Alþýðublaðið - 19.01.1966, Side 3

Alþýðublaðið - 19.01.1966, Side 3
Keeler lin KRISTÍNU KEELER hélzt illa á elskhugum sínum og gengur henni ekki betur í hjónabandmu. Þótt ekki séu liðnir þrír mánuðir síðan hún gekk í það heilaga, er hún nú skilin við mann sinn og engar líkur eru til þess að þau taki saman aftur þrátt fyrir, að hún er með baYni, sem sjá mun dagsins ljós í júlímánuði. Keeler giftist hinn 22. október sl. verkfræðingn- um James Devermore, og sagði hún þá, að þau hjónin hefðu gleymt fortíð hennar og eftirleiðis mundi hún verða manni sínum trú og góð eiginkona. Erlander ítrekar stefnuna um af- nám konung- dæmis Aþenu 18. 1. (NTB) Tage Erlander, forsætisráðherra Svía, segir í viðtali við gríska blaðið „Anendotosð1 að sænski | j afnaðarmannafI okkurinn hafi á- I vallt verið hlynntur því að konung dæmið yrði lagt niður. Sænskir jafnaðarmenn vilji að landið fái nýtízkulega og lýðræðislega stjórn arskrá og muni stinga upp á breyt ingum á stjómarskránni, og í til lögum þein-a sé gert ráð fyrir ýmsiun leiðum. Ein tillagan gerir ráð fyrir að konugdæmið verði lagt niður, önnur að forréttindi kon ungsins verði takmörkuð, en mörg þeirra eru aðeins táknræn. Að spurður hvort sænska þjóð in mundi sætta sig við slíkar breyt ingar sagði Erlander, að tillögurn FrBtnhald á S síðu. OOOO<OOOOOOOOOO<O< Árshátíð Kven- félags Alþýðu- flokksins ÁRSHÁTÍÐ Kvenfélags Al- þýðuflokks Reykjavikur verð ur haldin næstkomandi mánudagskvöld, 24. janúar í Iðnó uppi. Árshátíðin verð ur sett stundvíslega kl. 8,30 Skemmtiatriði: Sameiginleg kaffidrykkja Stéfán Júlíusson, rithöf undur, sýnir myndir frá Snæfellsnesi. Leikþáttur (Bessi Bjarna son og Gunnar Eyjólfs son). Ennfremur frjáls ræðu höld. Félagskonur og gestir þeirra eru velkomnir á árs hátiðina. o ooooooooooooooc NÝJAR VÍSBENDENGAR BEN BARKA-IVS ÁLINU I Farís, 18 janúar (NTB-Reuter.) I Dómari í París rannsakaði gaum gæfilega í dag bréfa og skjala I bunka, sem Georges Figon, 39 ára gamall glæpamaður, lét eftir sig. Bréfin og skjölin munu ef til vill veitia lögreglunni nýjar vís bendingar í rannsókn ránsins á marokkanska stjórnmálaleiðtogan um Ben Barka í París í fyrra haust. Figon skaut sig til bana þegar lögreglan kvaddi dyra á heimili hans til að handtaka hann í sam bandi við ránið. Lögreglan telur að Figon hafi gegnt lykilhlutverki i harmleiknum, sem gerist furðu legri með hverjum deginum sem líður og hefur vakið hugaræringu á æðstu stöðum í Frakklandi og stórlega spillt sambúð Frakklands og Marokkó. t dag hermdu heimildir í frönsku stjórninni að yfirmanni Leif Andersen látinn laus Kaupmannahöfn 18. 1. (NTB-RB). Leif Andersen, maður Connie Birgit Andersen, sem rændi Tinu litlu var sleppt úr gæzluvarðhaldi í d'ag Hann heldur statt og stöð ugt við það að hann hafi lialdið að Tina Wiegels væri dóttir sín. Leif Andersen var handtekinn á samt konu sinni þegar Tina fannst á heimili þeirra 11. janúar. gagnnjósnadeildar frönsku leyni þjónustunnar, Marel Lerey, hefði verið vikið úr starfi. Áður hafði Leroy játað, að einn hinna á kærðu í Barka málinu, Spánverj inn Antoine Lopez, hefði verið flugumaður leyniþjónustunnar und ir sinni stjórn um átta ára skeið. Leroy var látinn hitta Lopez, sem í borgaralegu lífi hefur ver