Vísir - 30.11.1968, Síða 8
8
V1SIR . Laugardagur 30. nóvember 1968.
VISIR
Otgefandi. Reykjaprent hJ.
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aóstoðarritstjóri: Axel Tborsteinson
Fréttastjóri: Jón Blrgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Slmar 15610 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Simi 11660
Ritstjóm: í augavegi 178. Simi 11660 (5 linur)
Askriltargjald kr. 125.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 10.00 eintakiö
Prentsmiðja Visis — Edda hi.
50 ára fullveldi
A morgun eru liðin 50 ár frá því að ísland varð sjálf-
stætt ríki; og hafði þjóðin þá lotið erlendu valdi í sam-
fellt sex og hálfa öld. Gleði þjóðarinnar þennan frels-
isdag var þó blandin harmi, því að hér geisaði þá
mannskæð drepsótt, sem daglega lagði fjölda fólks
í gröfina. Eigi að síður var frelsinu fagnað efti'r því
sem tök voru á við þessar aðstæður, og ýmsum er
enn í minni athöfnin, sem fram fór við stjórnarráðið,
og sumir þefrra telja hana einn af mestu viðburðum
lífs síns. Við getum hugsað okkur, hve glaðir og stolt-
ir þeir voru, sem fremstir höfðu staðið í sjálfstæðis-
baráttunni undanfarin ár, og áratugi og fengu að lifa
þennan dag og sjá íslenzka fánann dreginn að hún.
Fimmtíu ár, hálf öld, er stuttur tími í lífi þjóðar og
aðeins andartak af eilífðinni, Eigi að síður hefur þessa
hálfu öld orðið meiri bylting í lífsháttum og lífsvið-
horfum allra siðmenntaðra þjóða en á mörgum öldum
þar á undan. Þetta á ekki hvað sízt við um okkur ís-
lendinga. Allt fram að þeim tíma er við fengum sjálf-
stæði höfðum við búið hér við frumstæð lífsskilyrði,
atvinnuhætti, húsakost og samgöngur, sem lítið höfðu
breytzt frá upphafi íslandsbyggðar.
Þær raddir heyrðust bæði erlendar og innlendar,
þótt þær síðamefndu væru fáar og hjáróma, að við
værum of fáir og smáir til þess að taka öll okkar mál
í eigin hendur og stofna sjálfstætt ríki. En engin þjóð
er svo fámenn, að hún vilji ekki stjóma sér sjálf, og
hún á rétt til þess að fá að reyna það. Reynslan sker
svo úr, hvort hún veldur hlutverkinu. Enginn mun
halda því fram, að íslendingar hafi ekki staðizt þessa
prófraun. Um það vitna þær stórstígu framfarir, sem
hér hafa orðið síðan 1918. Segja má, að við höfum
farið hægt af stað, enda komu þá erfiðir tímar næstu
árin og um margt ekki ósvipaðir þeim sem við lifum
nú; þá kom kreppa og verðfall, sem lék marga illa, en
þjóðin missti ekki trúna á sjálfa sig og framtíðina, og
þá þegar voru hér til hugsjónamenn, sem dreymdi um
stóriðju.
Gg áfram miðaði í rétta átt. Þjóðin fann, þ'rátt fyrir
ýmsa erfiðleika, hver munur það var, að ráða málum
sínum sjálf. Aftur syrti að á árunum milli 1930 og
1940, en upp úr því fer að rofa til, og það sem síðan
hefur gerzt, er ævintýri líkast. Óþarft er að rekja það
hér. Það blasir við allra augum, og flestir vita, hvemig
hér var ástatt fyrir 30—40 árum um húsakost, sam-
göngur, tæknibúnað og framleiðsluhætti. Dæmi um
slíka gjörbreytingu á svo skömmum tíma munu vand-
fundin í sögu nokkurrar annarrar þjóðar.
Þrátt fyrir lýðveldisstofnunina 17. júní 1944, má 1.
desember 1918 aldrei gleymast, því að þá var sigur-
inn raunverulega unninn. — En minnumst þess, að
sjálfstæðisbaráttú smáþjóðar er aldrei lokið. Þær
verða alltaf að halda vöku sinni.
(
Nýjar ráðstafanir í Frakklandi vegna vaxandi dýrtíðar
De G_alle Frakklandsforseti
ræddi í gær við forsætisráðherr
ann Maurice Couvé de Murville
og fjármálaráðherrann Francis-
Xavier Ortoli í Elysée-höll inn
frekari ráðstafanir efnahagnum
og frankanum til verndar.
Umræðurnar snerust aðallega
um ráöstafanir til þess að hindra
verðhækkanir. Forsetinn tók á
móti þeim eftir að fjármálaráðu
neytið tilkynnti í gær, að lífs-
nauðsynjar hefðu hækkað um
1,1 af hundraði í október og er
það mesta hækkun á mánuði á
þessu ári. Miðað við 100 1962
hækkaði verövísitalan úr 123,6 í
lok september í 124,9 í október.
