Vísir - 29.11.1968, Page 4
-ss.
Þriðja brúðkaup DIÖNU DORS
1 þriðja skipti giftist Diana
Dors, en það geröist núna á laug
ardaginn, og að þessu sinni hafði
hún þekkt brúðgumann aðeins í
sex vikur.
Hinn hamingjusami er leikarinn
Alan Lake, 28 ára gamall maður,
sem getið hefur sér frægö fyr-
ir leik I sjónvarpi.
Þau kynntust fyrir sex vikum,
þegar þau hittust í sjónvarps-
tökusal vegna undirbúnings fyrir
upptöku sjónvarpsþáttar.
„Það var ást við fyrstu sýn ...
eins og tveir seglar drægjust
hvor að öðrum!“ sagði Alan Lake
við fréttamenn eftir brúðkaupið
um helgina.
„Aö kynnast honum, var eins
og að lenda fyrir járnbrautarlest“
sagði Diana Dors, sem nú er orö-
in 37 ára.
Eins og vænta mátti, þegar
Diana Dors er annars vegar, var
brúðkaupið haldið með pompi og
prakt, og glæsibragurinn á brúö-
hjónunum minnti á Hollywood.
Hún var klædd mini-brúðarkjól,
eins og myndin sýnir, en hann
var í svörtum flauelsfötum. Hér
og þar glitti f gull í kjólnum
hennar. I festargjöf gaf hún hon-
um agnarlítið úr i afar voldugri
gullfesti, en hann gaf henni hring
úr gulli.
Annars var Diönu ekkert um
spumingar blaðamanna varðandi
verðmæti brúðargjafanna. „Það
er viðkvæmt mál“, sagöi hún, en
hún stendur um þessar mundir
í málastappi vegna 48.000 sterl-
ingspunda skuldar við skattayfir
völdin, og altalað var, að hún
heföi verið orðin gjaldþrota.
Aðspurður um aldursmuninn á
þeim svaraði Alan Lake: „Það
skiptir mig engu. Fjárhagsvand-
ræði hennar skipta mig engu held
Þegar ráðherra tekst á loft
Flugneminn,
Franz-Jósef
Einn meðlima Burda-flugsveitarinnar býður ráðherrann velkom
inn í hóp flugliða á sveitarinnar vísu. Með því að klappa honum
með tennisspaða á ónefnanlegan stað!
Strauss var rétt ný lentur eftir
sitt fyrsta sólóflug, þegar hann
þurfti að ganga í gegnum löngu
uppteknar seremóníur, likt og
aðrir þýzkir flugmenn hafa gert
á undan honum. Félagar hans
klipptu stórt stykki neðan af
bindinu hans.
„Herra flugmálaráðherra,“ á-
varpaði einn skólabróðir hans
hann. „Getið þér talið þetta til
frádráttar á skattskýrslunni?"
„Ég mundi ekki gera það, þótt
ég ti“, svaraði þýzki fjármála-
ráöherrann hlæjandi. Sem tóm-
stundagaman hefur hann tekið
upp flugnám og þegar hann hef-
ur náö nægilegri leikni, hefur
hann í huga að fá sér eina litla
rellu. Hann á orðið 40 tíma að
baki í loftinu.
„Maður verður að einbeita sér
og hafa hugann viö stjómtækin
(Steuerknúppel á þýzku), en það
getur verið erfitt, þegar maöur
er með hugann bundinn allan
við skatta (sem eru líka Steuem
á þýzku)“, segir Strauss kíminn.
„Og það kostaði sextán mörk!“
Ráðherra eða ekki ráðherra.
Flugstjóri verður alltaf að ganga
úr skugga um, að allt s ' í fuíl-
komnu lagi meö vélma hans, og
þá auövitaö, hvort olíuþrýsting-
urinn sé hæfilegur. Þegar allt er
I lagi, á ekkert óhapp að geta
komið fyrir. Strauss er einn af
þeim, sem er handviss um, að
hættulegasti kafli flugsins sé öku
ferðin út á flugvöll.
