Símonarson og Þorgeir Sigurðsson efstir með 210 stig yfir meðalskor. Eftirfarandi spil kom fyrir í síðustu umferð. — Staðan var a-v á hættu og aust- ur gaf. ♦ Á-6-5-2 V G-7-3 4 Á-D-7 4 K-8-6 4 D-10-9-3 4 K-8 4 D-4-2 V 10-8 4 G-10-8-2 4 K-9 4 9-4 4 D-G-10-7-5-3-2 4 G-7-4 4 Á-K-9-6-5 4 6-5-4-3 4 Á Af eðlilegum ástæðum voru öll n-s pörin í úttektarsögn á spilin, en það reyndist furöu erfitt að ná plússkor. Þar sem ég sá til gengu sagnir þannig: Austur Suður Vestur Norður 14 D P 1G P 24 P 24 P 34 P 3G Austur spilaði út laufadrottn- ingu, blindur átti slaginn og spilaði strax lághjarta. Vestur tók á drottningu og skipti yfir í tígulgosa, sem norður drap með ás. Sagnhafi tók nú hjört- un í botn, sfðan spaðaá^ og meiri spaða. Austur tók slaginn, spilaði laufi og sagnhafi fékk ekki fleiri slagi en laufakóng- inn. Einn niður. Það er augljóst, að einj möguleiki sagnhafa til þess að vinna spilið er að fá annaðhvort tvo slagi á spaða eða tvo slagi á tígul. Eftir opn- un austurs er líklegt að hann eigi þá punkta sem úti eru, eftir að vestur hefur sýnt hjarta- drottningu og tígulgosa. Sagn- hafi verður því að velja um, hvort hann spilar austur upp á spaðahjónin tvíspil, eða tígul- kónginn annan. rjrjrjrj mmmm Lugano-ólympíumótið Qlympíuskákmótið í Lugano er stærsta skákkeppni sem haldin hefur verið. Ails tóku um 340 keppendur þátt í mótinu, en það eru um 50 fleiri en voru á Ólympíuskákmótinu á Kúbu 1966. Þótt sigurinn í sveita- keppninni á Ólympíumótinu sé æðsta takmarkið, er einnig háð hörð keppni milli skákmannanna hverjir hljóta hæsta vinnings- hlutfall, hver á sínu borði. Heimsmeistarinn Petroshan varð efstur 1. borðsmanna í A- riðli en það afrek vann hann einnig á Kúbu 1966. Þá hlaut hann 11 y2 vinning af 13 mögu- legum, eða 88,5% og tapaði engri skák. Að þessu sinni hlaut hann 1014 vinning af 12 mögu- legum 87.5%. Einnig nú var Petroshan taplaus, eins og heims meistara vera ber. Gegn Úngverj anum Portisch hefur Petroshan áberandi lélegt vinningshlutfall. Var því viðureignar þeirra beöið með nokkurri eftirvæntingu. En af þeirri viðureign varð þó ekki Petroshan tók sér frí, er Sovét- ríkin tefldu gegn Ungverialandi og kom það f hlut Spasskys að fást við Portisch. Skák þeirra lauk með jafntefli eftir harða baráttu. Á 2. borði hlaut Tringov. Búlg aríu beztu útkomuna, 11 vinn- inga af 14 mögulegum, 78.6%. V-Þjóöverjinn Schmid fékk 9 vinninga af 12 möeulegum 75% og Spassky 10 vinninga af 14 mögul., 71,4%. Á 3. borði varð Kortsnoj hlut- skarpastur með 11 vinninga af 13 mögul. 84.6%. Á 4. borði varð Geller efstur, hlaut 9]/2 vinning af 12 mögul. 79,2%. Af varamönnum varð Smys- lov efstur með 11 vinninga af 12 mögul. 91.7% og var það jafn- framt hæsta vinningshlutfall i mótinu. Smyslov kom inn sem varamaöur fyrir Tal og þótti tefla sérlega vel. Polugaevsky, Sovétríkjunum hlaut 1044 vinn ing af 13 mögul. 80,8% og Bar- cza Ungverjalandi 10y2 vinning af 14 möigul. 