Vísir - 06.12.1968, Blaðsíða 7

Vísir - 06.12.1968, Blaðsíða 7
V1SIR . Föstudagur 6. desember 1968. 7 l Þjóðlegur fróðleikur íslenzkt orðtakasafn — samiö af dr. Halldóri Halldórssyni. Uppslátt aiTit um íslenzk orðtök. Bókin kem ur út í framhaldi af „íslenzkum rnálsháttum" og „Kvæöum og dans leíkjum", sem áður eru komnar út í bókaflokknum „íslenzk þjóð- fræði“. Orðtakasafniö veröur í tveimur bindum og er síðara bindiö væntanlegt á næsta ári. Útgefandi Almenna bókasafnið 338 bls — 395 kr. 1918 — Bókin um fullveldið — eft- ir Gísla Jónsson, menntaskólakenn ara — Ýtarleg frásögn af fullveld- istökunni 1918 og aðdraganda henn ar. Jafnfr. rekur bókin hina ýmsu stórviðburði aðra, svo sem styrj- aldarlok, eldgos í Kötlu óg drep- sóttina miklu — gefur mynd af þjóðlífi og viðburðum þessa tíma — Alþýölegt fræðirit. — Gefið út í til- efni fullveldisafmælisins. Útg. Al- menna bókafélagið. 247 bls. (auk 16 myndasíöna). Verð 435 kr. Gróandi þjóðlíf — eftir Þorstein Thorarensen. Myndir úr lífi og við- horfum þeirra, sem uppi voru um aldamótin. Koma þar margir þekkt ir menn við sögu. Höfundur hefur áður skrifað tvö viðamikil rit um stjómmálaviðhorf og lífsháttu á fyrri hluta aldarinnar. Bókina prýö- ir fjöldi mynda. Útg. Fjölvi. 520 bfe. Svipur Reykjavíkur — eftir Árna Óla. — Fróðleiksþættir úr ýmsum áttum úr Reykjavík. Árni Óla hef ur þegar skrifað margt um Reykja- vfk og hafa komið út eftir hann nokkrar bækur, sem kunnugt er, um sögu Reykjavíkur. — Útg. ísafold. Álög og bannhelgi — eftir Árna Óla, segir frá fjölmörgum álagablettum í öllum landshlutum og söigum, sem þeim eru tengdar. — Útg. Setberg. 240 bls. Verð 425 kr. Vér íslands böm — eftir Jón Helga son. Efni af sama toga og „íslenzkt mannlíf" eftir sama höf. Frásagnir af íslenzkum örlögum og eftirminni legum atburðum, sem reistar eru á traustum sögulegum grunni. Myndir eftir Halldór Pétursson prýða bók- ina. Útg. Iðunn. 241 bls. Verð 460 kr. Minnisverðir menn — eftir Tómas Guðmundsson og Sverri Kristjáns- son. Efni í svipuðum dúr og höf- undamir hafa sent frá sér í bóka- formi undanfarin ár, fróöleiksþætt ir. Til dæmis þáttur af ævi Jörund- ar hundadagakonungs, Vogsós- skálaklerkinum, Sæmundi Hólm, Kristjáni Fjallaskáldi o.fl. Kemur út rétt fyrir jól. Útg. Forni. íslenzkir afreksmenn — I. bindi — eftir Gunnar M. Magnúss. Bókin segir frá íslenzkum afreksmönnum á sviði íþrótta og í þrekraunum allt frá landnámsöld til 1911. Efninu er raðað niður í aldir. Útg. Örn og Ör- lygur. 200 bls. Verð 448 kr. Eyfirðingabók — Sagnaþættir af Eyfirðingum, Skráð hefur séra Benjamín Kristjánsson. Þetta er I. bindi bókarinnar. Allmargar Ijós- myndir prýða hana og sumar sjald- gæfar. — Útgefandi Bókaforlag Odds Bjömssonar. 430 kr. Skaðaveður 1897-1901. Fjórða bókin í þessum bókaflokki Æskunnar, sú fyrsta, Knútsbylur kom út 1965. Halldór Pálsson hefur safnað efni til bókanna, en Grímur M. Helga- son cand mag. sér um útgáfuna. Útgef Æskan 157 bls. 220 kr. Sögur og sagnir af Snæfellsnesi, II. — eftir Óskar Clausen. Síðara bindi af sögum höfundar af sérstæðum og sérkennilegum mönnum af Snæ- fellsnesi. — Útg Skuggsjá. 271 bls. Verð 400 kr. Áður en fífan fýkur — eftir Ólaf Þorvaldsson. Minningar og þjóðlífs- lýsingar frá síðustu aldamótum. — Sagt frá lífi og starfi alþýðumanna. Útg. Skuggsjá. 