Vísir - 29.11.1968, Síða 10
VISIR . Föstudagur 29. nóvember 1968.
w
Leynimelur 13 og
y sænsku leikuru-
vikun
1 kvöld veröur síöasta sýning á
Leynimel 13 — fyrir jól. Einn leik-
endanna i Leynimelnum, Guömund-
ur Pálsson, er á förum utan til
þess aö vera á sænsku leikaravik-
unni f Stokkhólmi og veröa sýn-
ingar því að falla niður að sinni.
— Þær verða teknar upp aftur
eftir áramót og þá ráðgerðar tvær
sýningar.
Ræft um uð geru
,gjuldþrotu' spuri-
sjóð uð Verkulýðs-
bunku
• Þaö kom okkur óneitanlega
spánskt fyrir sjónir, aö Spari-
sjóði Aiþýöu verði breytt í Verka-
lýðsbanka eins og vilyrði hefur feng
izt fyrir, sagði Gunnlaugur Amórs-
son, forstöðum. bankaeftirlitsd.
Seðlabankans í viðtali við Vísi í
morgun. Hann staðfesti þær upp-
iýsingar, að rekstrarhalli sparisjóðs-
ins hefði verið 800 þús. krónur á
sJ. ári, en eigið fé sparisjóðsins
næmi ekki nema 300 þús. krónum.
Sparisjóöurinn hefði því raunveru-
iega verið gjaldþrota, ef hann hefði
verið gerður upp um s.l. áramót og
skuldað hálfri milljón betur. Gunn-
laugur sagðist ekki telja, að staða
sparisjóðsins væri mikið betri nú.
Hermann Guðmundsson, formað-
ur stjómar sparisjóðsins, skýröi frá
því f ræöu á þingi ASÍ í gær, að
fyrirhugað væri að breyta spari-
sjóðnum í Verkalýðsbanka og heföi
samþykki ríkisstjómarinnar fengizt
fyrir því. Þingiö samþykkti einróma.,
stuðning viö þessi áform og aðitöár
félög ASf vom hvött til að veita hin
um væntanlega banka allan stuðn-
ing sinn.
Gunnlaugur upplýsti, aö sparisjóö
urinn væri líklega nú aö verða svo
öflugur, aö hann ætti aö geta sýnt
hagnað eins og t. d. Sparisjóöur
vélstjóra, sem heföi sýnt góðan
hagnað á s.I. ári. Að ýmsu leyti
hefðu þessir tveir sparisjóðir þó
farið misjafnlega að í fyrstu. Mikil
vinna hefði verið gefin fyrst eftir
að Sparisjóður vélstjóra hefði verið
stofnaður, sem hefði hjálpað spari-
sjóðnum yfir byrjunarerfiðleika.
Um slíkt hefði ekki verið að ræöa
í Sparisjóði Alþýðu eða a. m. k. ekki
í sama mæli.
Fjármagnið, sem Sparisjóður Al-
þýðu hefur haft f veltuna, mun að
mestu hafa verið fengið frá spari-
fé almennings og mörg verkalýðs-
féiaganna hafa lagt þá aukningu í
sjóðum sínum, sem hefur orðið síð-
an sparisjóöurinn var stofnaður,
inn í sparisjóðinn.
Ekki reyndist unnt í morgun aö
ná tali af sparisjóösstjóranum eða
formanni stjómar sparisjóðsins.
Fösfudagsgr. —
9. síðu.
hinn vestræna heim. Þá tók
de Gaulle þátt í leiknum af því
að hann sá sér þá leik á borði
til að sýna umheiminum að hið
bandaríska veldi byggðist að
verulegu leyti á stuðningi hins
evrópska peningakerfis, alveg
eins og evrópsk fjármál eru
háð Bandaríkjunum.
En nú er hlutverkum breytt.
Bandaríkjamönnum tókst þá að
standa af sér veörið, einfaldlega
vegna þess að þeir voru sterk-
ari en gjaldeyrisbraskaramir
hugðu, en nú kreppir að Frökk-
um.