Alls nemur hækkun lífsnauð-
synja frá þvx í óeiröunum og
verkföllunum í maí og júní um
3,5 af hundraði.
Af opinberri hálfu er tekin sú
afstaða að gripa ekki til al-
gerrar verölagsbindingar til þess
að mæta eifiðleikunum af völd
um gjaldmiöilskreppunnar, en
búizt viö nýjum aögerðum gegn
verðhækkunum og hert verði eft
irlit með reglum, sem þegar eru
gengnar í gildi til aukins eftir-
lits.
Fjármálasérfræðingar hafa reikn
að út, að á næsta ári muni lífs
nauðsynjar hækka um 2 af
hundraði sem afleiöing af þeim
álögum, sem Couvé de Murville
boðaði á þriðjudagskvöld sl.
<ÍWB
■ □ Eftir sigra Spasskys og
Kortsnojs í heimsmeist
araeinvígjunum, var búizt við
jafnri og tvísýnni baráttu er
þessir tveir kappar mættust.
Sérfræðingar fóru varlega í
alla spádóma og aðeins M.
Euwe, fyrrverandi heims-
meistari spáði Spassky sigri.
„Spassky vinnur, en nú verð-
ur baráttan harðari. Að þessu
sinni sigrar Spassky ekki 5'/2:
2y2 eins og við Geller og Lar-
sen.“ En Spassky lét eitt yfir
alla ganga o<? eftir 8 skákir
var staðan 5%:2y2 Spassky í
hag. Síðustu tvær skákimar
urðu jafntefli, og Spassky
var hinn öruggi sigurvegari.
prá því að heimsmeistara-
einvígin hófust, hefur
Spassky telft 7 einvígi gegn
beztu skákmönnum heims.
Sex sinnum hefur hann borið
hærri hlut, aðeins tapað gegn
heimsmeistaranum Petros-
han. i einvígjum þessum hef
ur Spassky teflt 79 skákir
unnið 24, tapað 8 og gert 47
jafntefli.
Spassky tapaði aðeins einni
skák gegn Kortsnoj, 6. skákinni.
Þá skák hafði Spassky teflt
glæsilega framan af. Óvænt ridd
arafóm í 12. leik veitti honum
betri stöðu og það tók að halla
mjög á Kortsnoj. En Spassky
slakaöi á eitt augnablik og
Kortsnoj var fljótur að grípa
tækifærið. Snaggaraleg drottn
ingarfóm dundi á kóngsstöðu
Spasskys og Kortsnoj hlaut loks
langþráðan vinning. Spassky var
því f vígahug er hann settist
gegn Kortsnoj í 7. skákinni, en
sú skák birtist hér á eftir.
Hvitt: B. Spassky
Svart: V. Kortsnoj
Kóngsindversk vöm.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7
4. e4 d6 5. f3
Spassky álítur Saemisch-á-
rásina bezta vopnið gegn kóngs
indversku vöminni. Þannig vann
hann m.a. fræga skák af L. Ev-
ans á Ólympíumótinu f Vama
1962.
5.. .0—0 6. Be3 Rc6 7. Rge2 a6
Þessi uppbygging er verk Tai-
manovs. Svartur einbeitir sér að
framrás peða sinna á drottning-
arvæng og þrýsting á d4 reitinn.
8. Rcl e5 9. d5 Rd4 10. Rb3 RxR
11. DxR c5 12. dxc6e. p. bxc
13. 0—0—0! Peðið á d6 er ákjós
anlegt skotmark og Spassky
beinir skeytum sínum þangað.
Ritstjóri Stefán Guðjohnsen
jyú er lokið 12 umf. í lands-
liðsæfingakeppni Bridgesam-
bands íslands og em þessir efst-
ir:
1. Jón Ásbjömsson og Karl Sig-
urhjartarson 152
2. Árni Þorvaldsson og Sævar
Magnússon 149
3. Gísli Hafliðason og Gylfi Bald
ursson 140
4. Hallur Símonarson og Þórir
Sigurðsson 135
5. Eggert Benónýsson og Stefán
Guðjohnsen 134
6. Ásmundur Pálsson og Hjalti
Elíasson 133
í kvennaflokki em þessar efstar:
1. Ósk Kristjánsdóttir og Magn-
ea Kjartansdóttir 80
2. Halla Bergþórsdóttir og Kristj
ana Steingrímsdóttir 72
3. Ásta Flygenring og Guðrún
Bérgsdóttir 71
f síðustu umferð í karlaflokki
kom þetta spil fyrir. Allir á
hættu og vestur gefur:
A D-9
V Á-5-4
X A-D-G-8-7-3
4> Á-K-6-5 A 10-7-4-3-2
V K V D-10-9-6-3-2
♦ D-G-7-4 ♦ 2
* K-10-6-5 4> 9
♦ G-8
V G-8-7
♦ Á-K-10-9-6-5
Jf, 4-2
Á nokkrum boröum komust
a-v í fjóra spaða á spilin, sem
er óneitanlega nokkuð harður
samningur. Voru þeir ýmist fjór
faldaðir eða tvöfaldaðir, sem er
í sjálfu sér ekki óeðlilegt. Hitt
er svo aftur merkilegra, aö spilið
vannst á öllum borðum. Fljótt á
litið virðist svo, aö a-v gefi að-
eins einn slag í hverjum hliðar
litanna, af því að trompin eru
2-2. Ef við athugum vamarspil
ið nánar þá sést, að með ná-
kvæmri spilamennsku er ávallt
hægt að hnekkja sögninni.
