Alþýðublaðið - 22.01.1966, Side 3
Islenzkt handrits-
brot gefið til USA
Brot úr Tristramsögu úr eigu
franskrar konu.
AKAFLEGA sjaldgæft skinn-
handritsbrot hefur verið gefið
Þjóðþingsbókasafninu í Washing-
ton DC. Handritið er frá síðari
hluta 15. aldar og inniheldur
Tristrams sögu á íslenzku. Gefand
inn er ungfrú Phebe Cates frá
París.
Á 12. öld sendu Noregskonung-
ar skríbenta sína til Frakklands
til að lóta þá þýða Karlamagnús-
arsögu og aðrar rómantískar bók-
menntir aldarinnar á norræna
tungu. Ein af þessum sögum var
hin keltnesk-fransk-enska útgáfa
af Tristrams sögú. Þegar hún hafði
verið þýdd á norrænu, þróaðist
hún í skandinavíska hefð, óháða
liinni keltnesku - fransk - ensku.
Vitað er um að sagan hefur
geymzt í þremur norrænum hand
ritum. einu. þeirra íslenzku.
Brotið, sem ungfrú Cates færði
Þjóðþingsbókasafninu að gjöf,
inniheldur íslenzka útgáfu Tristr-
ams sögu frá síðari hluta 15. aldar
(1470 — 1500). Hugo Christian-
sen, starfsmaður við spjaldskrár-
deild safnsins bar kennsl á það og
því verður fenginn staður í hand-
ritadeildinni meðal blaða úr Will-
iam Dudley þjóðsagnasafninu, sem
var gefið Þjóðþingssafninu af frú
James W. Morrison, frænku ung-
frú Cates.
Háskólabókasafnið í Kaup-
[ mannahöfn á annað handritabrot
i af Tristrams sögu, þrjú blöð, en
innri helming annars blaðs vant-
ar. Brotið í Þjóðþingssafninu er
. tvö blöð og vantar helming fyrra
blaðsins. Bæði blöðin eru 16,4 x
11,9 sentimetrar og á þeim báðum
eru jafnmargar línur beggja meg-
in. Skrifað hefur verið á spáss-
íur beggja blaðanna.
Christiansen tókst að þekkja
i blöðin eftir upplýsingum í skrá
1 vfir handritasafn Árna Magnús-
sonar, sem út kom í Kaupmanna-
höfn árið 1889 og eftir texta Sögu
af Tristram og í önd sem gefin
var út í Höfn árið 1878.
Handritabrotið verður til sýnis
í lesstofu handritadeildar safns-
ins í febrúar og marzmánuði nk.
(Frétt frá Þjóðþingsbókasafn
inu í Wasliington DC).
>0000<>0000000000000000<>000000000«0
Nýr greinarflokkur hefur
göngu sína í Sunnudagsblað
inu á niorgun, og nefnist ^
saga eftir Hönnu Kristjóns
dóttur, Búðarleikur, greinir ,
ÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO*
Á þessari mynd sjást flugbjörgunarsveitarmenn bogra yfir kortum sínum, en þeir hafa eins og aðr-
'r fótgangandi leitarmenn farið vítt og breitt við hin verstu skilyrði í leit að týndu Beecheraft vélinni.
Á fimmtu síðu er nánar sagt frá leitinni. — Ljósm. Óttar Snædal.
Fylgi uppreisnarmanna
er mest í Suður-Nígeriu
Lagos, 21. 1. (NTB-Reuter).
Þótt of snemmt sé að spá um
pólitíska framtíð Nígeríu aðeins
einni viku eftir hina óvæntu upp
reisn á laugardaginn er gi-eini
legt að uppreisnarmenn hafa mest
fylgi í Sameinaða framfarabanda
laginu (UPGA), eSsnum helzta
stjórnmálaflokki Suður-Nígeríu,
segir fréttaritari Reuters, Norman
Hartley,
í Suðurfylkinu er mönnum það
greinilegt fagnaðarefni, að hinum
gömlu stjórnum stjórnmálamanna
í landinu hefur verið kollvarp
að. Fréttinni um, að forsætisráð
herra Vesturfylkisins, Samuel Ak
intola höfðingi, hefði verið myrt
ur var ákaft fagnað meðal verka
manna í Lagos og Ibadan, hvar
vetna í Austur- og Miðvestur-Ní
geríu og víðast hvar í Vesturfylk
inu. Á sama hátt en ekki eins á
xaft fögnuðu Nígeríumenn frétt
inni um morð forsætisráðherra
Fylkir seldur til Englands
RÆTT UM SMÍÐl SKÚTTOGARA
Reykjavík, — GO.