Áfram var sami leikurinn leik
inn við gengislækkun sterlings-
pundsins, þá lögðust gjaldeyris-
braskararnir með öllum sínum
þunga á sterlingspundið og
skildu traust þess eftir í rúst
um leið og þeir hirtu sinn gróða
hreinan á borði.
T,að fordæmi, sem de Gaulle
hefur gefiö nú, er fyrst
og fremst, að taka verðj í taum
ana á þessu ógeöslega alþjóð-
lega gjaldeyrisbraski stórfjár-
magnsins. Það er orðið alvarlegt
spiliingarafl í vestrænum fjár-
málum, sem alltaf verkar til ills
þar sem erfiðleikarnir eru mest-
ir hverju sinni. Þannig verða
lítil vandamál stór, þau bólgna
út og gefa engin grið. Þau
skapa ef til vil ekkj upphaflega
vandamál jafnvægisleysisins, en
hvar sem á hallast eru þau fljót
að finna sér ætlunarverk og
valda ósegjanlegum glundroða
í fjármálum og atvinnulífi
heimsins.
Þorsteinn Thorarensen.
Til leigu
3ja herb. íbúð við Tómasarhaga.
Uppl. í sima 82216 eftir kl. 5 i
dag.
LEIGAN s.f.
Vinnuvélar til leigu
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og fleygum
Rafknönir Steinborar
Vatnsdœlur ( rafmagn, benzín )
Jarðvegsþjöppur Rafsuðutœki
Víbratorar
Stauraborar
Slípirokkar
Hitablásarar
HÖFDATUNI 4-
iiMI 23480
Hannibal —
1. síðu.
á 9 miðstjómarmönnum, en alls
skyldi kjósa þrettán til viðbótar
forseta og varaforseta. Var því
Alþýðubandalaginu eftirlátið að
kjósa fjóra. Snorri Jónsson lýsti
því yfir, að ekkert samkomulag
væri við sína menn um þetta, en
bar þó fram tillögu um fjóra
menn til viðbótar.
Kjörnir voru: Af Framsóknar-
mönnum: Óðinn Rögnvaldsson
og Baldur Óskarsson. Af Sjálf-
stæðismönnum: Guðmundur H.
Garðarsson, Guðjón S. Sigurðs-
son og Hilmar Guðmundsson.
Alþýðuflokksmennimir Jón Sig-
urðsson, Jóna Guðjónsdóttir og
Óskar Hallgrfmsson, Hermann
Guðmundsson, ,utan flokka, og
loks Alþýðubandalagsmennirnir
Eðvarð Sigurðsson, Snorri Jóns-
son, Einar Ögmundsson og Jón
Snorri Þorleifsson. Vom allir
þessir fulltrúar sjálfkjömir.
• •
Oízuhennófa
Hnefafylli —
6. sió-
er lagt miklu meira en áður upp
úr hrottaskap og ofbeldi. Ekki er
reynt að draga upp raunsæja og
sannferðúga mynd af „Villta
vestrinu“, heldur er hér á ferð-
inni stílfært ævintýri, þar sem
persónurnar em ekki venjuleg-
ir menn, heldur ýktar týpur.
Clint Eastwood Ieikur aðal-
hlutverkið f þessarj mynd, en
hann er kunnur sjónvarpsleik-
ari, sem komst aldrei „alveg á
toppinn" í Bandaríkjunum, en
hefur slegið í gegn í evrópskum
kúrekamyndum. í þessu hlut-
verki stendur hann sig með
prýöi, enda hefur hann ekki
skort atvinnu síðan þessj mynd
var gerð.
Sem sagt: mynd fyrir þá, sem
vilja hafa líf í tuskunum.
Námaskarð —
m>-> i síöu
í fyrrinótt varð svo sprenging
á staðnum og nýr gufuhver mynd-
aðist, sem að líkindum liggur á
sömu jaröhitaæð og borholan, sem
fyrr er getið um.
Þessi gufuhver gaus hátt í loft
og þeytti miklum leirslettum frá
sér um nágrennið, þannig að bor-
turninn þar nálægt er löðrandj í
leir og sömuleiðis er leirlag á að
gizka um tíu sm. þykkt á þökum
nálægra bygginga.
