Vísir - 29.11.1968, Page 13

Vísir - 29.11.1968, Page 13
:V í SIR . Föstudagur 29. nóvember 1968. v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v; ■ > V.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.’.V 13 iiGJALLAR- I HORN HEIMDALLAR l'Ritstj. PéturJ. Eiriksson TVTenntaskólinn við Hamrahlið ■^hefur orðið að umræðu efni manna á meðal að undan- förnu. Hafa sennilega mestu valdið þær mótmælaaðgerðir sem nemendur þessa skóla hafa staðið að í haust og vakið hafa allmikla athygli. Virðast ýmsir uggandi yfir þróun mála í skóla þessum, enda telja sumir þetta ótvírætt merki um kommúníst- ískar tilhneigingar meðal nem- enda. Hafa blöðin gert sitt til að styrkja þessa skoðun með því að gera í skrifum sínum mót- mæli þeirra gegn innrás Var- sjárbandalagsríkjanna í Tékkó- slóvakíu og skrílslæti Æskulýðs fylkingarinnar að hinu eina og sama — nú síðast í forystu- greinum tveggja þeirra fyrir nokkru. Skrifum þessum hafa nemendur látið ósvarað, þó að þau séu bein móðgun við alla lýðræðissinna innan skólans, enda bera þau ljósan vott um þröngsýni hlutaðeigandi blaða, þar sem þau gera litla karla stóra með því aö eigna kommún istum þaö unga fólk sem ekki lætur í Ijós kæruleysi yfir því óréttlæti sem á sér stað í heim inum, eins og innrásinni í Tékkó slóvakíu. Þar meö telja þeir mál stað sínum borgið. Sl. miðviku dag birtir svo Morgunblaðið i heild ritstjórnargrein Benevent- um, skólablaðs M.H. Fylgja grein inni þau ummæli að í henni „birt ist vafalaust eitthvað af þeim hugsunarhætti, sem hefur verið að grafa um sig í þessum skóla". En þarna er verið að gefa í skyn að skoðanir ritstjóra Benevent- um séu allsráðandi í M.H. Er það vissulega fljótfærnisleg full yrðing, því að þessi sjónarmið, sem bera keim af anarkisma, eiga fáa formælendur i skólan- um. Hins vegar virðist Mbl. ekki gera sér grein fyrir, að i Menntaskólanum við Hamrahlíð rikir frjáls skoöanamyndun og .V.V.SVAV.V.V.V.V.V.V.V.VV.V ef Mbl. berst heilshugar fyrir þeim hugsjónum sem það segist herjast fyrir þá ætti þaö ekki að vera á móti slíku. En Mbl. virðist aftur á móti vera aö reyna að læða því inn hjá þjóð inni að í Menntaskólanum við Hamrahlið þróist þjóöhættuleg- ur hugsunarháttur, án þess að hafa nokkuð annað fyrir sér, en mótmælaaögerðir, sem það ann aðhvort skílur ekki eða vill ekki skilja hvers eölis eru, —og grein skrifaöa undir nafni eins af þeim 470 einstaklingum sem sækja skólann. —pje— Hvað er að gerast í Menntaskólanum við H amrahlíð? jj • Að gefnu tilefni hefur Gjall- arhorn fengið þrjá Heim- dellinga úr Menntaskólanum við Hamrahlíð til að skýra frá þeim stjómmálaanda sem þeim virð- ist ríkja meðal nemenda í skól- anum. Steinar Þór Guðlaugs- son: TVTér finnst stjórnmálaandinn 1 í M.H. góður hann virðist vera öflugri o gfrjórri en al- mennt gerist í líkum stofnun- um hér íborg. — Hult föllin milli skoðanahópa virð- ast nakkuð jöfn. Það er engin komrrmgrýla sem tröllríður skól anum eins og sumir virðast halda. Að undanförnu hafa heyrzt raddir meðal manna um að skól inn sé ein stór kommúnistasella er þeir vaða í villu og reyk, þeir góöu menn. Nú síðast var það Morgun- blaðið sem var með aðdróttanir í þessum dúr og var tilefnið ný- útkomið skólablað Hamrahlíðar- skælingja. Við útgáfu skólablaðs eru nokkur atriði sem ég held að hafa beri í huga. Skóli er stofnun, sem ber að gæta fyllsta hlutleysis. Því er blað gefið út á vegum nemenda sambandsins að vissu marki á- byrgt gagnvart skólanum sem hlutlausri stofnun, en samt sem áður finnst mér ekki stætt á því í nútímaþjóðfélagi að skólablað megi ekki vera vettvangur póli- tiskra vangaveltna. Mér finnst sjálfsagt að leyfa eigi birtingu pólitískra greina svo fremi sem tryggt sé að svargreinar og greinar sem túlka aðrar sgoðanir fái inni líka. — En annað tel Steinar þór Guðlaugsson ég gilda um ritstjórnargreinar og sjálft andlitiö, — forsíðuna. Þar tel ég að gæta beri fyllsta hlutleysis. . Ritstjórn skólablaðsins hefur aftur á móti gert sig seka um að viðhafa pólitískan áróður bæði á forsíðu og í ritstjórnargrein. Þrátt fyrir það þurfa Morgun- blaðið og Mánudagsblaöið ekki að láta að því liggja að