192 bls. Verð 340 kr. Hafís við ísland — Tekið saman af séra Sveini Víkingi, Guttormi Sig- urbjörnssyni jarðfræðingi og Kristj áni Jónssyni. Grein um myndun hafíssins og ferðir hans um höfin. Kunnugir menn á Vestur- Norður- og Austurlandi segja frá hafísvetr- inum 1967 —’68 og rifja upp sagn- ir um viðureignir við bjarndýr o.fl. Útg. Kvöldvökuútgáfan 227 bls. Verð 430 kr. Vaskir menn — eftir Guðmund G. Guðmundsson. Ellefu sagnaþættir frá liðnum tíma. Útg. Norðri. 236 bls. Verð 340 kr. Bréf til bróður — Þrjátíu og tvö áð ur óprentuð bréf frá Jóhanni Sigur- jónssyni til bróður hans, Jóhannes ar bónda á Laxamýri. — Bókaútg. Menningarsjóðs og Þjóðvinafélags- ins. 120 bls. Verð 240 kr. Um íslenzkar fomsögur — eftir Sigurð Nordal. íslenzk þýðing á „Sagalitteraturen“, sem kom út á dönsku árið 1953. Árni Björnsson, cand mag íslenzkaði. Útg. Mál og menning. 178 bls. Norræn goðafræði — Ólafur Briem menntaskólakennari. Bók um nor- ræna guði, trúarbrögð og lífsspeki. Efnið er sett þannig fram að það verði aðgengilegt fyrir sem flesta. Útg. Skálholt. 134 bls. Verð 160 kr. Garðar og Náttfari — eftir Sig- urð Jónsson frá Yztafelli. Höfundur setur fram skoðanir sínar um land nám íslands og aðdragandann að því. Útg. Leiftur 168 bls. Verð 300 kr. Ljós í róunni — eftir Stefán Jóns- son. Viðtöl og þættir um menn og málefni, um allt og ekkert. Bók svipaðs efnis og Gaódaskata og Krossfiskar. — Stefán er vinsæll útvarpsmaður. Þættir hans og við töl í útvarpinu eru uppistaðan í þessum bókum. — Útg. Ægisútgáf an. 153 bls. Verð 360 kr. Kreppan og hernámsárin — eftir Halldór Pétursson. Frásögn frá þessum örlagaríku tímum íslenzks verkalýðs, skrifuð frá sjónarhóli verkamannsins. Höfundur styöst við ýmsar greinar og þætti, sem hann ritaöi í blöð og tímarit á þess um árum. 190 bls. Verö 340 kr. í stríði og stórsjóum — eftir Svein Sæmundsson, blaðafulltrúa. Sjó- mannabók, frásagnir úr lífi og starfi íslenzkra sjómanna. Ilöfund- ur hefur ritað fleiri bækur um ís- Ienzkt sjómannslíf og sjóskaða. í fyrra kom út eftir hann bók, sem fjallaði að miklu ‘leyti um Hala- veðrið fræga. Útg. Setberg. 218 bls. Verð 460 kr. Uppi var dreki — eftir Sigfús M. Johnsen úr Vestmannaeyjum þjóð- félagsþættir og skáldskapur úr Eyj um. Höfundur hefur sem kunnugt er starfað mikið að bæjarmálum og athafnalífi í Eyjum. Bókin kemur út rétt fyrir jól — Útg. ísafold. Brotinn er broddur dauðans — eft- ir Jónas Þorbergsson. Síðasta bök höfundar. Fjailar um duiræn efni. Langur kafli er um sálfarir. Sjö landskunnir menn segja þar frá dulrænni reynslu sinni, Útg. Skugg sjá. 190 bls. Verð 340 kr. Þýðingar: Eldur ofar skýjum — Pierre Clost- ermann, franskur flugmaður, lýsir hér ýmsum mestu loftorustum stríðsins. Clostermann er kunnur fyrir stríðsfrásagnir sínar. — Ás- mundur Einarsson þýddi. — Útg. Hildur. 160 bls. — Verð kr. 275. Höggvið í sama knérunn — Per Hanson. Saga norskrar fjölskvldu, sem nasistar ætluðu að handtaka dauða eða lifandi. Segir frá flótta þessa fólks um hálendi Noregs. — Skúli Jensson þýddi. — Útg. Skugg sjá. 176 bls. Verð 320 kr. Sálræn reynsla mín — Astrid Gli- mark segir frá dulrænni reynslu sinni, en hún er gædd bæöi i skyggnihæfileikum og dulheyrn. — Eiríkur Sigurðsson þýdúi. Útg. Fróði. 112 bls. Verð 299 kr. Miöill í 40 ár — eftir Estrella Ro- berts, kunnan brezkan miöil, sem segir frá dulrænni reynslu sinni og miöilsstörfum. Gylfi Gröndal þýddi Útg. Grágás. 