Alþýðublaðið - 12.02.1966, Blaðsíða 6
mmvmmmmmmmmmm%%mmmmmmmmmm%
Níunda sinfónía Beethovens
ÞÁ HAFA íslendingar flutt
9. symfóníu Ludwigs van
Beethovens í fyrsta sinn og
skal það sagt strax, að flutn-
ingurinn í heild tókst mjög vel
og var að verðleikum tekið með
óvenjumikilli klappgleði á-
heyrenda, sem voru eins marg-
ir og Háskólabíó frekast rúm-
aði. Stjórnandinn, dr. Róbert
A. Ottósson, hefur sýnilega
lagt sína miklu elju óskipta í
æfingar kórs og hljómsveitar
og árangurinn var slikur, að
hann má vel við una. Sem
betur fer eru hin mannlegu
atriði alltaf veigamikil á hverj-
um hljómleikum og alltaf má
búast við smáhnökrum þar sem
ekki er hægt að klippa út af
bandi, eins og gert er við
hljómplötuútgáfu nú til dags.
Þar sem þessir smáhnökrar eru
í algjöru lágmarki (smávægi-
legt ósamkomulag augnablik
um h ’jóðfall) en spenna verks-
ins og andleg nautn áheyrenda
fylgjR^t a*, þar er hægt að
tala um velheppnaða tónleika.
Það er skemmst af að segja,
að allir nytjendur virtust gera
sér ljóst, að þeim hafði hlotn-
azt sá heiður að taka þátt í
sögulegum atburði, og þeir
lögðu slg alla fram og meira
verður ekkl krafizt. Einsöngv-
ararnir, Svala Nielsen, Sigur-
veig Hjaltested, Sigurður
tr-pf
1N
Lb
Björnsson og Guðmundur
Jónsson skiluðu hlutverkum
sínum mjög vel. Hin þrótt-
mikla rödd Guðmundar hefur
sjaldan verið betri, lýrisk og
smekkleg meðferð Sigurðar á
hlutverki sínu bætti upp það,
sem kann að hafa skort á í
raddstyrk, Sigurveig var góð
að vanda og Svala gerði hinu
afarerfiða sópranhlutverki
glæsileg skil.
Kórinn ýar ágætur og betri
„balans” milli raddanna en
stundum áður, þ. e. tenórinn
magnmeiri, án þess að blærinn
versnaði.
Hljómsveitin lék yfirleitt
mjög vel og náði stjórnandinn
flestum þeim blæbrigðum, sem
hann ætlaði sér. Undirritaður
sat á öðrum stað en hann er
vanur og kann það að hafa
haft sitt að segja, en honum
fannst tónninn í sveitinni
stundum dálítið mjór. Kann
þar að hafa valdið, að plast-
himininn hallaði nú minna en
á fyrri tónleikunum í vetur
og sömuleiðis kann kórinn að
baki henni að hafa deyft tón-
inn eitthvað. Það merkilega
vai' þó, að í síðasta kaflanum
var ágætt samræmi milli kórs
og hljómsveitar.
Þetta voru geysilega á-
nægjulegir tónleikar. — G.G.
Þó Samtök íþrorrarréttamanna
séu enn fámenn, er það von
þeirra, sem að þeim standa, að
þau hafi einhverju góðu til leiðar
komið á 10 ára starfsferli, — og
þykjast raunar sannfærðir um, að
svo sé. Samtökin færa öllum þeim
sem þau liafa átt samskipti við
síðastliðin tíu ár, beztu þakkir
fyrir skilning og aðstoð, ekki sízt
í sambandi við framkvæmd Norð
urlandamótsins 1962, og vonast
íþróttafréttamenn til að sjá ’ sem
flesta vini samtakanna í dag að
Hótel Sögu, en þar hafa þau „opið
hús” milli kl. 15 og 17 í dag, í
tilefni 10 ára afmælisins.
IMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
LJÓÐA-
KVEÐJA
til Jónatans Guðjónssonar f. 12.2. 1903 — d. 12.8. 1965
Ég minnist þess, þú varst mér vænn og góður,
Iþú, vinur minn.
Sú minning- verður mætur hjartans sjóður
svo margt eitt sinn.
rrmw
Þín lund var hlý og hugur þinn svo glaður
og hönd þín sterk.
Þú alltaf varst svo yndislegur maður
við óll þín verk.
Ég þakka allt sem áttum við hér saman
um æviveg.
Hjá þér var alltaf ákaflega gaman
þar undi ég.
Ég blð að Drottinn blessi alla þína
í bæn og ást.
Og Liós þitt finn ég alla ævi mína.
Það aldrei brást.
Og blessun þína bezt í hjarta élg geymi
svo biítt og hljótt.
Svo far þú sæll til Guðs í góðum heimi
ó, góða nótt.
