Vísir - 21.11.1968, Page 2

Vísir - 21.11.1968, Page 2
V í S IR . Fimmtudagur 21. nóvember 1968. Sigurður Bjarnason — ánægður með lið sitt, iR-ingana. □ Það voru ekki aðeins íslandsmeistarar, sem fengu á baukinn á íslands- mótinu í handknattleik í gærkvöldi, — Reykjavík- urmeistarar Vals fengu líka útreið, sem þeir munu eflaust lengi minnast. ÍR-ingar, nýliðarnir í 1. deild komu, sáu og sigruðu, — nokkuð sem er of sjaldgæft meö nýliða í 1. deild. E.t.v. er nýtt stjörnulið í vændum? Allavega voru það ÍR- ingarnir, sem voru efstir í hug- um manna, þegar þeir yfirgáfu Höliina eftir þetta leikkvöld. Kannski hafa Valsmenn vanmet- ið mótherja sinn, ekki sízt efti'r að þeir komust í byrjun í 6:2. Ekki var þó ástæða til þess, því iR-liðið reyndíst öllu heilsteyptara og varð sigurvegari mjög réttlátlega. ÍR-ingarnir jöfnuðu í 6:6 og kom ! ust yfir í 8,7 í fyrsta sinn. I hálf- ! leik hafði ÍR yfir 12:11. Það var fyrst I seinni hálfleik að ÍR tókst að rífa sig fram úr Val í 16:13. Heldur dró sundur með liðunum en KAUPIÐNÚNA j hitt eftir þetta og tókst Valsmönn- i um aldrei að ógna sigri ÍR-inga f I seinni hálfleiknum. ÍR vann með 28:23 og er sérstök ástæöa til að óska liðinu og þjálf- ara þess, Sigurði Bjarnasyn; til hamingju með svo góða byrjun. Ekki var frítt við aö KR-ingar í hópi áhorfenda fengju skelk, þegar þeir sáu þetta ÍR-lið, hafa líklega séð fram á erfiðleika í keppninni í vetur. Markvarzia í þessum leik var eindæma lé’eg eins og markatölurn ar sýna. Er haft í flimtingum að markmenn okkar hafi illilega mis- skilið tilsögn Svíans Mattsons, sem kenndi markmönnum i fyrravetur. ÍR-liðið er skemmtilegt og marg- ir leikmanna ættu að njóta meiri athygii í framtíðinni, — iandsliðið ætti t.d. að geta fengið krafta það- Valsliðið var léiegt, vörnin eins og heljarmikil sía, sem hleypti öllu í gegn. Sérfræðingar sögðu að úti- lokað væri að sjá neitt varnarkerfi út úr leik þeirra, þar ægði raunar mörgum kerfum allkynduglega saman. Dómarar, Magnús Pétursson og Óli Ólsen voru heldur lélegir að þessu sinni. Svefnherbergishsísgögn Eik og tekk og hvítmaluð Mi Simi-22900 Laugaveg 26 FH fékk éskabyrjunina — vann Fram ■ íslandsmeistarar Fram urðu að sjá af tveim dýr- mætum stigum í gærkvöldi til erkióvinarins, FH, í fyrsta leik liðanna í íslands mótinu í handknattleik. — Spumingin, sem margir velta fyrir sér er sú, hvort Fram sé nú að dala eftir vel gengnisár í handknattleik. Síðustu þrem leikjum hafa Framarar tapað, en það hlýtur að teljast allóvenju- Jegt og eflaust langt að leita hliðstæðu. Leikur Fram í gærkvöldi var með 14:12 heldur lélegur ef lagðir eru venju legir leikir liðsins til samanburð- ar. Liðið náði aldrei verulegum hraða í lek sínum, það vantaði línusendingamar, skotin og jafn- vel vítaköstin brugðust. Var þá fok iö í flest skjól. E.t.v. hefur ástæðan fyrir þessu verið sú að Ingólfur Óskarsson fyrirliði liðsins var ekki meö vegna meiðsla Leikurinn var allan tímann jafn og spennandi fyrir áhorfendur, sem voru mjög margir, eflaust vel á 2. þúsund talsins. Einar Sigurösson, sá sterki vam- arleikmaður, sem ég hefði gjarnan viljað hafa með landsliðinu um síð- ustu helgi, var ekki síðri í sókn- inni fyrri hluta leiksins, skoraöi 3 mörk í fyrri hálfléik, bæöi af Iínu og með skotum gegnum vöm- ina. FH leiddi í leiknum þar til Gylfi Jóhannsson færði Fram forystuna meö 6:5, sem Geir jafnaði og Ein- ar skoraði síðan 7:6 fyrir FH, en í hálfleik var staðan 7:7. Eftir þetta hafði FH forystuna, nema hvað Fram jafnaði í 8:8 og f 10:10. Einhvem veginn lá sigur FH svo f loftinu að það var varla hægt að reikna með að Fram mundi geta náð yfirhöndinni, sem og kom i daginn. En hvers vegna? Leikur Fram var allt of dauf- ur og tilþrifalaus til þess að svo mætti vera. Þegar Geir skoraöi j 14:11 og eftir voru um 7 mín. 1 virðist sigur FH tryggöur, — eftir þetta kom aðeins eitt mark, Pétur Böðvarsson skoraði fyrir Fram og vann FH því 14:12. Guöjón átti þó tækifæri til að setja skrekk í Hafn- firðinganna, en vftakast hans varði Hjalti Einarsson. I Einnig FH getur betur. Líklega hafa þeir smitazt af Fram, liðin eru vön erfiðum hörkuleikjum og eru „innstillt" á barninginn. Dómarar voru Karl Jóhannsson og Bjöm Kristjánsson. Dæmdu þeir yfirleitt vel, en mér fannst á stund Framliðið í heild var lélegt, og i Ieiki en þennan í vetur og verða ! urn g®ta ósamræmis i dómum með sama áframhaldi er ekki annaö erfiðari viðfangs. j Bjöms, t.d. vítakast sem Gunnlaug- að sjá en að töpin veröi fleiri. Hins FH-liðið naut þess að Hjalti Ein ur ^kk vegna brots úti í homi, vegar er vitanlega nokkum veginn j arsson varði mjög vel, en í heild | Þar sem hann snéri baki að mark- lj, Páll Eiríksson fær góðar móttö kur í Framvörninni í gærkvöldi. REYKJAVÍKURMEISTARAR VORU LAGÐIR AÐ VELLI AF NÝLIÐUM

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.