192 bls, Verð 340 kr. Að handan — Grace Rosher, höf- undur þessarar bókar er sagður hafa skrifað þessa bók ósjálfrátt. — Boðskapur um lífiö eftir dauð- ann — Þýðandi séra Sveinn Vik- ingur. 150 bls. Verð 300 kr. Ævisögur Jóns saga Jónssonar — Sjálfsævi- saga Jóns frá Vogum í Mývatns- sveit. Sagan er upphaflega skrifuð á ensku og birtist í ensku tímariti árið 1877. — Sagan kemur hér bæði í frumtextanum og í íslenzkri þýðingu Haralds Hannessonar. Útg. ísafold. 133 bls Verð 275 kr. Jón Loftsson, biskup. — Egill Star- dal kennari við Verzlunarskólann ritar um ævi hins merka klerks og biskups. — í bókaflokknum „Menn í öndvegi". — Útg. ísafold. Jón biskup Arason — Þórhallur Guttormsson ritar um ævi Jóns b’skups Arasonar á Hólum. Jón er sem kunnugt er ein svipríkasta per- sóna íslandssögunnar og síðastur biskup í kaþólskum sið hér á landi. Um hann hefur margt verið ritað. Saga hans ht kemur út í bóka- flokknum „Menn í öndvegi“. Útg. I’safold. Sonur Bjargs og Báru — endur- minningar Jóns Guðmundssonar, forstjóra Belgjagerðarinnar, skráð- ar af Guðmundi G. Hagalín. Segir frá sjómennsku Jóns á ýmiss kon- ar skipum við ýmiss konar veiöar og iönrekstri hans. — Útg. Skugg sjá. 240 bls. Verð 420 kr. Minningar um séra Jónmund — eft ir Guðrúnu Jónmundsdóttur. Það •er dóttir klerksins, sem ritar hér ævisögu föður síns og styðst viö ýmislegt, sem séra Jónmundur átti í fórum stnum, meöal annars kveö skap og fleira. Séra Jónmundur var sérstæður prestur og þjónaði lengi á Ströndum. Útg. Leiftur. 231 bls. Verð 340 kr. Ekki svíkur Bjössi — 2. bindi af sjálfsævisögu Sigurbjörns Þorkels- sonar, sem kenndur var við verzl- unina Vísi. Um 200 myndir eru í bókinni. — Útg. Leiftur. 448 bls. Verð 420 kr. Fagur er fiskur í sjó — endurminn ingar Einars Sigurðssonar, útgerð- armanns (Einars ríka) úr Vest- mannaevjum, framhald af bókinni „Fagurt er í Eyjurn", sem út kom í fyrra. Þórbergur Þórðarson ritar bókina. Útg. Helgafell. Verð 440 kr. Ferðin frá Brekku. — Endurminn- ingar Snorra Sigfússonar náms- stjóra frá uppvaxtarárum í Svarf- aðardal, námsárum heima og er- lendis og fyrstu starfsárum norðan lands. Margir þjóökunnir menn koma við sögu í frásögn hans. 277 bls. Hart í stjór — minningar Júlíusar Júlínussonar skipstjóra og sjóferöa sögur, skráðar af Ásgeiri Jakobs- syni. Stór kafli í bókinni fjallar um Goðafossstrandiö fræga. Útg. Ægisútgáfan. 186 bls. Verð 360 k>\ Skúli Thoroddsen — eftir Jón Guðnason. — Fyrra bindi um ævi hins þjóðkunna stjórnmálamanns. — Útg. Heimskringla. 400 bls. Bernskuárin — eftir.. séra Svein Víking. 2. útgáfa á 1. bindi ævi- minninga höfundar, „Myndir dag- ana“, hin bindin eru „Skólaárin“ og „Prestsárin.“ Útg. Kvöldvöku- útgáfan. 206 bls. Verð 320 kr. Kjarvalskver — samtalsbók við Kjarval um listina, lífið og tilver- una — skráð af Matthíasi Jóhann- essen, ritstjóra. Matthías hefur þegar samið allmargar slíkar sam- talsbækur viö marga þjóðkunna menn. Og meistara Kjarval þarf ekki að kynna. Útg. Helgafell. Öldufall áranna — endurminningar Hannesar J. Magnússonar fyrrum skólastjóra á Akureyri. — Bókin fjallar um starfsár höfundar, fjall ar um félagsmál og skólamál meðal annars. Útgef. Æskan 331 bls. 410 kr. | BÓKASKRÁ 3 Þýðingar: Ég á ntér draum — bókin um Martin Luther King. Bókin er til oröin fyrir samvinnu margra höf- unda. Ritstjóri er Charles Osborne. Eru þar rakin í máli og myndum æviatriði