Bjössi,
íþréttir
Framh af 11. síðu.
formaður, Örn Eiðsson ritari og
Alfreð Þorsteinsson, gjaldkeri.
Samtök íþróttafréttamanna eru
ekki hagsmunasamtök, aðalfélagar
eru flestir í Blaðamannafélagi ís-
lands, en samtökin hafa reynt að
stuðla að aukinni fræðslu félaga
sinna, m. a. með þátttöku í
fræðslumótum og ráðstefnum er-
Iendis. Samtökin hafa tekið þátt
í öllum Norðurlandaráðstefnum
íþróttablaðamanna, síðan þau voru
stofnuð og tvívegis átt fulltrúa á
þingum Albjóðasambandsins. Þá
hafa samtökin beitt sér fyrir nánu
samstarfi við íþróttaforustuna, m.
a. með viðraeðufundum, sem gef-
ist hafa miög vel og aukið gagn-
kvæman skilning þessara aðila.
Samtök íþróttafréttamanna hafa
viljað gera sitt til að efla íþrótta-
áhugann í landinu og einn liður-
inn í því starfi er að kjósa árlega
,íþróttamann ársins,” einnig gáfu
samtökin á sínum tima farandgrip
fyrir bezta' afrek á kvennameist-
aramótum í frjálsum íþróttum. til
að reyna að auka áhugann á þess-
ari grein íþrótta, sem þá var
næsta lítill.
Samtökin hafa haldið Norður-
landamót íþróttablaðamanna hér
á landi, og er það viðamesta verk
efni samtakanna til þessa. Þátt-
takendur voru milli 40 og 50, þar
af nær 30 erlendir. Þetta var árið
1962 og þótti mótið takast vel, og
er enn til þess vitnað í hópi í-
þróttafréttamanna frá Norður-
löndunum. Á mótinu var lögð á-
herzla á að kynna íþróttalíf lands
manna og m. a. flutti Finnbogi
Guðmundsson landsbókavörður
einkar fróðlelvt erindi um íbrótfir
fornmanna, með hliðsjón af frá-
sögnum í gömlum bókum. Erindið
vakti verðskuldaða athygli, og
varð dr. Finnbogi að svara fjökla
spurninga hinna erlendu gesta,
að erindinu loknu.
Hóladómkirkja
upplýst
Sigurgeir Sigurjönsson
ÓSinsgrötu 4 •— SfmJ 1104S.
hæstarétíarlögmaðtri
Málaílutnin gsskrif síofis
3ifreiðaeigendur
sprautum og réttum
Fljót afgreiðsla
Sifreiðaverkstæðið
Vesturás hf.
Síðumúla 15B. Síml 35740.
frúlofunarhringar
FljAt afgrelðala
Sendum regn p6stkrfif%
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiffur
Bankastrætl 13
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag kl.
4 síðdegis var kveikt á kastljós-
um við dómkirkjuna á Hólum í
Hjaltadal. Eru það alls sex ljós,
sem upplýsa bæði dómkirkjuna
og turninn. Hefur oft verið um
það talað, að vel mundi fara á
slíkri lýsingu, þótt ekki hafi úr
orðið fyrr en nú, að ónafngreind
skagfirzk kona, sem burt er flutt
| úr héraðinu óskaði eftir að fá að
kosta Ijósin og uppsetningu þeirra
að öllu leyti. Verkið sjálft ann-
aðist Sigurbjörn Magnússon raf-
virki á Hofsósi.
Öllum, sem viðstaddir voru,
þótti tilkomumikið að sjá flóð-
ilýsinguna á hinni fornfrægu dóm-
| kirkju og turni hennar, þegar
í kveikt var á ljóskösturunum í
góðu veðri á þriðjudaginn var.
(Frétt frá Þjóðminjasafninu).
oooooooooooooooooooooooooooooooo
Aðalfundur Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur
AÐAI.FUNDUR Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður
haldinn mánudaginn 14. febrúar kl. 8,30 í Iðnó. Á fund-
inum verða venjuleg aðalfundarstörf, en auk þess munu
tveir ungir menn tala: Björgvin Guðmundsson, deildar-
stjóri, um iðnaðinn og innflutningsfrelsið og Sigurður Guð
mundsson, skrifstofustjóri um húsnæðismálin og unga fólk
ið.
öOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÓOOOOi
Aðalfundur kjördæmisráðs-
ins í Reykjaneskjördæmi
AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Reykja
neskjördæmi verður haldinn £ Ajþýðuhúsinu Hafnarfirði,
Sunnudaginn 13. febrúar n.k. og hefst kl. 2. Á dagskrá verð
ur: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Umræður um stjórnmála
viðhorfið, framsögiunenn Emil Jónsson, utanríkisráðherra
og Eggert G. Þorsteinsson félagsmálaráðherra.
Stjórnin.
$ 12. febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