Alþýðublaðið - 22.01.1966, Síða 16
í gær sagðist keriingin
5 I
hafa öruggar lieimildir fvrir
því a3 mér bæri ekylda til
s að hoppa þrisvar kringum
húskofann okkar með löpp
ina í annarri nærbuxna
skálminni, en berrassaður að
öðru leyti Ég sagði henni
j
hins vegar að ef hún væri
orðin svona þurfandi fyrir
‘ | ærlegt aðhlátursefni, skyldi
; hún bara hregða sér :• Tóna
bíó.
Svaka var gæinn klár sem
skilgreindi hrygginn í nátt
úrufræðitíma svona: Hrygg
urinn er beinaröð, sem byrj
ar þar sem hausinn er, en
endar þar sem þú situr. . .
EKKI var fyrr farið að draga úr
auglýsingum Gjaldheimtunnar og
bæjargjaldkera víða um land um
áramótin, en framtalseyðublöð
hellast yfir hrjáða skattgreiðendur
og enn dynja yfir auglýsingar frá
hinu opinbera sem allar enda jafn
elskulega. Ef ekki er hótað lögtök
um fyrir vangoldnum sköttum er
Iætt inn í auglýtíingarnar ein
•hverjum öðrum hegningarsektum
Á skattaframtölunum og í auglýs
ingum þar sem skattaframtölin eru
heimtuð fyrip 1. febrúar er bent
á að viðurlög við vanrækslu í þessu
efni séu allt að 25% tekju og
eignahækkun, sé framtölum ekki
skilað fyrir lögboðinn eða umsam
inn frest. Flestir skattgreiðendur
hafa vit á að láta lögfræðing eða
löggilta endurskoðendur gera fram
töl sín trúverðuglega úr garði,
enda stórhættulegt fyrir Pétur og
Pál að vera sjálfir að bögglast við
slíkt. Sá kostur fylgir h’ka að þá
þarf framteljandinn ekki sjálfur
að setja drengskap sinn að veði.
en á hverri framtalsskýrslu verður
framteljandinn að votta, að við
lögðum drengskap, að skýrsla
þessi sé gefin eftir beztu vitund
Láti hann einhvem annan gera
skýrsluna þarf viðkomandi ekki
að vita vitund um hvort sá sem
semur liana beitír klækjum eða
ekki.
Eins og allir vita eru skattafram
tölin einhver flóknustu plögg sem
um getur og er ekki að vita hvort
þau eru þannig úr garði gerð til
að útvega lögfræðingum og endur
skoðendum atvinnu, því ekki er
á færi neins venjulegs manns að
útfylla ósköpin svo vel fari, eða
hvort þetta er klókleg ráðstöfun
af skattayfirvöldunum til að flækja
skattborgarana í eigin neti, og
benda þeim síðan á að ekki sé
mikið mark takandi á drengskap
þeirra og refsa þeim með skatta
hækkun og fyrir ómerkilegheitin.
Auðvitað er skattaskýrslan höfð
í fjölmörgum liðum og þeim síðan
ruglað með að merkja þá ýmist
með tölust. eða bókstöfum. í fyrsta
lið sem telja á upp eignir eru
hvorki meira né minna en ellefu
undirliðir og mikið hljóta þeir að
eiga sem geta útfyllt þá alla. Hins
vegar eru skuldir aðeins í einum
lið enda gengur víst mörgum bet
ur að henda reiður á skuldum s:n
um en eignum. Þá er tekjuliðurinn
í fimmtán undirliðum og frádrátt
ur í öðrum fimmtán. Síðan koma
nokkrir liðir sem sjálfsagt eru
flestu fólki framandi og illskiljan
legir, sitthvað um inneignir í bönk
um, verðbréf og stofnsjóðsinnistæð
ur og á þetta allt að vera meira
eða minna skattfrjálst og innan um
allt þetta á að athuga að ef um
er að ræða fasteignaveðlán, 'sljt •.
neðar, umfram kr. 200,000,00 hjá
einstaklingi, þá skerðist skattfrelsi
eigna skv., A-lið, til jafns við það
sem umfram er, að viðbættri upp-
hæð allra annarra skulda( svona
er nú þetta einfalt.
í gær birtist í einu dagblað
anna leiðbeiningar um framtöl
og hugsaði nú baksíðusnillingur
sér gott til glóðarinnar og komast
að leyndardómum skattframtals,
svo að ekki þurfi að eyða fé til
útfyllingar skattskýrslunni í ár
og telja fram sjálfur. En það fór
ekki betur en svo að í leiðbein
ingunum reyndust enn fleiri liðir
og torskildari en í sjálfri skatta
skýrslunni og þvi meira sem lesið
var því ruglingslegri urðu leiðbein
ingarnar og þegar lestri þeirra
var lokið lofaði hann siálfum sé"
að liann skyldi aldrei gera tilraun
til að reyna að botna í skattfram
tali en láta þess í stað Iöggildan
framtalsmann ganga frá sinni
skýrslu, að viðlögðum eigin dreng
skap.
— Eg hef gersamlega gleymt
að spyrja þig á hverju þú eigin
lega lifir.