blökkumannaleiðtogans, barátta hans fyrir mannúð og rétt- læti, sem kostaði hann Iífið 39 ára gamlan. En áður hafði hann hlotiö friðarverðlaun Nobels. Séra Bjarni Sigurðsson þýddi bókina. Útg. Al- menna bókafélagið. Eusébio — Ævisaga knattspyrnu- mannsins fræga, sem kom einmitt hingað til lands í sumar með portú- galska liðinu Benfica. Eusébio er einn fræknasti knattspyrnumaöur heims, ættaður frá Mósambik í Af- ríku, þar sem hann var uppgötvað- ur. Bókina prýða fjölmargar myndir meðal annars frá heimsókn hans hingað til lands. Þýðinguna gerði Jón Birgir Pétursson, blaðamaður. Útg. Bókaverzl. Sigfúsar Eymunds- sonar 271 bls. (auk myndasíöna). Mannsævi — sjálfsævisaga Rúss- ans Konstantíns Pástovskí, 1. bindi, bernsku og skólaár. — Ævi- saga þessi vakti mikla athygli í Rússlandi og taldist til bókmennta- viðburða þar í landi. Þýðandi er Halldór Stefánsson. — Útg. Heims- kringla. 288 bls. Endurminningar brautryðjanda. — Edmond Privat, höfundur þessarar bókar, rifjar upp ungdómsár sín. Þýöandj er Kristófer Grfmsson. — Útg. Leiftur. 124 bls. (auk þess 12 myndasíöur). Verð 300 kr. Æfffræði Fremra Háls-ætt II. bindi — eftir Jóhann Eiríkssori. Þetta er seinna bindið af ættartölu þessarar merku ættar. Höfundurinn er kunnur ætt- fræðingur. Útg. Leiftur 520 bls. Verð 450 kr. Vestur-íslenzkar æviskrár — III. bindi. Séra Benjamín Kristjánsson hefur búið þetta rit undir jjrentun. I því eru 955 mannamyndir, Þessi heimild um Vestur-Islendlnga wrð- ur trúlega eitt eöa fleiri bindi til viðbótar. — Útgefandi er Bókafor- lag Odds Björnssonar, Akureyri. 460 bls. Verö 680 kr. Calendaríum — (íslenzkt rírri) — Ijósprentun á gamalli rímbók, prent aðri á Hólum 1599. Dr. Þorsteinn Sæmundsson sá um útgáfuna og ritar formála. Útg. Hið ísl. Þjóð- vinafélag. Sáð í vindinn — eftir Sigurð A. Magnússon. Ritgerðir og þættir um bókmenntir og listir. Sigurður hef- ur sem kunnugt er verið einn virt- asti listagagnrýnandi hér á Iandi um nokkurt skeið og ritað margt um þau efni. Útg. Helgafell. 165 bls. Verð 200 kr. Frúsöguþættir Úr dagbók vitavarðar — eftir Ósk- ar Aðalstein. Þættir um mannlíf og örlög á yztu útnesjum íslands. Höfundurinn hefur áður samið margar skáldsögur og hefur veriö vitavörður við tvo afskekktustu vita landsins í tvo áratugi. Ilann þekkir því útnesjalífið og umhverf- ið, sem hann skrifar um. — Útg. Iöunn. Bókin er 164 bls. Verð kr 335. í fremstu víglínu — sannar frásagn ir og þættir úr heimsstyrjöldinni. I — Kaflarnir í bókinni eru eftir átta j höfunda. — Tekið saman og þýtt ! af Skúla Jenssyni. — Útg. Hörpu- útgáfan. 160 bls. Verð 260 kr. Hetjur á húðkeipum — eftir Ducas Philips. Segir frá árás Breta á Bordeaux haustið 1942, þar sem þeir sökktu mörgum skipum Þjóð- verja, og flóttanum að henni lok- inni. - Útg. Grágás. 208 bls. Verö 340 kr. Eltingaleikur á Atlantshafi — eft- ir D. A. Rayner. Segir frá einvígi kafbáts og tundurspillis í heims- styrjöldinni. Baldur Hólmgeirsson þýddi. - Útg. Skjaldborg. 192 bls. Verð kr. 315. Maðurinn frá Moskvu — eftir Greville Wynne, brezkan njósnara, sem hlaut náðun úr fangabúðum í Rússlandi í fangaskiptum. Segir hann frá njósnum sínum og fanga- vist. Mál hans vakti mikla athygli á sínum tíma. - Hersteinn Pálsson þýddi. Útg. Bókaforlag Odds Björnssonar. 208 bls, Verð 350 kr. Lesefni fyrir fróðleiksþyrsta

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.