75.0%. Enginn af sovézku keppend- unum tapaði skák og talar það skýru máli um yfirburði Sov- ézku skákmannanna á mótinu. íslendingar stóðu sig með á- gætum í mótinu, sérstaklega var frammistaða þeirra f undan- keppninni góð. 1 eftirfarandi skák mætast tveir snjallir sóknarmenn. Ann- ars vegar Englendingurinn M. Basman en hann er einn af efni- legustu skákmönnum Breta. Hins vegar fyrirliði ísl. sveit- arinnar, Ingvar Ásmundsson. — Ingvar er mikill og harðskeyttur keppnismaður op teflir snarpan sóknarstil. Það urðu því skemmtilegar sviptingar er þess ir tveir mættust. Hvítt: M. Basman Svart: Ingvar Ásmundsson Frönsk vörn. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Dd7. Algengara er 4 .. ,c5 5. a3 BxRt 6. bxB. Ingv. beitir hér einu vandtefldasta afbrigði frönsku varnarinnar, en Petros- I æfingakeppni Bridgesam-. bands íslands er staðan eftir níu umferðir þesiit. 1. Ámi Þorvaldsson og Sævar Magnússon 119 2. Simon Símonarson og Þorgeir Sigurðsson 110 3. Gísli Hafliöason og Gylfi Baldursson 109 4. Jón Ásbjömsson og Karl Sigurhjartarson 108 5. Þorsteinn Þorsteinsson og Sigurhjörtur Pétursson 101 1 kvennaflokki er staðan þessi eftir fjórar umferðir: 1. Ásta Flygenring og Guðrún Bergsdóttir 53 2. Halla Bergþórsdóttir og Kristjana Steingrímsd. 49 3. Ósk Kristjánsdóttir og Magnea Kjartansdóttir 44 4. Steinunn Snorradðttir og Þorgerður Þórarinsdóttir 41 5. Ása Jóhannsdóttir og Lilja Guðnadóttir 41. 4 Fimmta umferö í sveitakeppni Bridgedeildar Breiðfirðingafé- lagsins var spiluð þriðjudaginn 12. nóv., og er röðin að fimm' umferðum loknum: 1. Sveit Gissurar Guðmunds- sonar 38 stig (488:267) 2. Sveit Ingibjargar Halldórs- dóttur 35 stig (585:269) 3. Sveit Þórarins Alexanders- sonar 30 stig (478 : 333) 4. Sveit Olgeirs -'gurðssonar 23 stig (466 : 382) 5. Sveit Kristínar Kristjáns- dóttur 21 stig 514:396) han teflir einnig þetta afbrigði gjaman. 5. Rf3 Á Reykjavíkurmótimn 1964 lék Tal gegn Ingvari 5. a3 BxRf 6. bxB b6 7. Dg4 f5 8. Dh5t Df7 með nokkuð jafnri stööu. 5. b6 6. Bd3 Ba6 7. 0—0. Til greina kom 7. BxB RxB 8. 0—0 c5 9. Re2 En Basman er þekktur fyrir frumleik og fylgir engum alfaraleiðum. 7. BxB 8. cxB Re7 9. Re2 Rg6 10. Be3 0—0 11. Hcl Hvftur leggur kapp á að halda niðri c7—c5 hjá svörtum. Ingvar reynir þvl að skapa sér mögu- leika á miöborðinu. 11.. .. f5 12. exf e.p. gxf! 13. Bh6 Hf7 14. Rg3 Bd6 15. Hel Rc6 16. Rh5 Rce7!? Svartur lætur af hendi skipta- mun, en fær í staðinn hættuleg sóknarfæri. En í slíkum stöð- um er Ingvar hættulegastur. 17. Bg7! Haf8 Ekki gekk 17 ... HxB 18. Rxft og svarta drottn- ingin fel'lur. 18. BxH HxB 19. a3? Hægfara . leikur, en eftir 19. De2 e5 20. dxe fxe hefur svartur gott spil. 19.. .. c5 20. dxc bxc 21. d4 c4 22. Hc2 e5 23. Rxft? Hvítur er ekki ánægður með stöðuna og reynir að hressa upp á hana með taktískum brellum. En leikurinn er hreinn afleikur ' eins og Ingvar sýnir fljótlega fram á. 23 . .HxR 24. dxe HxRI 25. DxH Ef 25. exB Hd3 og svartur vinn- ur. 25 . . Rxe 26. Df6 R7g6 27. Hce2 Be7 28. Da6 Rd3 29. Hfl Rgf4 30. He3 Dg4 31. g3 Bc5 32. Df6. Aðrar leiðir voru jafnvonlausar T.d. 32. He8t Kf7 33. Dc8 Re2+ 34. Kg2 Rdf4+ 35. Khl Df3 mát 32.. .. Rh3+ 33. Khl Bx” 34. fxB De4t 35, Hf3. Eða 35. Df3 Rf2t og drottning- in fellur. 35 , . RdM 36. Dd8t Kg7 37 Dd7t Kh6 38. Dd6t Kh5 39. g4t Kxg og hér gafst Basman UPP. Jóhann Sigurjðnsson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.