Víðar á þessu svæði leggur nú
mikla gufu upp úr jörðinni, svo að
ekki er útilokaö, að von sé á fleiri
gosum af þessu tagi, en þeir sem
vinna þama á svæðinu halda áfram
vinnu sinni viö aö setja niður vél-
ar fyrir kísiliöjuna eins og ekkert
hafi í skorizt.
Allmikið jarðrask hefur orðið á
svæðinu viö tilkomu hins nýja
hvers, sem er stór að ummáli.
Svæðið hefur einnig hitnað all
nokkuð, en ekki hefur ennþá verið
rannsakað til hlítar hvað þarna
er á seyði, svo aö erfitt er aö spá
um, hvort frekari umbrota er að
vænta á svæðinu.
Herra-
sloppar
(ullarefni).
AÖeins kr. 1285.
Hlý og góð jólagjöf.
Alafoss
Þingholtsstræti 2.
BLAÐ FYRIR VESTFIRÐl
NORÐUR- OG AUSTURLAND
íslmdhufut
-Isaíold
Vestfirðingar Norðlendi. gar!
og Austfirðingar heima og;
heiman! Fylgizt með <
„ISLENDINGI — ÍSAFOLD“8
Áskrift kostar aðeins 300 kr.
Askriftarsíminn er 96-21500.
Gæði Þjónusta
Höfum
kaupendur
Vegna mikillar eftirspurnar
hef ég kaupendur að eftirtöld-
um íbúðastærðum
að 2ja herb. íbúðum. Utborg-
un kr. 200 — 500 þús. bæði í
R.vík og Kópavogi.
að 3ja herb. íbúðum. Útborg-
un kr. 300—650 þús. bæði <
R.vík og Kópavogi.
aö 4ra herb. íbúðum. Útborg-
un kr. 500—800 þús. bæði i
R.vík og Kópav.
Hef góðan kaupanda að
tveggja íbúða húsi í R.vík eöa
Kópav.
Fasfeigtio
míðstöðin
Austurstræti 12
Símar 2042^ - 14120
hei. 83974.
WILTGN TEPPIN SENS IK?AST 0G EJIP’ST
EINSTÆÐ ÞJÓNUSTA! — KEM HEIM TIL YÐAR MEÐ SÝNISHORN. TEK MÁL OG
GERI BINDAN^" VERÐTiT BOÐ YÐTTR AUSU!
Daníe Kjartansson . Sími 31283.
TTiTiTHr
T
BELLA
Þetta er hugmynd forstjórans,
að láta ruslakörfuna vera í bréfa
safninu. Hann heldur því fram
að ég hafi hent allt of mörgum
mikilvægum bréfum undanfarið.
Skólarnir eru nú sumir að taka
til starfa aftur. Barnaskólinn verð
ur ekki opnaður fyrr en eftir ára
mót.
Vísir 29. nóv. 1918.
VEÐRIf*
, DAG
Suðaustan gola,
skýjað, en þurrt
að mestu. Hiti 4-7
stig.
llllKMET
Hellaristur fundust fyrst í
Chaffaud, Frákklandi árið 1834
en fjöldi þeirra, sem hægt var að
rekja til ákveðins tímabils var tak
markaður. Elztu hellamyndirnar,
sem vitað er um eru í La Ferr-
asse, rauðar og svartar litflögur,
sem einna helzt Iíktust dádýri,
voru taldar frá tímanum 25.000
fyrir Krist. Aðrar rannsóknir gefa
það til kynna að hellamyndir í
Lascaux f Doordogne í Frakk-
landi séu fyrir 65.00 fyrir Krist.
TILKYNNINGAR
Basar Sjálfsbjargar verður f
Lindarbæ sunnudaginn 8. des.
kl. 2. Velunnarar félagsins, eru
beðnir að koma basarmunum á
skrifstofuna eða hringja 1 síma
33768 (Guðrún). — Basarnefndin
Kvenfélag Óháða safnaðarins.
Félagskonur og aðrir velunnar-
ar Óháða safnaðarins eru góðfús-
lega mi. ntir á barar félagsins,
sem verður sunnudaginn 1. des.
í Kirkjubæ.
8BWBBS—^