skólinn sé ein allsherjar kommúnista- sella, því að í þessu tilviki var það aöeins þröngur hópur, sem misnotaði sér aðstöðu sína í rit- nefnd til þess að viðhafa pólitísk an áróður. Þessi skrif fyrrnefndra dag- blaða verða vonandi ekki til þess að varpa skugga á þessa merku menntastofnun, sem er ein af brautryðjendum nútíma kennslu aðferða hér, heldur til þess að nemendur taki höndum saman í næstu kosningum og losi sig við óábyrga menn úr valdastöðum. Losi sig við þennan hóp sem í skjóli aðstöðu sinnar innan rit- nefndar viðhefur skrif í rit- stjórnargrein sem gætu varpað skugga á skólann. Jón Grfmsson: 'p'rá því skölinn tók til starfa, haustið 1966 hefur talsvert borið á kommúnistískum öflum meðal nemenda, en með árunum hefur fylgi þeirra farið þverr- andi. Hægri menn hafa aldrei talið hæ-,u stafa af þessu, því það eldist af mönnum eins og aðrir bernskukvillar. Vegna innrásarinnar í Tékkó- slóvakíu~ stóðu nokkrir bæði vinstri og hægri sinúaðir nem- endur fyrir mótmælaaðgerðum. I tyrra skiptið var mótmælt fyrir framan skrifstofu a-þýzka verzlunarfulltrúans en í seinna skiptið við rússneska sendiráð- ið, daginn fvrir afmæli kommún istabyltingarinnar þar í landi. Af okkar .íálfu komu ekki neinar óspektir til greina. en eins og ■ ■ ■ ■■■_■_■ ■_■■_■ ■_■■■■ ■_■_■_■_■■_! allir vita kom til talsverðra rysk ingja milli lögreglunnar, og þeirra sem viö þessar mótmæla aðgerðir voru. En þótt handtök lögreglunnar hafi verið nokkuð hrottaleg þarna, myndi mér aldrei detta í hug að samþykkja gífuryrði Kristjáns Guölaugsson ar ritstjóra „málgagns nemenda sambandsins" Beneventum í þeirra garð, og Morgunblaðiö fjallaði um sl. miðvikudag. Af því tilefni vil ég vekja at- Jón Grímsson hygli á þvi að a.m.k. var þetta tölublað ekki málgagn nemenda í heild. heldur ritstjórnarinnar, sem er að mínu áliti þröngur hópur sem aðeins minnihluti nemenda er sammála. Aö lokum vil ég geta þess, að ég hefi ekki ætlað mér að taka þátt í neinum mótmælaaö- gerðum með vinstri sinnum inn an skólans oftar en það er af því að þeir hafa bendlað okkur við aðrar mótmælaaðgeröir af ann- arri tegund, sem er öldungis ó- satt að við höfum tekið þátt í. Gunnar Gunnarssún: j^emendur virðast flestir vera tiltölulega lausir við flokka- pólitík, aö minnsta kosti setja flokkspólitísk sjónarmið engan svip á skólalífið. Skólaandinn er ekki sýrður neinni ákveð- inni stjórnmálastefnu. Hins veg- ar virðast mér nemendur vera umbótasinnaðir í þjóðfélagsmál- um og vakandi fyrir félagslegum framförum í skóla sínum. Hitt vil ég taka fram að orð- rómur sá sem hefur gengið um aö meirihluti nemenda séu „rauðir" á sér enga stoö að mínu viti. Féflagsstorfið þessa viku Föstudag 29. nóv. Dansleikur í Las Vegas Laugardag 30. nóv. kl. 1.30 — Klúbbfundur í Tjarnarbúð. Þriðjudag 3. des. kl. 20.00 opiö hús. Fimmtudag 5. des. Skólakvöld — M.R. Styrkveitingar Félagsmenn eða ekkjur þeirra, sem' óska eft- ir styrk úr Styrktarsjóði Meistarafélags húsa- smiða Reykjavík, sendi skriflegar umsóknir til skrifstofu félagsins Skipholti 70 fyrir 10. desember n.k. í umsókninni skal greina fjölskyldustærð og heimilisaðstæður. _________________ Stjórnin.___________________ ÁLFTAMÝRI 7 f ' ÓMAHÖSIÐ simi 83070 Blómin meðhöndluð af fagmanni Opið öli kvöld og helgar. YMISLEGT Svissnesk úr. Þórður Kristófersson úrsm. Sala og viðgerðaþjónusta Hríeateig 14 (Hornið við Sundlaugaveg.) Sími 83616 Pósthólf 558 - Reykjavík. rrt^i.'sv. r—' 1111 ■ 'vmw.mm GÓLFTEPPALAGNIR GÓLFTEPPAHREINSUN HÚSGAGNAHREINSUN Söluumboð fyrir: VEFARANN TEPPAHREINSUNIN BOLHOITI 6 Slmar: 35607 - 4123» 34005 SPARH) TÍMA OG FYRIRHQFN RAUOARARSTÍG 31 SfMI 22022 TRÉSMIÐJAN VÍÐIR H.F. AUGLÝSIR Látið yður verða rrrikið úr k rónunni Stærsti húsgagnaframleiðandi landsins býður yður nú sem fyrr upp á fjölbreyttasta húsgagnaúrval sem v"I er á, á einum stað. Afborg- unarskilmálar okkar eru löngu landsþekktir fyrir hve hagstæðir þeir eru viðskiptavinum. Verzlið þar sem úrvalið er mstt og kjörin bezt. Nýkomið mikið úrval af BORÐSTOFUSETTUM, STÓLUM og SKÁPUM Verzlið í VÍÐI ^ímar: 2 22 22 22229 — ; -

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.