Eðlilegt útspil er tígull frá
hvorri hendinni sem er og síðan
lauf í gegnum vestur. Norður
fær slaginn og spilar aftur
TÍGLI. Blindur verður að trompa
og síðan er tekið tvisvar á
tromp. Þá er hjartakóng spilað
óg norður GEFUR. Nú er sama
hvað sagnhafi gerir, hann getur
aldrei unnið spilið. Einhverjum
mun finnast langsótt að gefa
hjartakónginn, en við nána at-
hugun sést að sé hann einspil
er spilið tapað, en eigi sagn-
hafi annað hjarta, þá stendur
spilið alltaf.
♦
f tvimenningskeppni Bridgefé-
lags Reykjavíkur er 20 umferð-
um lokið oe eru þessir efstir:
1. Símon Símonarson og Þorgeir
Sigurðsson 279
2. Jón Arason og Sigurður
Helgason 267
3. Einar Þorfinnsson og Jakob
Ármannsson 242
4. Benedikt Jóhannsson og Jó-
hann Jónssón 189.
13 .... Be6 14. Da3 Re8.
Hér var möguleiki að fórna
drottningunni með 14 ... d5 15.
cxd cxd 16. exd Rxd 17. Bc4
RxB 18. HxD RxB, þótt fómin
sé í hæpnara lagi.
15. h4 f6?, þessi leikur veikir
kóngsstöðuna. Betra var 15...
Bf6 16. c5 Hf7.
Hér var 16 ... d5 freistandi
leikur, en strandar á 17. Bc4 Rc7
18. exd cxd 19. Rxd RxR 20.
BxR BxB 21. Hd2 og biskupinn
á sér ekki undankomu auðið.
17. Da4 Dc7 18. Bc4 BxB 19.
DxB Bf8 20. h5
Hvftur heldur svörtum í tvö-
faldri spennu. Jafnhliða því að
verja d-peðið verður Kortsnoj
að hafa vakandi auga með kóngs
sókn hvíts.
20.. .. dxc 21. hxg hxg 22. De6
Hd8 23 HxH DxH 24. Hdl
Hvítur gat einnig leikið 24.
Dxc, en Spassky fer sér að engu
óðslega.
24.. .. De7 25. Dxc Rc7 26.
Db6 Kg7 27. Rd5 De6 28. Bxc
BxB 29. DxB Rb5 Eftir 29...
RxR 30. HxR vinnur hvftur létt.
30. De3 Dc6f 31. Kbl Rd4 32.
Hcl Db5 33. Rc7 De2?
Skákin fær nú snöggan endi.
En eftir 33... Db6 34. Rd5
hefði hvítur unnið án teljandi
erfiðleika.
34. Re6t! Kh7 35. Dh6t! og
svartur gafst upp. Eftir 35...
KxD 36. Hhl mát.
Jóhann Sigurjónsson
5. Hjalti Elíasson og Þórir Sig-
urðsson 184
6. Alfreð Alfreðsson og Guð-
mundur Tngólfsson 183
Úrslitaumferðin verður spiluð
n.k. miðvikudag í Domus Med-
ica kl. 20.
7. umferð í sveitakeppni
Bridgedeildar Breiöfirðingafélags
ins var spiluð þriðjudaginn 26.
nóv., og er röðin að sjö umferð
um loknum þessi:
1. sveit Gissurar Guðmundsson
ar 48 st. (642:401)
2. Sveit Þórarins Alexandersson
ar 46 stig (714:436)
3. sveit Ingibjargar Halldórsdótt
ur 38 stig (708:448)
4. sveit Olgeirs Sigurðssonar 32
stig (626:513)
5. sveit Kristínar Kristjánsdótt-
ur 28 stig (658:564)
6. sveit Tryggva Gíslasonar 27
stig (591:637)
8. umferö verður spiluð 3. des
kl. 8 í Ingólfscafé.
Hage en
ekki Aage
f viðtali við Þorstein M. Jóns-
son hefur misritazt nafn for-
manns dönsku samninganefndar
innar 1918. Á það að vera Hage
en ekki Aage.
mtU:
——M