í fyrradag voru undirritaðir
samningar um sölu á togaranum
Fylki, eign Fylkis h.f. hér í Reykja
vík, til Newington Steam Trawl
ing Co Lid. í Hull. Fyrst barst til
boð í skipið fyrrihluta :sl. árs, en
það var ómögulegt, en í haust kom
annað tilboð frá fyrrgreindum að
ilum og var ákveðið að taka því.
Skipið sigldi út fyrir skömmu
,pg gafst þá hinum væntanlegu
kaupendum færi á að skoða það
og ákváðu að standa við tilboðið.
Fylkir h.f. liefur sótt um ríkis-
ábyrgð til að láta smíða nýjan
I togara í stað Fylkis og er talað
um skuttogara i því sambandi.
Rætt hefur verið um að fá skipið
smíðað í Póllandi. Verður þetta
mál allt saman athugað nánar á
næstunni.
Sæmundur Auðuns^on fram
kvæmdastióri Fylkis hf. sagði í ör
stuttu viðtali við Alþýðublaðið,
| að togaraútgerðin hefði aldrei átt
við eins mikla örðugleika að
stríða og nú. Sérstaklega væri
áberandi hve þorskaflinn hafi far
ið minnkandi ár frá ári, og væri
nú svo komið að fiskifræðingar
væru að komast á þá skoðun að
stofninn sé í hættu.
Hin stóraukna tækni við veiðar
bæði á þorski og síld, liefur gert
það að verkum, að mikill afli hef
ur sópast á land, en það er auð
vitað ekki einhlítt ef þess er ekki
gætt, að ganga ekki of nærri stofn
inum.
Norðurfylkisins, Sir Ahmadu Bel
lo, fursta af Sokoto.
Enn hefur ekki tekizt að fá
þá liðsforingja nafngreinda, sem
stóðu á bak við uppreisnina. Hins
vegar virðast þeir hafa þrennt
sameiginlegt:
1. Þeir eru flestir frá Austur-
Nígeríu.
2. Þeir vildu binda enda á það
gem þeir töldu bera vott um
spillingu og stöðnun í stjórnmála
lífi Nigeríu.
3. Þeir vildu einkum og sér í
lagi kollvarpa bandalagi furstans
af Sokoto og Akintola höfðingja.
Hin nána samvinna þessara stjórn
málamanna var talin grundvöll
ur þeirrar viðleitni Múhameðstrú
armanna í Norður-Nígeríu að
meina Sameinaða framfarabanda
laginu í suðri (UPGA) að komast
til valda í Vesturfylkinu. Valda
taka UPGA hefði sennilega leitt
til þess, að yfirgnæfandi áhrif norð
anmanna á stjórn Nígeríu færu
út um þúfur.
Uppreisnarforingjarnir aðhyllt
ust ber^ýnilega þá útbreiddu skoð
un, að eina ástæðan tfl þess að
Akintola héldi völdunum í Vestur
fvlkinu væri sá stuðningur, sem
hann fékk hiá furstanum af Sok
o+o og flokki hans og vegna bes~
að forsætisráðherra sambands
'•tiórnarinnar, Sir Abubakar Taf
awa Balewa, neitaði að skerast. f
leikinn í Vestur-fylkinu þrátt fyr
ir ókyrrð þar.. Mikil ólga ríkti
í Vestur-Nígeríu eftir að flokkur
Akintolas vann sigur í kosningum
í nóvember en andstæðingar hans
sögðu að hann hefði unnið kosn
ingarnar með því að falsa úrslitin.
Sjálf uppreisnin var gerð með
Framh. a 14 dflu
Evrópuráðsþing
í Strassbourg
Ráðgjafaþing Evrópuráðsins held
ur fundi :• Strassbourg 24. — 28.
janúar. Einn íslenzkur alþingis
maður, Þorvaldur Garðar Kristj
ánsson, mun sækja þingið að þessu
sinni. Meðal mála, sem á dagskrá
eru^ má nefna viðhorfin í stjóm-
málum og efnahagsmálum í Evr
ópu, þar á meðal starf: emi EFTÁ
og ágreiningurinn innan Efnahags
bandalagsins milli Frakka og ann
arra aðila þess. Þá verður rætt inn.
húsnæðismál, ýmis lögfræðileg atr
iði og fleiri mál. Meðal ráðherra
sem sækja þingið, eru Lema s for
sætisráðherra írlands og frú Elisa
beth Schweigaard Selmer dóms
málaráðherra Noregs.
BRIDGEKVÖLD j
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Reykjavíkur heldur Bridgekvöld’
næstkomandi þriðjudagskvöld og hefst það kl. 8 stundvíslega.
Guðmundur Kr. Sigurðsson stjórnar. Fólk er hvatt til að mæta
vel og taka með sér gesti.
oooooooooooooooooooooooooooooooo
22. janúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J