ið starfsmaður flugfélagsins Air France, á skrifstofu dómara þess sem stjórnar rannsókn málsins, Rene Auric. Leroy sagði dómaran um, að Lopez hefði ekkert sagt um ránið fyrr én tveimur dögum eftir að það átti sér stað. Glæpamaðurinn Georges Figon lýsti því yfir fyrir nokkrum dög um í viðtali við vikuritið „L‘Ex press“, að hann hefði horft á þeg ar Ben Barka var myrtur. Seinna neitaði hann þessu, en lögreglan hélt áfram víðtækri leit sinni að Fison og lauk henni síðan í gær kvöldí er Figon fannst á gólfi bað herbergis sín<; með kúlu í höfð inu. Ákæruvaldlð hefur lýst þv: vfir að enginn v»fi leiki á því að Figon hafi framið sjálfsmorð. t viðtali sagði Figon m.a. að vissir háttsettir Marokkómenn hefðu verið viðstaddir í villu beirri, <em Ben Barka var flutt ur til eftir ránið, og oft hefur vprið gefið í skvn, að innanríkis ríðherra Marokkó. Mohammed Ou fkír hershöfðipgi. h=fi staðið á kak við ránið. Flokkur Ben Barka tústi, bví yfir að í rannsókn máls ins hefðu komið fram vísbending ar, sem bentu ótvírætt til þess að Oufkir væri sekur. Staðfest er að Oufkir var í París 30. október Framhald á 14. siðu Það var kalt og vetrar- legt um að litast í höfuðstaðn um okkar í gær. Lj ósmynd- ari blaðsins flaug yfir strand stað brezka togarans við Vlk í Mýrdal í gær og tók þessa loftmynd af Reykjavík í leið- inni. Á miðri myndinni sést Landakotskirkja og hluti af miðbænum. — Mynd: JV. síðan 0000<0<0000000000<C Eldhaf lokar 3 menn inni Raunheim, V-Þýzkal. 18. 1. (NTB-Reuter). Þrír menn voru í kvöld að öll um líkindum lokaðir inni undir brennandi olíugeymi í nágrenni Raunheims í Vestur-Þýzkalandi, mörg’um klukkutlmum eftir gíf urlega sprengingu £ stórri nýtízku legri Caltex- olíuhreinsunarstöð við fljótið Mai. Vitað er með vissu að minnst einn maður hefur beð ið bana og 72 hafa slasast, þar af 20 alvarlega. Lögreglan sagði í kvöld að eng in von væri til þess að hægt væri að bjarga mönnunum þremur, er óttast er að séu innilokaðir, ef þeir eru umkringdir eldhringi þeim, sem umlukti geyminn eft ir sprenginguna í morgun. Slökkvi liðsmenn hafa gefið upp alla von um að bjarga mönnunum og telja að eldurinn verði að slökkna af sjálfu sér. Áherzla er lögð á að koma í veg fyrir að eldurinn breið ist út til annarra olíugeyma. Hin feikilega sprenging vakti ofsahræðslu meðal 600 starfsm. olíuhreinsunarstöðvarinnar, sem reist var aðeins fyrir 18 mánuð um og er ein nýtízkulegasta olíu hreinsunarstöð Evrópu. SkrifstofU mennirnir æddu út úr skrifstofp’ byggingunni og flúðu fótgangand^ eða í bifreiðum. Aðeins örfáum sekúndum síðar eftir sprenginguna stigu eld úlura ar 100 metra í loft upp og þykkán svartan reykmökk lagði yfir ná grennið. Margar vélar urðu hvit glóandi vegna hins feikilega hita og stórar bungur mynduðust á -mörgum pípum og leiðslum. Fof mælandi félagsins sagði. að nokkf ir starf<menn hefðu lagt líf sitt í hættu til að rjúfa rafstraum, sem hefði getað valdið fleiri sprengingum. J " * Bveeine hinnar nvtízku oliuhrein* unarstöðvar kostaði um 2000 millj ónir ísl. króna, og bar voru fram leiddar í fyrra rúmleea tvær millj ónir lestá af eldsneyti. 19. Janúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐH) 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.