3. brúðkaupið. Diana og Alan Lake 1968.
ur. Ég er sjálfur það vel á vegi
staddur, að ég ætti að geta hjálp
að henni í þeim efnum.“
1 annan staö sagði hann: „Ég
held, að Díana muni skipta um
skoöun varðandi heimilislíf og
hver eigi að veröa húsbóndinn á
heimilinu. Á mfnu heimili er ég
húsbóndinn.“
Hann mun hafa haft í huga
hin fyrri hjónabönd Diönu, sem
áður var gift Dennis Hamilton og
síðan Dickie Dawson. Hún giftist
Hamilton 1951, en hann lézt 1959'.
Síðar það ár giftist hún gaman-
leikaranum Dawson, en þau
skildu í fyrra.
í framtíöinni hafa þau hugsað
sér að koma upp búgarði, líklega
í Dorset, þar sem þau ætla að
leggja áherzlu á hrossarækt og
þá veðhlaupahesta.
Maður óvæntra
viðbragða
Þrátt fyrir það, aö ýmislegt
gengur á í heiminum alla jafna,
er þó ein persóna, sem öðrum
fremur vekur athygli fólks, ann
aö hvort aðdáun eða ógnvekj-
andi undrun. Óvænt viðbrögð
og snarar ákvarðanir sem varð-
ar milljónir manna, koma frá
þessum manni, sem svo oft er
deilt um. Ýmsir hefja hann til
skýjanna, en aðrir teija hann
bókstaflega geggjaðan. Þessi
maður, sem ég á við er auðvitað
de Gaulie. Kannski er hann lílca
ofurmenni og kannski er hann
líka geggjaður, eins og margir
vilja vera iáta. Þetta mun geta
farið saman. Eitt er víst, að
hann kom fram á sjónarsviöið,
þegar mest á reið fyrir frönsku
þjóðina, og pólitískt öngþveiti
kollsteypti hverri ríkisstjóminni
á fætur annarri. Honum auðnað
frankans, eftir að helztu fjár-
málasérfræðingar höföu taliö
það óhjákvæmilegt. Þegar svo
ákvörðun forsetans var öllum
de Gaulle það ofurmenni, sem
margur telur eða er hann í raun
inni valdasjúkur og fullur mik-
ilmennskubrjálæðis, eins og ýms
ist að sameina Frakka aö nýju
um stjórn með forystuhæfileik-
um sínum. Æ síðan hafa óvænt
ar ákvaröanir hans komið mönn
um til að deila um ágæti mikil-
vægustu athafna hans.
Hið síöasta sem fékk menn
til að sperra eyrun, var sú á-
kvörðun að lækka ekki gengi
ljós, þá deila helztu sérfræðing
ar um þaö, hvort um sé að
ræða snjaliræði afburðamanns-
ins, eða algjöra geggjun. Þaö
er ekki að furða, þó við hinir
almennu borgarar i fjarlægð,
sem höfum gaman að þvf að
velta fyrir okkur stóru málun-
um fylgjumst með af áhuga. Er
ir aðrir hafa talið hann vera?
Það gustar að minnsta kosti af
honum, og það er meira en hægt
er að segja um margan forustu
manninn.
Hitt er öllu hættulegra þegar
slikt skeður, að snílli afburða-
mannsins á einstökum sviðum,
getur teymt þjóðir til ýmissa
óhæfuverka á öðrum sviðum, en
slíkt á sér nokkurt fordæmi,
sem vonandi á ekki eftir að end
urtaka sig.
Það er ekki nokkur vafi, að
de Gaulle er óvæntasti áhrifa-
valdur í stjórnmálum Evrópu,
og vonandi á hann ekki eftir
að valda frelsisunnandi þjóðum
vonbrigðum með skjótum og 6-
væntum viðbrögðum. Með tiiliti
til stórbrotins ferils er de
Gaulle sá maöur, sem fólk trúir
helzt til ótrúlegustu viðbragða,
sem ekki væru alltaf í samræmi
við það, sem öðrum þjóðum
kann að verða fyrir beztu. Slíkir
menn geta oft verið aðdáunar-
verðir vegna voldugra ákvarð-
ana á örlagastundum, en einn-
ig ógnvekjandi vegna hins ótrú-
lega. Þrándur í Götu.