Alþýðublaðið - 12.02.1966, Side 8
Með rauðan skúf,
í peysu...
Ýmis fleiri skemmtiatriði komu
á eftir, Arndís Finnsson fór meS
kvæði í leikformi. sem fjallaði
um viðhorf Færeyinga til íslands
og íslendinga. Kvæðið var auðvit-
að á færeysku og Arndís var
klædd eins og færeyskur sjómaður
og reykti pípu sína í gríð og erg.
Arndís vakti mikinn fögnuð á-
horfenda og ekki síður, þegar hún
kom fram í gervi atómskáldsins
og fór með tvö atómljóð. — Þær
Sigþrúður Ingimundardóttir og
Helga Þóra Kjartansdóttir fóru
með smáleikþátt, og voru hinar
skoplegustu £ gervi nýgiftra
hjóna. Síðasta atriðið á skemmti-
skránni vakti ekki hvað minnstan
hlátur viðstaddra, en það var
..tízkusýning a la mode 1940,” sem
Kvenfélagið Pilsaþytur stóð fyrir.
Formaður Pilsaþyts (sem Jóna
Garðarsdóttir lékl var kynnir og
var auðvitað sjálf mætt í nýjustu
Diortízkunni árið 1940. Komu
..félagskonur” fram á sviðið í hin-
um furðulegasta fatnaði, og kenndi
þar ýmissa grasa o'g allra furðu-
legra.
Gunnniiaur Vaídimarsoóttír i jslenzkum skautbunm^i.
Eftir að skemmtiatriðunum var
lokið komu svo Ragnar Bjarna-
son og félagar fram á sviðið og
léku fyrir dansi. Dansinn dunaði
og auðséð var að allir viðstaddir
skemmtu sér hið bezta.
Á miðvikudagskvöldið brugðum
við okkur upp í Hótel Sögu, en
þar var þá einmitt verið að lialda
árshátíð hjúkrunarkvennaskóla ís-
lands. Þegar við komum inn var
að hefjast þar sýning á þjóðbún-
ingum frá ýmsum löndum. Þjóð-
búningana höfðu stúlkurnar flesta
fengið að láni hjá frú Þóru Borg,
leikkonu, sem einnig aðstoðaði þær
við undirbúning sýningarinnar.
Stúlkan, sem var kynnir þjóðbún-
ingasýningarinnar. kynnti á frem-
ur óvenjulegan hátt, þar sem hún
lét sér ekki nægja að spgja t.d.
,,Hér kemur stúlka í þjóðbúningi
frá Hollandi,” heldur sagði hún
ýmislegt frá hverju landi, helztu
þjóðháttum og einkennum hvers
lands og síðan var leikið lag frá
viðkomandi landi. stúlkurnar
gengu þannig ein af annarri upp
á sviðið, sumar kannske svolítið
feimnar, eins og gengur. Síðastar
komu tvær stúlkur í íslenzkum
þjóðbúningum, stúlka í íslenzkum
peysuíötum, með skotthúfu og
rauðan skúf, og síðugt kom fram
á sviðið Gunnhildur Valdimars-
dóttir. sem var í íslenzkum skaut
búningi. Stúlkunum var vel fagnað
af öllum viðstöddum.
g 12. febrúar 1966 — AlÞY'J'JhLAÐiÐ